Síður

föstudagur, 30. desember 2011

Jólakíló

Já, já, það er föstudagur í dag og þá skrái ég skilmerkilega í dagbókina hversu þung ég er að morgni þegar ég vakna.Síðasta föstudag, Þorláksmessu,  ætlaði ég að vera komin niður í 66 kílógrömm en það mislukkaðist aðeins. Ég reyndist vera 1, 1 kílói of þung á miðað við áætlun. Ég kenni um jólahlaðborðum og því að það byrjaði að snjóa þannig að minna varð um hlaup en ég hefði viljað. Í morgun kom í ljós að ég hef síðastliðna viku bætt 1,3 kílóum við mig. Ég tók dagatal og taldi hvenær ég yrði mögulega búin að ná þessum jólakílóum af, og komast niður í þessi 66 draumakílóatölu,  ef ég tapa 300 grömmum á viku, eins og ég treysti mér til að gera, (þegar jóla-og áramótamaturinn hefur allur verið snæddur) og dagsetingin 24. febrúar 2012 kom upp. Í fyrstu fannst mér hræðilega langt þangað til en vitandi hversu tíminn líður hratt verður þessi dagur áður en varir liðinn. Ég er alveg róleg, pollróleg. Þetta kemur allt með kalda vatninu.
Líkamsræktin í dag var snjómokstur. Við, Simmi minn, mokuðum innkeyrsluna þannig að bíllinn komst inn í skúr og ruslatunnurnar eru lausar úr skafli og svo mokaði ég braut fyrir póstinn,  já og okkur sem búum í húsinu.
Og það virðist ekkert lát á snjókomu.

Engin ummæli: