Síður

þriðjudagur, 27. desember 2011

Jólaskraut

Þetta er ekki svo gamalt jólaskraut.
Jólasveinninn til vinstri er aðventugjöf frá Rut systur síðan í fyrra.
Kertastjakana keypti ég fyrir nokkrum árum í jólagarðinum í Eyjafirði. Jólastelpuna til hægri fékk ég sem jólagjöf í starfsmannapartýi.

Þennan pappírsjólasvein bjó ég til 1972. Sá hugmyndina hjá Sigurlaugu skólastjórafrú en ég hannaði kallinn upp á nýtt að stærð A4 svo ég gæti látið nemendur mína búa þetta til. Þetta jólaskraut notaði ég í mörg ár sem kennarajólaskrautið með elskulegum nemendum. En þessi, á myndinni, er sá fyrsti og hefur hann verið hengdur upp í 39 ár á mínu heimili.

Ég hef alltaf föndrað mikið fyrir hver jól. Ég ætla aldrei að gera neitt en verð alltaf fyrir einhverjum áhrifum og er byrjuð að föndra áður en ég veit af. Þessa kalla bjó ég til eitt árið, alveg upp úr þurru. Þeir urðu bara til og kallast kínverku kallarnir.

Þessir sætu kallar heita jólaskrattarnir. Svava Rán bjó þá til eitt árið. Hún hefur líklega verið 11 ára gömul og var í vondu skapi en fór samt að föndra. Ekki man af hverju skapið var i ólagi. En þessa kalla held ég sérstklega upp á. Tek þá með ef ég er í útlöndum um jól. Það er eitthvað krúttlegt við að föndra jólakalla í vondu skapi. Kannski var vonda skapið bara tilbúningur. Annar er orðin eineygður. Það er nýskeð.

Þetta er nýjasta jólaskrautið. Svava Rán sendi mér uppskrift og bað mig að prjóna svona engil. Ég prjónaði nokkra þangað til ég varð ánægð. Þessi prýðir toppinn á jólatrénu í ár. Lopaengill.


Það þyrfti marga pistla ef maður færi í gegnum allt jólaskrautið með útskýringum. Maður finnur að tilfinningar tengjast flest öllu skrautinu. Enda er hér aðeins smá sýnishorn. 

Engin ummæli: