Það hafa greinilega fleiri en ég áhyggjur af framtíð íslenskrar tungu. í Lesbókinni í dag eru margar greinar um málið okkar. Skemmtilegar vangaveltur af ýmsu tagi. Ég held að það sé einnig málþing um helgina, haldið í Reykjavík, þar sem verður fjallað um ástkæra ylhýra frá mörgum sjónarhornum. Fyrir u.þ.b. fjórum árum ræddum við þessi mál, sonur minn og ég. Hann spáði því þá að íslenskan biði lægri hlut gagnvart enskunni innan tíu til fimmtán ára. Mér fannst hann einum of svartsýnn þá en hvað kemur í ljós. Með útrás ýmissa fyrirtækja, sem hófst fyrir um þremur árum, hefur margt breyst. Það gefur auga leið að með útrásinni koma útlendingar inn í fyrirtækin og þá þýðir lítið að vera að nota íslenskuna. Enda segir í blaðinu í dag að enska sé aðalmál KB banka. Aðalfundir og stjórnarfundir fara fram á ensku. Svo er ennig háttað um mörg önnur fyrirtæki.
Ég hef ekki haft miklar áhyggjur af íslenskunni þó að unglingar noti slettur, msm mál, sms mál eða sér bloggmál. Það er lestur bóka og iðkun tungunnar eins og Þórður Helgason kemst að orði sem ég hef meiri áhyggjur af. Þ.e.a.s. börn og unglingar lesa lítið sem ekkert af bókum og iðka málið ekki nóg, alast upp í málfátæku umhverfi og fá þar af leiðandi ekki næga tilfinningu fyrir málinu.
Mér finnst, eftir lestur Lesbókarinnar í dag, að ég geri ekkert gagn með því að segja nemendum mínum að það eigi að segja mig langar og ég hlakka til.
Til hvers og hvaða máli skiptir það?
Engin ummæli:
Skrifa ummæli