
Hetjan hennar mömmu
Eftir að hafa lesið bloggið hennar dótlu minnar í dag og grátið af gleði fyrir hennar hönd, fór ég að hugsa aftur á bak og pæla í því hvenær hún byrjaði fyrir alvöru að fitna. Ég grúskaði í gömlum myndum og líklega fer að bera á fitu utan á litlum kroppi strax um sex ára aldurinn. Ég hafði ekki nokkrar áhyggjur af henni fyrr en nokkrum árum síðar þegar hjúkkan á staðnum stakk upp á því að setja hana á megrunarkúr. Við, mæðgur, fengum í hendurnar matarprógramm sem við fylgdum samviskusamlega eftir og barnið, um 10 ára, fór í vigtun einu sinni í viku.
Það er, eins og allir vita, algjört bull að fara í megrunarkúr. Kúr er eitthvað sem stendur yfir í stuttan tíma og á að leyssa allan vanda en eykur aðeins á vandamálið án þess að leysa nokkurn skapaðan hlut.
Dótla mín er búin að taka þá nokkra í nefið, megrunarkúrana. Ég hef tekið nokkra með henni og ég hef líka tekið marga án hennar en það er önnur saga. Við höfum t.d. prófað Herbalife og við höfum tekið hinar og þessar ákvarðanir um breytt og betra mataræði en eins og flestir vita þarf svo miklu meira en að taka eina ákvörðun, það þarf breytt hugarfar.
Ég á skynsama og klára dóttur. Hún tók, eftir mikla spekúleringu, ákvörðun um að reyna að skipta um hugarfar, hvað mataræði varðar, og hefur verið á réttu brautinni í heilt ár.
Hún henti út ýmsu rusli.
Hún pælir í hverju grammi sem hún lætur ofan í sig.
Hún fór að hreyfa sig.
Hún léttist, alein án nokkurar utanaðkomandi hjálpar, um 30 kíló.
30 kíló á einu ári.
Hún er hetja.
Hún er litla hetjan hennar mömmu.
2 ummæli:
Hugarfarsbreyting er málið .... Til hamingju með fallegu litlu stelpuna þína.
Kær kveðja,
Zordis
Guð, nú er ég farin að gráta! Fallega skrifað hjá þér, Gunna mín - þú veist að hetjur verða ekki til úr engu :) Bestu kveðjur heim til ykkar, Ásta
Skrifa ummæli