Skellti mér í leikhúsið í gærkvöldi. Leikhús í Þorlákshöfn. Á leiksýningu í Ráðhúskaffi. Á söngleik, sem nýendurvakið leikfélag hér í bæ setti á fjalirnar. Söngleikinn Ég elska alla sem leikstjórinn þeirra samdi. Ég skemmti mér konunglega. Fannst rosalega gaman. Allir sem tóku þátt í sýningunni stóðu sig mjög vel. Mér finnst svo gaman að sjá fólkið á götunni, fólkið í búðinni og fólkið í ættinni gera eitthvað sem maður hafði ekki hugmynd um að það gæti. Ef ég byrjaði að telja upp hverjir stóðu sig vel þá yrði upptalningin að lokum allir sem komu fram. Allir voru góðir.
Mér finnst frábært að hér skuli starfa aftur leikfélag. Hér á árum áður, þegar Vernharður Linnet starfaði hér sem kennari, var mikið og öflugt leikstarf. Hér voru sett upp, á hverju ári, metnaðarfull stykki. Meira að segja frumflutningur eftir höfunda eins og Þorstein Marelson og Guðmund Steinsson. Allt þetta var vegna eldmóðs Venna. Hann var aðalsprautan. Oft þarf ekki nema einn til að virkja aðra með sér. Þegar Venni flutti héðan var reynt að halda starfseminni áfram. Ég var ein af þeim sem starfaði áfram. Við settum aðeins upp eitt stykki eftir að Venni fór svo rann allt út í sandinn hjá okkur. Okkur vantaði eldmóð Venna. Ég vona að hið nýja leikfélag, sem heitir Leikfélag Ölfus, en ekki Leikfélag Þorlákshafnar eins og það gamla, eigi eftir að vaxa og dafna og lifa lengi.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli