Síður

fimmtudagur, 23. desember 2004

Allir komnir á klakann.........og þá var kátt í höllinni, höllinni, höllinni...........

laugardagur, 18. desember 2004

Nú er fjör í bæ.... og ekki allir mættir enn!

föstudagur, 17. desember 2004

Hún Svava Rán mín er þrítug í dag. Litla stelpan mín er 30 ára. Þrír tugir síðan við vorum saman á sjúkrahúsi Selfoss. Hún pínu hnoðri sem ég óskaði gæfu og gengis í lífinu. Ég þóttist veraldarvön þar sem ég hafði þriggja ára reynslu í móðurhlutverkinu. Ég gat alla vega farið beint heim með hana en þegar ég átti Kalla var ég heila viku hjá mömmu því ég vissi bara ekki hvað ég átti að gera við hann. Hún var svo sannarlega jólabarn því við komum heim á Þorláksmessu. Nú eru þrjátíu ár síðan. Skrítin tilfinning. Tíminn er svo afstæður.

þriðjudagur, 14. desember 2004

Það er svo skrítið með jólin og jólaundirbúninginn að það verður allt að vera í föstum skörðum og margt sem gert er verður að hefð. Við höfum nokkrum sinnum farið í jólarallý með Öldu og Valda og nú er það orðið að hefð. Það var um helgina. Þá förum við í bæinn og skoðum hvað kaupmenn hafa að bjóða og eyðum svo dálítið af aurum í einn og annan óþarfa. Kannski er ein og ein jólagjöf keypt. Við tókum rallýið með trompi í ár og fengum okkur hótelgistingu. Það er hægt að gera góða díla á þessum árstíma. Fyrir vikið snæddum við dýrindis máltíð í mörgum liðum á Carúsó og röltum á pöbba á eftir. Kíktum á barinn á 101 og einhvern írskan einnig. Við skemmtum okkur konunglega. Þetta verður örugglega endurtekið að ári. Þá ætla ég að hafa vaðið fyrir neðan mig og vera búin að panta íbúð hjá Kennarasambandinu á Sóleyjargötunni. Ég verð bara að muna að panta í október.

mánudagur, 6. desember 2004

Í dag hefði Siggi mágur orðið fimmtugur hefði hann lifað.
Hann dó, langt fyrir aldur fram, 10. október 1999.
Blessuð sé minning hans.

sunnudagur, 5. desember 2004

Ég fer venjulega til hennar Röggu í Monroe í klippngu á 7-8 vikna fresti. Ég sleppti hins vegar tímanum sem ég átti í verkfallinu. Og hárið óx og óx og ég var orðin eins og og argintæta. Dauðsá eftir að sleppa tímanum því auðvitað er nauðsynlegt að líta vel út þó að maður sé í verkfalli. Ég átti svo loksins tíma í gær og skellti mér i bæinn. Ragga tók af mér rúmlega tvö reyfi og setti í mig strýpur. Svo nú lít ég sæmilega út eða öllu heldur skárri en áður. Ég spurði hana hvort hún sæi grá hár af því ég sjálf sé engin og hún fann nokkur... já, já, uppi á hausnum á mér.
Ég fékk sjúkdómsgreiningu í vikunni. Fór til gigtarlæknis að tilstuðlan Helga og sá greindi mig með vefjagigt. Það hlýtur oft að vera áfall þegfar fólk greinist með langvinnan sjúkdóm en það var eins og mér létti. Ég veit þá núna af hverju allir þessir verkir stafa. Ég hef alltaf talið mér trú um að ég væri með verk vegna vöðvabólgu, væri með harðsperrur eða hefði legið eitthvað asnalega í rúminu. Nú veit ég betur. Ég hef áunnið mér þennan sjúkóm með langvarandi svefnleysi og streitu. Læknirinn rakti úr mér garnirnar með lífshlaup mitt. Ég fékk munnræpu,(með grátstafinn í kverkunum) sagði honum ýmislegt sem studdi greininguna. Ég vissi alltaf að svefnleysið, sem hefur hrjáð mig frá 1972, hefði slæm áhrif. Ég vissi bara ekki hvað myndi gerst. Verkina hef ég haft síðan 1996 eða síðan ég flutti austur. Verkirnir koma frá aumum vöðvafestum. Nú verð ég að fara að sofa REM svefni á hverri nóttu með hjálp lyfja því vöðvar og vöðvafestur hvílast ekki nema í djúpsvefni. Þetta er nú bara eitt af þessum hundsbitum sem maður fær.

þriðjudagur, 30. nóvember 2004


Hið árlega jólaföndur nokkurra vinkvenna beggja megin Ölfusár fór fram í gærkvöldi heima hjá mér. Þetta var í tólfta sinn sem þessi hópur hittist á aðventunni til þess að föndra fyrir jólin og eiga saman skemmtilega stund. Í ár varð fyrir valinu snjókarl úr spýtu sem hangir á dyrakarmi. Pabbi sagaði þá út og við skreyttum hver á sinn hátt. Siður er að vera annað hvert ár í Þolló og hitt á Selfossi og það er leyndó hvert föndrið er þangað til á hólminn er komið.Hópurinn samanstendur af Erlu með dætur sínar tvær, Eygló og Emmu og þær eru með vinkonuna Sjöfn og svo er það mamma með okkur þrjár og vinkonu okkar hana Öldu. Nú er ég viss um það að þær austan megin árinnar eru byrjaðar að hugsa upp föndrið að ári. Hlakka til. Þetta er alltaf jafn gaman. Posted by Hello

sunnudagur, 28. nóvember 2004


Mikil hátíð var haldin í dag á B-götu 20. Tilefnið var 40 ára búseta í Þorlákshöfn. Við fluttum frá Selfossi til Þorlákshafnar sem var þá 13 ára gamalt þorp. Þá var Rut 6 ára, Gréta 10 ára og ég 14 ára. Þetta voru mikil viðbrigði fyrir okkur öll. Við fluttum vegna þess að pabbi kom á fót vélsmiðjunni Boða ásamt fleiri mönnum frá Selfossi sem sáu framtíð í þessu unga þorpi. Hér erum við öll enn og viljum hvergi annars staðar vera. Nema Dundi sem er systursonur mömmu og við fengum að hafa fyrir litla bróður í nokkur ár. Hann býr í Kópavogi er smiður og rekur trésmíðaverkstæði.
Pabbi og mamma keyptu húsið að B-götu 20 fokhelt, vorið 1964, og kláraði pabbi það á kvöldin og um helgar. Karlarnir í Boða leigðu B-götu 22 og bjó ég þar um sumarið ásamt tveimur vinkonum frá Selfossi, Esther og Dóru, og unnum við í Meitlinum. Ég nýfermd og þær ári eldri. Þegar svo húsið var tilbúið og mamma flutti kom í fyrstu bara Rut með henni. Við Gréta vorum eftir hjá Erlu og Hebba. Ég til að klára annan bekk í Gaggó og Gréta til að vera til jóla í 10 ára bekk. Rut hafði byrjað í 6 ára bekk á Selfossi og með flutningnum lauk hennar skólagöngu þennan veturinn því engin kennsla var fyrir 6 ára í Höfninni. Fyrsti veturinn sem ég er alveg í Þorlákshöfn er ekki fyrr en 1971 þegar ég hef lokið Kennó og byrja að búa með honum Simma mínum og eignast Kalla og byrja að kenna og fer að byggja og.....já það var töluvert sem gerðist það árið.
40 ár.
40 ár í Höfninni.
40 ár síðan ég var í Smáratúni 3.
40 ár síðan ég sá hann Simma minn fyrst.
40 ár síðan ég fermdist.
40 ár síðan ég hjálpaði pabba að glerja stofuna.
40 ár síðan ég eignaðist hvíta Sony útvarpið mitt.
40 ár síðan ég flutti frá Selfossi.
40 ár síðan ég sigldi með Heklu til að skoða Surtsey.
40 ár.Posted by Hello
Laugardagurinn fór í jólaundirbúning. Ég hengdi greni og ljós utan á gluggana sem snúa að götunni. Kemur vel út. Ég bakaði uppáhaldsrúllutertuna hennar Svövu Ránar og haframjöls-kókósmjölssmákökur sem ég fann á síðu sem Eygló sendi mér. Tertubotna bakaði ég líka. Fór svo eftir hádegi til Rutar og við bökuðum Sörur. Hulda litla Gunn var með okkur í því. Það er að verða búsældarlegt hjá mér. Ég á nú samt eftir að baka miklu meira. Ég slepp ekki við að hnoða í brúna lagtertu. "Æi, mamma", sagði Svava Rán þegar ég impraði á því að líklega hefði ég hana hrærða en ekki hnoðaða. Og hvað gerir maður ekki fyrir börnin sín. Ég hef svo rosalega gaman að þessu öllu í ár að það er í fínu að lagi að bæta við einni hnoðaðri.

föstudagur, 26. nóvember 2004

Ég hef vísvitandi draslað út hjá mér undanfarna daga svo ég hafi eitthvað til að taka til á föstudegi eins og hinar húsmæðurnar. Nú er ég búin að laga til, þurrka af og moppa gólfin, setja í vél og annað partí í þurrkarann. Nú stendur til að skúra flísarnar og skella svo í eina pizzu eða svo.
Fínn föstudagur.
Ég er reyndar búin að gera miklu meira í dag. Kenna mína tíma, sitja þrjú foreldraviðtöl, fara með pakka og bréf á póstinn og slugsa smávegis.
Fínn föstudagur.

þriðjudagur, 23. nóvember 2004

Eftir kynningarfundinn á Selfossi í dag, á kjarasamningi kennara og sveitarfélaga, verð ég ekki hissa þótt hann verði felldur í kosningu sem fer fram á næstu dögum. Það er svo mikill pirringur í kennurum yfir meðferðinni að allt getur gerst. Flestum finnst það óþolandi að láta stilla sér svona upp við vegg og fara að samþykkja næstum það sama og var fellt um daginn með 93% og finnst þá skömminni skárra að láta gerðardóm yfir sig ganga þó að það megi búast við verri kjörum en eru nú í boði. Það verður alla vega mjótt á mununum.
Ég er orðin jólabrjáluð. Búin að hengja upp tvær seríur......... og hef kveikt á þeim!

sunnudagur, 21. nóvember 2004

Það var dútlað við skemmtanalífið um helgina. Ester og Halldór voru sæt að bjóða mér á jólaskemmtun hjá Norrænafélaginu á föstudagskvöld því Simmi var á karlafundi hjá Kiwanis. Það var borinn á borð matur frá öllum Norðurlöndunum, alveg frábær. Þar smakkaði ég færeyska blóðpylsu í fyrsta sinn og var hún miklu betri en blóðmörin okkar. Þeir krydda pylsuna sem gerir hana að lostæti. Eftirrétturinn var jólagrautur og fékk ég möndluna. Ég fékk ægilegan fínan pakka sem ég tími ekki að taka upp fyrr en á jólunum. Ég er búin að láta hann á nýja fína jólatrésdúkinn minn. Og þar bíður hann. Ég veit að ég er dálítið snemma í þessu en hneykslist þeir sem hneykslast vilja, mér er nokk sama.
Í gærkvöldi vorum við í systkinaboði hjá Jónu Stínu og Finna. Þau buðu upp á grillað lambalæri með öllu tilheyrandi og ostaköku í eftirrétt. Allt rosalega gott. Það er nú ekki leiðinlegt að vera með þeim systkinum öllum í boði. Hlegið og fíflast og rifjaðar upp gamlar stundir. Ásta gisti hjá okkur; fyrsti næturgesturinn á nýja staðnum.

fimmtudagur, 18. nóvember 2004


The Jones family frá Wales kemur á klakann hinn 22. des og ætlar að vera hjá okkur gamla settinu til 28. des. Getur því miður ekki stoppað lengur vegna anna en þessi fjölskylda er ekki sú eina sem kemur..... Posted by Hello

...heldur kemur The Midwest family einnig og mun dvelja hjá okkur frá 16. des til 5. jan. Skyldi nokkurn undra að ég hlakki til jóla í ár. Posted by Hello

miðvikudagur, 17. nóvember 2004

Samningur í höfn! Hvað skyldi hann hafa að færa? Ég er víst svartsýnasti kennarinn á minni kennarastofu. Sjáum hvað setur. Maður hlýtur að frétta e-ð á morgun. Annars hef ég farið í fýlu einu sinni í mánuði í rúm 30 ár og ég get það svo sem alveg í sex ár í viðbót.

sunnudagur, 14. nóvember 2004

Ég er komin í svo mikið jólaundirbúningsskap að ég get ekki leynt því lengur. Ég hef notað verkfallið til jólaföndurs (og slugs og snúið sólarhringnum við, en það er önnur saga) og er langt komin með það í huganum hvernig ég ætla að skreyta nýja húsið mitt að utan og ég get varla beðið með að byrja.
Ég er búin að sauma í höndunum snjókarl, jólalegan, sem er kominn upp á vegg; jóladagatal, bara fyrir okkur gamla settið; rosaflottan jólatrésdúk; mála spýtujólasveina, sem pabbi sagaði út í nýju söginni og nú er ég að klára að sauma bæði í höndum og vél, jólasveinatríó. Ef ég held svona áfram þarf ég ekki að sækja kassana útí skúr því ég hef ekki pláss fyrir meira dót. Og þó, það er lífsnauðsyn að ná í e-ð af gamla dótinu, því það eru svo miklar tilfinningar tengdar sumum hlutunum.
Ég fór áðan út í Krónu (erfitt að segja ekki kuffulag) og keypti efni í ekta ensku jólakökuna en á ekki koníak þannig að ég verð að bíða með að baka hana þangað til á morgun eða hinn.
Ég get svarið það, það er verið að spila jólalag í útvarpinu!!!!

föstudagur, 12. nóvember 2004

Það er með þvílíkum ólíkindum hvernig farið er með kennarastéttina að maður á bara ekki orð fyrir reiði og móðgun. Hér má lesa um það sem kennaraforystan hafði að segja um málið.

þriðjudagur, 9. nóvember 2004

Þá er seinni hálfleikur hafinn. Skyldi þetta vera eins og í fótboltanum, jafnlangur tími í hvorum hálfleik? Eða þarf að framlengja og enda svo með vítuspyrnukeppni? Enginn veit. Það er eins og leikur sé rétt að hefjast. Eins og það sé ekki búið að spila neitt. Ekkert markvert gerist. Ég vildi að þeir færu að skora mark.