Síður

sunnudagur, 12. september 2010

Mér finnst eins og ég sé búin að vera heila eilífð ein heima. Samt er bara vika síðan Simmi fór til Noregs. Mér leiðist samt ekki. Ég finn mér alltaf eitthvað að gera, hef alltaf eitthvað fyrir stafni. Mig vantar bara að hafa Simma minn til að spjalla við eða hlusta á hann tuða yfir pólitíkinni eða bara almennt röfla yfir einhverju.
Það er þetta venjulega sem mig vantar. Það er ekki venjulegt að ég sé svona lengi ein heima.
Það er víst ekkert annað í stöðunni en að bíta á jaxlinn og bölva í hljóði.

1 ummæli:

murta sagði...

Hugsaðu bara hvað það verður alltaf gaman þegar hann kemur heim! Tveggja vikna sumarfrí á mánaðarfresti. Frábært!