Síður

fimmtudagur, 21. janúar 2016

Árið 2015 í hnotskurn

Mér var þann heiður sýndur á vínartónleikum Lúðrasveitar Þorlákshafnar í janúar að vera kynnir. 
Elsta barnabarnið mitt, Karl Kolbeinn, útskrifaðist sem stúdent og hóf nám við HR á haustönn. Hann og Magga, kærastan hans, koma aðra hverja helgi til okkar og leysa okkur af í Meitlinum. 
Elskuleg mágkona mín, Jóna Stína, lést í september úr krabbameini eftir ótrúlega stutta legu. Hennar er sárt saknað. 
Alltaf kemur að kveðjustund en Svava Rán og Lúkas komu til Birmingaham með lest og þurftu auðvitað að fara til baka áður en við var litið.
Hið árlega jólarallí með Öldu og Valda var með öðru sniði nú en áður þar sem við eyddum fimm dögum í Birmingham. Harpa, Benni og Friðborg sáu um Meitilinn á meðan. Þetta var alveg dásamleg ferð í alla staði og bónusinn var að fá Lúkas og Svövu Rán í heimsókn í einn sólarhring. 
Við mættum að sjálfsögðu í 4 ára afmæli prinsessunar Heklu 13. nóvember.
Ég varð mjög glöð þegar Nanna bað mig um að hjálpa sér við að fara yfir Gísla sögu Súrssonar fyrir próf. Við fórum yfir alla bókina á einni helgi og ræddum um hana enda fékk hún toppeinkunn á prófinu.
Það var gert opinbert í netmiðlum að Kalli væri búinn að næla sér í kærustu eða öllu heldur að Björk Eiðsdóttir væri búin að fá sér kærasta. 
Í september skiptum við á Sólbrekku og húsbíl. Þó að hið eiginlega útilegutímabili hafi verið lokið fórum við samt í fjórar stuttar reisur til að prófa gripinn. Við erum rosalega ánægð með þessi skipti og höldum að bíll henti okkur betur en hjólhýsi.
1. apríl 2015 tókum við, Simmi minn, við rekstri bakaríisins í Þorlákshöfn. Þetta var mikil viðbótarvinna við rekstur Meitilsins og vorum við oft rosalega þreytt eftir langan vinnudag. Sem betur fer komu frelsandi englar og keyptu bakaríið af okkur en Benni og Harpa tóku við rekstrinum í lok nóvember. 
Ég er forfallinn skraflfíkill og eyði alltof miklum tíma á degi hverjum í skrafl en þessi nýi íslenski vefur er svo flottur og svo skemmtilegt að spila að ég ræð ekki við mig. Þetta kemur niður á bóklestri og prjónaskap en afsökunin er að þetta heldur heilasellunum gangandi.
Alltaf finnst mér jafn gaman að hitta börnin mín og sérstaklega þau saman. Það gerist alltof sjaldan en þannig er nú bara lífið. Við hittumst öll í brúðksupsveislu Hörpu og Arnars í júlí.
Létum verða af því að mála húsið í sumar enda var það múrað upp á nýtt í fyrrasumar. Við tókum vinkil á litinn á hurðum og gluggum og máluðum það kókakólarautt án þess að spyrja nágranna okkar, sem við hefðum líklega átt að gera þar sem við búum í raðhúsi. En við erum hæstánægð og enginn hefur kvartað.



Lúkas og Svava Rán komu heim í sumar til að vera viðstödd brúðkaup Hörpu. Lúkas bað um að fá að fara í útilegu, hoppa á trampólíni, skoða Gullfoss og geysi. Þessar óskir fékk hann allar uppfylltar og heimsókn í Slakka að auki og buðum við Viktori Inga með í ferðina.

Engin ummæli: