miðvikudagur, 30. júlí 2014
Dótla heim
Er svo spennt fyrir morgundeginum. Dótla kemur á landið kalda með báða strákana sína. Dave hefur ekki komið í nokkur ár og núna stendur til að sýna honum íslenska náttúru og landslög. Það er ekki alveg rétt sem Kalli heldur fram að Dave hafi aldrei fengið að sjá neitt nema Þorlákshöfn. Við höfum farið með hann gullna hringinn og ég veit ekki betur en að honum hafi fundist það bara gaman. Vonandi á hann eftir að njóta Íslands uppi í sveit með útsýni yfir uppsveitir Árnessýslu.
laugardagur, 4. janúar 2014
Aftur í veitingabransann
![]() |
| Gerum rosalega góðar pizzur |
Aldrei veit maður ekki neitt. Er maður ekki bara komin í svona djobb, allt í einu og óforvarandis. Við, Simmi minn, hugsuðum reyndar um þetta í nokkurn tíma og slóum úr og í með það að fara að reka veitingahús enn og aftur. Aðra stundina vorum við ákveðin í því að við værum búin með þennan pakka. Við gætum ekki á gamals aldri verið í vinnunni eftir kvöldmat en viti menn við gátum líka fundið milljón ljósa punkta við að fara að reka veitingastað og hér erum við. Að baka pizzur, steikja hammara og ýmsa aðra góða rétti,brosandi og bjóðandi góðan dag, bjóða fólk velkomið og þjóna á alla lund. Já, aldrei skyldi maður segja aldrei.
fimmtudagur, 2. janúar 2014
Komin á klakann
![]() |
| Ungur nemur, gamall temur |
Þegar við lentum á Fróni, með dótlu og Lúkas með okkur urðum við að koma við á tveimur stöðum til að kaupa inn fyrir Víkingpizza. Við náðum ekki mikilli hvíld áður en við urðum að standa vaktina og baka pizzur. Það var rosalega þægilegt kvöldið, enginn asi, bara jafnt að gera frá fimm til hálf átta. Gott fyrir lúna ferðalanga. Svava Rán og Lúkas komu og borðuðu hjá okkur. Honum finnst ekkert betra en kjúklinganaggar og nóg er til af þeim hjá okkur.
miðvikudagur, 1. janúar 2014
Nýtt ár
![]() |
| Lógóið fyrir Víkingpizza |
Á móti okkur, Simma mínum, tekur nýjasta afkvæmið sem er rekstur Víkingpizza en þann stað byrjuðum við að reka 1. des sl. Við héldum að við værum búin með þann pakka, þ.e. að reka veitingahús en aldrei skyldi maður segja aldrei og við erum bara spennt fyrir þessum rekstri og nýja árið leggst vel í okkur. Mikil vinna bíður okkar en við höfum það mottó að vinna hafi ekki drepið neinn.
fimmtudagur, 4. apríl 2013
Að skrifa upp úr sér
| Örnefni í skólanum |
Ég er búin að bíða spennt, í öll þessi ár, að ég fari nú að skrifa og ég hef staðið í þeirri trú að það verði metsölubók. Það er, jú, enginn tilgangur að skrifa til annars. Metsölubókin hefur ekki enn komið út og mun væntanlega ekki gera.
Ég kveikti svo á perunni áðan að ég er löngu farin að skrifa enda löngu komin á þetta "með aldrinum." Ég hef skrifað pistla í Bæjarlíf í dálítinn tíma. Þetta er líklega þriðji veturinn. Pistlarnir heita Skólalíf og fjalla um einhver málefni tengd skólanum. Ég hef alveg frjálsar hendur, þannig lagað, um hvað ég skrifa svo lengi sem það fjallar um skólann og starfsemina þar. Ég var dálítið stressuð í fyrstu um hvað ég ætti að skrifa og hvort ég gæti það yfir höfuð en reyndi að segja frá því sem var verið að gera í skólanum. Mér fannst svo á öðrum vetri að ég væri farin að endurtaka mig. Enda gengur skólahald svipað fyrir sig, ár frá ári. Upp á síðkastið hef ég ekki haft nokkrar áhyggjur af því hvað ég ætti að fjalla um, ég treysti einhverju innsæi sem býr hið innra og það hefur gengið eftir.
Í dag var ég allt í einu farin að skrifa um nöfnin sem skólastofurnar fengu veturinn 2008-2009 og hafa ekki mikið verið notuð. Mér fannst bara gaman að rifja upp tilurð nafngiftanna og hvernig fólki hefur gengið að venja sig á að nota nöfn í stað númera.
Reyndar á skólastjórinn eftir að gefa grænt ljós á það hvort ég megi senda pistilinn á Bæjarlíf.
föstudagur, 11. janúar 2013
Bóklestur
![]() |
| Fyrsta rafbókin mín |
Um áramótin, í fyrra, keypti ég litla bók, á bókasafninu, þar sem maður skrifar niður allar bækur sem maður les, höfundinn, dagsetningu og úrdrátt úr bókinni. Fyrsta bókin sem ég skráði var jólabókin sem ég fékk á síðustu jólum, en það var Jójó eftir Steinunni Sigurðar og síðasta bókin sem ég skráði var Veiðimennirnir eftir Jussi Adler Olsen, en hana kláraði ég rétt fyrir jól. Sú bók reyndist vera númer 32. Ég náði að lesa 0,6 bækur á viku árið 2012.
Nú stendur til að gera betur. Ég fékk þessa fínu spjaldtölvu í jólagjöf og keypti mína fyrstu rafbók á aðfangadagskvöld en það var Dóttir húshjálparinnar eftir Barböru Mutch.
Mér finnst miklu auðveldara að lesa á spjaldtölvuna heldur en í bók en ég mun varla tíma að kaupa allar bækur sem mig langar að lesa, þannig að að ég verð nú að taka eina og eina venjulega bók, af bókasafninu, inn á milli.
En byrjunin lofar góðu.
mánudagur, 7. janúar 2013
Að kenna fullorðnum
![]() |
| Fræðslunet Suðurlands |
Í morgun undirbjó ég mig aftur á móti til þess að kenna Auðunar þátt vestfirska í næsta tíma ásamt ýmsum, blönduðum verkefnum í málfræði.
Það er ótrúlega skemmtilegt að kenna fullorðnum.
laugardagur, 5. janúar 2013
Spjaldtölvur
Ég hef oft sagt að ég voni það að tækninni fleygi ekki það ört fram, á meðan ég er ofar moldu, að ég geti ekki fylgst með. Oft hef ég líka sagt að nú sé bara komið nóg í bili. Maður hefur ekki við að skilja allar nýjungar. En það er alltaf eitthvað nýtt, eiginlega á hverjum degi.
Nýja flotta spjaldtövan mín Ég fékk í jólagjöf frá honum, Simma mínum, spjaldtölvu. Hann hafði heyrt mig tala um það að mig langaði í svona grip, áður en ég yrði of gömul til að læra á hann. Sem betur fer náði hann þessari ósk minni þannig að úr varð jólagjöf.
Ég sá og skildi kosti spjaldtölvunnar fyrir mig. Það er í þokkalegu lagi með sjónina mína nema til lestrar. Mér finnst stafirnir dansa og allt letur í móðu þannig að ég var farin að lesa uppi í rúmi með bensíngleraugu ofan á mínum eigin gleraugum og til viðbótar leslampann alveg ofan í bókinni. Spjaldtölvan hefur innibyrgt ljós og maður getur valið sér leturstærð. Þetta sá ég í hillingum með öldrun í huga. Ég get ekki hugsað mér framtíðina án lesturs góðra bóka.
Nú er ég búin að læra á gripinn. Svava Rán byrjaði að hjálpa mér að skilja en ég var svo heppin að vera stödd hjá henni í Wales þegar ég tók jólapakkann upp. Hún tengdi tölvuna við netið og strax þarna, á aðfangadagskvöld, keypti ég fyrstu rafbókina mína. Ég fékk svo Magnþóru til mín og fékk hjá henni góða kennslu á þetta. Ég lærði líka að maður verður að spyrja eins og fávís kerling til að fá svör við öllum spurningunum sem brenna á manni.
Hvernig getur bók allt í einu verið í litlu spjaldtölvunni minni? Stórundarlegt.
Ég er alveg hrikalega ánægð með jólagjöfina frá honum, Simma mínum, í ár.
föstudagur, 4. janúar 2013
Aftur til vinnu
![]() |
| Grunnskólinn í Þorlákshöfn |
fimmtudagur, 3. janúar 2013
Árið 2012 í hnotskurn
| Simmi minn er alltaf að læra eitthvað nýtt á tölvuna sína. Seigur sá gamli. Kominn á facebook en tjáir sig lítt þar. Segir það vera vegna gamallar lesblindu. |
| 21. maí rann upp stór dagur. Ég fór í brjóstaminnkun. Ein sú besta ákvörðun sem ég hef tekið. Þó að aðeins um hálft kíló hafi verið tekið af hvoru brjósti er það ótrúlega mikill léttir |
| Allar helgar sumarsins förum við eitthvert með Sólbrekku í eftirdragi og slökum á úti í guðsgrænni náttúrunni. |
| Við fórum hringinn í ágúst og komum m.a. við í Atlavík. Það fór hitinn upp í 28 gráður. |
| Þegar hausta tekur er farið að huga að vetrarforðanum. Nokkur slátur voru tekin og einn hestur á fæti til að salta í tunnu en blessuð skepnan er lifandi enn. |
| Við komum heim á annan í jólum og eyddum áramótunum með Kalla og kó hjá Dóru Sif og kó. |
miðvikudagur, 22. ágúst 2012
Fitusog
![]() |
| Flott breyting eftir fitusog |
Þórdís var búin að vara mig við að eftir aðgerð myndi ég verða meira var við bumbuna. Enda létti ég mig meira en hún bað um, bara til að vera betur undir bumbuáfall búin. Það kom í ljós að ég vissi ekki hversu stór maginn í raun væri. Ég sá aldrei neitt annað en brjóst. Núna er ég alveg ómöguleg yfir því hve maginn er stór. Ég er að reyna að passa upp á mataræðið og það gengur þokkalega nema hvað sumarfríið fór aðeins með það.
Ég er byrjuð aftur að synda reglulega en hef ekki komist í hlaupagírinn eftir sumarfrí.
Þórdís sáði frækorni í heilann á mér í morgun þegar ég kvartaði yfir stórum maga. Hún sagðist alveg geta hjálpað mér. Mér snarbrá og spurði hvort hún væri að meina að ég færi í svuntuaðgerð.
"Já, eða fitusog", sagði hún.
Nú get ég ekki um annað hugsað og er búin að lesa um fitusog á netinu og horfa á myndband þar sem einmitt hún Þórdís mín er að framkvæma fitusog á konu.
http://www.visir.is/section/MEDIA99&fileid=CLP815
Það ku vera rétt að sá sem fer í eina lýtaaðgerð getur ekki hætt.
þriðjudagur, 3. júlí 2012
Aftur að synda
Í gær voru sex vikur frá brjóstaaðgerðinni. Í bæklingnum, um brjóstaminnkun, stendur að það megi ekki stunda líkamsrækt fyrr en 6-8 vikum eftir aðgerð. Samt sagði einhver á spítalanum að ég ætti að hlusta á líkamann.
Ég fór í sund á föstudaginn í fyrsta skipti en synti bara 6 ferðir af því mér fannst ég finna fyrir "einhverju." Í gær skokkaði og labbaði ég 4 kílómetra og fannst litlu brjóstin mín hoppa of mikið í fína haldaranum. Allt í einhverju stressi hjá mér. Kannski er ég bara að passa mig of mikið og of hrædd við að gera hlutina.
Mér hefur alltaf þótt vont að setjast fram á rúmstokkinn á morgnana eða á nóttinni við næturpissið en í morgun fann ég ekkert til. Þvílíkur munur. Ég hef alltaf fundið eins og straum í brjóstunum eða eins og eitthvað streymi inni í þeim. Alveg eins og þegar ég fór fyrst á fætur eftir aðgerð. Það er andskoti vont. Vonandi er þessi "straumur" alfarinn.
Ég skellti mér í sund í morgun, með húnaflokknum og ég fann ekkert til í sundinu. Þorði meira að segja að prófa skriðsund og bakskrið og ekkert mál. Ég synti bara 20 ferðir en finn að þetta er allt að koma.
Kannski höfðu brjóstin bara gott af því í gær að hoppa pínu pons.
Ég fór í sund á föstudaginn í fyrsta skipti en synti bara 6 ferðir af því mér fannst ég finna fyrir "einhverju." Í gær skokkaði og labbaði ég 4 kílómetra og fannst litlu brjóstin mín hoppa of mikið í fína haldaranum. Allt í einhverju stressi hjá mér. Kannski er ég bara að passa mig of mikið og of hrædd við að gera hlutina.
Mér hefur alltaf þótt vont að setjast fram á rúmstokkinn á morgnana eða á nóttinni við næturpissið en í morgun fann ég ekkert til. Þvílíkur munur. Ég hef alltaf fundið eins og straum í brjóstunum eða eins og eitthvað streymi inni í þeim. Alveg eins og þegar ég fór fyrst á fætur eftir aðgerð. Það er andskoti vont. Vonandi er þessi "straumur" alfarinn.
Ég skellti mér í sund í morgun, með húnaflokknum og ég fann ekkert til í sundinu. Þorði meira að segja að prófa skriðsund og bakskrið og ekkert mál. Ég synti bara 20 ferðir en finn að þetta er allt að koma.
Kannski höfðu brjóstin bara gott af því í gær að hoppa pínu pons.
miðvikudagur, 27. júní 2012
Hlaupaföt
Ég gekk litla hringinn minn, rösklega, í gær en skokkaði hann í dag. Allan. Þrjá og hálfan kílómetra. Það kom enginn bakverkur en ég fann fyrir slöppum vöðvum í fótleggjum og svo varð ég svo móð. En gafst ekki upp.
Ég fór að velta fyrir mér hlaupabúningnum mínum. Það er víst eins gott að ég er bara að hlaupa í einrúmi en ekki í hóp því ég myndi setja ljótan blett á fatastílinn.
Ég fór að velta fyrir mér hlaupabúningnum mínum. Það er víst eins gott að ég er bara að hlaupa í einrúmi en ekki í hóp því ég myndi setja ljótan blett á fatastílinn.
| Næst nýjasta hlaupadótið. Geggjaðir sokkar sem ég keypti í Nikebúð í bítlaborginni Liverpol í vor." Dry-fit" og merktir með L og R svo maður fari örugglega rétt í þá. |
| Þarna sést í naríurnar mínar. Gasalega góðar úr Merinóull, keyptar í Álafossbúðinni. Gallinn er bara sá að þær detta út í götum. Sem er ekki smart en ég nota þær samt. |
| Ekki er hægt að hlaupa nema eiga góða skó. Ég er svo heppin að dótla mín sér um þann þáttinn og hefur tvisvar sent mér skó frá Bretlandi. Það munar svo milu á verði. Þessa fékk ég í jólagjöf. |
mánudagur, 25. júní 2012
Aftur að skokka
| Kannski er ekkert skrýtið þó ég hafi fengið bakverki við að skokka með öll þessi ósköp framan á mér. |
Besta var að ég fékk engan bakverk eins og svo oft þegar ég skokka. Kannski hafa gömlu stóru brjóstin verið orsakavaldur að bakverkjum. Ég setti það aldrei í samhengi. En ég hef ekki fundið fyrir neinum bakverkjum eftir aðgerð. Ég fékk alltaf verk, hægra megin í bakið aðeins fyrir ofan mitti, þegar ég ryksugaði, það sáran að ég varð oft á tíðum að taka pásu. Ég fann ekki fyrir neinu þegar ég ryksugaði fyrir helgi.
Nú er spurning með vöðvabólguna. Fer hún sjálfkrafa eða verð ég að fara í nudd?
Ég ætla að bíða og sjá til.
fimmtudagur, 21. júní 2012
Brjóstaskora
Ég fór í göngutúr dagsins fyrir hádegi. Bara svona af því ég vakanaði snemma og var tilbúin. Gat gengið allrösklega og sveiflaði handleggjunum í gríð og erg. Mig langaði svo mikið að prófa að skokka en þorði það ekki. Er pínu hrædd um að skemma eitthvað, ég veit einu sinni ekki hvað. Jú, að saumar opnist og aðgerðin sé fyrir bí og brjóstin á mér verði hryllingur.
I hádeginu, áður en ég fór í sturtu eftir göngutúrinn, heimtaði Simmi minn að fá að skoða saumana nákvæmlega af því ég er alltaf að kvarta yfir einhverju sem ég veit varla sjálf hvað er. Eitthvað sem tekur í og eitthvað sem gæti gefið sig og allt skemmst. Bara svona stress í gangi.
Simmi minn, tók í burtu síðasta hrúðrið með saum, sem var við samskeytin, austur/vestur og norður. Mér létti. Nú tekur minna í. Það lítið að ég þorði að leggjast á magann í sólbaði í dag. Þó ég hafi ekki alveg lagst á brjóstin var geðveikt gott að leggjast á magann og lesa bók í sólbaði.
Er greinilega öll að koma til.
Líklega á ég aldrei oftar eftir að finna millibrjóstafýlu.
Góð tilhugsun.
| Minni brjóstaskora. Engin millibrjóstafýla. |
Simmi minn, tók í burtu síðasta hrúðrið með saum, sem var við samskeytin, austur/vestur og norður. Mér létti. Nú tekur minna í. Það lítið að ég þorði að leggjast á magann í sólbaði í dag. Þó ég hafi ekki alveg lagst á brjóstin var geðveikt gott að leggjast á magann og lesa bók í sólbaði.
Er greinilega öll að koma til.
Líklega á ég aldrei oftar eftir að finna millibrjóstafýlu.
Góð tilhugsun.
þriðjudagur, 19. júní 2012
Stirðleiki
![]() |
| Svona var brjóstaskoran (jan 2011) |
Ég sat í vörubílnum hjá Simma mínum í morgun til að veita honum félagsskap. Ferðin tók um einn og hálfan tíma. Ég fann, þegar ég kom heim og brölti niður úr bílnum, að ég er farin að stirðna í líkamanum vegna hreyfingarskorts. Ég hef áður verið næstum því komin í kör af hreyfingarleysi. Það var fyrir nokkrum árum. Þá hélt ég að ég væri "búin að vera í skrokknum." Til að gera eitthvað í mínum málum þá fór ég að synda á hverjum degi og síðan að ganga og skokka og bætti svo hjólinu við. Það var akkúrat ekkert að skrokknum nema hreyfingarleysi.
Til þess að bæta úr stirðleikanum, sem ég fann í morgun, dreif ég mg út áðan og gekk rösklega litla hringinn minn þrátt fyrir að líkamsrækt sé bönnuð í 6-8 vikur eftir brjóstaminnkun. Ganga er jú líkamsrækt en ég réð fullkomlega við þetta og líður miklu betur. Nú stendur til að gera þetta á hverjum degi þangað til ég þori að prófa að skokka. Kannski eftir viku.
En sund og heita potta má ég fara í um leið og öll hrúður eru farin af saumunum. Það eru nokkur smá hrúður eftir.
miðvikudagur, 13. júní 2012
Á fjórðu viku
| Þórdís lýtalæknir. |
Þórdís tók alla plástrana af og sagði mér að fara í "léttari" brjóstahaldara, bera E-vítamín olíu á saumana og AD-smyrsl á hrúðrin. Þetta allt saman gerði það að verkum að mér líður miklu betur, bæði á sál og líkama. Líklega hafa plástrarnir verið að toga eitthvað í og ég haldið að það væri að skemma eitthvað.
Ég hef mest megnis haldið mér ens og prinsessu, helst ekki gert neitt og kemst upp með það, nema smáverk sem ég stelst í. Simmi minn, snýst í kringum mig og bannar mér að gera nokkurn skapaðan hlut. Ég hef tekið mjög alvarlega það sem ég las í bæklingnum um brjótaminnkun og það sem mér hefur verið sagt, þannig að ég varð bæði glöð og hissa þegar Þórdís sagði mér í dag að eftir viku til tíu daga mætti ég fara í sund og heitan pott.
Vá, hvað ég hlakka til að fara að hreyfa mig almennilega.
fimmtudagur, 31. maí 2012
Langar neglur
| Lengstu neglur sem ég hef haft |
Ég er t.d. núna í óða önn að safna nöglum. Það hef ég aldrei getað en núna eru neglurnar bara fínar og ótrúlega langar á minn mælikvarða. Annaðhvort er ástæðan sú að ég geri heimilsverkin ekki þessa dagana eða sú að ég hef tekið inn tvær matskeiðar af lýsi í stað einnar nú í skamman tíma.
miðvikudagur, 30. maí 2012
Bað
Mikið var það dásamlegt að fara í heilsturtu í morgun. Ég þvoði hárið sjálf og blés það líka. Ég á að hllusta á líkamann, hvað hann getur, og það var alveg hægt að blása hárið. Ég labbaði svo í rólegheitum í skólann og gekk þar frá smámálum og labbaði svo til múttu. Göngutúrinn gerði mér bara gott en ég fer hægt yfir. Finnst vont að ganga hratt.
Horfði á brjóstin mín í speglinum en ekki lengi.
Ég hefði aldrei getað orðið hjúkka. Fæ alltaf illt í rassgatið þegar ég sé skurð eða sár.
Horfði á brjóstin mín í speglinum en ekki lengi.
Ég hefði aldrei getað orðið hjúkka. Fæ alltaf illt í rassgatið þegar ég sé skurð eða sár.
þriðjudagur, 29. maí 2012
Brjóstaskoðun
Ég átti tíma hjá Þórdísi lýtalækni klukkan 10 í morgun. Simmi minn keyrði mig á stofuna til hennar og kom með mér inn. Þórdís sjálf var ekki við heldur staðgengill hennar, Þyrí sjúkraliði. Ég varð pínu spæld en Þyrí kunni greinilega alveg til verka og hún skoðaði mig og tók plástra sem voru yfir drenlagnargötunum og gaf mér fulla skoðun. Brjóstin mín líta eins vel út og þau eiga að gera átta dögum frá aðgerð. Ennþá er bólga og bjúgur í þeim en það er eðlilegt. Hún sagði að ég mættti fara í sturtu, bara standa ekki lengi og láta buna á mig og ekki of heita.
Ég fékk nýjan tíma hjá Þórdísi eftir hálfan mánuð.
Ég fékk nýjan tíma hjá Þórdísi eftir hálfan mánuð.









