 |
| Lógóið fyrir Víkingpizza |
Á þessu, nýja ári, 2014 vöknuðum við Simmi minn í Rhosllenercrugog, 46 Market street í húsi dótlu, Dave og Lúkasar. Hér höfum við dvalið síðan á annan í jólum og notið hverrar mínútu. Við höfum kíkt í búðir í Wrexham, fórum með lest til Liverpool og kíktum aðeins í Cavern club, fórum einn daginn í langan göngutúr um sveitavegi og heilsóttum Heather og Jim. Veðrið hefur verið ágætt,þó rignt hafi aðeins endrum og sinnum. Við förum heim á morgun og ætla dótla og Lúkas að koma með okkur og vera á Fróni í eina viku.
Á móti okkur, Simma mínum, tekur nýjasta afkvæmið sem er rekstur Víkingpizza en þann stað byrjuðum við að reka 1. des sl. Við héldum að við værum búin með þann pakka, þ.e. að reka veitingahús en aldrei skyldi maður segja aldrei og við erum bara spennt fyrir þessum rekstri og nýja árið leggst vel í okkur. Mikil vinna bíður okkar en við höfum það mottó að vinna hafi ekki drepið neinn.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli