Ég hóf störf með eldri borgurum síðastliðinn mánudag. Ekki seinna vænna, búin að vera í félagi eldri borgara í eitt og hálft ár. Á mánudaginn var, byrjaði leshópur aftur eftir áramót og ákváðum við Sigga að taka þátt. Við mættum galvaskar og sögðumst vera komnar í aðlögun. Okkur var veltekið og virkilega gaman að spjalla um þær bækur sem viðstaddir höfðu verið að lesa.
Ég undisbjó mig betur fyrir daginn í dag en síðast. Helst átti fólk að lesa eitthvað sem tengdist Svarfaðardal, Dalvík eða einhverju á því svæði en þangað stendur til að ferðast næsta sumar. Ég tók úr bókaskápnum mínum bókina Pelastikk og rifjaði hana upp og ákvað að lesa upphaf bókarinnar því þar er góð lýsing á því hvaða leiðir hann Logi gat farið heiman frá sér og niður á bryggju, nokkurra ára gamall en þangað vildi hann komast óséður. Gaman væri að koma á þær slóðir og finna leiðirnar sem hann notaði
Ekki tókst betur til en það í dag en að ég klikkaði á tímanum og mætti klukkutíma of seint. Þetta var vatn á myllu kvennanna sem voru staddar á Níunni. Þeim fannst aðlögunin bara takast nokkuð vel hjá mér. Byrjaði á því að gleyma.
mánudagur, 30. janúar 2012
miðvikudagur, 25. janúar 2012
Menntaverðlaun
![]() |
| Forsetinn og skólastjórinn |
Það voru nokkrir sem fengu tilnefningar en okkar tilnefning var eftirfarandi:
Grunnskólinn Þorlákshöfn fyrir námslegar framfarir og samþættingu á leiklist og tónlistarlífi inn í starf skólans. Ber þar hæst öflugt samstarf við tónlistarskóla Árnesinga sem á sér orðið langa hefð í sögu skólans. Starfið hefur lagt grunn að því menningarlífi sem bæjarfélagið býr að og er einmitt til þess tekið í rökum þeirra sem sendu inn tilnefningar að með starfi skólans hafi verið lagður sterkur grunnur að því blómstrandi menningar og listalífi sem einkennir bæjarfélagið. Grunnskólinn er Grænfánaskóli þar sem nemendur vinna af metnaði að umhverfismálum. Svo sé vitnað orðrétt í tilnefningu móður 4 barna sem stundað hafa nám við skólann frá árinu 1987. Grunnskólinn í Þorlákshöfn er skóli í ungu og barnmörgu samfélagi þar sem fjölmenning er hátt hlutfall eða um 14 % og hefur skólanum tekist vel að sameina ólíka nemendur með fjölbreyttu starfi þar sem allir hafa möguleika á að finna sinn farveg.
laugardagur, 21. janúar 2012
Bóndadagur
| Simmi að velja lög með Beggu |
Hvernig þorramat viltu þá Simmi minn, spurði ég.
Harðfisk og hangikjöt, svaraði hann.
| .....svo voru Bítlarnir auðvitað settir á fóninn |
Æ, má ég ekki bara velja ganasteik? spurði hann.
Auðvitað mátti hann velja ganasteik. Ganasteik finnst mér besta afurð lambakjöts. Svo ganasteik var elduð í fyrsta skipti á nýju æðislegu Saladmaster rafmagnspönnunni og tókst svona líka frábærlega.
Þegar líða tók á bóndadaginn slökktum við á sjónvarpinu og Simmi minn, bóndinn, gerðist einkaplötusnúðurinn minn. Það finnst mér alltaf frábærar stundir. Hann sest á gólfið fyrir framan svakadiskagræju sem hann keypti sér á meðan hann rak veitingahús og spilar vel valin lög. Stundum nær hann í hjartaræturnar á mér þannig að ég fer að gráta af tilfinningasemi. Ég slapp við það í gær, þrátt fyrir að hann spilaði bæði Friðjón Jóhannsson og Beggu heitina Árnadóttur. Svo tökum við alltaf nokkur danspor t.d. við sum lög Björgvins.
Stuð á gamla dressinu.
miðvikudagur, 18. janúar 2012
Rósavettlingar
| Rósavettlingar á einmánuði heita þessir |
sunnudagur, 15. janúar 2012
Matarboð
Við, Simmi minn, brugðum okkur í höfuðborgina í gær, þegar ég kom heim frá frábærlega skemmtilegum bókafundi Delta Kappa Gamma sem haldinn var í best falda leyndarmáli Suðurlands, Hótel Eldhestum í Ölfusi.
Ferðin í höfuðstaðinn var til þess gerð að þiggja matarboð forseta borgarstjórnar og Doktors Kalla. Við vorum svona aukaspenar í þessu matarboði því uppistaðan var Yeomanfólkið. Það er nú ekki leiðinlegt að tengjast því skemmtilega fólki og eyða kvöldstund með því. Ástæða veislunnar var sjálfsagt sú að Kristín, sem býr í Seattle, var stödd á Skerinu ásamt eiginmanni og dótturinni Tönju. Þarna mættu öll systkini Elsu og flestir afkomendur þeirra, þannig að tvær kynslóðir skemmtu sér saman sem mér finnst alltaf skemmtilegast.
Á boðstólum var aðallega "heimaveidd" dýr eins Elsa orðaði það. Gæsabringur og gæsaleggir og andaeitthvað og andahitt og lundabringur og sjávarréttarsúpa og Lasagne og ég veit ekki hvað og hvað. Allt hvað öðru betra. Frábær eftirréttur, sem ég enn finn bragðið af.
Margir viðstaddir kunna að spila á gítar, þannig að spilað var og sungið og sungið meira.
Við, Simmi minn, fengum heila íbúð til afnota. Íbúð á Stýró sem systurdóttir Simma á. Þar höfðum við það eins og kóngafólk.
Svakalega líður mér alltaf vel í 101 Reykjavík.
Ferðin í höfuðstaðinn var til þess gerð að þiggja matarboð forseta borgarstjórnar og Doktors Kalla. Við vorum svona aukaspenar í þessu matarboði því uppistaðan var Yeomanfólkið. Það er nú ekki leiðinlegt að tengjast því skemmtilega fólki og eyða kvöldstund með því. Ástæða veislunnar var sjálfsagt sú að Kristín, sem býr í Seattle, var stödd á Skerinu ásamt eiginmanni og dótturinni Tönju. Þarna mættu öll systkini Elsu og flestir afkomendur þeirra, þannig að tvær kynslóðir skemmtu sér saman sem mér finnst alltaf skemmtilegast.
Á boðstólum var aðallega "heimaveidd" dýr eins Elsa orðaði það. Gæsabringur og gæsaleggir og andaeitthvað og andahitt og lundabringur og sjávarréttarsúpa og Lasagne og ég veit ekki hvað og hvað. Allt hvað öðru betra. Frábær eftirréttur, sem ég enn finn bragðið af.
Margir viðstaddir kunna að spila á gítar, þannig að spilað var og sungið og sungið meira.
Við, Simmi minn, fengum heila íbúð til afnota. Íbúð á Stýró sem systurdóttir Simma á. Þar höfðum við það eins og kóngafólk.
Svakalega líður mér alltaf vel í 101 Reykjavík.
sunnudagur, 8. janúar 2012
Iðjuleysi með prjónaskap
Sunnudagur
letidagur
morgunverður í rúmið, beygla með osti og sultu og bleksterkt kaffi
druslast á lappir
fréttarúntur á netinu
silfur egils
prjónað og hlustað á gamlar sögur á hlusta.is
núna er Jón Trausti uppáhalds
gott að sitja og prjóna og hlusta þegar rigningin lemur gluggana
næstbesta pizza í heimi sett í ofninn
smá rauðvín með
sunnudagur
unaðsleg værð yfir öllu
letidagur
iðjuleysi
hið fagra iðjuleysi
letidagur
morgunverður í rúmið, beygla með osti og sultu og bleksterkt kaffi
druslast á lappir
fréttarúntur á netinu
silfur egils
prjónað og hlustað á gamlar sögur á hlusta.is
núna er Jón Trausti uppáhalds
gott að sitja og prjóna og hlusta þegar rigningin lemur gluggana
næstbesta pizza í heimi sett í ofninn
smá rauðvín með
sunnudagur
unaðsleg værð yfir öllu
letidagur
iðjuleysi
hið fagra iðjuleysi
miðvikudagur, 4. janúar 2012
Textílkennari
Ég réð mig í dag í textílkennslu. Það vantar, frá og með áramótum textílkennara við skólann og svo skemmtilega vill til að ég á lausan tíma akkúrat þegar þessi kennsla er á stundaskrá. Þetta er val hjá 9. og 10. bekk og ég hlakka bara til. Ég tók handavinnu sem val í Kennó á sínum tíma og kann svo sem að taka upp snið og sauma flík þó svo ég hafi ekki kennt það áður. Ég saumaði mikið hérna í den. Saumaði bara allt sem vantaði á heimilið, nema jakkaföt á kallinn. Ég saumaði samt oft á hann buxur. Saumaði dragtir á sjálfa mig, kjóla, buxur og pils og náttúrlega á blessuð börnin. Mér sýnast efni hafa helst breyst frá því ég saumaði sem mest. Efnin hafa meiri teygjanleika núna en áður. Þá kemur til skjalann overlokksaumavél og þannig grip hef ég ekki notað svo þar er aðaláskorunin komin á mig.
Ég verð að læra á overlokk innan nokkura daga.
Ég bara verð.
![]() |
| Ég hlakka til að æfa mig á svona vél |
Ég verð að læra á overlokk innan nokkura daga.
Ég bara verð.
þriðjudagur, 3. janúar 2012
Ein voða vitlaus
| Lopapeysa í stærðinni medium |
Já, nú var ég dáldið vitlaus.
Og sit uppi með peysu sem mig vantar ekki.
mánudagur, 2. janúar 2012
Prjónadagurinn mikli
Á þessum síðasta degi jólafrísins hef ég setið og prjónað. Ég fór seinna á fætur en til stóð en um klukkan hálf eitt var ég sest með prjónana og prjónaði og prjónaði og hlustaði á Heiðarbýlið eftir Jón Trausta á hlusta. is. Ég sleppti prjónunum 10 klukkutímum síðar. Ég hefði klárað peysuna ef ég hefði ekki þurft að rekja smávegis upp. Ég stóð upp til að fara á klósettið, hella mér upp á kaffi, borða eitt epli og ostbita. setja upp saltkjöt sem hann Simmi minn var búinn að undirbúa, skjótast út í búð eftir rófum, skræla þær og bæta við í pottinn. Nú svo borðaði ég með Simma mínum en hélt annars mest megnis áfram að prjóna.
Mér er illt í bakinu, öxlunum, handleggjunum, fingrunum og úlnliðunum. Ég verð að prjóna eftir vinnu á morgun til að æfa þessa aumu vöðva meira. Þetta eru lopavöðvarnir sem hafa rýrnað. Ég hef verið að prjóna úr fínna garni að undanförnu og nota vöðvana greinilega einhvern veginn öðruvísi.
Ég á líka bara einn lestur eftir af sögunni. Klára að hlusta á morgun.
Mér er illt í bakinu, öxlunum, handleggjunum, fingrunum og úlnliðunum. Ég verð að prjóna eftir vinnu á morgun til að æfa þessa aumu vöðva meira. Þetta eru lopavöðvarnir sem hafa rýrnað. Ég hef verið að prjóna úr fínna garni að undanförnu og nota vöðvana greinilega einhvern veginn öðruvísi.
Ég á líka bara einn lestur eftir af sögunni. Klára að hlusta á morgun.
sunnudagur, 1. janúar 2012
Óráðin framtíð
Á áramótum verð ég alltaf meir og viðkvæm og fæ undarlega eftirsjá þegar ártalið hverfur af sjónvarpsskjánum á miðnætti og verð ringluð og finn fyrir óöryggi þegar nýja ártalið birtist. En þessi blanda furðulegra tilfinninga varir, sem betur fer aðeins skamma stund. Ég finn fyrir hátíðleika þegar Nú árið er liðið er sungið og kemst aftur í jafnvægi.
Í gærkvöld rann þetta allt einhvern veginn saman við það að hlusta, horfa og opna kampavínsflöskuna og fylgjast með flugeldabrjálæði og tala í símann við afkomendur.
Nýtt ár er hafið. 2012 er gengið í garð og við því tek ég með auðmýkt og þakklæti. Ég geng ekki að neinu sem gefnu í þessu lífi en er þakklát fyrir svo margt.
| Gleðilegt ár |
Í gærkvöld rann þetta allt einhvern veginn saman við það að hlusta, horfa og opna kampavínsflöskuna og fylgjast með flugeldabrjálæði og tala í símann við afkomendur.
Nýtt ár er hafið. 2012 er gengið í garð og við því tek ég með auðmýkt og þakklæti. Ég geng ekki að neinu sem gefnu í þessu lífi en er þakklát fyrir svo margt.
laugardagur, 31. desember 2011
Árið 2011 í hnotskurn
![]() |
| Í janúar fórum við til Tenerífe og vorum þar í tvær vikur í góðra vina hópi. |
| Í apríl tókum við ansi vel til í garðinum framan við húsið. Tókum upp tré og girðingu og grasbletti og settum möl í staðinn. |
| Í maí var farið í fyrstu ferð með Sólbrekku. Í fyrstu ferðinni þarf alltaf að huga að ýmsum málum eins og að tengja sjónvarpið. |
| Garðurinn minn í febrúar. Veturinn var snjóléttur og lljúfur. |
| Í júní gengum við á Skálfell með Ferðafélgi Ölfuss. |
| Í september varð hann Simmi minn sextugur. Hann kaus að flatmaga á sólarströnd á afmælisdaginn þannig að við vorum í 10 frábæra daga á Costa del sol. |
| Barnabörnin mín dafna og vaxa úr grasi. Kolbeinn varð 18 ára á árinu og er þar með orðinn sjálfráða. Nanna er 11 ára pæja og Lúkas er orðinn 8 ára. Hvert öðru fallegra. |
á
föstudagur, 30. desember 2011
Jólakíló
Já, já, það er föstudagur í dag og þá skrái ég skilmerkilega í dagbókina hversu þung ég er að morgni þegar ég vakna.Síðasta föstudag, Þorláksmessu, ætlaði ég að vera komin niður í 66 kílógrömm en það mislukkaðist aðeins. Ég reyndist vera 1, 1 kílói of þung á miðað við áætlun. Ég kenni um jólahlaðborðum og því að það byrjaði að snjóa þannig að minna varð um hlaup en ég hefði viljað. Í morgun kom í ljós að ég hef síðastliðna viku bætt 1,3 kílóum við mig. Ég tók dagatal og taldi hvenær ég yrði mögulega búin að ná þessum jólakílóum af, og komast niður í þessi 66 draumakílóatölu, ef ég tapa 300 grömmum á viku, eins og ég treysti mér til að gera, (þegar jóla-og áramótamaturinn hefur allur verið snæddur) og dagsetingin 24. febrúar 2012 kom upp. Í fyrstu fannst mér hræðilega langt þangað til en vitandi hversu tíminn líður hratt verður þessi dagur áður en varir liðinn. Ég er alveg róleg, pollróleg. Þetta kemur allt með kalda vatninu.
Líkamsræktin í dag var snjómokstur. Við, Simmi minn, mokuðum innkeyrsluna þannig að bíllinn komst inn í skúr og ruslatunnurnar eru lausar úr skafli og svo mokaði ég braut fyrir póstinn, já og okkur sem búum í húsinu.
Og það virðist ekkert lát á snjókomu.
Líkamsræktin í dag var snjómokstur. Við, Simmi minn, mokuðum innkeyrsluna þannig að bíllinn komst inn í skúr og ruslatunnurnar eru lausar úr skafli og svo mokaði ég braut fyrir póstinn, já og okkur sem búum í húsinu.
Og það virðist ekkert lát á snjókomu.
fimmtudagur, 29. desember 2011
Sjálfhverfur þankagangur
Ég hef ekki endilega snúið sólarhringnum við, eins og stundum er sagt, heldur fer ég á nokkuð skikkanlegum tíma í bólið en alls ekki á skikkanlegum tíma á fætur. Ég sný mér bara á hina þegar Simmi minn, fer í ræktina, á því sem mér finnst um þessar mundir vera ókristilegur tími, þ.e. kl. sex og sofna aftur og aftur. Ég kveiki á útvarpinu með því forholli að hlusta á morgunvaktina og fara svo á fætur. Ég missi af mest öllu á morgunvaktinni og veit ekkert í minn haus fyrr en eftir klukkan tíu. Druslast á lappir og reyni að vera húsmóðurleg þegar, Simmi minn, kemur heim í hádegismat en það tekst ekki alltaf.
Ég fór þó út að hlaupa bæði í gær og fyrradag. Í gær hljóp ég göngustíg Selvogsbrautarinnar fram og til baka, þangað til ég hafði hlaupið í 27 mín., en hætti þá af því ég var ég stödd fyrir utan heima hjá mér. Ég mældi vegalengdina á kortvef á ja.is og reyndist þetta vera rúmir 4,4 km. Bara sátt við það í snjó og hálkublettum. Ég prófaði nýju vetrarhlaupaskóna mína, sem Jones´s gáfu mér í jólagjöf og reyndust þeir svakalega góðir. Það er nokkurs konar gaddar neðan á þeim sem koma svona vel út í vetrarfærðinni.
Ég átti að mæta í klippingu í dag hjá henni Röggu minni á Eplinu en ég fer ekki að æða yfir fjöll til að þjóna hégómanum í þessari færð og þessari veðurspá. Mér er líka alveg sama þó hárið vaxi aðeins. Ég hélt að ég fengi ekki nýjan tíma fyrr en eftir dúk og disk en ég má koma 6. jan. Ég vona að snjórinn verði horfinn þá svo ég komist heilu og höldnu yfir fjallið.
| Svona leit ég út í júlí s.l. |
| Nýklippt í ágúst s.l. |
þriðjudagur, 27. desember 2011
Jólaskraut
mánudagur, 26. desember 2011
Snjóhlaup
| Notalegt jólaljós |
| Við mæðgurnar á hlaupum |
Í dag er veðrið skaplegra svo ég bað hann Simma minn að horfa vel í kringum sig á leið til vinnu eftir hádegið og hringja svo í mig ef það væri búið að hreinsa snjó af götunum. Hann gerði þetta fyrir mig og tjáði mér að gangstéttir væru vel hreinsaðar. Ég skellti mér í hlaupagallann og fór út. Ég veit ekki af hverju ég lét ekki á mig mannbroddana og ég veit ekki af hverju ég fór í gömlu skóna en ekki nýju. Jú, þetta með skóna, ég get verið í ullarsokkum í gömlu skónum en ekki nýju og svo tími ég varla að nota þá, þeir eru svo fínir. Ég hljóp í 25 mínútur en ekki alltaf á vel ruddri braut. Sums staðar hafði ekki verið rutt og þá varð erfiðara um vik, ég varð að taka góðar hnjályftur og á einum stað óð ég snjóinn um stund upp í kálfa. En mikið lifandis skelfing var þetta hressandi.
Ég var að lesa um Gamlársdagshlup ÍR og langar svakalega að skrá mig en veit ekki hvort ég get hlaupið 10 km. Ég færi aldrei af stað nema vita hvort ég gæti þetta, vil ekki að gera mig að fífli. Mig vantar bara einhvern til að vera með. Vantar Svövu Ránina mína.
Annar í jólum
| Í jólaskapi |
sunnudagur, 25. desember 2011
Jólin 2011
| Eftir skötuát í Rauða húsinu |
| Maturinn kominn á borð |
Jólamaturinn okkar er Hamborgarhryggur eins og mörg undanfarin ár. Við höldum að á fyrstu jólunum okkar saman hafi verið lambakótelttur í matinn. Við erum að pæla í að endurvekja þann sið. Það er svo erfitt að borða Hamborgarhrygg einn daginn og hangikjöt þann næsta. En það er nú ýmislegt öðruvísi nú en áður. Ég bakaði ekki fulla stampa af smákökum eins og alltaf. Við höfðum ekki jólagraut í gær eins og alltaf. Fengum okkar smá slettu af heimatilbúna jólaísnum í eftirrétt. Sem sagt engin möndlugjöf. Og ekki nóg með það, við elduðum hangikjötsrúllu en höfum ekki lyst á að borða það núna. Höfum samt alltaf gert það. Það sem breytist ekki er meðlætið með hryggnum þ.e.rósakálið og bleika ógeðið. Jóladagskaffið hjá mömmu og pabba er fastur liður í jólahaldi. Við áttum mjög ljúfa stund hjá þeim í dag en ég sakna barnanna minna og barnabarna hvað mest þar því systur mínar hafa sína afkomendur með í boðinu. Samt ekki alveg alla. Þannig er það nú bara. Kalli kemur nú reyndar oftast en veðrið setti strik í reikninginn í dag. Ég kvarta samt ekki. Svava Rán og Lúkas voru hjá okkur í heila viku fyrir jól. Það var náttúrlega alveg æðislega gaman.
| Bara gaman á jólunum |
þriðjudagur, 6. desember 2011
Bara
| Allar götur fullar af snjó |
Ég verð líklega að drífa mig í sund líka þá daga sem ég er bara heima. Ég hef allavega nægan tíma til þess. Í morgun var sundlaugarvatniðreyndar svo kalt að ég var ekki búin að ná upp hita í skrokkinn eftir 30 ferðir svo ég gafst upp og fór í heita pottinn.
En það er bara næs að hanga í heita pottinum. Það gerir gamla kroppi bara gott.
Það lítur út fyrir að íslenska orðið bara sé í uppáhaldi hjá mér.
mánudagur, 28. nóvember 2011
Minningarorð
![]() |
| Ásta og Simmi sumarið 2004 |
Það líður ekki sá dagur að ég hugsi ekki um Ástu
mágkonu. Ég sakna hennar svo mikið og
átti eftir að gera svo margt með henni. Hún dó, aðeins 65 ára gömul 23. júlí
s.l og var jarðsungin frá Hallgrímskirkju þann 5. ágúst. Hún var jarðsett í Þorlákshöfn, rétt hjá
mömmu sinni.
Ég man fyrst eftir Ástu sem ungri stúlku í Þorlákshöfn, úti að
ganga með Baldvin kaupfélagsstjóra. Mér fannst það mjög rómantískt. Hún hefur
líklega verið skiptinemi í Ameríku
fyrsta sumarið mitt í Þorlákshöfn, svo göngutúrar með Baldvin hafa verið
sumarið 1965 eða 1966.
Það var svo 1969 sem ég fer að koma á heimili foreldra
hennar sem kærasta Simma en þá er Ásta farin að búa með Jonna og Hrefna litla fædd.
Það var alltaf svo gaman að koma til þeirra í heimsókn enda vel tekið á móti
okkur. Margar góðar minningar á ég um
Ástu og Jonna, Dóru Sif og Hrefnu.
Fyrsta sólarlandaferðin var farin með
þeim á Costa del sol. Mér fannst þau svo sigld og klár og flott og fín
enda bjuggu þau í Noregi um tíma þar sem þau stunduðu bæði nám. Ásta var búin
með hjúkrunarskólann og bætti við sig heilsuverndarhjúkrun sem hún vann svo við
í Reykjavík í mörg ár. Þegar þau fluttu
svo seinna til Gautaborgar í Svíþjóð, í frekara nám, fylgdum við Simmi þeim út
og gerðum úr þessu frábæra skemmtiferð með viðkomu í Kaupmannahöfn. Þar kynnti Jonni
fyrir okkur þeim ágæta mat pizza og hann fór með okkur á jazzbúllu. Upplifun fyrir okkur Simma.
Ásta var mikil smekkmanneskja, hvort sem það var klæðnaður
eða híbýlaprýði. Hún var alltaf svo vel klædd og kunni að velja sér fatnað sem kælddi hana. Hárið alltaf fínt og
stíllinn allur elegant. Hún var lágvaxin en var samt svo stór, hnarreist og
spengileg.
Það var sama hvar hún bjó sér heimili, það var alltaf
fallegt. Hún vildi hafa fallega hluti í kringum sig og kunni að velja saman það
sem passaði. Allt frá húsgögnum, myndum
á veggjum og niður í smæstu hluti sem hún skreytti heimilið með var á réttum
stað og féll saman.
Hún unni góðri, sígildri tónlist og var dugleg að sækja
menningarviðburði, leikhús og tónleika.
Ekkert var eins gaman og þegar hún bauð okkur Simma í mat.
Matarboðin hennar voru svo glæsileg. Nostrað við hvert smáatriði, hvort sem það
var matseldin sjálf , hvernig maturinn var framreiddur eða hvernig lagt var á
borð. Það skipti hana miklu máli að hafa
allt fallega borið fram. Fyrir utan hvað
hún kunni vel að leggja á borð var hún frábær kokkur. Það var alltaf eitthvað
spennandi í pottunum hennar. Einu sinni
þegar hún bjó á Seyðisfirði, með Ingimundi, hafði hún mikið fyrir því að ná í
hreindýrakjöt, því hún vildi allt það besta fyrir Simma bróður. Hún varð því
frekar sár þegar hún komst að hvers konar gikkur hann er því hann vill helst
ekki prófa neitt nýtt.
Ásta var mikil heimsmanneskja. Hún hafði komið til margra landa
og hafði mjög gaman af að ferðast. Hún kom oft til Rómar eftir að Hrefna flutti
þangað enda fylgdist hún vel með barnabörnunum þremur og reyndist þeim afar góð
amma. Hún fylgdist líka vel með börnum systkina sinna og var dugleg að spyrja
um þau öll. Síðasta utanlandsferið hennar var til þess að ljúka við
Jakobsveginn. Hún gekk hann, ásamt vinkonum sínum, í þremur áföngum. Hún lagði
ríka áherslu á að klára seinasta hlutann í vor. Hún var orðin veik þegar hún
gekk en krafturinn svo mikill að það var ekki annað viðkomandi en að ljúka við
verkið.
Ásta fékk sýkingu í lungun sem leiddi hana til dauða. Mig
grunaði ekki, þegar við hittumst 17.júní í Reykjavík og fengum okkur að borða á
veitingahúsi, að það yrði síðasta máltíðin okkar saman.
Lífið getur verið hræðilega óréttlátt. Ásta átti eftir að
gera svo margt.
Jólaundirbúningur.
| Aðventukransinn minn |
Ég hef líka alltaf bakað heilmikið fyrir jól en hent kökunum úr stömpunum í desember að ári svo nýju kökurnar fái pláss. Ég tók þá ákvörðun núna að baka ekki neitt. Ég bakaði nú samt í gær eina smákökusort en það var allt fyrir Nönnu ömmustelpu. Hún bakaði kökur í skólanum sem henni fannst svo góðar en fékk ekki að fara með þær heim af því það á að borða þær á litlu jólunum í skólanum. Hún var það klók að skrifa niður uppskriftina og mundi hana það vel að við gátum skellt okkur í að baka. Í ljós kom að þetta voru rúsínukökurnar sem mamma bakaði alltaf fyrir jólin í den og voru mitt uppáhald nema hvað rúsínum hafði verið skipt út fyrir súkkulaði. Ég bakaði líka eina skúffuköku fyrir hann Simma minn. Hann er allt í einu eitthvað voða spenntur fyrir því að eiga brúnköku sem hann getur nælt sér í öðru hverju með mjólkurglasi. Mér finnst gaman að baka og mun að sjálfsögðu verða við þessari ósk. En fullir stampar af smákökum verða ekki í skápunum um þessi jól.
Það gæti nú samt dottið í mig að baka smá fyrir mömmu.
Tvær þrjár smákökusortir.
Jafnvel lagtertu.





