
Kolbeinn er búinn að tala um Gullfoss og Geysi síðan hann kom. Þetta eru staðir sem örugglega væri vert að skoða. Ég var ekki alveg með á nótunum í fyrstu en svo rifjaðist upp fyrir mér hvað mamma hans var að tala um þegar hún kom í vetur. Hún vildi helst fara í minjagripabúðir og kaupa hraunaða öskubakka, uppstoppaða Lunda og staup merkt Brennivín. Já, Íslendingar búandi á erlendrei grundu, sjá Ísland í rómantísku ljósi og þess vegna brunuðum við í dag með "Ameríkanana" okkar að skoða Gullfoss og Geysi. Þetta var hin besta ferð, veðrið indælt og allir í dúndrandi ferðamannastuði.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli