Ég hef oft sagt að ég voni það að tækninni fleygi ekki það ört fram, á meðan ég er ofar moldu, að ég geti ekki fylgst með. Oft hef ég líka sagt að nú sé bara komið nóg í bili. Maður hefur ekki við að skilja allar nýjungar. En það er alltaf eitthvað nýtt, eiginlega á hverjum degi.
Nýja flotta spjaldtövan mín Ég fékk í jólagjöf frá honum, Simma mínum, spjaldtölvu. Hann hafði heyrt mig tala um það að mig langaði í svona grip, áður en ég yrði of gömul til að læra á hann. Sem betur fer náði hann þessari ósk minni þannig að úr varð jólagjöf.
Ég sá og skildi kosti spjaldtölvunnar fyrir mig. Það er í þokkalegu lagi með sjónina mína nema til lestrar. Mér finnst stafirnir dansa og allt letur í móðu þannig að ég var farin að lesa uppi í rúmi með bensíngleraugu ofan á mínum eigin gleraugum og til viðbótar leslampann alveg ofan í bókinni. Spjaldtölvan hefur innibyrgt ljós og maður getur valið sér leturstærð. Þetta sá ég í hillingum með öldrun í huga. Ég get ekki hugsað mér framtíðina án lesturs góðra bóka.
Nú er ég búin að læra á gripinn. Svava Rán byrjaði að hjálpa mér að skilja en ég var svo heppin að vera stödd hjá henni í Wales þegar ég tók jólapakkann upp. Hún tengdi tölvuna við netið og strax þarna, á aðfangadagskvöld, keypti ég fyrstu rafbókina mína. Ég fékk svo Magnþóru til mín og fékk hjá henni góða kennslu á þetta. Ég lærði líka að maður verður að spyrja eins og fávís kerling til að fá svör við öllum spurningunum sem brenna á manni.
Hvernig getur bók allt í einu verið í litlu spjaldtölvunni minni? Stórundarlegt.
Ég er alveg hrikalega ánægð með jólagjöfina frá honum, Simma mínum, í ár.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli