Síður

sunnudagur, 24. apríl 2005


Skipast hafa veður í lofti. Fjölgað hefur um einn í höllu drottningar. Höfðinginn, Karl Kolbeinn, hringdi og bað um að mega koma til Íslands og klára veturinn í Grunnskólanum í Þorlákshöfn. Honum leist ekki allskostar á sig í hinum nýja skóla í borg englanna. Var það auðsótt hjá ömmu og afa að hann kæmi til okkar. Okkur, Simma mínum, hefur aldrei leiðst að hafa piltinn þann hjá okkur. Hann kom, aleinn, alla leið frá Los Angeles og er búinn að vera tvær vikur í skólanum. Byrjaður á fullu í fótboltanum og fellur strax inn í hópinn, enda þekkir hann marga krakka frá sumarvistunum. Heimilisbragurinn hjá okkur, gamla settinu, hefur breyst, ég segi ekki að hann hafi tekið stakkaskiptum, er bara aðeins öðruvísi. En við erum vön. Kolbeinn hefur verið hjá okkur öll sumur síðan pabbi hans hóf námið í USA. Það sem er öðruvísi núna er að nú erum við með barn í skóla en ekki bara í sumarfríi. En þetta gengur fínt. Bara gaman. Posted by Hello

Engin ummæli: