miðvikudagur, 10. febrúar 2016
Aftur í ræktina
Ég hef alla tíð stundað einhvers konar líkamsrækt. Alveg síðan ég man eftir. Leikfimi í skóla, sund og handbolti. Frúarleikfimi allskonar eftir að ég varð frú. Kenndi sjálf eróbikk, með Önnu Lú, eftir að hafa lært hjá Jónínu Ben og Ágústu. Synti í sundlaug Þorlákshafnar klukkan sjö á morgnana í 10 ár. Var komin í kílómetrann. Prófaði svo að fara út að hlaupa. Þá var ég orðin sextíu og eitthvað ára. Breytti svo um og fór að lyfta bjöllum. Elska alla hreyfingu. Þegar við, Simmi minn, fórum að reka Meitilinn fann ég ekki lengur tíma til að stunda reglulega hreyfingu. Hætti bara. Það er í sjálfu sér heilmikil hreyfing í vinnunni en einhvern veginn öðruvísi. Hitti svo á Elínu Jóndóttur um daginn en hún er með einkatíma á þeim tíma sem hentar mér. Er núna búin að fara í nokkur skipti og er hrikalega óánægð með hvað mér hefur hrakað í þessi tvö ár sem ég hef ekki gert neitt skipulagt. Mér finnst flest allar æfingar erfiðar. Eitthvað sem ég hefði riggað upp fyrir tveimur árum. Nú er bara að vona að ég verði snögg að ná upp fyrra þreki af því þetta er svo gaman.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli