Það er aldeilis búið að taka á fótboltanum um helgina.
Höfðnginn, Karl Kolbeinn, spilaði með Ægi á Borgarnesmótinu og dvöldum við þar um helgina. Við áttum samastað á Mótel Venus því við erum langt kominn með kvótann í tjaldútilegu, allavega þegar spáð er rigningu. Ég pakkaði eingöngu niður fatnaði með rigningu í huga og var með hroll um mig alla á meðan. Það rættist sem betur fer úr veðrinu og var alveg þolanlegt alla helgina. Það var dálítill vindur og sólin lét sjá sig öðru hverju og meðan ekki rignir er allt fyrirgefið hvað veður snertir. Ægismenn tefldu fram nokkrum liðum á mótinu og var misjaft gengi þeirra eins og von er vísa. Minn maður lék með 5. flokki og hefði viljað að þeim gengi betur en hann sættir sig ótrúlega vel við lyktir miðað við keppnisskapið sem hann býr yfir. Yngstu krakkarnir í Ægi voru aftur á móti í fyrsta sæti. Gott hjá þeim. Mér finnst langskemmtilegast að fylgjast með þeim spila.
Nanna litla, ömmuljós, var ótrúlega góð alla helgina. Hún er mikill dundari og þarf ekki að hafa mikið fyrir henni. Hún tekur reyndar upp á því stöku sinnum að skipa okkur fyrir og þá hlýðum við bara. "Amma, stattu aðeins upp." Og þá stend ég upp. "Afi, komdu." Og þá kemur afi. Svo einfalt er það nú.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli