Enn einn föstudagurinn
Kotið þrifið og allt orðið hreint, pizzadeigið að hefast, Simmi minn á leið í land, bjórinn kominn í kælinn og rauðvínið á kútinn. Sem sagt helgin að ganga í garð með tvennum tónleikum, leikhúsferð og notalegheitum.
Föstudagar eru góðir dagar.
1 ummæli:
mikið vildi ég að ég hefði nennt að þrífa í dag. Þá væri mitt kot hreint. Ég bara nennti ekki meiru. Helgin kemur bara á morgun með ajaxi í morgunsárið.
Skrifa ummæli