 |
| Fræðslunet Suðurlands |
Ég tók að mér verkefni fyrir Fræðslunet Suðurlands á síðastliðinni haustönn. Hringt var í mig og ég beðin að kenna fullorðnum íslensku í Þorlákshöfn þar sem til stæði að setja upp útibú Grunnmenntaskóla, frá Selfossi. Ég hélt fyrst að ég réði ekki við þetta verkefni en féllst samt á að koma á fund og ræða málið við verkefnastjóra. Þegar mér varð ljóst að námefnið yrði nánast sama efni og 10. bekkjar námsefni þá sló ég til. Ég kann 10. bekkjar námefnið, þannig lagað. Ég kenndi 60 kennslustndir á haustönn og nú er síðasti hlutinn að hefjst. Ég á eftir að kenna 30 stundir og þá eiga nemendur mínir að geta tekið 102 í íslensku. Þá kemur að því að ég þarf að hugsa upp úr grunnskólanum og á framhaldskólastigið. Það verður nú bara gaman enda ég er ég byrjuð að undirbúa væntanlegt próf.
Í morgun undirbjó ég mig aftur á móti til þess að kenna Auðunar þátt vestfirska í næsta tíma ásamt ýmsum, blönduðum verkefnum í málfræði.
Það er ótrúlega skemmtilegt að kenna fullorðnum.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli