föstudagur, 13. maí 2005
Ég er í stríði. Ég sagði mosa stríði á hendur og hann tók því. Það vex mosi, mér til mikillar skapraunar, á girðingarkantinum, milli hellnanna í innkeyrslunni og á malbikinu fyrir utan girðingu. Ég vil ekki þennan mosa. Ég keypti mosaeyði og stráði lítilháttar á hann og beið svo róleg. Hélt hann hyrfi og kæmi ekki meir. Sá ekki betur en að hann yrði svartur og bjóst við að hann fyki burt í næsta roki. Viti menn, þegar rigndi næst breytti sá svarti um lit og gerðist fagurgrænn og virtist við hestaheilsu. Mín náði í mosaeitrið og stráði snöggtum meir nú en áður. Sama dagan endurtók sig. Mosinn virtist deyja en í næsta úða varð hann fagurgrænn og hélt greinilega að hann ætti bara heima þarna. Í gær krakaði ég í skrattann með járnhrífu og sópaði með strákústi og fyllti svartan ruslapoka af einhverju sem ég hélt að væri mosi og hélt að það dygði en það er eins og mosinn eigi sér fleiri líf en kötturinn því að í dag var hann bara þarna enn. Ég trúði vart mínum eigin augum þegar ég kom heim úr vinnunni. Fagurgrænt um að litast í kringum húsið mitt. Ég átti eitt ráð enn og það framkvæmdi ég áðan. Ég fór út með járnbursta og burstaði kvikindið í burtu. Nú bíð ég morgundagsins með kvíðahnút í maganum. Ef þetta dugar ekki verð ég líklegast að læra að lifa með helv.........
Engin ummæli:
Skrifa ummæli