Síður

fimmtudagur, 23. júní 2005

Við skutluðum Kobbaling í höfuðborgina áðan. Sigurjón, vinur hans, er 13 ára í dag og vildi fá æskuvininn til sín. Þeir eru bestu vinir síðan í Sælukoti en þeir munu hafa verið eins árs og tveggja ára þegar þeir hittust fyrst og síðan hefur ekki borið skugga á vinskapinn.
Úr því við vorum komin í höfuðborgina þá notaði ég tækifærið og skoðaði svona "móður brúðarinnar dress." Ég fór í eina búð. Í búð þar sem ég væri örugg á góðri þjónustu. Þ.e. snúastíkringummannþjónustu. Ég fór út með dress. Og hatt. Og nú vantar mig bara ljósbleika skó og ljósbleikt veski og þá er ég þannig að verða klár. Fötin hans Simma míns fara bara í hreinsun og Kobbalingur verður í sínu brettadressi. Það ræðir ekkert um annað. Þá er nú undirbúningur brúðkaups alllangt á veg kominn. Nokkrir lausar endar eftir en ég hnýti þá bráðum.
Vonandi helst þetta frábæra sólbaðsveður eitthvað lengur. Ég kann mér ekki læti hvað sólina varðar. Eigandi skjólgóðan garð og alles. Bara flatmagast og brúnkast. Það var ekki hægt í blokkinni. Og sei, sei, nei.

Engin ummæli: