| Í jólaskapi |
mánudagur, 26. desember 2011
Annar í jólum
sunnudagur, 25. desember 2011
Jólin 2011
| Eftir skötuát í Rauða húsinu |
| Maturinn kominn á borð |
Jólamaturinn okkar er Hamborgarhryggur eins og mörg undanfarin ár. Við höldum að á fyrstu jólunum okkar saman hafi verið lambakótelttur í matinn. Við erum að pæla í að endurvekja þann sið. Það er svo erfitt að borða Hamborgarhrygg einn daginn og hangikjöt þann næsta. En það er nú ýmislegt öðruvísi nú en áður. Ég bakaði ekki fulla stampa af smákökum eins og alltaf. Við höfðum ekki jólagraut í gær eins og alltaf. Fengum okkar smá slettu af heimatilbúna jólaísnum í eftirrétt. Sem sagt engin möndlugjöf. Og ekki nóg með það, við elduðum hangikjötsrúllu en höfum ekki lyst á að borða það núna. Höfum samt alltaf gert það. Það sem breytist ekki er meðlætið með hryggnum þ.e.rósakálið og bleika ógeðið. Jóladagskaffið hjá mömmu og pabba er fastur liður í jólahaldi. Við áttum mjög ljúfa stund hjá þeim í dag en ég sakna barnanna minna og barnabarna hvað mest þar því systur mínar hafa sína afkomendur með í boðinu. Samt ekki alveg alla. Þannig er það nú bara. Kalli kemur nú reyndar oftast en veðrið setti strik í reikninginn í dag. Ég kvarta samt ekki. Svava Rán og Lúkas voru hjá okkur í heila viku fyrir jól. Það var náttúrlega alveg æðislega gaman.
| Bara gaman á jólunum |
þriðjudagur, 6. desember 2011
Bara
| Allar götur fullar af snjó |
Ég verð líklega að drífa mig í sund líka þá daga sem ég er bara heima. Ég hef allavega nægan tíma til þess. Í morgun var sundlaugarvatniðreyndar svo kalt að ég var ekki búin að ná upp hita í skrokkinn eftir 30 ferðir svo ég gafst upp og fór í heita pottinn.
En það er bara næs að hanga í heita pottinum. Það gerir gamla kroppi bara gott.
Það lítur út fyrir að íslenska orðið bara sé í uppáhaldi hjá mér.
mánudagur, 28. nóvember 2011
Minningarorð
![]() |
| Ásta og Simmi sumarið 2004 |
Það líður ekki sá dagur að ég hugsi ekki um Ástu
mágkonu. Ég sakna hennar svo mikið og
átti eftir að gera svo margt með henni. Hún dó, aðeins 65 ára gömul 23. júlí
s.l og var jarðsungin frá Hallgrímskirkju þann 5. ágúst. Hún var jarðsett í Þorlákshöfn, rétt hjá
mömmu sinni.
Ég man fyrst eftir Ástu sem ungri stúlku í Þorlákshöfn, úti að
ganga með Baldvin kaupfélagsstjóra. Mér fannst það mjög rómantískt. Hún hefur
líklega verið skiptinemi í Ameríku
fyrsta sumarið mitt í Þorlákshöfn, svo göngutúrar með Baldvin hafa verið
sumarið 1965 eða 1966.
Það var svo 1969 sem ég fer að koma á heimili foreldra
hennar sem kærasta Simma en þá er Ásta farin að búa með Jonna og Hrefna litla fædd.
Það var alltaf svo gaman að koma til þeirra í heimsókn enda vel tekið á móti
okkur. Margar góðar minningar á ég um
Ástu og Jonna, Dóru Sif og Hrefnu.
Fyrsta sólarlandaferðin var farin með
þeim á Costa del sol. Mér fannst þau svo sigld og klár og flott og fín
enda bjuggu þau í Noregi um tíma þar sem þau stunduðu bæði nám. Ásta var búin
með hjúkrunarskólann og bætti við sig heilsuverndarhjúkrun sem hún vann svo við
í Reykjavík í mörg ár. Þegar þau fluttu
svo seinna til Gautaborgar í Svíþjóð, í frekara nám, fylgdum við Simmi þeim út
og gerðum úr þessu frábæra skemmtiferð með viðkomu í Kaupmannahöfn. Þar kynnti Jonni
fyrir okkur þeim ágæta mat pizza og hann fór með okkur á jazzbúllu. Upplifun fyrir okkur Simma.
Ásta var mikil smekkmanneskja, hvort sem það var klæðnaður
eða híbýlaprýði. Hún var alltaf svo vel klædd og kunni að velja sér fatnað sem kælddi hana. Hárið alltaf fínt og
stíllinn allur elegant. Hún var lágvaxin en var samt svo stór, hnarreist og
spengileg.
Það var sama hvar hún bjó sér heimili, það var alltaf
fallegt. Hún vildi hafa fallega hluti í kringum sig og kunni að velja saman það
sem passaði. Allt frá húsgögnum, myndum
á veggjum og niður í smæstu hluti sem hún skreytti heimilið með var á réttum
stað og féll saman.
Hún unni góðri, sígildri tónlist og var dugleg að sækja
menningarviðburði, leikhús og tónleika.
Ekkert var eins gaman og þegar hún bauð okkur Simma í mat.
Matarboðin hennar voru svo glæsileg. Nostrað við hvert smáatriði, hvort sem það
var matseldin sjálf , hvernig maturinn var framreiddur eða hvernig lagt var á
borð. Það skipti hana miklu máli að hafa
allt fallega borið fram. Fyrir utan hvað
hún kunni vel að leggja á borð var hún frábær kokkur. Það var alltaf eitthvað
spennandi í pottunum hennar. Einu sinni
þegar hún bjó á Seyðisfirði, með Ingimundi, hafði hún mikið fyrir því að ná í
hreindýrakjöt, því hún vildi allt það besta fyrir Simma bróður. Hún varð því
frekar sár þegar hún komst að hvers konar gikkur hann er því hann vill helst
ekki prófa neitt nýtt.
Ásta var mikil heimsmanneskja. Hún hafði komið til margra landa
og hafði mjög gaman af að ferðast. Hún kom oft til Rómar eftir að Hrefna flutti
þangað enda fylgdist hún vel með barnabörnunum þremur og reyndist þeim afar góð
amma. Hún fylgdist líka vel með börnum systkina sinna og var dugleg að spyrja
um þau öll. Síðasta utanlandsferið hennar var til þess að ljúka við
Jakobsveginn. Hún gekk hann, ásamt vinkonum sínum, í þremur áföngum. Hún lagði
ríka áherslu á að klára seinasta hlutann í vor. Hún var orðin veik þegar hún
gekk en krafturinn svo mikill að það var ekki annað viðkomandi en að ljúka við
verkið.
Ásta fékk sýkingu í lungun sem leiddi hana til dauða. Mig
grunaði ekki, þegar við hittumst 17.júní í Reykjavík og fengum okkur að borða á
veitingahúsi, að það yrði síðasta máltíðin okkar saman.
Lífið getur verið hræðilega óréttlátt. Ásta átti eftir að
gera svo margt.
Jólaundirbúningur.
| Aðventukransinn minn |
Ég hef líka alltaf bakað heilmikið fyrir jól en hent kökunum úr stömpunum í desember að ári svo nýju kökurnar fái pláss. Ég tók þá ákvörðun núna að baka ekki neitt. Ég bakaði nú samt í gær eina smákökusort en það var allt fyrir Nönnu ömmustelpu. Hún bakaði kökur í skólanum sem henni fannst svo góðar en fékk ekki að fara með þær heim af því það á að borða þær á litlu jólunum í skólanum. Hún var það klók að skrifa niður uppskriftina og mundi hana það vel að við gátum skellt okkur í að baka. Í ljós kom að þetta voru rúsínukökurnar sem mamma bakaði alltaf fyrir jólin í den og voru mitt uppáhald nema hvað rúsínum hafði verið skipt út fyrir súkkulaði. Ég bakaði líka eina skúffuköku fyrir hann Simma minn. Hann er allt í einu eitthvað voða spenntur fyrir því að eiga brúnköku sem hann getur nælt sér í öðru hverju með mjólkurglasi. Mér finnst gaman að baka og mun að sjálfsögðu verða við þessari ósk. En fullir stampar af smákökum verða ekki í skápunum um þessi jól.
Það gæti nú samt dottið í mig að baka smá fyrir mömmu.
Tvær þrjár smákökusortir.
Jafnvel lagtertu.
sunnudagur, 20. nóvember 2011
Ljósatré
Við, Simmi minn, notuðum góða veðrið um síðustu helgi og hengdum þrjár ljósaseríur í öspina í garðinum. Ekki tókst betur til en svo að ljósin vildu hrúgast einhvern veginn öll á sama stað þannig að ég var ekki nógu ánægð með útkomuna. Við fórum þess vegna í höfuðhreppinn í gær og keyptum tvær alveg eins seríur í viðbót en þær eru þannig að það er hægt að bæta endalaust við.
Þessar tvær voru settar upp í gær svo núna eru 500 ljós á trénu en samt væri hægt að bæta 500 í viðbót. Það er nóg pláss ennþá.
Þetta verður látið duga í ár.
Ljósatré eða perutré eins og Dillí á Reyðarfirði kallaði það.
Jólaljósaperutré.
| Tréð er ekki á hið í garðinum en vill vera svona hér. |
Þetta verður látið duga í ár.
Ljósatré eða perutré eins og Dillí á Reyðarfirði kallaði það.
Jólaljósaperutré.
laugardagur, 19. nóvember 2011
Leikhúsferð
Ég er svo heppin að hafa minn eigin leikhúsferðstjóra. Ef ég hefði hann ekki færi sjálfsagt eignilega aldrei í leikhús. Svilkona mín fylgist miklu betur en ég með því sem er að gerast í leikhúsum borgarinnar og sendir mér öðru hverju símaskilaboð, tðlvupóst eða skillaboð á fésbók um að hún hafi pantað miða, þennan dag á þetta leikverk. Ég tek daginn frá og svo förum við að sjá eitthvað spennandi. Í gær var það Hjónabandssæla í Gamla bíói, með þeim Eddu Björgvins og Ladda í aðalhlutverkum. Þau eru tvö allan tímann á sviðinu og skila hlutverkum sínum auðvitað alveg frábærlega. Þau leika miðaldra hjón, sem eru komin í helgardvöl á hóteltil þess að finna ástarneistann aftur. Maður kannaðist við ýmislegt sem fór á millum þeirra og hláturinn var ekki langt undan.
Frábært kvöld með góðum vinum
![]() |
| Hjón í krísu |
Frábært kvöld með góðum vinum
föstudagur, 18. nóvember 2011
Ánægð hlaupakelling
| Heldur betur ánægð eftir 3 km hlaup í Reykjavíkurmaraþoni |
Veðrið var eins og best verður á kosið í nóvember. Austan gola, þurrt og mátulega hlýtt.
Gott hlaupaveður.
fimmtudagur, 17. nóvember 2011
Skondnar uppákomur.
Hann er svo skondinn og skemmtilegur þessi heimur. Alltaf er hann að skreppa saman og ég hef alltaf jafn gaman af því þegar dæmi um það skjóta upp kollinum. Netið á nú aldeilis stóran þátt í því hvað heimurinn hefur minnkað.
Í fyrravetur langaði einn nemenda minn, af erlendu bergi brotinn, að fræðast um Gullfoss og Geysi. Ég sagði honum frá og lét hann svo "gúggla" Gullfoss og skoða myndir. Margar fínar myndir komu upp af Gullfossi en ein líka af Svövu Rán og Lúkasi við fossinn. Ég missti næstum andlitið af undrun en þá hafði ég sjálf sett þessa mynd á netið og texta við, þannig að hún spratt upp.
Í dag var annar nemandi minn, stelpa frá Tælandi, að vinna með texta og þurfti að fá útskýringu á hvað blómsveigur væri. Hún notaði líka Google translate og fór inn á myndir. Hún fékk upp ýmsar myndir af fólki að leggja blómsveiga á leiði eða styttur en ein myndin var af tengdadóttur minni. Ég athugaði af hverju hún kæmi upp og það var vegna þess að hún hefur lagt blómsveiga á leiði, bæði Jóns Sigurðssonar og Bríetar Bjarnhéðinsdóttur sem forseti borgarstjórnar.
Þetta var eiginlega alveg ótrúlegt í bæði skiptin.
Svona er heimurinn í dag.
| Frú forseti borgarstjórnar |
| Svava Rán og Láki við Gullfoss |
Í dag var annar nemandi minn, stelpa frá Tælandi, að vinna með texta og þurfti að fá útskýringu á hvað blómsveigur væri. Hún notaði líka Google translate og fór inn á myndir. Hún fékk upp ýmsar myndir af fólki að leggja blómsveiga á leiði eða styttur en ein myndin var af tengdadóttur minni. Ég athugaði af hverju hún kæmi upp og það var vegna þess að hún hefur lagt blómsveiga á leiði, bæði Jóns Sigurðssonar og Bríetar Bjarnhéðinsdóttur sem forseti borgarstjórnar.
Þetta var eiginlega alveg ótrúlegt í bæði skiptin.
Svona er heimurinn í dag.
miðvikudagur, 16. nóvember 2011
Af gömlum kennara
Það er komin allnokkur reynsla á þetta nýja líf mitt, þ.e. að vera bara hálfdagskerling eins og það var sagt um konur sem unnu bara hálfan daginn í Meitlinum í gamla daga. Ég er búin að vera hálfdagskerling síðan skóli hófst í haust. Ég hóf þá töku lífeyris og réð mig í 49% starf við skólann. Ég er svo heppinn að vera á 95% reglunni og ákvað að nýta mér þau réttindi sem það gefur. Þrátt fyrir að hlakka til að minnka svona við mig var ég líka kvíðin. Kvíðinn fólst aðallega í því að vera ekki með á nótunum, missa af einhverju sem verið er að gera í skólanum af því ég mæti bara þrjá daga í viku. Ég passa mig mjög vel á því að spyrja fólk um hitt og þetta og lesa viðburðadagatalið sem hangir á vegg. Þetta hefur gengið nokkuð vel. En það besta er að mér finnst þetta fyrirkomulag alveg dásamlegt. Ég mæti eingöngu í vinnu þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag og á þess vegna alltaf langa helgi.
Ja, nema þegar ég er beðin um að taka að mér forfallakennslu, sem kemur nokkuð oft fyrir.
Af því ég hef fulla starfsorku enn, þannig lagað, þá finnst mér bara fínt að kenna tíma og tíma í forföllum.
Ég gerði mér samt fulla grein fyrir því, fyrir mörgum árum, að ég sæi mig ekki fyrir mér að kenna 10. bekk íslensku eftir sextugt. Það einfaldlega gengi ekki upp. Bilið á milli kynslóða stækkar svo ört á vissu skeiði að það væri sama hvað ég reyndi að skilja ungmennin til að geta verið skemmtilegi, nútímalegi íslenskukennarinn, gæti ég það aldrei. Ég er svo heppin að hafa, fyrir tilviljun byrjað fyrir nokkrum árum að kenna íslensku sem annað mál og það er það sem gerir það að verkum að ég get þetta ennþá. Þegar ég var leyst undan því að vera umsjónarkennari léttist kennslan og öll vinnan til muna.
Þess vegna er ég svo þakklát forsjóninni fyrir að hafa hent mér í þessa, fáránlegu 95% reglu sem auðvitað gengur ekki upp til lengdar. Ég nýt hennar á meðan hægt er.
Ég varð alveg ferlega reið í dag þegar ég las á einhverjum fréttamiðli að Pétur Blöndal, alþingismaður,
íhugar að leggja það til að hækka lífeyrisaldurinn. Hann var með einhverjar röksemdir til að styðja mál sitt og klikkti út með það að kennarar gætu alveg kennt til 75 ára aldurs jafnvel til áttræðs ef þeir hefðu áhuga á því. Hann veit ekki, þessi maður, um hvað hann er að tala. Ég er rétt komin á sjötugsaldurinn og er afskaplega fegin að geta minnkað við mig.
Pétur heldur að ég geti þetta í 14 til 19 ár í viðbót. Ef þetta er dæmi um hugsunarhátt alþingismanna, fari þeir bara allir heim til sín.

sunnudagur, 13. nóvember 2011
Partýtími
Maður fer varla úr partýgallanum um þessar mundir svo mikið er að gera í skemmtanalífinu. Um síðustu helgi hittust systur hans Simma míns og buður okkur Jónu með og dætrum og tengdadætrum. Við hittumst heima hjá Dóru Sif og borðuðum svo á Tapashúsinu. Ég hafði mína tendgadóttir með en ekki dótlu þar sem hún átti ekki heimangengt. Þetta var alveg rosalega skemmtilegt kvöld þó svo að það vantaði nokkrar stelpur. Við enduðum svo á karíókí á Obbladí og þar tók Elsa mín lagið og gerði það með stæl.
Á laugardagskvöldið stóðum við Simmi minn upp úr leisíboj klukkan hálftólf og löbbuðum á hverfispöbbinn, Happy hour, því þar var Rúnar að spila og syngja. Það var auðvitað mjög gaman. Ég hef ekki áður séð Rúnar á alvörupöbb að spila og það var gaman að sjá og heyra hvað hann gerir þetta vel. Við tókum meira að segja einn snúning áður en við töltum heim.
Á föstudag var starfsmannadagur Ölfuss sem er alltaf mjög áhugavert að taka þátt í. Fyrirlesarinn að þessu sinni er sálfræðingur sem talaði um öfluga liðsheild. Hann kom inn á marga góða punkta sem hreyfði við manni. Eftir fyrirlesturinn var boðið upp á snittur og vín svo ég kom heim pínu full.
Í gær stóðum við hjónakornin aftur upp úr leisíboj og núna til að fara á Eyjakvöld í Ráðhúskaffi sem er hinn hverfispöbbinn okkar. Þetta var nokkurs konar söngtónleikar, rosalega skemmtileg hugmynd. Hljómsveitin Obbosí úr Eyjum spilaði Eyjalögin og varpaði textum á vegg svo allir gætu sungið með og það var sko gert. Rokna stuð og stemming.

laugardagur, 22. október 2011
Matarstúss að hausti
| Allar þrjár komnar í pækilinn. |
| Hreykinn með rúllupylsuna sína. |
| Vel af lauk og allrahanda. |
Nú tekur við biðtími.
Spennandi biðtími.
fimmtudagur, 20. október 2011
Selfossferð
Við, hjónakornin, skutumst á Selfoss seinnipartinn. Okkur vanhagaði um ýmsa hluti. Þessir hlutir tengjast flestallir því að Simmi minn vill helst alltaf elda, það sem sumir kalla "gamaldags mat."
Það vantaði gróft salt, saltpétur og teygjunet vegna þess að hann er með rúllupylsur í bígerð. Þetta fékkst allt saman.
Ég vildi fara í Intersport og kaupa nýja hlaupaskó, sem ég hafði séð auglýsta á tilboði en hann vildi fara í Júróprís, þar sem hann hélt að hann fengi eldunarhellu sem hægt væri að hafa úti í skúr svo hann geti soðið hrossabjúga og hrossakjöt og ýmislegt sem skilur sterka lykt eftir í húsinu. Þetta gekk eftir. Nú á hann þessa líka fínu spam hellu en ég verð enn um sinn að hlaupa í götóttum skóm.
Við keyptum líka hausljós, þannig að nú getum við hjólað í morgunsundið áhyggjulaus í myrkrinu en örugglega svolítið skondin. En það gerir nú ekkert til.

þriðjudagur, 18. október 2011
Lopaengill
| .....sem varð svona sætur engill eftir þæfingu. |
| Prjónaði þetta stykki eftir uppskrift... |
þriðjudagur, 11. október 2011
Í upphitun
Mér finnst enn dálítið skrýtið að fara út og skokka tuttugu mínútna upphitunarhlaup. Fyrir skömmu síðan hefði þetta bara verið hið ágætasta hlaup. Ég er svo heppin að akkúrat heiman frá mér er besti, skemmtilegasti hlaupahringurinn minn, sem endar á frjálsíþróttavellinum, tuttugu mínútna skokk hjá mér.
Ég var bara í rúðustrikuðum heimi í dag, með uppskriftina að æfingum á blaði, haldandi það að enginn kæmi út á frjálsíþróttavöllinn, þegar ég uppgötvaði í miðjum hnébeygjum að ég var ekki Palli, þessi sem var einn í heiminum. Par gekk röskum skrefum fram hjá mér þegar ég rétti úr mér eftir hnébeygjurnar. Ég bauð góðan daginn en ég heyrði ekki hvort mér var svarað á íslensku eða útlensku. Ég ákvað að láta ekki undan neinum hégómaskap, skellti mér á jörðina og tók magaæfingar eins og andskotinn.Enda öðlaðist ég visst frelsi við það að verða sextug og ég tala ekki um að verða sextíuogeins. Ég má allt.
Ég tók sem sagt með stæl fyrstu æfingu í þriðju viku hins frábæra hlaupaprógramms sem mér áskotnaðist á dögunum.
Það er ekki alltaf auðvelt.
En alltaf gaman.

sunnudagur, 9. október 2011
Smáhlaup á sunnudegi
Fór út að hlaupa um hádegisbil, þrátt fyrir að hafa setið sviðaveislu í gærkvöldi og drukkið ómælt rauðvín. Ég bað, Simma minn, að koma á bílnum á eftir mér. Lagði til að hann legði af stað hálftíma eftir að ég færi að heiman. Ég setti stefnuna út í Selvog, á nýja Suðurstrandaveginum og fann strax að þetta var kolvitlaus ákvörðun hjá mér því það var hávaðarok beint í fangið á mér. Mér finnst vont að hlaupa á móti vindi en hélt samt áfram. Vildi athuga hvað ég gæti. Þegar Simmi minn kom á bílnum var ég búin að hlaupa eða skokka í 35-40 mínútur og var bara búin að leggja að baki 4,5 km. Afsökunin er sviðaátið, rauðvínsdrykkjan og rokið.
Er samt bara nokkuð stolt af sjálfri mér, alla vega fyrir það að fara út i dag og gera eitthvað smá.
Smá hlaup er betra en ekkert hlaup.
Er samt bara nokkuð stolt af sjálfri mér, alla vega fyrir það að fara út i dag og gera eitthvað smá.
| Hljóp næstum því út í Krísuvík. |
föstudagur, 7. október 2011
200 grömm í gróða
| Stóra tá komin út úr á vinstri skó. |
Þetta er bara skemmtilegt.
Skemmtilegt að hlaupa.
Skemmtihlaup.
miðvikudagur, 5. október 2011
Tilraunaeldhús
| Karfi í raspi og karfi í sesamfræjum |
| Mangósósa og sósa úr pakka |
Í kvöld var tilraunaeldhús heima hjá mér. Okkur áskotnaðist karfi, sem hefur ekki verið á matseðlinum hingað til en ég verð alltaf spennt ef við prófum eitthvað nýtt. Ég gúglaði nokkrar uppskriftir og fann eftir það hvað hentaði okkur. Hann fékk sína bita velta upp úr raspi. Ég mína bita velta upp úr sesamfræjum. Hann bjó til sósu úr pakka en ég gerði mangósósu úr ab-mjólk, epli, gulrótum og mangó chutney. Hann bætti kartöflum við, ekki ég.
Við vorum bæði ánægð með árangurinn og pakksöddd.
þriðjudagur, 4. október 2011
Sumarsöknuður
| Kósíkvöld |
Við náðum að sofa 51 nótt í Sólbrekku í sumar. En það helgaðist nú af því að Simmi minn fékk óvenju langt sumarfrí þetta árið.
sunnudagur, 2. október 2011
Í roki og rigningu
| Komin heim, heldur betur ánægð. |
Ein bjartsýn.