Síður

mánudagur, 28. júní 2004

"Flettu því upp." "Ég skal fletta því upp." Setningar á borð við þessar fóru fyrir brjóstið á börnunum mínum á unglingsárum þeirra. "Oh, hún mamma þarf alltaf að fletta öllu upp." Þeim fannst þetta hallærislegt. En það þurfti stundum að finna út hver væri höfundur ljóðs, hver sagði hvað við hvern í Njálu, stafsetja rétt, eða hvað það nú var sem kom uppá í umræðunni. Í dag væri sjálfsagt farið á netið til að afla upplýsinga.
Ég varð heldur en ekki ánægð um helgina þegar Nanna, litla fjögurra ára, kom að máli við mig með blómvönd í hendi.
"Amma, hvað heita öll þessi blóm?"
"Þetta eru baldursbrá, sóley, geldingahnappur, gleymmérei, gullmura, dagsstjarna en hér er eitt sem ég veit ekki hvað heitir."
"Við skulum þá bara fá bók sem stendur í hvað það heitir," sagði barnið.
Mér finnst ég hafa uppskorið því sem ég sáði.

Engin ummæli: