Síður

fimmtudagur, 5. maí 2005

Ég ákvað að vera ekki með neinn hégóma í óvissuferðinni og tók með eins lítið af aukadóti og hægt var. Sá mikið eftir því. Varð að borða fínan mat í Hestakránni í gömlum, svörtum (þægilegum) buxum af Svövu Rán, brúnum reimuðum skóm og flíspeysu. Þannig hefði ég aldrei klætt mig heima hjá mér til þess að fara út að borða. Enda leið mér ekki nógu vel. Óvissan í óvissuferðinni var að fara á hestbak. Það var æðislegt. Ég held að ég hafi fengið sama hestinn og fyrir þremur árum þegar við fórum saman saumaklúbburinn. Hann Smyril. Í dag er mér illt í vissum líkamshluta eftir reiðina. En það á eftir að lagast.
Næst ætla ég að vera með fulla tösku af alls konar fötum og dóti.
Vera við öllu búinn.
Hvenær er svo næst? Jú, á morgun.
Það er ekkert lát á skemmtanalífinu.
Reyndar er það ekki óvissuferð, sem betur fer, heldur (vissuferð) vorferð Söngfélagsins.

Engin ummæli: