Síður

miðvikudagur, 29. júní 2005

Það styttist óðum tíminn í brúðkaupið. Ég hefði ekki trúað því hvað er í mörg horn að líta fyrir eitt brúðkaup. En tossalistinn styttist. Ég ætla að skreppa í bæinn í dag að ná í eitt og annað smálegt sem ekki fæst í Þolló. Ég er búin að baka eftirréttinn, hef slett í eitt til tvö form á dag í nokkra daga. Er alveg að hnýta síðustu endana. Búin að fá frábæra konu í eldhúsið. Vantar enn nokkra bílstjóra, svarta skyrtu á Kolbein, nótur og....og... smá meira. Það kemur.
Kobbalingur er farinn norður á Akureyri á fótboltamót. Það var náð í hann klukkan tíu í morgun. Við, Simmi minn, brunum eftir vinnu á morgun. Þannig að við náum bara í tvo leiki hjá honum. Það var ógerningur fyrir Simma að fá frí úr vinnunni. Við sjáum svo til hvort við verðum alla helgina fyrir norðan eða brunum suður aftur og náum í restina á Söngfélagsútilegunni. Fer eftir gengi fótboltaliðsins og veðri.
Eftir viku fæ ég minnsta barnabarnið í fangið, Lúkas Þorlák. Ég fæ kipp í hjartað þegar ég hugsa um það. Ég hlakka svo til.

Engin ummæli: