Síður

föstudagur, 29. janúar 2010

Upp og niður
Loksins hreyfðist vigtin pínupons. Helmingurinn af hinu jólakílóinu er farinn. En hugsa sér. Janúar að verða búinn og enn er verið að reyna að komast á byrjunarreitinn. Ég er skíthrædd um að takmarkinu verði ekki náð. En ég gefst ekkert upp. Borða innan við 1500 kalóríur. Stundum langtum minna. Syndi og svo bæti ég stöku göngutúr við.
Ég hélt að sundið gerði líta meira fyrir mig en að halda gigtarverkjum niðri og minnka stirðleika. Ég komst að því um daginn að það hefur áhrif á þolið líka. Ég prófaði að skokka og gat það. Einn daginn tók ég tvo spretti í göngutúrnum og fannst það ekkert mál. Daginn eftir lengdi ég sprettina og fannst það ekkert mál. Þriðja daginn skokkaði ég næstum allan gönguhringinn minn og fannst það ekkert mál. Blés varla úr nös. Það var ekki fyrr en daginn eftir að ég fann fyrir harðsperrum eða einhvers konar verkjum í mjöðmunum.
Skokkið rifjaði upp kikkið sem ég fékk út úr því á Reyðarfjarðarárunum. Það var svo gaman að skokka þar að ég gat varla beðið eftir að sólarhringur liði svo ég gæti farið út aftur.
Ég ætlaði aldrei að hætta að skokka en þannig fór það nú samt.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Eg er i ofsa ataki nuna. - 7.5 kg
sidan um aramot.
Bardur

Guðrún sagði...

Vá..það er ekkert smá. Ertu hættur að borða?

Nafnlaus sagði...

Ja, kartøflur,braud, pasta og hrisgrjon. Og svo natturulega allt semi er sykur. Eg hef altaf bordad svo mikid af køkum og sætindum.
Nuna erda bara egg og bacon kjuklingabringur fiskur og alles.
Og svo audvitad raudvin. Og er i æfingum hja sjukralidanum. Thad er ekkert annad ad gera ef madur 117 kg og er ekki 250 cm a hæd.
Viltu koma i afmælid mitt?