miðvikudagur, 19. júlí 2017
miðvikudagur, 10. febrúar 2016
Aftur í ræktina
Ég hef alla tíð stundað einhvers konar líkamsrækt. Alveg síðan ég man eftir. Leikfimi í skóla, sund og handbolti. Frúarleikfimi allskonar eftir að ég varð frú. Kenndi sjálf eróbikk, með Önnu Lú, eftir að hafa lært hjá Jónínu Ben og Ágústu. Synti í sundlaug Þorlákshafnar klukkan sjö á morgnana í 10 ár. Var komin í kílómetrann. Prófaði svo að fara út að hlaupa. Þá var ég orðin sextíu og eitthvað ára. Breytti svo um og fór að lyfta bjöllum. Elska alla hreyfingu. Þegar við, Simmi minn, fórum að reka Meitilinn fann ég ekki lengur tíma til að stunda reglulega hreyfingu. Hætti bara. Það er í sjálfu sér heilmikil hreyfing í vinnunni en einhvern veginn öðruvísi. Hitti svo á Elínu Jóndóttur um daginn en hún er með einkatíma á þeim tíma sem hentar mér. Er núna búin að fara í nokkur skipti og er hrikalega óánægð með hvað mér hefur hrakað í þessi tvö ár sem ég hef ekki gert neitt skipulagt. Mér finnst flest allar æfingar erfiðar. Eitthvað sem ég hefði riggað upp fyrir tveimur árum. Nú er bara að vona að ég verði snögg að ná upp fyrra þreki af því þetta er svo gaman.
miðvikudagur, 27. janúar 2016
Hætt að kenna
Ég var við kennslu í 44 ár. Útskirifaðist úr Kennó 1971 og byrjaði að kenna þá um haustið við Grunnskólann í Þorlákshöfn. Var þar lengst af þó með smá hléum á meðan ég forframaðist á öðrum stöðum. Var einn vetur að nema við Háskóla Íslands, þrjá vetur kenndi ég á Reyðarfirði, einn vetur í Hveragerði og hálfan vetur á Akranesi. Þegar ég var 61 árs hóf ég töku lífeyris enda 95 ára reglan enn við lýði. Kenndi samt þrjá vetur í hálfu starfi eftir það. Hætti alveg vorið 2015. Halldór lét þá af störfum ssem skólastjóri og ég hafði löngu ákveðið að hætta um leið og hann.
Nú er eitt misseri liðið af þessu skólaári og ég hef ekki séð eftir að hafa hætt eitt einasta augnablik, miklu heldur ólýsanlegan létti. Ég var orðin dauðleið á kennslu fyrir löngu. Mér finnst sjálfri ótrúlega skrýtið að segja þetta því kennarinn í mér var alltaf mjög ofarlega á persónukilgreiningunni. Kona, móðir, kennari.
Ég veit náttúrlega ekki hvernig mér liði ef ég væri "bara" heima. Ég hef nóg um að hugsa og nóg að gera í Meiltlinum. En mér finnst svakalega gott að vera heima og dunda mér við hitt og þetta. Finn alltaf eitthvað að gera. Dund og dútl.
Nú er eitt misseri liðið af þessu skólaári og ég hef ekki séð eftir að hafa hætt eitt einasta augnablik, miklu heldur ólýsanlegan létti. Ég var orðin dauðleið á kennslu fyrir löngu. Mér finnst sjálfri ótrúlega skrýtið að segja þetta því kennarinn í mér var alltaf mjög ofarlega á persónukilgreiningunni. Kona, móðir, kennari.
Ég veit náttúrlega ekki hvernig mér liði ef ég væri "bara" heima. Ég hef nóg um að hugsa og nóg að gera í Meiltlinum. En mér finnst svakalega gott að vera heima og dunda mér við hitt og þetta. Finn alltaf eitthvað að gera. Dund og dútl.
fimmtudagur, 21. janúar 2016
Árið 2015 í hnotskurn
![]() |
| Mér var þann heiður sýndur á vínartónleikum Lúðrasveitar Þorlákshafnar í janúar að vera kynnir. |
![]() |
| Elsta barnabarnið mitt, Karl Kolbeinn, útskrifaðist sem stúdent og hóf nám við HR á haustönn. Hann og Magga, kærastan hans, koma aðra hverja helgi til okkar og leysa okkur af í Meitlinum. |
![]() |
| Elskuleg mágkona mín, Jóna Stína, lést í september úr krabbameini eftir ótrúlega stutta legu. Hennar er sárt saknað. |
![]() |
| Alltaf kemur að kveðjustund en Svava Rán og Lúkas komu til Birmingaham með lest og þurftu auðvitað að fara til baka áður en við var litið. |
![]() |
| Við mættum að sjálfsögðu í 4 ára afmæli prinsessunar Heklu 13. nóvember. |
![]() |
| Það var gert opinbert í netmiðlum að Kalli væri búinn að næla sér í kærustu eða öllu heldur að Björk Eiðsdóttir væri búin að fá sér kærasta. |
![]() |
| Alltaf finnst mér jafn gaman að hitta börnin mín og sérstaklega þau saman. Það gerist alltof sjaldan en þannig er nú bara lífið. Við hittumst öll í brúðksupsveislu Hörpu og Arnars í júlí. |
miðvikudagur, 20. janúar 2016
A eða B
Ég hef breyst úr A manneskju í B manneskju. Ég get bara ekki farið fram úr bælinu á morgnana fyrr en eftir klukkan níu í fyrsta lagi. Í gær var klukkan orðin hálf ellefu þegar ég skreiddist fram úr. Ég hef kveikt á útvarpinu og veit þess vegna að ég sofna og vakna til skiptis því ég heyri bara sumt af því sem verið er að fjalla um. Ég fer líklega aðeins seinna að sofa en ég gerði á meðan ég var enn að vinna í skólanum.Ég er alltaf komin upp í rúm fyrir miðnætti, tek bók og les þangað til ég heyri í útvarpinu: Útvarp Reykjavík, klukkan er tólf. Þá slekk ég ljósið og hlusta á fréttirnar og sofna síðan. Ætti samkvæmt ráðleggingum svefndoktora að sofa í 7-8 tíma sem ég líklega geri ef ég mínusa frá mínúturnar sem ég vaki öðru hverju alla nóttina. Þvílík forréttindi að þurfa ekki að fara á fætur á ákveðnum tíma heldur fá að ráða sér sjálfur. Já, það er ljúft að vera hætt að vinna eða þannig.
þriðjudagur, 19. janúar 2016
Nýtt ár
Ég sakna þess dálítið að vera hætt að skrifa smápistla hér. Ég held að fésbóinni sé um að kenna. Hún sýgur úr manni sálina og skilur ekkert eftir. En að skrifa hugleiðingar hér verður til þess að heilinn þarf að starfa og hugsa og koma hugsunum í orð og á læsilegt form. Þyrfti að finna tíma á degi hverjum til að hugsa upphátt hér.
miðvikudagur, 30. júlí 2014
Dótla heim
Er svo spennt fyrir morgundeginum. Dótla kemur á landið kalda með báða strákana sína. Dave hefur ekki komið í nokkur ár og núna stendur til að sýna honum íslenska náttúru og landslög. Það er ekki alveg rétt sem Kalli heldur fram að Dave hafi aldrei fengið að sjá neitt nema Þorlákshöfn. Við höfum farið með hann gullna hringinn og ég veit ekki betur en að honum hafi fundist það bara gaman. Vonandi á hann eftir að njóta Íslands uppi í sveit með útsýni yfir uppsveitir Árnessýslu.
laugardagur, 4. janúar 2014
Aftur í veitingabransann
![]() |
| Gerum rosalega góðar pizzur |
Aldrei veit maður ekki neitt. Er maður ekki bara komin í svona djobb, allt í einu og óforvarandis. Við, Simmi minn, hugsuðum reyndar um þetta í nokkurn tíma og slóum úr og í með það að fara að reka veitingahús enn og aftur. Aðra stundina vorum við ákveðin í því að við værum búin með þennan pakka. Við gætum ekki á gamals aldri verið í vinnunni eftir kvöldmat en viti menn við gátum líka fundið milljón ljósa punkta við að fara að reka veitingastað og hér erum við. Að baka pizzur, steikja hammara og ýmsa aðra góða rétti,brosandi og bjóðandi góðan dag, bjóða fólk velkomið og þjóna á alla lund. Já, aldrei skyldi maður segja aldrei.
fimmtudagur, 2. janúar 2014
Komin á klakann
![]() |
| Ungur nemur, gamall temur |
Þegar við lentum á Fróni, með dótlu og Lúkas með okkur urðum við að koma við á tveimur stöðum til að kaupa inn fyrir Víkingpizza. Við náðum ekki mikilli hvíld áður en við urðum að standa vaktina og baka pizzur. Það var rosalega þægilegt kvöldið, enginn asi, bara jafnt að gera frá fimm til hálf átta. Gott fyrir lúna ferðalanga. Svava Rán og Lúkas komu og borðuðu hjá okkur. Honum finnst ekkert betra en kjúklinganaggar og nóg er til af þeim hjá okkur.
miðvikudagur, 1. janúar 2014
Nýtt ár
![]() |
| Lógóið fyrir Víkingpizza |
Á móti okkur, Simma mínum, tekur nýjasta afkvæmið sem er rekstur Víkingpizza en þann stað byrjuðum við að reka 1. des sl. Við héldum að við værum búin með þann pakka, þ.e. að reka veitingahús en aldrei skyldi maður segja aldrei og við erum bara spennt fyrir þessum rekstri og nýja árið leggst vel í okkur. Mikil vinna bíður okkar en við höfum það mottó að vinna hafi ekki drepið neinn.
fimmtudagur, 4. apríl 2013
Að skrifa upp úr sér
| Örnefni í skólanum |
Ég er búin að bíða spennt, í öll þessi ár, að ég fari nú að skrifa og ég hef staðið í þeirri trú að það verði metsölubók. Það er, jú, enginn tilgangur að skrifa til annars. Metsölubókin hefur ekki enn komið út og mun væntanlega ekki gera.
Ég kveikti svo á perunni áðan að ég er löngu farin að skrifa enda löngu komin á þetta "með aldrinum." Ég hef skrifað pistla í Bæjarlíf í dálítinn tíma. Þetta er líklega þriðji veturinn. Pistlarnir heita Skólalíf og fjalla um einhver málefni tengd skólanum. Ég hef alveg frjálsar hendur, þannig lagað, um hvað ég skrifa svo lengi sem það fjallar um skólann og starfsemina þar. Ég var dálítið stressuð í fyrstu um hvað ég ætti að skrifa og hvort ég gæti það yfir höfuð en reyndi að segja frá því sem var verið að gera í skólanum. Mér fannst svo á öðrum vetri að ég væri farin að endurtaka mig. Enda gengur skólahald svipað fyrir sig, ár frá ári. Upp á síðkastið hef ég ekki haft nokkrar áhyggjur af því hvað ég ætti að fjalla um, ég treysti einhverju innsæi sem býr hið innra og það hefur gengið eftir.
Í dag var ég allt í einu farin að skrifa um nöfnin sem skólastofurnar fengu veturinn 2008-2009 og hafa ekki mikið verið notuð. Mér fannst bara gaman að rifja upp tilurð nafngiftanna og hvernig fólki hefur gengið að venja sig á að nota nöfn í stað númera.
Reyndar á skólastjórinn eftir að gefa grænt ljós á það hvort ég megi senda pistilinn á Bæjarlíf.
föstudagur, 11. janúar 2013
Bóklestur
![]() |
| Fyrsta rafbókin mín |
Um áramótin, í fyrra, keypti ég litla bók, á bókasafninu, þar sem maður skrifar niður allar bækur sem maður les, höfundinn, dagsetningu og úrdrátt úr bókinni. Fyrsta bókin sem ég skráði var jólabókin sem ég fékk á síðustu jólum, en það var Jójó eftir Steinunni Sigurðar og síðasta bókin sem ég skráði var Veiðimennirnir eftir Jussi Adler Olsen, en hana kláraði ég rétt fyrir jól. Sú bók reyndist vera númer 32. Ég náði að lesa 0,6 bækur á viku árið 2012.
Nú stendur til að gera betur. Ég fékk þessa fínu spjaldtölvu í jólagjöf og keypti mína fyrstu rafbók á aðfangadagskvöld en það var Dóttir húshjálparinnar eftir Barböru Mutch.
Mér finnst miklu auðveldara að lesa á spjaldtölvuna heldur en í bók en ég mun varla tíma að kaupa allar bækur sem mig langar að lesa, þannig að að ég verð nú að taka eina og eina venjulega bók, af bókasafninu, inn á milli.
En byrjunin lofar góðu.
mánudagur, 7. janúar 2013
Að kenna fullorðnum
![]() |
| Fræðslunet Suðurlands |
Í morgun undirbjó ég mig aftur á móti til þess að kenna Auðunar þátt vestfirska í næsta tíma ásamt ýmsum, blönduðum verkefnum í málfræði.
Það er ótrúlega skemmtilegt að kenna fullorðnum.
laugardagur, 5. janúar 2013
Spjaldtölvur
Ég hef oft sagt að ég voni það að tækninni fleygi ekki það ört fram, á meðan ég er ofar moldu, að ég geti ekki fylgst með. Oft hef ég líka sagt að nú sé bara komið nóg í bili. Maður hefur ekki við að skilja allar nýjungar. En það er alltaf eitthvað nýtt, eiginlega á hverjum degi.
Nýja flotta spjaldtövan mín Ég fékk í jólagjöf frá honum, Simma mínum, spjaldtölvu. Hann hafði heyrt mig tala um það að mig langaði í svona grip, áður en ég yrði of gömul til að læra á hann. Sem betur fer náði hann þessari ósk minni þannig að úr varð jólagjöf.
Ég sá og skildi kosti spjaldtölvunnar fyrir mig. Það er í þokkalegu lagi með sjónina mína nema til lestrar. Mér finnst stafirnir dansa og allt letur í móðu þannig að ég var farin að lesa uppi í rúmi með bensíngleraugu ofan á mínum eigin gleraugum og til viðbótar leslampann alveg ofan í bókinni. Spjaldtölvan hefur innibyrgt ljós og maður getur valið sér leturstærð. Þetta sá ég í hillingum með öldrun í huga. Ég get ekki hugsað mér framtíðina án lesturs góðra bóka.
Nú er ég búin að læra á gripinn. Svava Rán byrjaði að hjálpa mér að skilja en ég var svo heppin að vera stödd hjá henni í Wales þegar ég tók jólapakkann upp. Hún tengdi tölvuna við netið og strax þarna, á aðfangadagskvöld, keypti ég fyrstu rafbókina mína. Ég fékk svo Magnþóru til mín og fékk hjá henni góða kennslu á þetta. Ég lærði líka að maður verður að spyrja eins og fávís kerling til að fá svör við öllum spurningunum sem brenna á manni.
Hvernig getur bók allt í einu verið í litlu spjaldtölvunni minni? Stórundarlegt.
Ég er alveg hrikalega ánægð með jólagjöfina frá honum, Simma mínum, í ár.
föstudagur, 4. janúar 2013
Aftur til vinnu
![]() |
| Grunnskólinn í Þorlákshöfn |
fimmtudagur, 3. janúar 2013
Árið 2012 í hnotskurn
| Simmi minn er alltaf að læra eitthvað nýtt á tölvuna sína. Seigur sá gamli. Kominn á facebook en tjáir sig lítt þar. Segir það vera vegna gamallar lesblindu. |
| 21. maí rann upp stór dagur. Ég fór í brjóstaminnkun. Ein sú besta ákvörðun sem ég hef tekið. Þó að aðeins um hálft kíló hafi verið tekið af hvoru brjósti er það ótrúlega mikill léttir |
| Allar helgar sumarsins förum við eitthvert með Sólbrekku í eftirdragi og slökum á úti í guðsgrænni náttúrunni. |
| Við fórum hringinn í ágúst og komum m.a. við í Atlavík. Það fór hitinn upp í 28 gráður. |
| Þegar hausta tekur er farið að huga að vetrarforðanum. Nokkur slátur voru tekin og einn hestur á fæti til að salta í tunnu en blessuð skepnan er lifandi enn. |
| Við komum heim á annan í jólum og eyddum áramótunum með Kalla og kó hjá Dóru Sif og kó. |
miðvikudagur, 22. ágúst 2012
Fitusog
![]() |
| Flott breyting eftir fitusog |
Þórdís var búin að vara mig við að eftir aðgerð myndi ég verða meira var við bumbuna. Enda létti ég mig meira en hún bað um, bara til að vera betur undir bumbuáfall búin. Það kom í ljós að ég vissi ekki hversu stór maginn í raun væri. Ég sá aldrei neitt annað en brjóst. Núna er ég alveg ómöguleg yfir því hve maginn er stór. Ég er að reyna að passa upp á mataræðið og það gengur þokkalega nema hvað sumarfríið fór aðeins með það.
Ég er byrjuð aftur að synda reglulega en hef ekki komist í hlaupagírinn eftir sumarfrí.
Þórdís sáði frækorni í heilann á mér í morgun þegar ég kvartaði yfir stórum maga. Hún sagðist alveg geta hjálpað mér. Mér snarbrá og spurði hvort hún væri að meina að ég færi í svuntuaðgerð.
"Já, eða fitusog", sagði hún.
Nú get ég ekki um annað hugsað og er búin að lesa um fitusog á netinu og horfa á myndband þar sem einmitt hún Þórdís mín er að framkvæma fitusog á konu.
http://www.visir.is/section/MEDIA99&fileid=CLP815
Það ku vera rétt að sá sem fer í eina lýtaaðgerð getur ekki hætt.
þriðjudagur, 3. júlí 2012
Aftur að synda
Í gær voru sex vikur frá brjóstaaðgerðinni. Í bæklingnum, um brjóstaminnkun, stendur að það megi ekki stunda líkamsrækt fyrr en 6-8 vikum eftir aðgerð. Samt sagði einhver á spítalanum að ég ætti að hlusta á líkamann.
Ég fór í sund á föstudaginn í fyrsta skipti en synti bara 6 ferðir af því mér fannst ég finna fyrir "einhverju." Í gær skokkaði og labbaði ég 4 kílómetra og fannst litlu brjóstin mín hoppa of mikið í fína haldaranum. Allt í einhverju stressi hjá mér. Kannski er ég bara að passa mig of mikið og of hrædd við að gera hlutina.
Mér hefur alltaf þótt vont að setjast fram á rúmstokkinn á morgnana eða á nóttinni við næturpissið en í morgun fann ég ekkert til. Þvílíkur munur. Ég hef alltaf fundið eins og straum í brjóstunum eða eins og eitthvað streymi inni í þeim. Alveg eins og þegar ég fór fyrst á fætur eftir aðgerð. Það er andskoti vont. Vonandi er þessi "straumur" alfarinn.
Ég skellti mér í sund í morgun, með húnaflokknum og ég fann ekkert til í sundinu. Þorði meira að segja að prófa skriðsund og bakskrið og ekkert mál. Ég synti bara 20 ferðir en finn að þetta er allt að koma.
Kannski höfðu brjóstin bara gott af því í gær að hoppa pínu pons.
Ég fór í sund á föstudaginn í fyrsta skipti en synti bara 6 ferðir af því mér fannst ég finna fyrir "einhverju." Í gær skokkaði og labbaði ég 4 kílómetra og fannst litlu brjóstin mín hoppa of mikið í fína haldaranum. Allt í einhverju stressi hjá mér. Kannski er ég bara að passa mig of mikið og of hrædd við að gera hlutina.
Mér hefur alltaf þótt vont að setjast fram á rúmstokkinn á morgnana eða á nóttinni við næturpissið en í morgun fann ég ekkert til. Þvílíkur munur. Ég hef alltaf fundið eins og straum í brjóstunum eða eins og eitthvað streymi inni í þeim. Alveg eins og þegar ég fór fyrst á fætur eftir aðgerð. Það er andskoti vont. Vonandi er þessi "straumur" alfarinn.
Ég skellti mér í sund í morgun, með húnaflokknum og ég fann ekkert til í sundinu. Þorði meira að segja að prófa skriðsund og bakskrið og ekkert mál. Ég synti bara 20 ferðir en finn að þetta er allt að koma.
Kannski höfðu brjóstin bara gott af því í gær að hoppa pínu pons.
miðvikudagur, 27. júní 2012
Hlaupaföt
Ég gekk litla hringinn minn, rösklega, í gær en skokkaði hann í dag. Allan. Þrjá og hálfan kílómetra. Það kom enginn bakverkur en ég fann fyrir slöppum vöðvum í fótleggjum og svo varð ég svo móð. En gafst ekki upp.
Ég fór að velta fyrir mér hlaupabúningnum mínum. Það er víst eins gott að ég er bara að hlaupa í einrúmi en ekki í hóp því ég myndi setja ljótan blett á fatastílinn.
Ég fór að velta fyrir mér hlaupabúningnum mínum. Það er víst eins gott að ég er bara að hlaupa í einrúmi en ekki í hóp því ég myndi setja ljótan blett á fatastílinn.
| Næst nýjasta hlaupadótið. Geggjaðir sokkar sem ég keypti í Nikebúð í bítlaborginni Liverpol í vor." Dry-fit" og merktir með L og R svo maður fari örugglega rétt í þá. |
| Þarna sést í naríurnar mínar. Gasalega góðar úr Merinóull, keyptar í Álafossbúðinni. Gallinn er bara sá að þær detta út í götum. Sem er ekki smart en ég nota þær samt. |
| Ekki er hægt að hlaupa nema eiga góða skó. Ég er svo heppin að dótla mín sér um þann þáttinn og hefur tvisvar sent mér skó frá Bretlandi. Það munar svo milu á verði. Þessa fékk ég í jólagjöf. |
mánudagur, 25. júní 2012
Aftur að skokka
| Kannski er ekkert skrýtið þó ég hafi fengið bakverki við að skokka með öll þessi ósköp framan á mér. |
Besta var að ég fékk engan bakverk eins og svo oft þegar ég skokka. Kannski hafa gömlu stóru brjóstin verið orsakavaldur að bakverkjum. Ég setti það aldrei í samhengi. En ég hef ekki fundið fyrir neinum bakverkjum eftir aðgerð. Ég fékk alltaf verk, hægra megin í bakið aðeins fyrir ofan mitti, þegar ég ryksugaði, það sáran að ég varð oft á tíðum að taka pásu. Ég fann ekki fyrir neinu þegar ég ryksugaði fyrir helgi.
Nú er spurning með vöðvabólguna. Fer hún sjálfkrafa eða verð ég að fara í nudd?
Ég ætla að bíða og sjá til.






















