Síður

fimmtudagur, 13. apríl 2006

Hann Simmi minn er eins og barn með nýju græjurnar sínar. Hann keypti sér áðan brauðrist og samlokugrill. Bara völlur á mínum. Hann hefur ekki borðað brauð núna í þrjár vikur eða síðan gamla brauðristin okkar brann yfir. Hann borðar aldrei brauð nema ristað. Gikkurinn sá. Sú gamla var búin að þjóna sínu hlutverki í 20-30 ár. Góð ending. Ég er ekki viss um að sú nýja eigi eftir að duga eins lengi. Mér finnst allt nýtt dót í dag vera bölvað drasl. Jæja, við skulum sjá til.

miðvikudagur, 12. apríl 2006


Lukku Láki er greinilega farinn að greina hljóðkerfisfræðina. Hann biður mömmu sína um kex og pabba sinn um biscuits. Hann talar og talar en yfirleitt segir hann meira en menn fá skilið. Hann er bara tveggja og hálfs. Þegar hann heyrir mömmu sína tala íslensku í símann kemur hann hlaupandi og tekur af henni tólið og segir með spurn í rómnum: "Amma?" "Afi?" Og hvort okkar sem heldur á tólinu hinum meginn við sjóinn verðum uppveðruð og breytum röddinni í smábarnatónsrödd og segjum: "Lúkas, halló, hvað segirðu kallinn minn?" Hann vill helst ræða um áhugamál sitt sem eru teiknimyndafígúrurnar í sjónvarpinu sem við kunnum ekki nógu mikil skil á en reynum okkar besta. Thomas og James og Bob the builder. Þetta eru allt vonandi góðir gæjar, sem gefa prinsinum af Wales gott veganesti.

þriðjudagur, 11. apríl 2006


Unglingsbarnið og litla Skotta eru búin að vera hjá okkur í tvo daga. Doktorinn og tengdadóttirin voru í vandræðum með þau þegar páskfrí skall á. Okkur Simma mínum finnst voða gaman loksins að geta hjálpað til með börnin. Unglingsbarnið leikur sér í tölvunni og hittir gamla vini hér í bæ. Litla Skotta dundar sér við að föndra hitt og þetta og málar og teiknar. Við fórum í sund í dag og undum okkur þar dágóða stund. Þar er búið að setja upp vatnsnuddtæki sem ég lét berja á stífum vöðvum. Alveg frábært.
Eitthvað var litla Skotta að pæla í lífinu og tilverunni og klikkti út með að hún þyrfti að spyrja pabba sinn um ákveðinn hlut.
Amma Gunna: "Já, það er sniðugt hjá þer að spyrja pabba þinn, því pabbar vita svo margt."
Litla Skotta: Já, en þeir vita nú ekki meira en mömmur þeirra!"
Ég varð nú bara upp með mér!

miðvikudagur, 5. apríl 2006

Í helgri bók stendur að Jesú hafi breytt vatni í vín. Hann Simmi minn gerir oft veislumat úr einhverjum ruðum sem hann finnur í ísskápnum. Sullar einhverju saman og bætir við og kryddar pínu. Ég geri ráð fyrir að Jesú hafi notað viðlíkan gjörning. Mér datt þetta í hug í gær þegar ég breytti kjötsúpu í fiskrétt.
Kom svona líka ljómandi vel út þótt ótrúlegt sé.

sunnudagur, 2. apríl 2006

Flott Gellan í gær.
Flott skemmtiatriði úr heimabyggð.
Sum á heimsvísu. Danssýning Júlís og dömunnar hans var stórkostlegur.
Það fannst mér einnig um klassaíska gítarleikinn hans Ómars Bergs.
Og auðvitað stóð Bergheimakórinn sig vel.
Veislustjórinn fínn eins og von var þar sem Bjarni Áskels stóð vaktina.
Maturinn var frábær. Ég vildi bara að ég hefði getað borðað meira. Ótal frábærir fiskréttir eldaðir af Kiwanisfélögum sjálfum.
Stuð í dansinum.
Flott Gellan í gær.

föstudagur, 31. mars 2006

Unglinsbarnið er komið heim úr skólabúðunum.
Bara ánægt eftir veruna í kuldanum fyrir norðan.
Síðustu tveir dagarnir voru bestir.
Amma tölva: "Nú?"
Unglingsbarnið: "Þá hitti ég nokkrar stelpur."
Amma tölva: "Já, ég skil."
Doktorinn búinn að sækja það.
Á bílnum mínum. Hans er bilaður.
Simmi minn er að undirbúa Gelluna.
Hún er á morgun.
Hann er að flaka fiskinn sem á að borða.
Á Gellunni.
Einhver Kiwaniskarlinn talaði um að tæma nokkra bauka í leiðinni.
Hann hlýtur að vera frá Akureyri sá.
Saumanámskeiðið sem átti að vera í fyrramálið frestast.
Ég hef þá aðeins meiri tíma til að gera heimavinnuna mína.
Sjúkk.
Ég var nebbnilega ekki alveg búin að sauma borðann á í handveginn.
Á nítjándualdarbúninginn. Íslenska búninginn sem ég er að reyna að sauma.
Fékk frest, verð dugleg.

fimmtudagur, 30. mars 2006

Ég hef ekki synt síðan fyrir jól og ekki farið í göngutúr nema endrum og sinnum. Ég hef endalausar afsakanir fyrir því að hreyfa mig ekki. Eg hef meira að segja afsakanir fyrir því að fara á bílnum í skólann. Það er kalt úti, rigning, hráslagalegt, rok eða mér er illt í hnénu, illt hér og illt þar. Ég sem gekk í skólann á hverjum degi og hvernig sem viðraði á meðan ég hafði ekki bíl. Þegar Simmi minn fór á bílnum eldsnemma morguns í sína vinnu varð ég bara að gjöra svo vel og ganga allra minna ferða og það var ekkert mál. Um leið og ég hef bílinn þá kólnar úti eða rignir eða ég finn enhvers staðar til. Er maður normal?

þriðjudagur, 28. mars 2006

Ég var búin að vera stressuð í eina viku yfir Reykjavíkurferðinni sem ég þurfti að taka mér á hendur í gær. Svo stressuð að Simmi minn fór með mig á laugardaginn í bæinn til að sýnda mér nákvæmlega leiðina sem ég átti að fara. Það sló aðeins á stressið en það hvarf ekki alveg. Ég fór, sem sagt, í klippingu og strípur í gær klukkan eitt á átti svo að vera á fundi klukkan fimm í Hamraborginni í Kópavogi. Ég hef aldrei getað lært að rata um Kópavoginn enda kom það á daginn, þrátt fyrir viðleitni og hjálpsemi míns ektamanns, þá fann ég ekki Hamrabogina. Er það ekki hún sem er há og fögur? Ég var, eins og svo oft áður, á vitlausri akrein og lenti undir brúnni opg stefndi hraðbyri út í Hafnarfjörð, sem ég rata ekki heldur um. Hjartað tók nokkra aukaslætti en þá sá ég nýju (eða nýlegu) brúna út í Garðabæ og snaraði mér, á mínum fjallabíl, upp á hana og þá blasti við skilti sem á stóð Reykjavík. Ég skipti um akrein og þar sem ég beið á ljósum sá ég að ég ætti að komast í Hamraborgina frá þessum stað. Ég keyrii þarna upp brekku og var þar með komin í Kópavoginn en ekki í Hamraborgina. Ég sneri við, eftir að hafa þurft að keyra nokkurn spöl, og nú hlaut ég að finna Hamraborg. Næsta beygja leiddi mig heinsvegar beint til Reykjavíkur. Ég gafst upp og ákvað að fara heim, tók þá eftir því að olíuljósið var farið að loga. Ég varð logandi hrædd. Hvað ég kelling á sextugsaldri, á allt of stórum bíl, að gera olíulaus á miðri götu í Reykjavík?
Þar sem Simmi minn segir alltaf, að það sé ekkert mál að fara á milli Þolló og Reykjavíkur á ljósinu, þá ákvað ég að keyra að Litlu kaffistofunni í Svínahrauni og taka þar olíu og slaka á þöndum taugum. Þar dælir Stefán á tankinn fyrir mann og maður fær kaffisopa í kaupbæti. Rétt áður en ég kom að þeirri Litlu kláraðist olían. Bíllinn varð olíulaus hjá mér. Ég gat látið hann renna á breiða vegaröxl beint á móti Kaffistofunni og þar biluðust taugarnar næstum alveg. Mér datt ekkert annað í hug en að hringja í Simma minn. Ég þurfti ekki að segja mikið við hann. Hann þekkir sína kelllu og var kominn eftir nokkur andartök og bjargaði mér úr þesssari klípu. Ég mátti náttúrlega ekki láta bílinn klára olíuna alveg. Það var bras að koma honum í gang eftir að hjálpsamur vegfarandi hafði dregið hann að olíutanknum. En hvernig átti ég að vita það? Maður veit nú ekki allt.
Þetta var ekki minn dagur í gær.

þriðjudagur, 21. mars 2006

Skattaskýrslan búin og farin. Fyrsta skipti sem endurskoðandi gerir hana ekki fyrir mig heldur gerði ég hana sjálf. Ekki alveg sjálf, ef ég á að vera hreinskilin, Doktorinn var hjá mér. Ég þorði ekki að vera ein við tölvuna, ég var hrædd um að gera einhverja gloríu. Ég veit núna að þetta er minnsta mál í heimi. Hér eftir get ég þetta alein.

laugardagur, 18. mars 2006

Skellti mér í leikhúsið í gærkvöldi. Leikhús í Þorlákshöfn. Á leiksýningu í Ráðhúskaffi. Á söngleik, sem nýendurvakið leikfélag hér í bæ setti á fjalirnar. Söngleikinn Ég elska alla sem leikstjórinn þeirra samdi. Ég skemmti mér konunglega. Fannst rosalega gaman. Allir sem tóku þátt í sýningunni stóðu sig mjög vel. Mér finnst svo gaman að sjá fólkið á götunni, fólkið í búðinni og fólkið í ættinni gera eitthvað sem maður hafði ekki hugmynd um að það gæti. Ef ég byrjaði að telja upp hverjir stóðu sig vel þá yrði upptalningin að lokum allir sem komu fram. Allir voru góðir.
Mér finnst frábært að hér skuli starfa aftur leikfélag. Hér á árum áður, þegar Vernharður Linnet starfaði hér sem kennari, var mikið og öflugt leikstarf. Hér voru sett upp, á hverju ári, metnaðarfull stykki. Meira að segja frumflutningur eftir höfunda eins og Þorstein Marelson og Guðmund Steinsson. Allt þetta var vegna eldmóðs Venna. Hann var aðalsprautan. Oft þarf ekki nema einn til að virkja aðra með sér. Þegar Venni flutti héðan var reynt að halda starfseminni áfram. Ég var ein af þeim sem starfaði áfram. Við settum aðeins upp eitt stykki eftir að Venni fór svo rann allt út í sandinn hjá okkur. Okkur vantaði eldmóð Venna. Ég vona að hið nýja leikfélag, sem heitir Leikfélag Ölfus, en ekki Leikfélag Þorlákshafnar eins og það gamla, eigi eftir að vaxa og dafna og lifa lengi.

fimmtudagur, 9. mars 2006

Það er stutt á milli matarboðanna hjá mér þessa daganna. Ég bauð kærum vinum í mat á laugardaginn, með eins klukkutíma fyrirvara, sem þau þáðu. Það varð hið ágætasta matarboð þrátt fyrir einréttað en við bættum það upp með konna með kaffinu, ljúfri tónlist og skemmtilegu spjalli. Í gær fékk ég svo Kalla og kó og hollenska fjölskyldu með í kvöldmat. Ég vildi hafa það eitthvað íslenskt og stakk upp á kjötsúpu en þá var Kalli búinn að gæða þeim hollensku á þeim rammíslenska rétti svo ég hafði það ýsu en ekki kunni ég við að hafa hana soðna með kartöflum og hamsatólg, eins og hún ætti að vera fram borin ef við vildum hafa það ekta íslenskt. Ég vissi um frábæra uppskrift í Bergheimabókinni og notaði hana. Ýsa í karrí. Tókst vel. Allir ánægðir. Þau hollensku eru búin að vera hjá doktor Kalla og Elsu síðan á sunnudag. Vinafólk frá Kaliforníutímanum. Fólk sem er að flytja heim til Hollands og datt bara rétt si ssvona í hug að koma við á Íslandi á leiðinni heim.
Og nú eigum við heimboð í Hollandi.
Það er ekki verra.

mánudagur, 6. mars 2006

Ég sækist ekkert sérstaklega eftir því að fara á píanótónleika en það hefur þó komið fyrir að ég fari. Bæði í Þorlákshöfn og á Reyðarfirði. Ég fór í gær í Ráðhúsið á tónleika hjá Jónasi Ingimundarsyni. Ég hef ekki mikið vit á píanótónlist en ég get bara ekki ímyndað mér að það sé hægt að gera þetta betur en Jónas gerir þetta. Hann er líka svo skemmtilegur. Biður áheyrendur að afsaka masið á milli laga en það er einmitt það´sem mér finnst svo gaman að fá útskýringar á því hvað hann er að gera. Hann spilaði tónlist eftir Mozart, Beethoven, Schumann og Brahma. Mozart kom mest við kvikuna í mér. Sálin í mér fór á eitthvert tilfinningaflökt. Ekki veit ég af hverju. En þessu sunndagssíðdegi var vel varið.
Þegar hann Simmi minn var lítill sótti hann oft tónleika hjá Jónasi.Þá söfnuðst krakkarnir í þorpinu saman heima hjá Ingimundi heitnum, röðuðu sér í stigann, eins og í sæti í leikhúsi, og Jónas spilaði fyrir krakkana á harmónikku. Var bara unglingur sjálfur.
Jónas kenndi krökkunum líka hvernig ætti að nappa sér í harðfisk í Mundaveri, án þess að Gvendur sæi og hvernig ætti að ná sér í gulrót úr garðinum hjá Guðbjörgu og Benna án þess að þau sæju. En það er nú önnur saga.

föstudagur, 3. mars 2006

Einu sinni á vetri hverjum förum við, starfsfólk Grunnskólans í Þo., af bæ og leitum okkur fróðleiks og þekkingar annars staðar en í eigin ranni. Oft höfum við farið í heimsókn í aðra skóla og fengið nýjar hugmyndir eða eflt sjálfstraustið. Í dag fórum við ekki í skólaheimsókn heldur fengum námskeið hjá Mentor. Ég er byrjuð að nota það kerfi aðeins en það var alveg frábært að fá kennslu á kerfið hjá sérfræðingi. Þetta er skráningarkerfi sem ég hlakka til að nota alveg, ekki hvað síst með samskipti foreldra í huga. Við fórum líka í Alþjóðahús og fengum frábærar móttökur þar og fræddumst heilmikið um starfsemima í því húsi. Það eina sem við höfum nýtt okkur frá þeim er túlkaþjónusta en við eigum örugglega eftir að nýta okkur eitthvað af námskeiðunum sem boðið er upp á.
Nemendur okkar......þeir fengu ekki frí í dag heldur sá Foreldrafélagið um starfskynningu og gerði ýmislegt annað, með börnunum, en þau eru vön að fá að gera svona venjulega í skólanum.
Þetta er yfir 20 ára gamall siður hjá okkur.
Vá.. ég trúi því varla að ég hafi skrifað þessa setningu.

miðvikudagur, 1. mars 2006

Ég finn alveg fyrir dulitlum spenningi fyrir þessum þremur dögum, bollu-, sprengi-og öskudegi. Það eimir eitthvað eftir af barninu í mér. Bolludagur og sprengidagur hafa samt breyst heilmikið. Ég fékk alltaf bolluvönd þegar ég var lítil, sem mamma bjó til og fyrir öskudag voru saumaðir öskupokar. Þann dag var líka alltaf frí í skólanum og við krakkarnir söfnuðumst saman á kaupfélagsstéttinni á Selfossi og laumuðum pokum á saklausa kúnna Kaupfélagsins. Í dag vita börn varla hvað eru bolluvendir og vita alls ekki neitt um öskupoka. Í staðinn banka þau upp á heima hjá fólki og sníkja gott. Ég læt sem ég sé ekki heima og svara ekki bjöllunni.
Mér finnst þetta svo leiðinlegur siður.

föstudagur, 24. febrúar 2006


Ég stal þessu af bloggsíðu Þórhildar Helgu skólastjóra og fyrrum samstarskonu og skólasystur. Hún verður örugglega ekkert sár út í mig. Mér fannst svo gaman að lesa þetta því fyrir stuttu siðan, einmitt í London á dögunum, var hún dótla mín að segja mér að hún gerði þetta stundum óvart og nefndi sem dæmi I come completely from mountains. Stelpunum í vinnunni hennar, sem eru auðvitað allar breskar, finnst þetta ótrúlega fyndið.

Grunnur að nýrri ensk-íslenskri orðasambandabók!

1. The raisin at the end of the hot-dog = Rúsínan í pylsuendanum.
2. I measure one-pulled with it = Ég mæli eindregið með því.
3. Now there won't do any mitten-takes = Nú duga engin vettlingatök.
4. I come completely from mountains = Ég kem alveg af fjöllum.
5. Thank you for the warm words into my garden = Þakka þér fyrir hlý orð í minn garð.
6. Everything goes on the back-legs = Það gengur allt á afturfótunum.
7. He's comepletely out driving = Hann er alveg úti að aka.
8. It lies in the eyes upstairs = Það liggur í augum uppi.
9. She gave me under the leg = Hún gaf mér undir fótinn.
10. He stood on the duck = Hann stóð á öndinni.
11. I teach in breast of him = Ég kenni í brjósti um hann.
12. On with the butter!!! = Áfram með smjörið!
13. In a green bang = Í grænum hvelli
14. I springteach him = Ég vorkenni honum
15. Front seat advise Sir = Forsætisráðherra
16. Stomp steel into them = Stappa stálinu í þá
17. Hot spring river this book = Hver á þessa bók?
18. Nobody becomes an unbeaten bishop = Enginn verður óbarinn biskup
19. I took him to the bakery = Ég tók hann í bakaríð
20. I will find you on a beach = Ég mun finna þig í fjöru
21.To put someone before a cats nose = Að koma einhverjum fyrir kattarnef
22. I only pay with an angry sheep = Ég borga bara með reiðufé
23. I'll show him where David bought the ale = Ég skal sýna honum hvar Davíð keypti ölið.
24. I will not sell it more expensive than I bought it = Sel það ekki dýrara en ég keypti það
25. He doesn't walk whole to the forrest = hann gengur ekki heill til skógar

fimmtudagur, 23. febrúar 2006

Hann hefur greinilega haft áhrif borgarafundurinn í gærkvöldi. Það hafa ekki verið svona margir bílar fyrir utan Krónuna í marga mánuði eins og var í dag. Enda lofuðu Kaupásmenn að bæta þjónustuna við búðina og kúnnarnir lofuðu að kaupa meira.
Vonandi fáum við að hafa búðina áfram.
Ég er svona manneskja sem þarf að að hafa búðina við hendina. Ég reyni stundum að kaupa inn fyrir alla vikuna en ég þarf alltaf að skjótast eftir e-u sem ég gleymdi.
Enda stutt fyrir mig að skjótast. Skýst stundum á inniskónum sem er nú ekki mjög smart. En í hita eldamennskunnar, þegar bráðvantar e-ð, er það ósköp þægilegt.

fimmtudagur, 16. febrúar 2006

Og enn og aftur hefst nýtt tímabil í ævi mnni. Unglingsbarnið er flutt frá mér. Það flutti í gærkvöldi heim til foreldra sinna. Þeir eru búnir að koma sér fyrir í höfuðborginni og ekkert því til fyrirstöðu að barnið hefji skólagöngu þar. Það var skrítið í morgun að þurfa ekki að vekja unglingsbarnið og dúlla við það með morgunverði og nesti. Ekkert nema gamli minn að spjalla við.
"Já, hann er dálítið öðruvísi, þessi morgunn," varð sá gamla að orði.
Svona er lífið, eilífum breytingum háð.
Það er bara að taka því.
Við gamli höfum svo sem áður verið ein og unað okkur vel.

sunnudagur, 12. febrúar 2006


Ég skrapp til London um daginn í ákveðnum erindagjörðum. Þegar hún dótla mín frétti þetta keypti hún sér lestarmiða frá Wales handa sér og Lúkasi og dvöldu þau mæðgin hjá mér í rúman sólarhring. Ég náði í þau á Euston lestarstöðina og notuðum við timann til þess að ganga um stræti Lundúnar og skoða okkur um og spjalla og vera bara saman. Það var frábært. Við fórum á Piccadilly circus m.a. Það er alls ekki barnavænn staður enda Lúkas sá eini þar á ferð í kerru. Ég tók mynd af þeim mæðginum við fallega styttu sem þar er bara svona til þess að eiga sönnunargagn um veru okkar þarna. Styttan mun vera af ástarguðinum Erosi. Ég heyrði svo e-n ávæning af því í útvarpinu í fyrradag að hryðjuverkamenn hefðu haft e-n áform uppi um það að skemma þessa styttu ásamt öðrum styttum. Það fer um mann hrollur við tilhugsunina um hvað hryllingurinn er nálægt.

laugardagur, 21. janúar 2006

Það hafa greinilega fleiri en ég áhyggjur af framtíð íslenskrar tungu. í Lesbókinni í dag eru margar greinar um málið okkar. Skemmtilegar vangaveltur af ýmsu tagi. Ég held að það sé einnig málþing um helgina, haldið í Reykjavík, þar sem verður fjallað um ástkæra ylhýra frá mörgum sjónarhornum. Fyrir u.þ.b. fjórum árum ræddum við þessi mál, sonur minn og ég. Hann spáði því þá að íslenskan biði lægri hlut gagnvart enskunni innan tíu til fimmtán ára. Mér fannst hann einum of svartsýnn þá en hvað kemur í ljós. Með útrás ýmissa fyrirtækja, sem hófst fyrir um þremur árum, hefur margt breyst. Það gefur auga leið að með útrásinni koma útlendingar inn í fyrirtækin og þá þýðir lítið að vera að nota íslenskuna. Enda segir í blaðinu í dag að enska sé aðalmál KB banka. Aðalfundir og stjórnarfundir fara fram á ensku. Svo er ennig háttað um mörg önnur fyrirtæki.
Ég hef ekki haft miklar áhyggjur af íslenskunni þó að unglingar noti slettur, msm mál, sms mál eða sér bloggmál. Það er lestur bóka og iðkun tungunnar eins og Þórður Helgason kemst að orði sem ég hef meiri áhyggjur af. Þ.e.a.s. börn og unglingar lesa lítið sem ekkert af bókum og iðka málið ekki nóg, alast upp í málfátæku umhverfi og fá þar af leiðandi ekki næga tilfinningu fyrir málinu.
Mér finnst, eftir lestur Lesbókarinnar í dag, að ég geri ekkert gagn með því að segja nemendum mínum að það eigi að segja mig langar og ég hlakka til.
Til hvers og hvaða máli skiptir það?

miðvikudagur, 11. janúar 2006

Þá eru "jólin" komin ofan í kassa og bíða næstu jóla. Ég ætla samt að hafa ljósin á kantinum á húsinu dulítið lengur. Það er svo ansans ári dimmt á bak við hjá mér, þannig að nú gegna jólaljósin hlutverki útiljósa. Samnýting gæti það kallast.
Ég var að ganga frá fataleppum ofan í tösku og er á leiðinni í heimsborgina London. Ætla að dvelja þar í fjóra sólarhringa með nokkrum samstarfsfélögum mínum. Við ætlum á hina frægu BETT tölvuráðstefnu.
Ég á einnig von á heimsókn til London. Svava Rán og Lúkas ætla að koma með lest frá Wales og vera með með mér í einn sólarhring. Ég hef nokkrum sinnum komið til London áður en aldrei gengið Oxford stræti barn í kerru fyrr.
Einhvern tímann verður allt fyrst. Ég hlakka til.