Síður

miðvikudagur, 22. desember 2010

Speedy Gonsales
Kalli minn á afmæli í dag. Hann er orðinn 39 ára gamall, drengurinn minn. Við, Simmi minn, hittum hann og familíuna á Jómfrúnni í hádeginu og borðuðum með þeim í tilefni afmælisins. Fyrir átta árum skrifaði ég eftirfarandi pistil um Kalla minn.
Í dag á frumburðurinn minn afmæli. Hann Kalli minn fæddist fyrir 31 ári síðan. Ég get ekki kysst hann til hamingju mað afmælið því hann er svo langt í burtu. En við spjölluðum í síma áðan, alveg yfir allt Atlandahafið, en það þykir nú ekki merkilegt í dag. Fyrstu jólin okkar Kalla, vorum við saman á fæðingardeildinni. Í þá daga fengu mæður ekki að fara heim að aflokinni fæðingu, heldur þurftu þær að liggja sængurleguna í nokkra daga. Við vorum á Fæðingarheimili Reykjavíkur í góðu yfirlæti. Pabbi hans bara heima í Þorlákshöfn, bíðandi eftir okkur. Kalli var mikill grallarspói fyrstu árin, oft kallaður Speedy Gonsales, því hann var ansi snar í snúningum. Þurfti mikið að pæla í lífinu og tilverunni allri. Sjö ára gamall grét hann yfir eyðingu regnskóganna og hann hefur (held ég ) ekki enn fyrirgefið þeim sem taka sand úr Lambafelli í Þrengslunum, því fjallið er að skemmast að hans mati. Núna er hann að gera rannsóknir á rottuungum, sem oftast lifa rannsóknina ekki af. En það sem að lokum kemur út úr rannsóknunum verður okkur hinum vonandi til góðs.
Meiri snyrtipinni en Kalli finnst varla á byggðu bóli en því var ekki að heilsa þegar hann var krakki. Þegar hann og vinir hans komu heim úr e-m rannsóknarleiðangrinum báru þeir þess merki að hafa þurft að fórna fatnaði og fleiru fyrir rannsóknina en enginn var eins skítugur og Kalli. En þá leið honum best, þegar atið var sem mest. Á unglingsárunum snerist dæmið hins vegar við, honum fannst hann aldrei vera nógu hreinn. Fór í sturtu jafnvel þrisvar á dag og hafði jafn oft fataskipti. Grunnskólanámið fannst honum ekki merkilegt, sinnti því nánast ekkert. Menntaskólanámið tók hann um leið og hann djammaði í höfuðborginni. En það er löngu sannað mál að um leið og börn sleppa frá foreldrum sínum fara þau út á lífið, sama hver aldurinn er. Það var fyrst þegar hann settist í Háskólann sem hann tók námið alvarlega. Þá var piltur líka búinn að ná sér í konu og orðinn faðir. Hann gaf mér ljósið mitt hann Kolbein 1996 og sonardóttur, hana Nönnu, 2000. Hún er búin að vera í Ameríku síðan hún var tveggja mánaða.
Í dag er þessi uppáhaldssonur minn vísindamaður úti í hinum stóra heimi en er samt sem áður enn að gera rannsóknir, eins og forðum, til þess að skilja lífið og tilveruna aðeins betur.
E f honum tekst að verða doktor í ,,lífeðlislegri sálarfræði" (eða hvernig sem væri best að þýða titilinn) á hann skilið að fá stóra medalíu, þó ekki væri nema fyrir það að hafa komist í gegnum þá þrekraun að fara út á sínum tíma með fjölskylduna, keyra til Iowa í 10 klukkutíma,finna íbúðina, kaupa bíl, koma sér fyrir, byrja í skólanum, sinna fjölskyldunni, þola 40 stiga hitann og halda geðheilsunni. Geri aðrir betur. Ég segi eins og Jón Baldvin í nýútkominni bók hans: ,,Bestu stundirnar sem ég á er þegar ég get setið með börnunum mínum, gjarnan með rauðvín í glasi og spjalla við þau og reyni að skilja hvað þau eru að hugsa

föstudagur, 17. desember 2010


Bla blán blúnda
Elsku litla stelpan mín er 36 ára gömul í dag. Fyrir 8 árum skrifaði ég eftirfarandi pistil. Skrýtið að lesa svona gömul skrif. Ég var til dæmis búin að gleyma Bla blán nafninu. Bla blán blúnda.

Í dag er afmælisdagurinn hennar Svövu Ránar minnar. 28 ár síðan hún kom í heiminn. Fædd á Selfossi að viðstöddum pabba hennar. Í þá daga máttu konur ekki fara heim af fæðingardeildinni fyrr en sængurlegu lauk þ.e. 6-7 dagar. Við fórum heim á Þorláksmessu. Hún varð fljótt altalandi en gat í fyrstu ekki sagt Svava Rán, hún sagðist heita Bla Blán. Við bættum blúnda við það nafn- Bla Blán Blúnda- það passaði rosa vel við hana. Hún varð fljótt mikil dama og gekk í kjólum öll fyrstu árin. Hún eignaðist marga góða vini í hverfinu sem við bjuggum í. Það voru krakkar í næstum öllum húsum á Kléberginu og næstu götum. Enda fannst henni lífi sínu lokið þegar við fluttum alla leið út í Básahraun þegar hún var 8 ára. Við, foreldrar hennar, vorum sem sagt að flytja svo langt í burtu með hana frá öllum vinum að nú gat hún ekki lengur leikið sér við neinn að hennar mati. Hún lagðist þá upp í sófa með góða bók, enda orðin fluglæs, og liggur þar enn. Ísfólkið var í miklu uppáhaldi hjá henni í fyrstu en síðan breyttist bókmenntasmekkurinn og nú les hún heimsbókmenntir ásamt ævintýrabókum ýmiss konar. Hún hefur nú margt brallað um dagana. Tekið sér frí frá námi til að skoða heiminn og lært í útlöndum. Nú var hún um daginn að skila (loksins) BA ritgerð sinni í ensku og svo ætlar hún kannski að ná sér í kennsluréttindi og verða kennari eins og mamma. Hún er reyndar búin að kenna í tvö ár í grunnskóla og er núna framhaldskólakennari á Höfn. Jólin ætlar hún að halda hjá mömmu og pabba og tekur auðvitað köttinn Ferguson með sér en um áramótin ætlar hún að vera í Englandi hjá Dave vini sínum. Betri og skemmtilegri dóttir er ekki hægt að hugsa sér

sunnudagur, 12. desember 2010


Steliþjófur
Ég stal perubrjóstsykri í dag. Alveg óvart. Það kom poki af perubrjóstsykri upp úr innkaupapokanum mínum frá Krónunni á Selfossi. Ég borða ekki perubrjóstsykur og kaupi hann þar af leiðandi aldrei. Þannig að nú langar mig helst að skila honum en veit ekki hver konan er sem hlýtur að eiga hann. Það er konan sem var á undan mér í röðinni. Það er nú svolítið skondið að ég var búin að stela af henni plastpokanum sem hún var búin að fá afhentan. Það var líka alveg óvart. Hún bað búðarstrákinn um annan poka og þegar ég fattaði hvers kyns var baðst ég afsökunar og konan brosti og sagði að þetta væri allt í lagi.
Hún hefði líklega ekki brosað til mín ef hún hefði vitað að ég væri í þann mund að sölsa undir mig brjóstsykrinum hennar.
Nú líður mér illa, vil sklia pokanum en veit ekki hvernig ég ætti að bera mig að því.
Kannski líður þeim svipað sem hafa sölsað undir sig miljörðum.
Langa til að skila þeim en vita ekki hvernig þeir eiga að bera sig að við það.

laugardagur, 11. desember 2010

Svindilbrask
Ég hef sérstaklega gaman að öllum orðaleikjum og þar með talið orðasmíð. Dótla mín er mjög skemmtilegur penni og kemur stundum með orð sem hún lagfærir til eða býr jafnvel til. Ég hef alltaf haldið að hún hefði skapað orðið svindilbrask. Ég hef alla vega ekki tekið eftir þessu orði neins staðar annars staðar. Þar til ég rakst á orðið í pistli orðfarslöggunnar Eiðs Guðnasonar. Mér datt fyrst í hug að hann hefði lesið bloggið hennar dótlu minnar og orðið svo hrifinn af orðinu að honum fyndist ástæða að nota það.
Ég náði mér í orðabækur og fletti orðinu upp. Það er ekki í gömlu orðabókinni minni sem er útgefin árið 1963 en þar er orðið svindill. Ég fletti upp í nýrri útgáfu og þar er svindilbrask notað sem skýringarorð við svindill.

Upplýsingarnar um bókhaldsbrellur og bankarán Glitnismanna,sem fram komu í fréttum Ríkissjónvarps og Kastljósi (08.12.2010) voru svakalegar. Þeir Svavar Halldórsson og Helgi Seljan fá prik fyrir sinn þátt í framsetningu málsins. Þarna beraðist ótrúlegt svindilbrask. Þarna heyrðum við því lýst hvernig banki var rændur. Ekki með kúbeini eins og úrabúðin Leonard í Kringlunni Heldur af hvítflibbakrimmum með tölvur og excel forritið að vopni, sem voru sérfræðingar í bókhaldsbrellum.

Ég ber virðingu fyrir Eiði sem íslenskufræðingi og les pistlana hans á Eyjunni með ánægju.
Gaman að dótla skuli bregða fyrir sig jafn flottum orðum og Eiður eða öllu heldur að Eiður skuli nota jafn flott orð og dótla.

fimmtudagur, 9. desember 2010


Að vera skuldlaus
Ég ætla rétt að vona að mér endist aldur til að borga Icesaveskuldina. Ég verð komin hátt á tíræðisaldur þegar síðasta rukkunin kemur.
Er bara að hugsa um börnin mín.
Og barnabörnin.
Hver veit nema mér auðnist að eiga barnabarnabörn á þessum tíma.
Eiga þau að borga Icesave?
Nei, ég bara spyr eins og fávís kona.

miðvikudagur, 8. desember 2010


Jólaglös
Ég varð voða spæld í sumar þegar ég fór í Jólagarðinn í Eyjafirði og komst að því að þeir sem þar ráða ríkjum eru hættir að flytja inn jóladótið frá Magnor glasverk í Noregi vegna óhagstæðs gengis. Það voru til tveir púnsbollar, sem ég og keypti, þó ég drekki ekki beinlínis púns. Bollarnir eru skreyttir þessum litlu sætu jólaköllum, sem ég stenst ekki og þar sem ég var búin að kaupa tvö koníaksstaup árið áður fannst mér ég verða að kaupa bollana þó svo að ég myndi aldrei eignast neitt meira í þessu setti.
Ég fann á netinu um daginn að það er Magnor glasverkbúð í Maloy, þar sem hann Simmi minn er að vinna svo ég prentaði út mynd af rauðvínsglasi og bað hann svo, voða sætt, að hafa augun hjá sér.
Viti menn.
Magnor glasverkbúðin er í göngufæri frá bryggjunni og hann búinn að kaupa, ekki tvö, heldur fjögur glös.
Rándýr.
Ég er sem sagt enn að safna Magnor glasverk jólaglösum.

mánudagur, 6. desember 2010

 
Höfundur
Framan á kökubók Hagkaupa, sem kom út 1996, stendur Höfundur uppskrifta Jóhannes Felixson. Mér finnst hann nú fara léttu leiðina, hann Jói Fel, að geta kallast höfundur þegar það eina sem hann gerir er að minnka magníð um helming í gömlum uppskriftum og skipta um nafn.
Ég fékk hjá tengdamóður minni, fyrir hartnær 40 árum, dýrindis uppskrift af smákökum, sem kallast Engiferkökur. Ég skrifaði uppskriftina í litlu bólkina sem ég safnaði uppskriftum í, frá því ég byrjaði að búa og hef bakað á hverju ári síðan. Í kökubókinni er nákvæmlega sama uppskrift, bara helmingi minna magn af öllum hráefnunum og nú heita kökurnar Negulkökur.
Ef ég prjóna peysu upp úr blaði og breyti lykkjufjölda lítillega er ég þá höfundur peysunnar?
Posted by Picasa

Jólaföndur
Í átjan ár höfum við föndrað saman fyrir jólin. Það byrjaði með því að Eygló frétti af einhverju flottu jólaföndri sem mamma kunni og bað mömmu að kenna sér. Eygló kom í Höfnina og föndraði með mömmu einn eftirmiðdag í desember. Ári seinna bauð Eygló mömmu og okkur systrunum, mömmu sinni og systur í jólaföndur. Við systur tókum Öldu vinkonu með og Eygló og Emma tóku Sjöfn vinkonu með. Siður hafði skapast, við hittumst annað hvert í Höfninni og hitt á Selfossi og föndrum saman. Í fyrstu var föndrið í fyrsta sæti núna er það í öðru eða þriðja en samveran hefur skotist upp á toppinn.
Það er svo gaman að vera saman.

sunnudagur, 5. desember 2010

 Fótósjopp
Er nú engin sérfræðingur í fótósjopp en tel mig líta betur út eftir þessar aðgerðir, þ.e. liturinn tekinn af og skuggar settir inn og eitthvað fleira sem ég man ekki. Nema ég sé á villigötum.
Hvað veit maður?
Posted by Picasa

Vandræðabakari
Ég veit ekki hvaða bjartsýniskast það var í mér í gær að halda það að ég gæti keypt inn í smákökubakstur og bakað í dag á sunnudegi. Það er nefnilega þannig með mig að þegar mér dettur í hug að sletta í form vantar alltaf eitthvað svo ég geti klárað að búa til deigið. Ég verð alltaf að fara út í búð og sækja eitthvað og meira að segja stundum fer ég tvær ferðir. Ég meina alltaf.
Í gær las ég nokkrar uppskriftir og skrifaði á minnislista hvað mig vantaði. Fór út í búð og keypti inn, það sem var til þar. Ég fékk ekki döðlur svo ég ákvað bara að gera þær kökur seinna. En ég gleymdi að kaupa smjörlíki. Bjargaði mér í morgun á smjöri. Átti venjulegt smjör í eina uppskrift. Ætlaði svo að nota matarolíu í næstu uppskrift, las hana vel yfir og týndi til það sem við átti að éta og þá kom ljós að ég átti ekki engifer. Ég hætti bara við allt saman.
Ég nenni ekki að reyna að baka nema búðin sé opin.
Ég átti að vita það.

mánudagur, 25. október 2010

Taugagigt
Þegar ég vaknaði í morgun, ennþá að fá stingandi pílur í hausinn, ákvað ég að væla dálitið í Helga. Var svo heppin að eiga gat klukkan níu þegar símatíminn er hjá honum. Ég náði sambandi við hann og lýsti hausverknum svo nákvæmlega að hann sjúkdómsgreindi mig án nokkurrar umhugsunar. Taugagigt. Alltaf er nú eitthvað nýtt. Mér fannst allavega betra að fá úrskurðinn taugagigt heldur en heilaæxli eða heilablóðfall en það er það sem ég hélt að væri að mér. Annaðhvort eða bæði. Helgi gaf mér Voltaren og svo á ég að koma í blóðþrýstingsmælingu. Geri það á morgun. Komst ekki í dag sökum anna.

sunnudagur, 24. október 2010


Ég var að skoða nýju útgáfuna á visir.is og rakst þar á tarotspil þar sem mér var boðið að spyrja spilin. Ég hef ekki nokkra trú á þessu en spurði samt, mér til skemmtunar. Spurning mín var: Hvarnig verða elliárin mín?
Svo valdi ég spil og fékk eftirfarandi svar um hæl:

Þú hefur vissulega lagt þig fram og unnið af alhug þegar litið er til fortíðar. Nú er komið að því að þú njótir erfiðisins.

Sigur og velferð eru einkunnarorðin hér því þú hefur sýnt þolinmæði í verki og hugsun og á sama tíma unnið heiðarlega fram að þessu. Viðurkenning fyrir vel unnin störf bíður þín.

Langanir þínar verða uppfylltar og góðar fréttir berast þér innan fárra daga.

Ég er hæstánægð með þetta svar.
Ég var mað mjög dularfullan hausverk í allan gærdag og alla nótt. Það er samt varla hægt að tala um hausverk því þessi skrítni verkur var á mjög takmðrkuðu svæði í hausnum á mér, þ.e. bara á smá bletti fyrir ofan vinstra eyrað. Ég átti bara íbúfen og át það villt og galið en allt kom fyrir ekki, verkurinn kom í pílum á átta til fjörutíu sekúndna fresti. Ég tók tímann eins og um konu með fæðingarhríðir væri að ræða. Ég veit ekki hver skrattinn er að hrjá mig en mér líður betur núna þó ég sé ekki orðin góð. Núna er ég með seiðing á þessu sama svæði og sári stingurinn var áður. Ég kannast við þennan verk. Hef fundið þetta áður en aldrei svona lengi í einu.
Þetta hlýtur að ganga yfir. Ekki fer ég að angra Helga með þessu væli.

föstudagur, 22. október 2010


Ég hef verið viðloðandi húsnæði Grunnskólans í Þorlákshöfn í hartnær hálfa öld. Það vantar fjögur ár upp á það. Í fyrstu kynntist ég húsinu af því það var aðalskemmtihús þorpsins, funda-og messustaður. Um tíma vann ég þar sem fóstra á sumrin. Starfsemi sem var undanfari leikskólans. Síðan 1971 hef ég verið kennari í húsinu að undanskildum fimm árum.
Í fyrstu þroskuðumst við saman, ég og húsið. Ég þroskaðist úr unglingi í fullorðna manneskju en húsið stækkaði bæði út og suður, upp og niður. Fermetrafjöldinn jókst og rými til daglegrar vinnu varð allt miklu betra.
Hér áður fór ég inn og út úr húsinu eins og ég þurfti. Ég vann alla undirbúningsvinnu heima en varð oft að skreppa upp í skóla til að ná í gögn eða ljósrita verkefni morgundagsins fyrir nemendur mína. Ég og húsið unnum vel saman.
Svo kom að því að húsið tók nýjustu tækni í notkun. Það var orðið svo stórt að það var ekki lengur hægt að kalla á milli staða til að gá hvort einhver væri inni. Öryggisútbúnaður var settur upp fyrir nokkrum árum sem virkar þannig að óhugguleg sírena fer í gang ef einhver fer inn í húsið sem ekki kann ákveðin kóða sem stimpla verður inn á þar til gerða tðflu. Þetta varð mínum heila ofaukið því það þarf að gæta að grænu ljósi og rauðu ljósi og muna kóðann og svo breytast reglurnar eftir klukkan eitthvað og ég veit ekki hvað og hvað. Ég ákvað að ég myndi aldrei fara inn í húsið eftir að minni kennslu lyki á daginn. Ég vildi ekki eiga það á hættu að Sekjúrítaskallar kæmu brunandi úr höfuðborginni alla leið yfir fjallið að erindisleysu.
Ég hef staðið við þessa ákvörðun mína þar til í dag. Ég hef passað mig á því að ljúka allri undirbúningsvinnu áður en ég fer heim á daginn en í dag kom annað upp á. Ég gleymdi sundtöskunni í skólanum og í henni er hárblásarinn og snyrtidótið mitt og helgin framundan. Ég varð að fara upp i skóla og sækja töskuna.
Ég passaði upp á hin og þessi ljós og mundi kóðann en allt kom fyrir ekki, kerfið fór í gang. Hjartað í mér skrapp saman úr hræðslu en rétt áður en ég dó komu tvær konur hlaupandi, innan úr húsinu. Önnur hringdi á húsvörðinn og hin í Sekjúrítas til að segja þeim að engin hætta væri á ferðum.
Ég var ekki þjófur. Bara klaufakelling.
Klaufakelling sem ætlar að virkja heilabúið og læra á kerfið. Það er alveg ljóst.

fimmtudagur, 21. október 2010


Hann Simmi minn fór aftur til Noregs í gærmorgun. Ég er aftur orðin grasekkja. Það venst ekki. En það þýðir ekkert að væla. Enda hjálpar nútímatækni heldur betur við að gera lífið bærilegra.
Í kvöld, á meðan ég eldaði kvöldmatinn, spjallaði ég við Simma minn í Noregi og dótlu í Wales. Ég var búin að búa til grúbbu á skæp og þegar ég sá að þau voru bæði onlæn hringdi ég til að athuga hvort þetta virkaði og viti menn á meðan ég skar grænmeti og svissaði á pönnu, hrærði saman kotasælu, spelti og egg og gumsaði þessu í eldfast mót og setti inn í ofn voru feðginin með mér í eldhúsinu. Það var náttúrlega alveg frábært.
Simmi minn keypti sér tölvu um daginn og lærði hann á hana þennan hálfa mánuð sem hann stoppaði á landinu kalda. Mér finnst það nú bara vel af sér vikið hjá honum því tölvan getur reynst flókið fyrirbæri fyrir næstum því algjöra byrjendur. Hann sá að það yrði ódýrara fyrir hann að kaupa tölvu, þó ekki væri nema til þess að nota skæpið, heldur en að borga símareikninga þennan tíma sem hann verður í þessu Noregsdæmi. Svo er það bara bónus að geta lesið íslenskar fréttir, horft á þætti, tekið á móti pósti, farið á fésbókina, teflt og allt hitt sem hægt er að gera í tölvunni.
Svövu Rán fannst bara gott að komast aftur í millið hjá mömmu og pabba þó það væri í gegnum skæp.

miðvikudagur, 20. október 2010


Ekki veit ég hvað við, Simmi minn, erum búin að fara í marga hringi með það hvernig við ætlum að hafa pallinn á bak við hjá okkur. Það er stétt núna, búin til úr sexhyrndum steinhellum, eins og tíðkaðist mjög fyrir nokkrum áratugum. Það sem okkur langar að gera er að stækka stéttina og setja heitan pott þarna. Við erum mörgun sinnum búin að taka ákvörðun hvernig stétt eða pall við ætlum að gera en skiptum alltaf um skoöun áður en af framkvæmdinni verður. Einn daginn er það timburverönd, annan daginn stétt lögð úr frostþolnum flísum og stundum eru það steinsteyptir steinar.
Í gær munaði ekki milklu að við létum verða af því að kaupa steina en þeir voru á tilboði en það endar alltaf með því sama. Ég segi: "Það kemur ekki oftar sól eða
verður meira skjól þó að við hendum nokkur hundruð þúsumd krónum á bak við hús."
Gamla stéttin verður látin duga um sinn.

sunnudagur, 17. október 2010


Gærkvöldið var alveg frábært. Í alla staði mjög vel heppnað. Ég er hæstánægð og finn vellíðun í dag yfir vellukkuðu starfi.
Það var í vor sem formaður Söngfélags Þorlákshafnar kom að máli við mig og bað mig að leiða undirbúningsstarf vegna 50 ára afmælishátíðar félagsins. Við vorum fimm í nefndinni og hófum við ekki formlegt starf fyrr en tók að hausta.
Söngfélag Þorlákshafnar var stofnað hinn 19. október 1960. Vorum við því að fagna hálfrar aldar afmæli félags sem hefur starfað algjörlega óslitið frá stofnun þess.
Við héldum veisluna í Versölum með þriggja rétta máltíð. Sigrún Berglind var veislustjóri. Halla Kjartans rakti sögu félagsins í stuttu máli, Il Baldidos spiluðu undir fjöldasöng, Sissa og Hemmi fóru með gamanmál í söng, Snæfríður og stubbarnir stigu á stokk eftir 12 ára hlé og Labbi sá um fjörið á dansgólfinu. Auðvitað tróðum við söngfélagar upp með nokkur lög í léttari kantinum.Við tókum gamalt rútubílalag kórsisn þ.e. skemmtileg útsetning á Allir krakkar, þrjú sjómannalög,Banque fouge þar sem leikið var með af miklum tilþrifum, Santa Lúsía og auðvitað Siahamma.
104 gestir voru í veislunni og ég er viss um að allir skemmtu sér konunglega.
Gaman var að því að sjö af þeim tíu stofnfélugum, sem eru á lífi, heiðruðu samkunduna með nærveru sinni.
Frábært kvöld.
Skemmtilegt afmæli.

mánudagur, 4. október 2010

Ég fór í ein þrjú skipti á Austurvöll að mótmæla óhæfri ríkisstjórn haustið 2008. Það urðu kosningar og ég hef sjaldan á ævi minni orðið eins vonsvikinn. Mér fannst sama fólkið vera kosið á þing og sat þar áður. Allavega sumir. Þvílík vonbrigði. Ég vildi hallarbyltingu. Helst af öllu nýtt og ððruvísi hagkerfi og allt öðruvísi stjórn. Ég hef samt ekki patentlausnina.
Ég treysti því að einhver gáfumaður þarna úti hafi hana.
Í dag vildi ég að ég nennti að verða mér úti um tunnu og storma á Austurvöll. Ég er bara orðin of löt en styð heilshugar alla þá sem eru á Austurvelli að tromma á tunnurnar sínar.
Vonandi hefur það áhrif.
Vonandi gerist eitthvað sem verður þjóðinni okkar til heilla.
Mér varð flökurt áðan þegr ég heyrði í fréttum að ekkert yrði meira aðgert fyrir heimilin og það eru tilmæli frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
Hvers konar þjóðfélag er þetta orðið?

sunnudagur, 3. október 2010

Mér finnst gaman að borða góðan mat. Gaman að gera máltíð að hátíð. Það er líka skemmtilegt að vera boðin í mat og setjast að fallegu borði sem einhver annar hefur skreytt og eldað matinn sem er á boðstólum. Að öllum ólöstuðum er Ásta mágkona uppáhaldið mitt sem gestgjafi. Hún er snillingur í matargerð, snillingur í að skreyta borðið og gera allt svo huggulegt. Hún á svo fallega hluti og er mikil smekkmanneskja. Yfirleitt hefur hún þriggja rétta máltíð þegar hún býður til veislu.
Eitt sinn fór ég næstum því að gráta þegar hún bauð okkur, Simma mínum, í mat því hún var með súpu sem aðalrétt. Ég held að ég hafi samt hamið mig og Ásta ekki tekið eftir vonbrigðum mínum. Ég hafði ekki gert mér grein fyrir því sjálf áður að ég er ekki súpukerling. Oft þarf eitthvað utankomandi til að benda manni á hlutina. Mér finnst súpur alls ekki vondur matur. Margar súpur eru mjög góðar á bragðið en eitthvað vantar að mínu áliti.
Ég er loksins núna búin að uppgötva hvað það er sem mig vantar í súpuna og það var bláókunnug manneskja sem kom mér í skilning um það. Bláókunnug manneskja kennir manni að þekkja sjálfan sig alveg óvart.
Ég les stundum bloggsíður ókunnugra. Datt inn á eina um daginn þar sem höfundur skrifar um mat og kemur oft að því að matur þurfi að hafa sérstaka áferð til að verða eftirsóknarverður. Ég kannast líka við þetta frá dótlu minni.
Sem sagt, súpa gerir ekkert fyrir mig. Hún rennur bara niður og stoppar ekkert í munninum. Ég verð að finna fyrir matnum, geta velt honum fram og til baka í munninum og helst vil ég tyggja á meðan ég nýt bragðsins.
Súpu þarf ekki að tyggja.
Það tekur því ekki að borða hana.
Súpa gerir ekki neitt.

sunnudagur, 12. september 2010

Mér finnst eins og ég sé búin að vera heila eilífð ein heima. Samt er bara vika síðan Simmi fór til Noregs. Mér leiðist samt ekki. Ég finn mér alltaf eitthvað að gera, hef alltaf eitthvað fyrir stafni. Mig vantar bara að hafa Simma minn til að spjalla við eða hlusta á hann tuða yfir pólitíkinni eða bara almennt röfla yfir einhverju.
Það er þetta venjulega sem mig vantar. Það er ekki venjulegt að ég sé svona lengi ein heima.
Það er víst ekkert annað í stöðunni en að bíta á jaxlinn og bölva í hljóði.

sunnudagur, 5. september 2010


Ég er hálf vængbrotin í dag. Simmi minn fór til Noregs í morgun og kemur ekki aftur heim fyrr en 6. október og þá bara í hálfan mánuð. Björgun hf. leigði Ístak Pétur mikla og gröfuprammann til þess að grafa fyrir þá við eynna Målöy. Þetta ku vera nokkurra mánaða verkefni.
Ég hef auðvitað oft verið ein en aldrei svona lengi í einu. Mér finnst gott að vera ein og hef alltaf nóg að gera við hitt og þetta sýsl. En það hefur oftast verið þannig að þá á ég von á Simma mínum um kvöldið eða daginn eftir eða næsta föstudag. Þetta er dálítið langur tími, einn mánuður.
Það er bara ekkert annað í boði. Ekki er hægt að sleppa vinnu á þessum síðustu og verstu tímum og alls ekki fyrir lítið menntaðan miðaldra mann.
Nú er bara að bíta á jaxlinn og bölva í hljóði og vona að tíminn fljúgi áfram.

mánudagur, 16. ágúst 2010

Á meðan ég var að græja mig í vinnuna í morgun, eftir sumarfrí, reiknaði ég út( það var reyndar ekki flókið) hvað ég væri oft búin að hefja skólavinnu að hausti. Sem kennari ku þetta vera 39. skiptið. Ég var þar áður 14 ár í skóla sem nemandi. Ég þekki ekkert annað en að byrja í skóla þegar hausta fer.
Það var ljómandi fínt að hitta starfsfélagana aftur. Suma hafði ég ekkert séð síðan skóla lauk í vor. Ég fékk tækifæri til þess að þakka fyrir afmælisgjöfina, sem starfsmanafélagið færði mér, áður en ég fór til Ítalíu.
Ég hef verið í sundfríi í allt sumar. Ekki synt 1000 metrana mína síðan í Eyjum. Ég hef nokkrum sinnum farið út að skokka. Það finnst mér svakalega gaman, kannski af því ég er svo ánægð að geta skokkað. Ég fer alltaf sama rúntinn. Geng upp á göngustíginn aftan við Básahraun og skokka þaðan og alla leið heim. Þetta eru um 3 kílómetrar. Fór áðan í sól og blíðu.
Simmi minn, er akkúrat núna, að sigla frá Vestmannaeyjum til Reykjavíkur á Pétri mikla. Verkefnið í Eyjum er búið og nú er bið eftir að heyra hvað tekur við hjá honum.

sunnudagur, 15. ágúst 2010

Er allt í einu að fatta það að sumarfríinu er senn að ljúka. Er bara nokkuð sátt við það, þegar allt kemur til alls. Annað er ekki hægt eftir svona gott sumar að öllu leyti.

laugardagur, 3. júlí 2010

Í dag hefur heldur betur verið slakað á. Þrátt fyrir að það sé kominn tími á að þrífa, þá þóttist ég ekki sjá að það þyrfti að taka til hendinni. Lét duga létta moppun (ný íslenska).
En það var ekki komist hjá því að kaupa inn. Ísskápurinn var frekar tómlegur á að líta. Ég kýs að fara á Selfoss í svoleiðis leiðangur og geri það þegar ég er ein heima en Simmi mkinn kýs Hveragerði og ég leyfði honum að ráða í dag. Það þýðir að innkaupin eru gerð í Bónus en þá verslun reyni ég að forðast eins og ég get.
Dagurinn fór svo í hekl og handavinnu og sjónvarpsgláp. Það var nú dálítið spennandi að fylgjast með Þjóðverjum rústa Argentínumönnum í HM.
Ég grillaði lambalundir og Simmi minn gerði sveppasósu. Með því höfðum við pönnusvissað grænmeti og ofnbakaða kartöflubáta. Namminamm.
Við, Simmi minn, syntum á móti straumnum í dag. Eyjan var að fyllast af fólki sem ætlar að vera á goslokahátið um helgina og heimamenn voru í óðaönn að undirbúa hátíðina. Maður fann fyrir spenningi í loftinu. En við fórum heim með Herjólfi klukkan fjögur. Okkur langaði ekkert sérstaklega að taka þátt í þessari hátíð. Við vildum heldur hafa einkahátíð heima í leisíboj. Við nenntum heldur alls ekki að fara eitthvert í útilegu.
Í nótt á að sofa í sínu eigin rúmi.
Enda er það alltaf best.

fimmtudagur, 1. júlí 2010


Mér féll allur ketill í eld í gær þegar Simmi minn hringdi í mig og sagði að Herjólfur hefði strandað í innsiglingunni til Eyja. Ég sá mína sæng útreidda og ég yrði innlyksa hér í Eyjum þar til viðgerð á Herjólfi hefði farið fram.
Mér létti stórum þegar ég heyrði í fréttum klukkan sex að kafari heði farið niður að skoða Herjólf og þetta reyndist ekki vera neitt alvarlegt. Honum seinkaði aðeins um tvo klukkutíma til Þorlákhafnar.
Það er gaman að koma hingað en mig langar ekki að vera föst hér vikum saman.

miðvikudagur, 30. júní 2010


Fyrir 41 ári síðan fórum við Simmi minn saman á þjóðhátíð í Eyjum. Ég 19 ára, hann rétt að verða 18. Við fengum tjald lánað hjá Grétu systur sem hún var nýbúinn að kaupa sér. Tillhlökkunin var mikil enda hafði ég aldrei komið áður á Þjóðhátíð. Skemmtunin byrjaði allvel í fínu veðri. Við skemmtum okkur konunglega þarna fyrsta kvöldið. Ég held að það hafi verið fyrstu nóttina sem það byrjaði að hvessa og rigna samt man ég efir brekkusöng en alla vega þegar tjaldið var farið að gefa sig og allt orðið blautt þáðum við boð einhverra varða þarna að flytja á Fiskiðjuloftið. Þar vorum við þangað til Herjólfur fór heim. Ég er ekki lengur viss hvort við vorum eina eða tvær nætur þar.
En þetta var Þjóðhátíðin sem fauk.
Ég fór með Simma mínum til Eyja á mánudaginn. Við tókum Sólbrekku með og reistum hana upp inni í Herjólfsdal. Þar er ég búin að vera í tvær nætur og finnst Simma mínum voða gaman að hafa mig hérna. Hann er orðinn svo leiður á að vera alltaf að heiman. Vinnudagurinn er langur hjá honum en ég hef haft nóg fyrir stafni. Ég hef gengið, hjólað, ég tók nýja hjólið mitt með, synt, lesið, heklað, hlustað á útvarpið og ekki síst stytt mér stundir í tölvunni. Ég keypti mér netpung í fyrrasumar og hann hefur sko komið sér vel.
Jæja, í morgun klukkan finn, vöknuðum við, við rok og læti í tjaldinu. Tveimur tímum seinna gaf sig ein loftsúlan svo við urðum að pakka saman og loka Sólbrekku.
Ég fór um borð með Simma mínum og fór einn "túr" á sjóinn. Fylgdist með þegar mokað var í Pétur mikla og sigldi með út fyrir Eiðið þar sem losað var úr bátnum. Þetta var bara ævintýri fyrir mig.
Nú er ég búin að fá hótelherbergi,fara á kaffihús,fara í búðarráp og náði að eyða smá aur.
Held að ég reyni ekki oftar að tjalda í Eyjum. En það er voða gaman að koma hingað og skoða sig um. Í gærkvöldi ætlaði ég upp á Heimaklett en þorði ekki nema hálfa leið. Þetta er snarbratt og klifrað í stigum sum staðar. Ég lét lofthræðsluna ráða og fór ekki á toppinn en naut útsýnis þar sem ég var.

þriðjudagur, 29. júní 2010



Ég var alltaf ákveðin í því að vera á erlendri grundu þegar ég yrði sextug. Sá draumur rættist og ekki nóg með það heldur sló ég margar flugur í sama högginu. Mig hefur dreymt um að vera með Simma við Gardavatnið, síðan ég var þar árið 2002 með Söngfélaginu og mig hefur lengi langað að fara í gönguferðir í útlöndum og ekki bara að halda sextugsafmælið í útlöndum heldur helst á Ítalíu. Þetta allt fékk ég um daginn.
Við fórum 5. júní til Ítalíu, flugum til Mílanó (Bergamo) og fórum þaðan að Gardavatninu með rútu til bæjar sem heitir Riva og er nyrst við Lago di Garda og gengum upp um fjöll og firnindi í heila viku. Höfðum frábæran fararstjóra og sex skemmtilega ferðafélaga.
Það var um og yfir 30 stiga hiti allan tímann. Það finnst okkur Simma mínum ekki leiðinlegt. Við fórum samt aldrei í sólbað þó að það væri hægt að sóla sig á strönd rétt hjá Hótel Centrale þar sem við bjuggum. Það var bara aldrei tími til þess, við vorum alltaf að ganga og skoða okkur um á þessum undurfagra stað.
Ég þekkti mig strax á torginu í Riva og fann veitingastaðinn sem kórinn borðaði hádegisverð á hér um árið. Það var ekki erfitt því veitingastaðurinn var á hótelinu mínu.
Ég táraðist þegar ég dró gluggatjöldin frá þegar við komum upp í herbergið okkar því glugginn sneri út að torginu og vatninu sjálfu. Ég svaf með opinn gluggann og hlustaði á gjálfur í Gardavatni.
Sunnudagur 6. júní. Lögðum af stað fótgangandi frá hótelinu eftir morgunmat eða um klukkan 10. Gengum á Mont Brione sem er á milli 3-og 400 metra hátt. Ég var ofsalega ánægð með sjálfa mig því þetta var ekkert mál þrátt fyrir hitann. Enda lagði Brandur fararstjóri áherslu á að fara hægt. Gangan tók um 5 klukkustundir alls. Seinna kölluðum við þetta litla fjallið okkar.
Mánudagur 7. júní. Morgunmatur var snæddur klukkan átta þennan morguninn og farið í leigubílum í 10 mínútur frá hótelinu. Þaðan var gengið upp í fjallaþorpið Pregasina og til baka alla leið heim á hótel austan megin við vatnið. Hvíldum okkur á hótel Alpenrosa og þar var meiri háttar erfitt fyrir Simma minn að fá gin í tonic enda fékk hann að lokum einhvern furðudrykk en varð mikill hlátur og skemmtun út úr samskiptum hans við þjóninn. Á bakaleiðinni gengum við fram á eldgamalt veitingahús, í niðurníslu, sem Simmi vildi kaupa og gera upp. Allir ferðafélagarnir studdu þessa hugmynd og að lokum voru allir búnir að ráða sig í vinnu hjá honum og staðurinn mun heita Karlsberg.
Þriðjudagur 8. júní. Það var dásamlegt að vakna við fuglasöng og gjálfur frá Lago di Garda á sextugsafmælisdaginn. Klukkan níu var lagt af stað fótgangandi frá hótelinu upp fjallið Cornetto að styttu heilagrar Barböru en hún er í 650 metra hæð.Þessi göngutúr tók um fjórar klukkustundir.Fengum okkur pizzu eftir göngu heima á hóteli. Þar voru þær bestar ekta ítalskar pizzur. Önnur ganga var farin þennan dag. Tókum strætó til næsta bæjar, Arco, en það er bærinn sem kórinn dvaldi í seinni hluta ferðar árið 2002. Þar gengum við upp að gömlum kastala en það gerði ég líka hérna um árið. Þegar hópurinn hittist við kvöldverðarborðið um kvöldið var Simmi minn búinn að panta kampavín á borðið. Við mættum í sparifötunum okkar og það varð svona skemmtileg stemming við borðið. Ég hélt smá ræðu og það var sunginn fyrir mig afmælissöngurinn. Salurinn var fullur f þjóðverjum sem klöppuðu fyrir mér. Simmi lét detta á diskinn minn svona líka fallegt skart eftir Sif Jakobs, hálsmen og hringur. Hótelið færði mér skreyttan ísrétt og allir voru svo skemmtilegir og hlógu mikið. Þegar við komum út á torgið var nikkubani að spila og við vorum mönuð í að dansa. Það þarf aldrei að suða lengi í okkur ef við getum látið bera á okkur svo dönsuðum þarna á torginu við Gardavatnið við undirleik harmónikkuspils. Ég hef varla lifað rómantískari stund. Dásamlegt. Fengur okkur svo einn drykk fyrir svefninn á hverfisbarnum okkar Simma en við vorum búin að ramba á enskan pub sem gaman var að setjast inn á.
Miðvikudagur 9. júní. Klukkan átta var farið með strætó til San Vigilio en þar stóð til að ganga meðfram vatninu til bæjarins Garda. Göngustígurinn var kominn einn metra undir vatn svo það varð að breyta áætlun. Tókum strætó til Perehiera, borðuðum þar á pramma og skoðuðum okkur um, tókum strætó til Sirmione og þaðan bát til Riva. Við sigldum sem sagt eftir öllu endilöngu vatninu. Það var stoppað nokkrum sinnum á leiðinni við hina ýmsu bæi en ekki farið í land eins og við gerðum í kórferðinni. Við komum beint heim í kvöldmatinn og borðuðum við öll sveitt og sæl. Við Simmi fórum svo í smá göngu um kvöldið og fengum dásamlega rigningu á leið okkar svo við flúðum inn til vinar okkar á enska pöbbnum.
Fimmtudagur 10. júní. Klukkan korter yfir áta tókum við strætó til Malchesine, þar tókum við kláf upp í 1760 metra hæð. Þar með vorum við komin upp á Mont Baldo og gengum smá spöl á toppnum. Gróðurinn minnti á Ísland. Þar voru kýr á beit með bjöllur um hálsinn og heyrðum við lengi í þeim. Þar horfðum við líka á svifflugkappa leggja í hann og horfðum á hann svífa um háloftin. Síðan hófst niðurgangan. Hvíldum okkur á kósí veitingastað. Ég fékk mér eplastrúdel. Síðan var gengið niður í marga klukkutíma. Ég kláraði alveg á mér lærvöðvana. Ég hékk orðið uppi á göngustöfunum. En svakalega var gaman samt. Gengum alvag niður í Malchesine og tókum strætó þar og heim.
Föstudagur 11. Júní. Það var nokkuð erfitt að fara fram úr rúminu og enn erfiðara að ganga niður stigann í morgunmat en það hafðist allt. Við urðum að skipta um hótel vegna skóráðstefnu sem var í Riva og öll hótel full. Við keyrðum til San Pellegrino og dvöldum þar á Hótel Centrale . Við skoðuðum þennan litla bæ sem greinilega mátti muna fífil sinn fegri og gengum meðfram ánni Brembo. Þetta er frægur heilsubær sérstaklega vegna vatnsins þar sem mun vera steinefnaríkt og hollt en mörg hótel voru lokuð og margt í niðurníslu. Brandur skipulagði gönguferð þar morgunin eftir. Lærvöðvarnir mínir sögðu helst ekki. HM í fótbolta var skollið á og fundum við breiðtjald á næsta bar og horfðum á bolta um kvöldið.
Laugardagur 12. júní. Lærvöðvarnir mínir lögðu ekki í fjallgöngu en Simmi ætlaði að skella sér og fór eldsnemma niður í morgunmat en hætti svo við og vildi frekar vera með mér. Sætur þessi elska. Ég hvatti hann samt til að fara. Við gengum bara tvö aftur meðfram Brembo en nú í hina áttina. Skoðuðum bæinn, gömul hús, gamla heilsustöð og nýtísku búðir. Flogið heim á klakann um kvöldið.

miðvikudagur, 2. júní 2010

Nú og þá
Ég er í einhverju nostalgíukasti núna.
Ég var í smáviðtali í Útvarp Hafnardagar í morgun og það er svo skrýtið að þó að ég hafi verið búin að hugsa hvað ég ætlaði að segja þá kom allt annað út úr mér þegar á hólminn var komið. Þetta var náttúrlega bara létt og leikandi og algjörlega stresslaust hjá Magnþóru þáttargerðarkonu en ég er ekki vön að hafa heyrnartæki á hausnum og tala í míkrófón. Bara það setur mann pínu upp á þráð og breytir einhverju.
Ég hef samt engar áhyggjur af viðtalinu, það tókst, held ég, með ágætum. Ég er bara að pæla í hvað tíminn líður hratt.
Ég sagði frá því að ég hefði, 1. júní 1964, hafið störf í Meitlinum í Þorlákshöfn í humri, nýfermd, Selfosspía. Og þá fór ég að rifja upp í huganum.
Pabbi var að byggja upp vélsmiðjuna Boða, ásamt nokkrum öðrum mönnum. Hann bjó á B-götu 22, ásamt þeim sem byggðu vélsmiðjuna með honum. Eiginkona eins þeirra sá um eldamennsku og önnur húsverk en þarna fengum við tvær dætur Boðamanna og ein vinkona að auki húsaskjól og fengum vinnu í humri í Meitlinum. Ég var 14 ára og þær ári eldri.
Mamma var þetta sumar á Selfossi við ýmis störf og systur mínar urðu þar eftir líka. Samt var búið að selja húsið okkar.Pabbi keypti fokhelt hús í Höfninni,að B-götu 20. En á Selfossi fengu þau leigðan kjallara í húsinu við hliðina á okkur í Smáratúninu meðan pabbi kláraði húsið í Höfninni.
Ég var í öðrum bekk í gaggó þegar húsið í Þolló var tilbúið og mamma og systur mínar flyttu frá Selfossi. Þá var kominn 1. desember 1964 og ég átti bara hálfan vetur eftir af hinu lögbundna skyldunámi. Það þótti alveg ótækt að ég skipti um skóla á miðju skólaári, yfirgæfi Gagnfræðaskóla Selfoss og settist í Barnaskólann í Þorlákshöfn, því meira nám byði mín ekki í Þorlákshöfn en annað kom ekki til greina í mínum huga, og kannski mömmu og pabba en að læra eitthvað meira en skyldunám bauð upp á.
Ég kláraði því skylduna, búandi hjá vinafólki okkar sem átti heima á efri hæðinni í Smáratúni 3, eða húsinu sem ég ólst upp í.
Núna eru, allt í einu, liðin 46 ár. Það er það sem er svo skrýtið.
Mér finnst ég enn vera stelpan sem byrjaði 14 ára að vinna í Meitlinum 1. júní 1964.

miðvikudagur, 26. maí 2010



Það hvarflaði að mér, í gærkvöldi, þegar Hera var komin upp úr undanúrslitum í júróvision og myndbandið með Jóhönnu Guðrúnu, syngjandi Is it true frá því í fyrra, var sýnt, að þær væru báðar eins og íslensk fjöll. Kjólarnir hjálpa til við að fá þá hugmynd í hausinn. Jóhanna Guðrún minnti mig á jökul, í þessum bláa kjól. Hún gæti verið Eyjafjallajökull. Ef samlíkingin heldur áfram þá er Hera miklu stærra fjall, reisulegra og undir því býr meiri kraftur. Hvaða fjall skyldi hún vera?
Kannski Katla sjálf.
Eða hin heimsfræga Hekla.
Hvort verður Hera heimsfræg fyrir að vinna júróvision eða Ísland heimsfrægt fyrir kraftmeiri eldgos en Eyjafjallajökull bauð heimsbyggðinni upp á?

föstudagur, 21. maí 2010

Vorið 2010
Það er yndislegt að finn ilm vorsins.
Það er dásamlegt að sjá grasið grænka.
Það er ljúft að finna hlýju ljóssins á eigin skinni.
Það er skondið að heyra laufið spretta á greinum trjánna.
Já, gróðurinn vex og dafnar vegna hlýjunnar og birtunnar
og vegna þess að ég sáldraði 5 kílóum af blákorni í garðinn minn,
daginn áður en það byrjaði að rigna.

miðvikudagur, 19. maí 2010


Ég hef heyrt í öllum barnabörnunum mínum í dag.
Fyrst fékk ég skilaboð frá ömmustelpu á vegginn minn á fésinu.
elsku amma við förum bráðum að leggja í hann til Iowa gg flott hótel sem við erum á núna sakna þín gg KV:n
Prinsinn af Wales hringdi seinnipartinn uppnuminn yfir harðfisknum og prumpublöðrunni sem ég sendi honum.
Sá elsti hringdi nú í kvöld að láta mig vita að ferðin yfir sléttuna miklu hefði gengið vel og gat hann alls ekki leynt hrifningu sinni á því að vera kominn aftur á gamlar slóðir.
"Við fjölskyldan erum búin að upplifa mjög tilfinningaþrungnar stundir í dag," sagði hann.
Ég hringdi oft í mömmu þegar ég bjó fyrir austan. Nú hringi ég aldrei. Skrýtið.

mánudagur, 17. maí 2010

Út og suður
Ég sé á nýjustu myndum af litla eða yngsta barnabarninu mínu, honum Lúkasi Þorláki, að hann hefur stækkað einhver ósköp síðan ég sá hann síðast. Hann er líka búinn að missa margar tennur og nýjar óðum að vaxa aftur. Hann þroskast og lærir og ég missi einhvern veginn af þessu öllu. Ég er svo sem í æfingu. Nanna Karls bjó í Ameríku frá tveggja mánaða aldri þar til 5 og hálfs árs gömul og ég bjó sjálf fyrir austan þegar Karl Kolbeinn var á aldrinum þriggja til sjö ára. Hann var reyndar duglegur að koma og dvelja hjá gamala settinu sínu, tíma og tíma.
Sem amma vildi ég sjá barnabörnin oftar og fylgjast betur með þeim en svona er þetta líf orðið. Amma situr ekki lengur í horninu prjónandi, heldur er í fullri vinnu og stundar líkamsrækt í frítímum. Foreldrarnir vinna myrkrana á milli og stofnanir ala upp blessuð börnin.
Ég veit ekkert af hverju ég er að pæla í þessu núna. Jú, líklega vegna þess að ég sendi Lúkasi harðfisk í dag og Vesturgötuliðið er á leið til Ameríku til mánaðar dvalar. Simmi minn er í Vestmannaeyjum, þannig að ég er alein á Fróni.
Svona er lífið.
Lífið og tilveran.

sunnudagur, 16. maí 2010

Garðurinn gerður klár fyrir sumarið
Ég fékk óvænta aðstoð við garðavinnu í dag. Simmi minn snaraði sér út í garð með mér og stakk upp meðfram beðunum og skreið á hnjánum til að hreinsa og gera fínt og tjáði mér eftir á að honum hefði fundist þetta nokkuð skemmtilegt.
Já, batnandi mönnum er best að lifa eða svo segir máltækið.
Nú leggur hann á ráðin með að útbúa moltukassa, nokkuð sem mig hefur dreymt um í fjölda ára.
Sjáum til.

mánudagur, 3. maí 2010



Mig hefur lengi langað í almennilegt hjól. Eygði smá von um að ég gæti fengið hann Simma minn til að gefa mér eitt þegar ég yrði sextug. Það líður senn að því svo ég nefndi þetta við hann um daginn.
"Gefa þér hjól í afmælisgjöf? Ekki að ræða það. Þú geur bara keypt þér hjól sjálf."
Ég sem hélt að ég væri að hjálpa honum með að finna handa mér afmælisgjöf.
Hann ætlar kannski bara ekki að gefa mér neitt. Mér finndist það nú bara ágætt.
Við fórum á Selfoss um daginn og skoðuðum hjól. Ég gat ekki ákveðið mig hvernig hjól ég vildi. Fór heim og hugsaði málið. Tók svo ákvörðun að kaupa hjól sem maður liggur aðeins fram á. Sem sagt alls ekki konuhjól þar sem maður situr beinn í baki.
Eftir vinnu í dag skaust ég á Selfoss og keypti mér hjól, akkúrat eins og ætlaði ekki að kaupa. Búðarstrákurinn lét mig prófa báðar gerðir og eftir prufuhjólatúra var ég alveg viss. Konuhjólið skyldi það vera.
Nú er ég búin að fara einn hjólatúr um þorpið og ég blés smá úr nös. Ný hreyfing, nýir vöðvar að vinna.
Nú fær bíllinn að hvíla sig inni í skúr en hvíti fákurinn minn fær að kenna á því.
Hjólað í vinnuna.
Hjólatúrar.
Hjólað.
Að hjóla er æði.

föstudagur, 30. apríl 2010

Enn einn föstudagurinn
Kotið þrifið og allt orðið hreint, pizzadeigið að hefast, Simmi minn á leið í land, bjórinn kominn í kælinn og rauðvínið á kútinn. Sem sagt helgin að ganga í garð með tvennum tónleikum, leikhúsferð og notalegheitum.
Föstudagar eru góðir dagar.

fimmtudagur, 22. apríl 2010


Sumardagurinn fyrsti
Bara rosalega ljúfur sumardagurinn fyrsti. Við hjónakornin höfum mest megnis hangið inni við skraf, skrafl og sjónvarpsgláp. Fórum í klukkutíma göngutúr um miðjan dag. Það var dálítið kalt, þrátt fyrir nafn dagsins en göngutúrinn var hressandi og góður.
Vorum að skemmta okkur í gærkvöldi með starfsmönnum skólans. Það var feikna stuð og fjör.
Sáum glitta í gosstrókinn. Bara út um eldhúsgluggann. Vona að hingað berist enginn aska þrátt fyrir fréttir af lokunum flugvalla í Reykjavík og Keflavík.
Heyrði aðeins í börnunum mínum, annað hringdi hitt sendi sms. Bæði með spennandi fréttir.
Fengum heimsókn fyrir hádegi. Höfðingjarnir Kalli Karls og Nonni litu við. Alltaf hressandi að fá þá í heimsókn.
Hlakka til sumarsins.
Þetta verður gott og skemmtilegt sumar.

þriðjudagur, 13. apríl 2010


Skýrslan
Það er annar í skýrsludegi í dag svona eins og annar í hvítasunnu eða annar í páskum. Það er fátt annað í fréttum en það sem stendur í Rannsóknarskýrslu Alþingis um aðdraganda og orsök falls íslensku bankanna árið 2008. Skýrslan er rúmlega 2000 blaðsíður að lengd og er gefin út í níu bindum.
Ég hlusta gaumgæfilega á allar frétttir sem ég næ í því ég nenni ekki að lesa herlegheitin. Samt er talað um að hún sé á mannamáli, vel unnin, nákvæm og á góðri íslensku. Mér finnst samt betra að láta aðra um að lesa hana og hlusta á hvað þeir hafa um hana að segja.
Maður er dolfallinn.
Dolfallinn yfir því hvernig nokkrir einstaklingar gátu farið með heila þjóð. Dolfallinn yfir því hvernig menn og konur sem við treystum sváfu á verðinum.
Dolfallinn yfir því að enginn skuli taka á sig neina alvöru ábyrgð.
Mig þysrtir í að einhver sé dreginn til ábyrgðar. Ég hélt að ég væri bara venjuleg góð manneskja og vildi engum neitt illt en nú er mér nóg boðið.
Ég finn einhvers konar hefndartilfinningu brenna í brjósti mér.
Eitthvað sem ég vissi ekki að ég ætti til.

fimmtudagur, 8. apríl 2010

Matvendni
"Ég þarf að segja þér svolítið," sagði Simmi minn grafalvarlegur í símann áðan. Hann hljómaði þannig að það var eins og eitthvað stórvægilegt hefði komið fyrir.
"Það var reykt ýsa í matinn."
Ég vorkenndi honum strax, því ég þekki minn mann og veit að hann vill sinn mat og engar refjar og borðar alls ekki reyktan fisk.
Mér finnst reyktur fiskur herramannsmatur en hann Simmi minn er á öðru máli og þess vegna hefur reyktur fiskur afar sjaldan verið hér á borðum. Það er þá helst að ég hafi notað tækifærið og eldað þannig mat þegar hann hefur verið að heiman.
"Strákarnir sleiktu útum og urðu heldur betur ánægðir með matinn," bætti Simmi minn við, "svo ég ákvað að segja ekki orð og fá mér smá á disk. Það var brætt smjör með og kartöflur og rófur. Og hvað heldurðu... þetta var rosalega gott. Ég bara vissi það ekki."
Hann er heppinn að vera staddur úti í Vestmannaeyjum, annars veit ég ekki hvernig okkar samskipti hefðu orðið.
Enda ætlaði hann varla að þora að segja mér þessa uppgötvun sína.
Kannski getur hann borðað allt. Hann bara veit það ekki.

fimmtudagur, 25. mars 2010


Rómantík í sveitinni
Ég var svakalega heppin á Gellunni hjá Kiwanis um síðustu helgi. Mitt númer var dregið út í happdrættinu. 83 kom upp. Það var miðinn minn. Ég vann eina nótt á hóteli upp í sveit, þriggja rétta kvöldverð og morgunmat. Rómantík í sveitinni er það kallað.
Hann Simmi minn stakk upp á því í gær að við skyldum nýta okkur þetta á brúðkaupsafmælinu okkar.
Hann talaði um brúðkaupsdaginn þann tuttugugasta og níunda, það væri fínt að nota vinninginn þá.
Mér fannst hann voða huggulegur og smart að muna svona eftir brúðkaupsdeginum og fannst flott hjá honum að bjóða mér í svona rómantík í sveitinni á þessum degi, þrátt fyrir að ég fékk vinningin og brúðkaupsdagurinn er ekki tuttugasta og níunda heldur þrítugasta.
Hvað er einn dagur á milli vina? Og hver er munurinn á mínum vinningi og hans?
Það verður rómantík í sveitinni í næstu viku.
Rómantík á brúðkaupsafmæli.
Þrítugasta og áttunda brúðkaupsafmælið.

þriðjudagur, 16. mars 2010


Forsíðulopapeysa
Mig langar ekkert endilega að monta mig neitt en mér finnst svolítið gaman að því að hafa prjónað peysuna sem maðurinn er í á myndinni á forsíðu Moggans í dag. Þessi myndbirting verður næstum því til þess að ég gerist aftur áskrifandi.
Þessa peysu prjónaði ég á dr. Kalla en hún varð alltof stór á hann. Hann tók peysuna samt og gaf hana vini sínum sem hafði einmitt látið út úr sér nokkrum dögum áður að hann vantaði lopapeysu en væri í vandræðum af því mamma hans væri hætt að prjóna. Ég þekki manninn ekki neitt, hef einu sinni hitt hann en það kom upp úr dúrnum að við erum eilítið skyld.
Verst að tvíburastelpurnar hans séu ekki í sínum lopapeysum en Gréta systir hefur prjónað á þær svakalega fínar peysur. Það kom til af allt öðru tilefni.
Margar eru þær skemmtilegar tilviljanirnar.

miðvikudagur, 10. mars 2010


Að grána
Ég tók þá ákvörðun fyrir nokkru síðan að hætta að lita á mér hárið. Ég hef ekki séð raunverulegan lit á því í áratug eða lengur. Ég ætlaði að hætta að lita það fyrir nokkrum mánuðum síðan en guggnaði á því þegar í hárgreiðslustólinn var komið. Þegar Ragga mín sagði: .... “og hvaða lit ætlum við að nota núna” fraus ég.
Það var dauðaþögn á stofunni, í þessari andrá, og allir hefðu heyrt mig segja: “Ég ætla ekki að fá neinn lit.”
Ég missti af augnablikinu, einhvern veginn, og sagði: “Bara eins og venjulega.”
Ég var ákveðnari í næstu klippiferð og í dag þegar Ragga mín sagði:...og svo ætla ég að setja lit........þá stoppaði ég hana af og minnti hana á fyrri ákvörðun mína.
Hún stóð alveg með þessari ákvörðun minni.
Nú er ég með músgráa rót en fallega ljósa lokka við kinnarnar. Bráðum verð ég með músgrátt hár út um allan haus en það er bara tilhlökkunarefni.
Eða þannig.
Kannski er eittthvað meira en músgrátt.
Kannski er allt grátt.
Og hvað með það?

mánudagur, 8. mars 2010

Af hverju?
Af hverju raka ég á mér fótleggina?
Af hverju læt ég brúnt krem á andlitið?
Af hverju læt ég lita ég á mér hárið?
Af hverju plokka ég augabrúnirnar?
Af hverju lita ég augabrúnirnar svartar?
Af hverju raka ég mig undir höndunum?
Af hverju læt ég lit á augnlokin á mér?
Af hverju mála ég augnhárin?
Af hverju mála ég á mér varirnar?
Af hverju læt ég á mig kinnalit?
Af hverju ?
Mér er spurn.

fimmtudagur, 4. mars 2010


Hetjan hennar mömmu
Eftir að hafa lesið bloggið hennar dótlu minnar í dag og grátið af gleði fyrir hennar hönd, fór ég að hugsa aftur á bak og pæla í því hvenær hún byrjaði fyrir alvöru að fitna. Ég grúskaði í gömlum myndum og líklega fer að bera á fitu utan á litlum kroppi strax um sex ára aldurinn. Ég hafði ekki nokkrar áhyggjur af henni fyrr en nokkrum árum síðar þegar hjúkkan á staðnum stakk upp á því að setja hana á megrunarkúr. Við, mæðgur, fengum í hendurnar matarprógramm sem við fylgdum samviskusamlega eftir og barnið, um 10 ára, fór í vigtun einu sinni í viku.
Það er, eins og allir vita, algjört bull að fara í megrunarkúr. Kúr er eitthvað sem stendur yfir í stuttan tíma og á að leyssa allan vanda en eykur aðeins á vandamálið án þess að leysa nokkurn skapaðan hlut.
Dótla mín er búin að taka þá nokkra í nefið, megrunarkúrana. Ég hef tekið nokkra með henni og ég hef líka tekið marga án hennar en það er önnur saga. Við höfum t.d. prófað Herbalife og við höfum tekið hinar og þessar ákvarðanir um breytt og betra mataræði en eins og flestir vita þarf svo miklu meira en að taka eina ákvörðun, það þarf breytt hugarfar.
Ég á skynsama og klára dóttur. Hún tók, eftir mikla spekúleringu, ákvörðun um að reyna að skipta um hugarfar, hvað mataræði varðar, og hefur verið á réttu brautinni í heilt ár.
Hún henti út ýmsu rusli.
Hún pælir í hverju grammi sem hún lætur ofan í sig.
Hún fór að hreyfa sig.
Hún léttist, alein án nokkurar utanaðkomandi hjálpar, um 30 kíló.
30 kíló á einu ári.
Hún er hetja.
Hún er litla hetjan hennar mömmu.

miðvikudagur, 3. mars 2010

Íþróttataska eða plastpoki
Við, Simmi minn, hittumst stundum fyrir framan Íþróttamiðstöðina fyrir klukkan sjö á morgnana. Hann mætir klukkan sex, ég klukkan sjö.
Þegar ég mæti á húninn á sundlauginni, fyrir vinnu, er hann að ljúka sinni líkamsrækt enda á hann að vera mættur í vinnu í höfuðborginni klukkkan átta.
Mér finnst voða gott að sjá hann áður en ég smell inn í sundlaugina af því stundum vakna ég ekki þegar hann fer. Þá vantar gúdmorningkossinn.
Ég sé hann því stundum ganga frá syðri enda Íþróttahússinns í átt að þeim nyrðri, þar sem ég bíð eftir að mér sé hleypt inn en hann að bíða eftir Svenna.
Hann er flottur kallinn minn.
Samt er eithvað að.
Hann er íþróttamannlega vaxinn. Herðabreiður og miðmjór og gengur snöfurmannlega. En samt ekki eins og hinir gæjarnir sem koma úr rækitinni. Þar sem ég er að spekúlera í þessu kveiki ég á perunni.
Hinir eru allir með forláta íþróttatösku, annaðhvort á öxlinni eða bara í annarri hendinni.
Það er þetta sem Simma minn vantar.
Íþróttatösku.
Hann hefur íþróttafötin sín í plastpoka.
Og ekki nóg með það heldur stendur á pokanum : Gleðileg jól.
Gulur gleðileg jól plastpoki.

þriðjudagur, 2. mars 2010

Að samræmast sjálfum sér
"Rassgatið samræmist ekki löppunum á þér í þessum buxum," sagði Simmi minn, einhvern tímann á haustdögum þegar ég var að hafa mig til í vinnuna í gömlu gallabuxunum mínum.
Ég þekki minn mann og tók þessu bara sem viðvörun og engu öðru og móðgaðist ekki neitt.
Ég lagði samt fjandans buxunum og hef ekki farið í þær fyrr en í morgun þegar þær ultu út úr skápnum og ég tók skyndilega ákvörðun að skella mér í þær.
Mér datt ekki í hug að Simmi minn myndi eftir því sem hann sagði við mig í haust.
Þess vegna varð ég voða glöð þegar hann sagði í morgun.
"Sundið hlýtur að gera þér gott, því rassgatið og lappirnar eru alveg í samræmi núna.
Þetta er svona með flottara hrósi sem ég get átt von á frá manninum sem ég dró upp að altarinu hérna um árið.

mánudagur, 1. mars 2010

Stuttbuxnakall
Hann, Simmi minn, er stuttbuxnakall. Á sumrin gengur hann nánast eingöngu í stuttbuxum og þá helst gömlum gallabuxum sem hann rífur skálmarnar af. Eins og flestir vita er ekki hægt að rífa skálmar af gallabuxum þannig að skálmarnar verði jafnsíðar allan hringinn. Simma mínum er sléttsama um það. Bara að hnén séu frí og frjáls þá er hann alsæll.
Fyrir mörgum, mörgum árum gaf mamma honum forljótar stuttbuxur, að mínu mat. En honum þóttu þær bara skratti góðar. Í þessar buxur fór hann á hverju kvöldi þegar hann kom heim úr vinnu. Sem betur fer slitnuðu buxurnar í áranna rás og einn góðan veðurdag gat ég dæmt þær ónýtar. Ég lét þær gossa í ruslið, ánægð með að nú hlyti hann að fá sér einhverjar skárri til að skarta í á kvöldin.
Ég varð vitni að því nokkru síðar að Simmi minn, kvartaði við mömmu um það að ég hefði hent bestu stuttbuxunum hans. Dregur sú gamla ekki fram aðrar, nákvæmlega eins buxur og ég henti og gefur honum.
Hún hafði gert góðan díl á sínum tíma. Fékk þrjár fyrir einar.
Ég held að, Simma mínum, endist vart ævin til að slíta öllum þessum stuttbuxum.
Ég er orðin sérfræðingur í að láta sem ég sjái kvöldklæðnaðinn ekki.

þriðjudagur, 23. febrúar 2010

Sumarbústaðaferð
Við, Simmi minn, höfum ekki verið að troða stéttarfélögum okkar um tær hvað nýtingu sumarbústaða varðar. Við tókum á leigu kennarabústað á Flúðum, þegar ég varð fertug og það nálgast að vera 20 ár síðan.
Mér datt í hug um daginn að notfæra mér bústað aftur í vetrarfríinu (19.-22. feb.) en auðvitað var allt upppantað. Ég get aldrei hugsað nógu langt fram í tímann enda var ég alltaf að vona að ég dytti niður á ódýra ferð til Manchester þessa helgi sem varð nú ekki.
Simmi minn, hringdi í bríaríi í sitt stéttatfélag og viti menn, það var laust á Laugarvatni. Við höfum í nokkur skipti plantað Sólbrekku á tjaldsvæði vélstjóra á Laugarvatni og finnst alltaf jafn gott að vera þar. Tjaldsvæðið er við hliðina á sumarbústöðunum og er sameiginleg sundlaug þarna og heitir pottar.
Við dvöldum síðustu helgi í einu af raðhúsunum þeirra með einkapott og alles. Við áttum þarna frábæra helgi í afslöppun, við lestur, göngutúra, sjónvarpsgláp og fleira. Borðuðum og borðuðum og dreyptum á rauðvíni.
Ákváðum að vera þarna aftur um páskana en viti menn, allt er löngu upppantað.

fimmtudagur, 18. febrúar 2010

Vinadagar


Þemadagar voru í skólanum mánudag, þriðjudag og miðvikudag. Nefnd var skipuð í að sjá um þetta fyrir jól. Ég var gerð að framkvæmdastjóra nefndarinnar. Við byrjuðum strax fyrir jól að skipulegga og héldum marga fundi. Markmiðið var að efla og treysta vináttu innan skólans og kölluðum við þemað vinadaga.
Verkefnið tókst, að mínu mati, mjög vel. Við skiptum nemendum í sex hópa og unnu hóparnir tvær kennslustundir í senn í hverju verkefni en þau dreifðust á sex stöðvar. Markmiðið með verkefnum var að eitt sameiginlegt verk kæmi frá hverri stöð.
Unnið var við: ritun, málun og mótun, prjónaskap, sauma, smíði og sælgætis-og kökugerð.
Útivera var á hverjum degi.Við föðmuðum skólann og fórum í göngur, öll saman.
Ég er nú ekki meiri bógur en það að ég er enn dauðþreytt eftir öll skemmtilegheitin. Ég sá um annan af tveimur prjónahópum og af því ég þurfti að kenna mörgum undirstöðuatriði í prjónaskap var vinnustellinginn þessa daga ekki af besta taginu. Ég stóð fyrir aftan nemendann og teygði mig yfir hann og framfyrir til þess að hann sæi hvernig ætti að bera sig að. Þarna er ég hálfboginn í þrjá daga í þrjá klukkutíma í senn. Ofan á slæma vinnustellingu bættist stressið, sem ég gerði mér ekki alveg grein fyrir að ég hefði þjáðst af, fyrr en að þemadögunum lauk. Ég var með áhyggjur af því hvernig til tækist, hvort öllum liði vel, bæði nemendum og starfsfólki, hvort nokkuð hefði gleymst o.s.frv.
Þess vegna er vetrarfrí kærkomið.
Ég þarf að vinda ofan af mér.
En þessir dagar voru mjög skemmtilegir.

miðvikudagur, 17. febrúar 2010

Vetrarfrí
"Ég er ekki búinn að redda neinum blómum", heyrði ég að Simmi minn tautaði fyrir munni sér á sunnudagsmorguninn þegar látlaust glumdu í útvarpinu auglýsingar um konudagsblóm.
"Hafðu ekki áhyggjur af því", sagði ég "í dag er Valentínusardagur og við höldum ekki upp á hann."
"Nú, sagði minn heittelskaði, "Valentínusardagur og konudagur, hva..hve.. og.."
Hann vissi greinilega ekkert í sinn haus.
Nú er minn búinn að panta sumarbústað fyrir næstu helgi, bara svona til að hafa það huggulegt og næs, af því það er konudagur og vetrarfrí hjá mér og hann ætlar að taka vetrarfrí af eintómri meðvirkni.
Hlakka til næstu helgar.
Vetrarfrí og næs.
Löng helgi í sumarbústað.

föstudagur, 12. febrúar 2010


Prjón
Það eru fleiri en ég sem fá skrítnar prjónahugmyndir. Í næstu viku verða þemadagar í skólanum sem við köllum vinadaga. Unnið verður að ýmsum verkefnum sem eiga öll að efla og treysta vináttu allra í skólanum. Verkefnin verða flest samvinnuverkefni.
Ég verð á einni stöðinni með prjónaskap handa öllum. Það stendur til að prjóna vinaorm. Allir leggja sitt af mörkum, prjóna eins og þeir geta í eina eða tvær kennslustundir. Sumir eru náttúrlega byrjendur en það er allt í lagi. Einhvern tímann er allt fyrst. Vonandi verður til langur, mjúkur ormur sem hægt er að hringa utan um sig eða kúra hjá.
Nú sé ég að íbúar Fjallabyggðar ætla að prjóna trefil sem nær frá Siglufirði til Ólafsfjarðar í gegnum Héðinsfjarðargöng.
Skemmtileg hugmynd. Þar verður prjónað á öllum biðstofum og kaffistofum.
Já, það má segja að prjónarnir séu "inn" um þessar mundir.

fimmtudagur, 11. febrúar 2010

Montinn skokkari
Ég mældi gönguhringinn minn og komst að því að hann er 3,5 km langur. Ég notaði kort á ja.is og mældi þetta þar. Bráðsniðugt alveg. En ég er svo montinn yfir því að ég geng u.þ.b. hálfan kílómetra og skokka þrjá. Og get það.
Mér datt ekki í hug að þessi vegalengd næði þremur kílómetrum en það reyndist raunin.
Mér finnst fínt að skokka þrjá kílómetra. Ég þarf bara að huga að betri skóm og þægilegri fatnaði. Ég er örugglega dálítið asnaleg í snjóbuxum og úlpu. Ég sé engan þannig klæddan á skokki.
En mér er slétt sama um öll asnalegheit.
Ég skokka.

sunnudagur, 7. febrúar 2010


Leikhúsferð
Við, Simmi minn, fórum í dag að sjá Söngvaseið. Þessi leikhúsferð kom til vegna þess að Nanna var hjá okkur um daginn og sagði okkur að hana langaði svo að sjá Söngvaseið. Ég dreif mig á netið til að athuga með miða og komst að því að síðasta sýning væri í dag. Ég keypti miða, þrátt fyrir að þetta væri sunnudagurinn eftir þorrablót.
Það var auðvitað frábært að vera með ömmubarninu sínu í leikhúsinu. Hún skemmti sér konunglega en það var tilgangurinn. Við, gamla dressið, skemmtum okkur líka vel.
Mér finnst alltaf svo gaman að fara í leikhús.
Nú vonum við að Nanna muni eiga góða minningu um það þegar hún fór í leikhúsið með ömmu og afa.

föstudagur, 5. febrúar 2010



Föstudagskvöldmatur
Okkur, Simma mínum, finnst voða gaman að elda kvöldmatinn saman. Við getum það ekki alltaf því hann kemur svo seint heim úr vinnunni, þannig að ég elda virka daga og borða áður en hann kemur heim. Við lærum að lifa með því eins og öðru.
Á föstudögum er mjög oft pizza. Við kunnum alveg að gera fínar pizzur enda bökuðum við og seldum pizzur um tíma þegar við vorum í "útrás."
Í kvöld var hins vegar matreitt úr fiskihakki frá Selfossi. Skrítið en satt. Við stóðum saman hlið við hlið í eldhúsinu okkar og útbjuggum matinn, hann fyrir sig og ég fyrir mig. Hann setti út í hakkið sitt: salt, pipar, lauk,karrí, egg og hveiti og bjó úr þessu bollur sem hann steikti upp úr smjöri á pönnu.
Ég lét í hakkið mitt: salt,pipar,lauk,eggjahvítu og heilhveiti. Setti þetta í sílíkonform og bakaði inni í ofni.
Við nutum matarins bæði, þó ólíkur væri.

fimmtudagur, 4. febrúar 2010

Kaupstaðarferð
Fór á Selfoss í dag til tannlæknis. Bara svona eftirlit sem ég fer í einu sinni á ári. Af því ég var á Selfossi þá var ég komin í Bónus áður en ég vissi af, sjálfsagt til að nýta ferðina. Ég mundi samt ekki eftir neinu sem vantaði til heimilsins nema eyrnapinna. Ég rölti um búðina og týndi ofan í körfuna hitt og þetta sem kostaði um áttaþúsund. Dýrir eyrnapinnar það. Lét konu, sem var að kynna brauð frá Svíþjóð, plata mig til að kaupa slíkt. Ég spurði hana hvort það væri ekki stútfullt af E-efnum en hún sagði svo ekki vera en það væri óvenjupróteinríkt sem ég og sá á innihaldslýsingu. Ég er svo áhrifagjörn. Af því að hún dótla mín er að pæla í próteinum og kolvetnum þá keypti ég brauðið, handa mér.
Annað sem ég gerði á Selfossi var að ég fór í fiskbúðina. Aldrei gert það áður. Keypti fisk fyrir fjögurþúsund. Fiskur er einmitt líka próteinríkur. Mér finnst einhvern veginn enn þá að Simmi minn eigi að koma með fisk heim af sjónum en hann verður víst að vera á fiskibát till þess að það sé hægt.

þriðjudagur, 2. febrúar 2010


Gamlar venjur

Það er erfitt að kenna gömlum hundi að sitja. Það sést á mér. Ég var alveg sannfærð um það að ég hefði lært að hafa matarskammtinn af réttri stærð eftir að ég vigtaði allt ofan í mig í nokkra mánuði í fyrrasumar. Ég hef ekkert botnað í því núna, frá því í haust, af hverju ég léttist eiginlega ekki neitt. Tók því til gagngerar endurskoðunar matarskammtana og viti menn! Auðvitað borða ég allt of mikið. Ég hef sem sagt, hægt og rólega farið í gamla farið aftur og stækkað matarskammtana án þess að taka eftir því eða ekki viljað sjá það.
Núna verð ég að byrja aftur að vega og mæla, vigta og pæla.
Það eina sem ég vigta alltaf er haframjölið í morgungrautinn. Það kemur til af því að ég elda hann í örbylgjuofni í vinnunni og vigta í litla poka fyrir hvern dag. Ég er alltaf jafn hissa hve lítið er á disknum mínum, þess vegna ætti ég líka að vera hissa á kjötbitanum eða ostsneiðinni. En hef greinilega aukið við þann skammt.
Það þýðir víst ekkert að dæsa yfir þessu heldur safna liði og hefna.

sunnudagur, 31. janúar 2010


Þorrablót
Ég fór með Simma mínum á þorrablót í gærkvöldi, þar sem hans vinnustaður bauð til teitis. Þar var á borðum frábær þorramatur, borinn fram á kaffistofu fyrirtækisins, Björgunar ehf, og skemmtiatriði og ball fóru fram á verkstæðinu. Þetta var hin dægilegasta skemmtun þar sem ég þekkti mjög fáa og fannst það bara af hinu góða. Ég hef aldrei áður dansað á grófu verkstæðisgólfi þar sem vinnuvélar af ólíklegustu gerðum voru innandyra og hið undarlegasta dót sem ég kann engin skil á.
Við, Simmi minn, dönsuðum af okkur rassgatið, eins og tengdadóttir mín myndi orða það og tróðum upp með eftirlætisatriðinu okkar og skemmtum okkur frábærlega.
Við eigum það til að vera athyglissjúk og fengum því útrás með því að syngja Ídag kom hann Ingólfur Arnar......sem er að verða eins og vörumerkið okkar... af hverju, skil ég ekki alveg. Undirleikarinn í gær var ekki af verri endanum, Stefán Jökulsson, lektor við menntavísindasvið HÍ og fyrrum samnemandi minn við gamla Kennó.
Ég kynntist þarna fullt af fólki.
Fullt af skemmtilegu fólki.

föstudagur, 29. janúar 2010

Upp og niður
Loksins hreyfðist vigtin pínupons. Helmingurinn af hinu jólakílóinu er farinn. En hugsa sér. Janúar að verða búinn og enn er verið að reyna að komast á byrjunarreitinn. Ég er skíthrædd um að takmarkinu verði ekki náð. En ég gefst ekkert upp. Borða innan við 1500 kalóríur. Stundum langtum minna. Syndi og svo bæti ég stöku göngutúr við.
Ég hélt að sundið gerði líta meira fyrir mig en að halda gigtarverkjum niðri og minnka stirðleika. Ég komst að því um daginn að það hefur áhrif á þolið líka. Ég prófaði að skokka og gat það. Einn daginn tók ég tvo spretti í göngutúrnum og fannst það ekkert mál. Daginn eftir lengdi ég sprettina og fannst það ekkert mál. Þriðja daginn skokkaði ég næstum allan gönguhringinn minn og fannst það ekkert mál. Blés varla úr nös. Það var ekki fyrr en daginn eftir að ég fann fyrir harðsperrum eða einhvers konar verkjum í mjöðmunum.
Skokkið rifjaði upp kikkið sem ég fékk út úr því á Reyðarfjarðarárunum. Það var svo gaman að skokka þar að ég gat varla beðið eftir að sólarhringur liði svo ég gæti farið út aftur.
Ég ætlaði aldrei að hætta að skokka en þannig fór það nú samt.

föstudagur, 22. janúar 2010


Bóndadagur

Mamma kenndi mér það að á bóndadaginn gerði maður manni sínum sérstaklega gott í mat. Ég sauð alltaf hangikjöt handa honum hér á árum áður. Einhvern hefur þetta breyst og núna er þorramatur á borðum okkar svo skrítið sem það nú er því Simmi minn borðar ekkert súrt. Hann vill hangikjöt og svið en helst af öllu saltkjöt. Súri maturinn fer því ofan í minn maga og ég þykist vera að gera bónda mínum gott.
Jú, hann borðar harðfiskinn en ég gúffa í mig hákarlinn.
Ég færði honum líka blóm í dag í tilefni dagsins. Ég gaf honum ekki neitt afskorið sem er dautt í vasanum eftir nokkra daga heldur gaf ég honum jukku í potti. Hann er nefnilega blómakall hvort sem fólk trúir því eða ekki. Þetta kom í ljós á Reyðarfjarðarárunum okkar. Þá áttum við blóm í pottum og hann sá um þau. Ég gleymdi að vökva en ekki hann. Sama er að segja með pálmann sem Svava Rán skyldi eftir á Íslandi þegar hún yfirgaf klakann. Simmi minn hefur algjörlega séð um að halda lífi í pálmanum og er hann mjög fallegur og dafnar vel.
Nú situr hann og dáist að jukkunni sinni.

fimmtudagur, 21. janúar 2010


Menningarferð
Ég skrópaði í sundi í morgun. Ég sneri mér á hina hliðina þegar útvarpið vakti mig og reyndi að sofna aðeins aftur. Ég fann að ég átti eftir að sofa aðeins meir. Ég kom heim upp úr miðnættinu, eftir frábæran kvöldverð í Perlunni þar sem rauðvín var keifað með matnum. Annað hefði verið synd með fjögurra rétta málsverði og skemmtilegu fólki.
Áður en málsverður var snæddur, skoðaði hópurinn minn Guðríðarkirkju í Grafarholti. Þar tók sóknarpresturinn, séra Sigríður Guðmarsdóttir, á móti okkur og fræddi okkur um byggingu kirkjunnar, sem er yngsta kirkja landsins. Kirkjan er eins og skókassi að utan en ótrúlega skemmtileg og vel heppnuð að innan þar sem hugsað er fyrir öllum hlutum. Presturinn hafsjór fróðleiks og þrælskemmtilegur.
Ég ætlaði svo auðvitað að labba í dag í stað þess að sleppa sundi en ég hafði veðrið sem afsökun. Það er svo kolklikkað að Simmi minn kemst ekki heim úr vinnunni. Hann er á veðurvakt í Helguvíkinni.

laugardagur, 16. janúar 2010

Þorsti
Ég las um daginn, hjá einum Eyjubloggarana, að þorsti væri oft tekinn sem hungur. Ég tek þetta algjörlega inn á mig. Trúi þessu eins og nýju neti. Ég verð rosalega sjaldan þyrst en rosalega oft svöng. Nú hef gert það í nokkra daga að fá mér vatnssopa þegar ég finn fyrir hungri og viti menn, ég var bara þyrst.
Vonandi er þetta einn liður í að halda aukakílóunum frá.

föstudagur, 15. janúar 2010

Eftirköst jólanna
Hitt jólakílóið virðist vera alveg gikkfast á mér. Vigtin hefur ekkert breyst frá síðasta föstudegi. Ég hef í engu breytt frá áætlun minni nema það að ég gúffaði í mig kökum og brauði á kennarafundi á þriðjudaginn. Ég hefði kannski átt að fá mér eina sneið í stað margra.
Ég hafði þessa fínu afsökun að fá mér á diskinn því ef ég hefði ekki gert það fengi ég athugasemdir frá samstarfsfólki mínu og ég vil það ekki. Vil ekki vera félagsskítur og borða þess vegna með.
Frábær afsökun eða hitt þó heldur. Eins og að ég ráði því ekki sjálf hvað ég læt ofan í mig. Þetta er bara nammisýki og ekkert annað. En ég fór bara eina ferð. Lét þar við sitja.
Ég hef ekki bætt neinu við hreyfinguna. Syndi bara eins og selur á morgnana en er alltaf á leið út að labba eftir vinnu en er ekki farinn enn af stað. Mér finnst gaman og gott að ganga og geri það um helgar en er svo löt að loknum vinnudegi að leisíboj hefur vinninginn.
Held ótrauð áfram að borða innan við 1500 hitaeiningar og sé hvað setur næsta föstudag.

þriðjudagur, 12. janúar 2010

Skrúfur eða ekki skrúfur
Simmi minn, sagði upp úr eins manns hljóði um daginn, þegar hann hafði horft á auglýsingu í sjónvarpinu, að hann væri að hugsa um að kaupa skrúfubox á tilboði í Húsasmiðjunni. Ég horfði á hann í forundran og spurði hvers vegna.
"Mig vantar oft skrúfur," sagði hann.
"Ég man ekki eftir þér við að skrúfa neitt sérstakt."
"Nei, það er af því mig vantar skrúfur."
"Ég man ekki eftir þér neins staðar pælandi í því að það vantaði skrúfu einhvers staðar."
"Það getur verið gott að eiga skrúfur ef mann vantar þær," sagði hann þá.
Ég samsinnti því ennþá alveg forviða á honum.
Þegar hann kom heim úr vinnunni á föstudaginn sagðist hann hafa farið í Húsasmiðjuna og skoðað skrúfuboxin og munað eftir orðum mínum um að hann væri aldrei að skrúfa neitt svo hann fór bara í Ríkið og keypti bjór því ég hefði oft séð hann drekka svoleiðis.

föstudagur, 8. janúar 2010

Jólakíló
Ég tók þá ákvörðun, á 59 ára afmælisdaginn minn, að taka ástkæra dóttur mína mér til fyrirmyndar. Hún var þá búin að missa allnokkur kíló með breyttu hugarfari og að pæla í hitaeiningum. Ég gerði eins og hún, taldi hitaeiningar í gríð og erg og passaði mig á því að borða ekki meiri mat en sem svaraði 1500 hitaeiningum. Frá 8. júní og fram í miðjan ágúst fóru sjö kíló. Það má líka orða það öðru vísi. Ég fór úr fatanúmeri 18 í 16. Það var nokkuð heppilegt því þá gat ég notað föt sem ég hafði stækkað upp úr.
Frá því í ágúst fram að jólamánuðnum lagði ég áherslu á að halda þessum árangri og get svarið það að það var strembið. Ég varð að hugsa vel um það sem ég setti ofan í mig eða öllu heldur hafa tilfinningu fyrir fjölda hitaeininga sem ég borðaði dag hvern.
Í desember slakaði ég aðeins á, nóta bene bara aðeins. Ég gúffaði aldrei í mig eins og mig langaði. Smákökurnar eru til dæmis næstum því allar til ennþá. Samt bætti ég á mig tveimur kílóum. Ég get líka orðað það öðruvísi af því sumir vilja ekki að maður einblíni um of á vigtina. Grái skokkurinn minn, sem ég keypti í október, er orðin of þröngur um brjóstin. Það er eins og þessi tvö kíló hafa skipt sér niður á brjóstin á mér. Eins og ég hafi nú mátt við því.
Nú er ég búin að ná öðru jólakílóinu af og þegar hitt verður farið þá er ég komin á sama stað og ég náði um miðjan ágúst.
Markmiðið er að komast í kjól númer 14 þegar ég verð sextug. Það þýðir að ég verð að missa 3-400 grömm á viku.
Til að ná markmiðinu ætla ég að synda áfram mína 1000 metra fimm sinnum í viku og bæta við nokkrum göngutúrum. Telja hitaeiningar áfram og halda mér undir 1500 á dag.

miðvikudagur, 6. janúar 2010

Hilluverð og annað verð
Það munaði rúmum þrjúhundruð krónum á verðinu á hillunni og verðinu sem birtist á skjánum þegar búðarkonan skannaði hnetupokann. Ég hafði velt pokanum lengi fyrir mér áður en ég tók ákvörðunina að splæsa honum á mig.
Ég ætlaði varla að tíma því. En af því hnetur eru hollar og mér finnst þær svo rosalega góðar þá ákvað ég að láta verða af því. Ég skammta mér 100 hitaeiningar á dag úr pokanum þannig að hann endist í nokkra daga.
Það var algjör tilviljun að ég leit á skjáinn um leið og 889 kr. birtust á honum.
Ég gat ekki orða bundist en ég er ekki vön að röfla í búðum.
Ég fékk pokann á hilluverðinu og nú á ég heldur betur dýrmætar hnetur.
Þær eru eiginlega bara sparihnetur.