Í gær voru sex vikur frá brjóstaaðgerðinni. Í bæklingnum, um brjóstaminnkun, stendur að það megi ekki stunda líkamsrækt fyrr en 6-8 vikum eftir aðgerð. Samt sagði einhver á spítalanum að ég ætti að hlusta á líkamann.
Ég fór í sund á föstudaginn í fyrsta skipti en synti bara 6 ferðir af því mér fannst ég finna fyrir "einhverju." Í gær skokkaði og labbaði ég 4 kílómetra og fannst litlu brjóstin mín hoppa of mikið í fína haldaranum. Allt í einhverju stressi hjá mér. Kannski er ég bara að passa mig of mikið og of hrædd við að gera hlutina.
Mér hefur alltaf þótt vont að setjast fram á rúmstokkinn á morgnana eða á nóttinni við næturpissið en í morgun fann ég ekkert til. Þvílíkur munur. Ég hef alltaf fundið eins og straum í brjóstunum eða eins og eitthvað streymi inni í þeim. Alveg eins og þegar ég fór fyrst á fætur eftir aðgerð. Það er andskoti vont. Vonandi er þessi "straumur" alfarinn.
Ég skellti mér í sund í morgun, með húnaflokknum og ég fann ekkert til í sundinu. Þorði meira að segja að prófa skriðsund og bakskrið og ekkert mál. Ég synti bara 20 ferðir en finn að þetta er allt að koma.
Kannski höfðu brjóstin bara gott af því í gær að hoppa pínu pons.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli