Síður

mánudagur, 6. mars 2006

Ég sækist ekkert sérstaklega eftir því að fara á píanótónleika en það hefur þó komið fyrir að ég fari. Bæði í Þorlákshöfn og á Reyðarfirði. Ég fór í gær í Ráðhúsið á tónleika hjá Jónasi Ingimundarsyni. Ég hef ekki mikið vit á píanótónlist en ég get bara ekki ímyndað mér að það sé hægt að gera þetta betur en Jónas gerir þetta. Hann er líka svo skemmtilegur. Biður áheyrendur að afsaka masið á milli laga en það er einmitt það´sem mér finnst svo gaman að fá útskýringar á því hvað hann er að gera. Hann spilaði tónlist eftir Mozart, Beethoven, Schumann og Brahma. Mozart kom mest við kvikuna í mér. Sálin í mér fór á eitthvert tilfinningaflökt. Ekki veit ég af hverju. En þessu sunndagssíðdegi var vel varið.
Þegar hann Simmi minn var lítill sótti hann oft tónleika hjá Jónasi.Þá söfnuðst krakkarnir í þorpinu saman heima hjá Ingimundi heitnum, röðuðu sér í stigann, eins og í sæti í leikhúsi, og Jónas spilaði fyrir krakkana á harmónikku. Var bara unglingur sjálfur.
Jónas kenndi krökkunum líka hvernig ætti að nappa sér í harðfisk í Mundaveri, án þess að Gvendur sæi og hvernig ætti að ná sér í gulrót úr garðinum hjá Guðbjörgu og Benna án þess að þau sæju. En það er nú önnur saga.

Engin ummæli: