

Föstudagskvöldmatur
Okkur, Simma mínum, finnst voða gaman að elda kvöldmatinn saman. Við getum það ekki alltaf því hann kemur svo seint heim úr vinnunni, þannig að ég elda virka daga og borða áður en hann kemur heim. Við lærum að lifa með því eins og öðru.
Á föstudögum er mjög oft pizza. Við kunnum alveg að gera fínar pizzur enda bökuðum við og seldum pizzur um tíma þegar við vorum í "útrás."
Í kvöld var hins vegar matreitt úr fiskihakki frá Selfossi. Skrítið en satt. Við stóðum saman hlið við hlið í eldhúsinu okkar og útbjuggum matinn, hann fyrir sig og ég fyrir mig. Hann setti út í hakkið sitt: salt, pipar, lauk,karrí, egg og hveiti og bjó úr þessu bollur sem hann steikti upp úr smjöri á pönnu.
Ég lét í hakkið mitt: salt,pipar,lauk,eggjahvítu og heilhveiti. Setti þetta í sílíkonform og bakaði inni í ofni.
Við nutum matarins bæði, þó ólíkur væri.
1 ummæli:
Flott hjá ykkur báðum og diskarnir líka fínir. Ég hugsa að ég hefði valið diskinn þinn; ef ég hefði fengið að fá smá karrí hjá pabba til að bæta við þína uppskrift.
Skrifa ummæli