Ég var búin að vera stressuð í eina viku yfir Reykjavíkurferðinni sem ég þurfti að taka mér á hendur í gær. Svo stressuð að Simmi minn fór með mig á laugardaginn í bæinn til að sýnda mér nákvæmlega leiðina sem ég átti að fara. Það sló aðeins á stressið en það hvarf ekki alveg. Ég fór, sem sagt, í klippingu og strípur í gær klukkan eitt á átti svo að vera á fundi klukkan fimm í Hamraborginni í Kópavogi. Ég hef aldrei getað lært að rata um Kópavoginn enda kom það á daginn, þrátt fyrir viðleitni og hjálpsemi míns ektamanns, þá fann ég ekki Hamrabogina. Er það ekki hún sem er há og fögur? Ég var, eins og svo oft áður, á vitlausri akrein og lenti undir brúnni opg stefndi hraðbyri út í Hafnarfjörð, sem ég rata ekki heldur um. Hjartað tók nokkra aukaslætti en þá sá ég nýju (eða nýlegu) brúna út í Garðabæ og snaraði mér, á mínum fjallabíl, upp á hana og þá blasti við skilti sem á stóð Reykjavík. Ég skipti um akrein og þar sem ég beið á ljósum sá ég að ég ætti að komast í Hamraborgina frá þessum stað. Ég keyrii þarna upp brekku og var þar með komin í Kópavoginn en ekki í Hamraborgina. Ég sneri við, eftir að hafa þurft að keyra nokkurn spöl, og nú hlaut ég að finna Hamraborg. Næsta beygja leiddi mig heinsvegar beint til Reykjavíkur. Ég gafst upp og ákvað að fara heim, tók þá eftir því að olíuljósið var farið að loga. Ég varð logandi hrædd. Hvað ég kelling á sextugsaldri, á allt of stórum bíl, að gera olíulaus á miðri götu í Reykjavík?
Þar sem Simmi minn segir alltaf, að það sé ekkert mál að fara á milli Þolló og Reykjavíkur á ljósinu, þá ákvað ég að keyra að Litlu kaffistofunni í Svínahrauni og taka þar olíu og slaka á þöndum taugum. Þar dælir Stefán á tankinn fyrir mann og maður fær kaffisopa í kaupbæti. Rétt áður en ég kom að þeirri Litlu kláraðist olían. Bíllinn varð olíulaus hjá mér. Ég gat látið hann renna á breiða vegaröxl beint á móti Kaffistofunni og þar biluðust taugarnar næstum alveg. Mér datt ekkert annað í hug en að hringja í Simma minn. Ég þurfti ekki að segja mikið við hann. Hann þekkir sína kelllu og var kominn eftir nokkur andartök og bjargaði mér úr þesssari klípu. Ég mátti náttúrlega ekki láta bílinn klára olíuna alveg. Það var bras að koma honum í gang eftir að hjálpsamur vegfarandi hafði dregið hann að olíutanknum. En hvernig átti ég að vita það? Maður veit nú ekki allt.
Þetta var ekki minn dagur í gær.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli