Þessi hjónakorn áttu 10 ára brúðkaupsafmæli í gær 15 október. Þau giftu sig í Þorlákskirkju og var það séra Svavar sem sá um athöfnina. Ýmislegt var öðruvísi en venjulega við þessa athöfn. Það voru ekki sungnir venjulegir sálmar heldur sá hluti Geirfuglanna um söng og hljóðfæraslátt og voru textarnir ekkert í líkingu við hefðbundna sálma. Brúðurin var ekki í marengstertukjól heldur í síðum grænum sléttflauelskjól skreyttum breiðum skinnköntum og var brúðguminn í gömlum íslenskum þjóðbúningi, ásamt sauðskinnskóm, sem hann fékk lánaðan hjá Þjóðdansafélaginu. Enginn vissi að brúðkaup væri í vændum. Þau buðu vinum og vandamönnum í innflutningspartý en vildu endilega sýna gestum kirkjuna. Og gengu í það heilaga um leið.























