Síður

þriðjudagur, 3. maí 2005

Skrambans, ansans ári er maður eitthvað orðinn leiðinlegur eða gamall eða eithvað nema maður sé bara gamall og leiðinlegur, það skyldi þó aldrei vera. Nú er óvissuferð kennaranna á morgun og ég nenni alls ekki að fara. Ég hef bara enga afsökun og vil ekki vera félagsskítur. Þannig að ég verð að takast á við þessa óvissu en það er líklega það sem er mergurinn málsins. Mér finnst svo ótrúlega erfitt að fara í svona óvissuferð. Hvernig ætti ég að klæða mig? Það þarf að hafa aukaföt með. Það finnst mér vont mál. Og handklæði, það er enn verra mál því það kallar á snyrtidótið allt, hárblásarann og alls kyns vesen. Svo á að borða einhvers staðar og ég get bara ekki husgað mér að borða og fá mér rauðvín og vera jafnvel í strigaskóm og gallabuxum. Maturinn stæði í mér. Ég er mest hrædd um að ég verði andvaka í nótt, því þetta kallar á mikla skipulagningu af minni hálfu.

Engin ummæli: