Sem betur fer á ég netmyndavél, þannig að ég get talað við hinn tölvuvædda dótturson minn sem býr í Wales. Hann er bara 8 og hálfs mánaða gamall en við vorum í sambandi alveg í 30 mínútur í dag. Hann situr eins og kóngur í hástólnum sínum spjallar út í loftið og við mig, örugglega, og er rosalega sætur og myndarlegur. Ég vona að þetta samband okkar hjálpi upp á íslenskunámið hans. Það eru nú samt ekki mjög uppbyggilegar samræður sem við eigum enn. "Æ, hvað þú ert sætur kallinn minn, litla ömmuljósið mitt." Æ, hvað ömmu langar að taka þig í fangið og knúsa þig." Hann horfir út í loftið og veit ekki alveg hvaðan á honum stendur veðrið. En ég stend í þeirri trú að þetta sé upphaf á góðu ömmu/dóttursonarsambandi. Vil trúa því. Trúi því.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli