Síður

miðvikudagur, 26. apríl 2006

Þeir stóðu sig svo sannarlega vel krakkarnir í 10. bekk á uppfærslu sinni á Grease. Í bekknum er hljómsveit, hver stórsöngvarinn á fætur öðrum og frábærir leikarar.
Ég skemmti mér konunglega.
Blessuð sé minning Herberts Gränz.
Hann var jarðsettur í dag, tæplega tvítugur að aldri.

föstudagur, 21. apríl 2006

Nú er lífið skrítið. Ég er aftur orðin sjómannskona. Ég fékk mér ekki nýjan kall, hann Simmi minn fór bara út á sjó. Hættur að smíða og orðinn vélstjóri aftur. Kemur heim skítugur á höndunum. Hann er bara búinn að fara einu sinni út á sjó og leggja netin. Það var í nótt. Hann kom heim um þrjúleytið í dag og átti þá von á að fara aftur um miðnætti eða jafnvel síðar. Svo hringdi skipperinn klukkan átta og hánn átti að vera mættur í Reykjavíkurhöfn klukkan tíu. Við vorum bara að horfa á sjónvarpið í rólegheitum og þá þarf hann hann allt í einu að fara út á sjó. Ég veit ekki hvort ég geti vanist þessu aftur. Ég hélt að þessum kafla i lífi mínu væri lokið. En það á víst aldrei að segja aldrei.

miðvikudagur, 19. apríl 2006

Í gær fékk ég fjármálaráðgjafa í heimsókn. Ekki frá mínum banka heldur öðrum banka. Unga og mjög viðkunnalega konu. Ég var búin að segja henni í símann að bankinn hennar hefði örugglega ekki áhuga á að fá mig í viðskipti. Hún vildi samt koma og fara yfir stöðuna. Ég hafði allan vara á mér því gulrótin var að lækka iðgjöld trygginga. Það finnst mér hljóma eins og ég verði að borga eitthvað meira annars staðar. Þegar við höfðum farið yfir stöðuna sagði konan að ég væri alveg á rétti leið í fjármálum, ég skyldi halda svona áfram, hætta svo að hafa áhyggjur og fara aftur að synda og út að ganga. Svo tók hún utan um mig, kyssti mig á kinnina og kvaddi.
Frábær fjármálaráðgjöf. Ég sat eftir hæstánægð. Hvort bankinn hennar verður ánægður með vinnuna hennar eða ekki kemur mér ekkert við.

föstudagur, 14. apríl 2006


Á meðan doktorinn og familía bjuggu í Iowa, einu af miðvesturríkjum Bandaríkjanna, var ég alltaf uggandi um þau þegar fréttir bárust til Íslands um vindstróka og hvirfilbylji þar í landi. Fyrst efir að þau fluttu út fóru þau eftir fyrirmælum yfirvalda og húktu ofan í kjallara, jafnvel í nokkra klukkutíma, þegar fréttir bárust um að von væri á svona óvætti. Seinna urðu þau kærulausari og hættu að hlaupa ofan í kjallara. Í dag berast þær fréttir að skýstrókur hafi farið yfir Iowa city, borgina þar sem mitt fólk bjó, og orðið einum manni að bana og yfir 20 þúsund heimiili séu núna án rafmagns. Ekki nóg með það heldur fór strókuinn yfir Washington street, götuna þar sem the Midwestfamily (Kalli og kó) bjó, en strókurinn fór yfir húsaröðina á móti þar sem þau bjuggu. Þar léku unglinsbarnið og litla Skotta sér heilmikið á trambólíni sem vinur þeirra átti. Ætli það sé farið út í veður og vind? Og hvað með fólkið sem býr í borginni og við þekkjum?
Ég hef mjög gaman að því að grilla úti. Hef verið í vandræðum í nokkurn tíma vegna grillleysis. Notaðist við lítið kolagrill á svölunum í blokkinni þangað til ég keypti í Ameríku ferðagasgrill. Það er ekki nógu stórt til þess að grilla fyrir matarboð þó það sé stærra en þessi sem eru seld hér heima (það er rétt að allt sé stærra í Ameríku) svo ég hef verið í grillhugleiðingum um nokkurt skeið. Þeim hugleiðingum lauk um jól er við fengum grill í jólagjöf. Keypt í Ameríku. Doktorinn og tengdadóttirin skelltu því með í gáminn með dótinu þeirra. Við, Simmi minn, urðum eiginlega agndofa þegar við fengum það, því við höfðum aldrei ímyndað okkur að við myndum eignast svona stórt grill. Aftur komum við að því að allt er stórt í Ameríku. Við héldum að við myndum aldrei nota nema einn þriðja af grillinu en annað kom í ljós. Við erum í því að grilla þessa dagana. Þegar maður hefur svona mikið pláss þá grillar maður allt. Ég dreifi grænmeti og kartöflum út um allt grill og veitir ekkert af plássinu. Grilligrilligrill. Simmi minn, sem aldrei hefur viljað grilla, kokkurinn sá, skiptir sér af öllu hjá mér og er greinilega að reyna að ýta mér frá eins og hann gerði hér forðum með eldhúsið.
Mér finnst það nú ekkert leiðinlegt.
Á þessari stundu ilmar bökunarlykt úr eldhúsinu.
Ég hef grun um að kokkurinn sé að baka brúntertu.

fimmtudagur, 13. apríl 2006

Hann Simmi minn er eins og barn með nýju græjurnar sínar. Hann keypti sér áðan brauðrist og samlokugrill. Bara völlur á mínum. Hann hefur ekki borðað brauð núna í þrjár vikur eða síðan gamla brauðristin okkar brann yfir. Hann borðar aldrei brauð nema ristað. Gikkurinn sá. Sú gamla var búin að þjóna sínu hlutverki í 20-30 ár. Góð ending. Ég er ekki viss um að sú nýja eigi eftir að duga eins lengi. Mér finnst allt nýtt dót í dag vera bölvað drasl. Jæja, við skulum sjá til.

miðvikudagur, 12. apríl 2006


Lukku Láki er greinilega farinn að greina hljóðkerfisfræðina. Hann biður mömmu sína um kex og pabba sinn um biscuits. Hann talar og talar en yfirleitt segir hann meira en menn fá skilið. Hann er bara tveggja og hálfs. Þegar hann heyrir mömmu sína tala íslensku í símann kemur hann hlaupandi og tekur af henni tólið og segir með spurn í rómnum: "Amma?" "Afi?" Og hvort okkar sem heldur á tólinu hinum meginn við sjóinn verðum uppveðruð og breytum röddinni í smábarnatónsrödd og segjum: "Lúkas, halló, hvað segirðu kallinn minn?" Hann vill helst ræða um áhugamál sitt sem eru teiknimyndafígúrurnar í sjónvarpinu sem við kunnum ekki nógu mikil skil á en reynum okkar besta. Thomas og James og Bob the builder. Þetta eru allt vonandi góðir gæjar, sem gefa prinsinum af Wales gott veganesti.

þriðjudagur, 11. apríl 2006


Unglingsbarnið og litla Skotta eru búin að vera hjá okkur í tvo daga. Doktorinn og tengdadóttirin voru í vandræðum með þau þegar páskfrí skall á. Okkur Simma mínum finnst voða gaman loksins að geta hjálpað til með börnin. Unglingsbarnið leikur sér í tölvunni og hittir gamla vini hér í bæ. Litla Skotta dundar sér við að föndra hitt og þetta og málar og teiknar. Við fórum í sund í dag og undum okkur þar dágóða stund. Þar er búið að setja upp vatnsnuddtæki sem ég lét berja á stífum vöðvum. Alveg frábært.
Eitthvað var litla Skotta að pæla í lífinu og tilverunni og klikkti út með að hún þyrfti að spyrja pabba sinn um ákveðinn hlut.
Amma Gunna: "Já, það er sniðugt hjá þer að spyrja pabba þinn, því pabbar vita svo margt."
Litla Skotta: Já, en þeir vita nú ekki meira en mömmur þeirra!"
Ég varð nú bara upp með mér!

miðvikudagur, 5. apríl 2006

Í helgri bók stendur að Jesú hafi breytt vatni í vín. Hann Simmi minn gerir oft veislumat úr einhverjum ruðum sem hann finnur í ísskápnum. Sullar einhverju saman og bætir við og kryddar pínu. Ég geri ráð fyrir að Jesú hafi notað viðlíkan gjörning. Mér datt þetta í hug í gær þegar ég breytti kjötsúpu í fiskrétt.
Kom svona líka ljómandi vel út þótt ótrúlegt sé.

sunnudagur, 2. apríl 2006

Flott Gellan í gær.
Flott skemmtiatriði úr heimabyggð.
Sum á heimsvísu. Danssýning Júlís og dömunnar hans var stórkostlegur.
Það fannst mér einnig um klassaíska gítarleikinn hans Ómars Bergs.
Og auðvitað stóð Bergheimakórinn sig vel.
Veislustjórinn fínn eins og von var þar sem Bjarni Áskels stóð vaktina.
Maturinn var frábær. Ég vildi bara að ég hefði getað borðað meira. Ótal frábærir fiskréttir eldaðir af Kiwanisfélögum sjálfum.
Stuð í dansinum.
Flott Gellan í gær.

föstudagur, 31. mars 2006

Unglinsbarnið er komið heim úr skólabúðunum.
Bara ánægt eftir veruna í kuldanum fyrir norðan.
Síðustu tveir dagarnir voru bestir.
Amma tölva: "Nú?"
Unglingsbarnið: "Þá hitti ég nokkrar stelpur."
Amma tölva: "Já, ég skil."
Doktorinn búinn að sækja það.
Á bílnum mínum. Hans er bilaður.
Simmi minn er að undirbúa Gelluna.
Hún er á morgun.
Hann er að flaka fiskinn sem á að borða.
Á Gellunni.
Einhver Kiwaniskarlinn talaði um að tæma nokkra bauka í leiðinni.
Hann hlýtur að vera frá Akureyri sá.
Saumanámskeiðið sem átti að vera í fyrramálið frestast.
Ég hef þá aðeins meiri tíma til að gera heimavinnuna mína.
Sjúkk.
Ég var nebbnilega ekki alveg búin að sauma borðann á í handveginn.
Á nítjándualdarbúninginn. Íslenska búninginn sem ég er að reyna að sauma.
Fékk frest, verð dugleg.

fimmtudagur, 30. mars 2006

Ég hef ekki synt síðan fyrir jól og ekki farið í göngutúr nema endrum og sinnum. Ég hef endalausar afsakanir fyrir því að hreyfa mig ekki. Eg hef meira að segja afsakanir fyrir því að fara á bílnum í skólann. Það er kalt úti, rigning, hráslagalegt, rok eða mér er illt í hnénu, illt hér og illt þar. Ég sem gekk í skólann á hverjum degi og hvernig sem viðraði á meðan ég hafði ekki bíl. Þegar Simmi minn fór á bílnum eldsnemma morguns í sína vinnu varð ég bara að gjöra svo vel og ganga allra minna ferða og það var ekkert mál. Um leið og ég hef bílinn þá kólnar úti eða rignir eða ég finn enhvers staðar til. Er maður normal?

þriðjudagur, 28. mars 2006

Ég var búin að vera stressuð í eina viku yfir Reykjavíkurferðinni sem ég þurfti að taka mér á hendur í gær. Svo stressuð að Simmi minn fór með mig á laugardaginn í bæinn til að sýnda mér nákvæmlega leiðina sem ég átti að fara. Það sló aðeins á stressið en það hvarf ekki alveg. Ég fór, sem sagt, í klippingu og strípur í gær klukkan eitt á átti svo að vera á fundi klukkan fimm í Hamraborginni í Kópavogi. Ég hef aldrei getað lært að rata um Kópavoginn enda kom það á daginn, þrátt fyrir viðleitni og hjálpsemi míns ektamanns, þá fann ég ekki Hamrabogina. Er það ekki hún sem er há og fögur? Ég var, eins og svo oft áður, á vitlausri akrein og lenti undir brúnni opg stefndi hraðbyri út í Hafnarfjörð, sem ég rata ekki heldur um. Hjartað tók nokkra aukaslætti en þá sá ég nýju (eða nýlegu) brúna út í Garðabæ og snaraði mér, á mínum fjallabíl, upp á hana og þá blasti við skilti sem á stóð Reykjavík. Ég skipti um akrein og þar sem ég beið á ljósum sá ég að ég ætti að komast í Hamraborgina frá þessum stað. Ég keyrii þarna upp brekku og var þar með komin í Kópavoginn en ekki í Hamraborgina. Ég sneri við, eftir að hafa þurft að keyra nokkurn spöl, og nú hlaut ég að finna Hamraborg. Næsta beygja leiddi mig heinsvegar beint til Reykjavíkur. Ég gafst upp og ákvað að fara heim, tók þá eftir því að olíuljósið var farið að loga. Ég varð logandi hrædd. Hvað ég kelling á sextugsaldri, á allt of stórum bíl, að gera olíulaus á miðri götu í Reykjavík?
Þar sem Simmi minn segir alltaf, að það sé ekkert mál að fara á milli Þolló og Reykjavíkur á ljósinu, þá ákvað ég að keyra að Litlu kaffistofunni í Svínahrauni og taka þar olíu og slaka á þöndum taugum. Þar dælir Stefán á tankinn fyrir mann og maður fær kaffisopa í kaupbæti. Rétt áður en ég kom að þeirri Litlu kláraðist olían. Bíllinn varð olíulaus hjá mér. Ég gat látið hann renna á breiða vegaröxl beint á móti Kaffistofunni og þar biluðust taugarnar næstum alveg. Mér datt ekkert annað í hug en að hringja í Simma minn. Ég þurfti ekki að segja mikið við hann. Hann þekkir sína kelllu og var kominn eftir nokkur andartök og bjargaði mér úr þesssari klípu. Ég mátti náttúrlega ekki láta bílinn klára olíuna alveg. Það var bras að koma honum í gang eftir að hjálpsamur vegfarandi hafði dregið hann að olíutanknum. En hvernig átti ég að vita það? Maður veit nú ekki allt.
Þetta var ekki minn dagur í gær.

þriðjudagur, 21. mars 2006

Skattaskýrslan búin og farin. Fyrsta skipti sem endurskoðandi gerir hana ekki fyrir mig heldur gerði ég hana sjálf. Ekki alveg sjálf, ef ég á að vera hreinskilin, Doktorinn var hjá mér. Ég þorði ekki að vera ein við tölvuna, ég var hrædd um að gera einhverja gloríu. Ég veit núna að þetta er minnsta mál í heimi. Hér eftir get ég þetta alein.

laugardagur, 18. mars 2006

Skellti mér í leikhúsið í gærkvöldi. Leikhús í Þorlákshöfn. Á leiksýningu í Ráðhúskaffi. Á söngleik, sem nýendurvakið leikfélag hér í bæ setti á fjalirnar. Söngleikinn Ég elska alla sem leikstjórinn þeirra samdi. Ég skemmti mér konunglega. Fannst rosalega gaman. Allir sem tóku þátt í sýningunni stóðu sig mjög vel. Mér finnst svo gaman að sjá fólkið á götunni, fólkið í búðinni og fólkið í ættinni gera eitthvað sem maður hafði ekki hugmynd um að það gæti. Ef ég byrjaði að telja upp hverjir stóðu sig vel þá yrði upptalningin að lokum allir sem komu fram. Allir voru góðir.
Mér finnst frábært að hér skuli starfa aftur leikfélag. Hér á árum áður, þegar Vernharður Linnet starfaði hér sem kennari, var mikið og öflugt leikstarf. Hér voru sett upp, á hverju ári, metnaðarfull stykki. Meira að segja frumflutningur eftir höfunda eins og Þorstein Marelson og Guðmund Steinsson. Allt þetta var vegna eldmóðs Venna. Hann var aðalsprautan. Oft þarf ekki nema einn til að virkja aðra með sér. Þegar Venni flutti héðan var reynt að halda starfseminni áfram. Ég var ein af þeim sem starfaði áfram. Við settum aðeins upp eitt stykki eftir að Venni fór svo rann allt út í sandinn hjá okkur. Okkur vantaði eldmóð Venna. Ég vona að hið nýja leikfélag, sem heitir Leikfélag Ölfus, en ekki Leikfélag Þorlákshafnar eins og það gamla, eigi eftir að vaxa og dafna og lifa lengi.

fimmtudagur, 9. mars 2006

Það er stutt á milli matarboðanna hjá mér þessa daganna. Ég bauð kærum vinum í mat á laugardaginn, með eins klukkutíma fyrirvara, sem þau þáðu. Það varð hið ágætasta matarboð þrátt fyrir einréttað en við bættum það upp með konna með kaffinu, ljúfri tónlist og skemmtilegu spjalli. Í gær fékk ég svo Kalla og kó og hollenska fjölskyldu með í kvöldmat. Ég vildi hafa það eitthvað íslenskt og stakk upp á kjötsúpu en þá var Kalli búinn að gæða þeim hollensku á þeim rammíslenska rétti svo ég hafði það ýsu en ekki kunni ég við að hafa hana soðna með kartöflum og hamsatólg, eins og hún ætti að vera fram borin ef við vildum hafa það ekta íslenskt. Ég vissi um frábæra uppskrift í Bergheimabókinni og notaði hana. Ýsa í karrí. Tókst vel. Allir ánægðir. Þau hollensku eru búin að vera hjá doktor Kalla og Elsu síðan á sunnudag. Vinafólk frá Kaliforníutímanum. Fólk sem er að flytja heim til Hollands og datt bara rétt si ssvona í hug að koma við á Íslandi á leiðinni heim.
Og nú eigum við heimboð í Hollandi.
Það er ekki verra.

mánudagur, 6. mars 2006

Ég sækist ekkert sérstaklega eftir því að fara á píanótónleika en það hefur þó komið fyrir að ég fari. Bæði í Þorlákshöfn og á Reyðarfirði. Ég fór í gær í Ráðhúsið á tónleika hjá Jónasi Ingimundarsyni. Ég hef ekki mikið vit á píanótónlist en ég get bara ekki ímyndað mér að það sé hægt að gera þetta betur en Jónas gerir þetta. Hann er líka svo skemmtilegur. Biður áheyrendur að afsaka masið á milli laga en það er einmitt það´sem mér finnst svo gaman að fá útskýringar á því hvað hann er að gera. Hann spilaði tónlist eftir Mozart, Beethoven, Schumann og Brahma. Mozart kom mest við kvikuna í mér. Sálin í mér fór á eitthvert tilfinningaflökt. Ekki veit ég af hverju. En þessu sunndagssíðdegi var vel varið.
Þegar hann Simmi minn var lítill sótti hann oft tónleika hjá Jónasi.Þá söfnuðst krakkarnir í þorpinu saman heima hjá Ingimundi heitnum, röðuðu sér í stigann, eins og í sæti í leikhúsi, og Jónas spilaði fyrir krakkana á harmónikku. Var bara unglingur sjálfur.
Jónas kenndi krökkunum líka hvernig ætti að nappa sér í harðfisk í Mundaveri, án þess að Gvendur sæi og hvernig ætti að ná sér í gulrót úr garðinum hjá Guðbjörgu og Benna án þess að þau sæju. En það er nú önnur saga.

föstudagur, 3. mars 2006

Einu sinni á vetri hverjum förum við, starfsfólk Grunnskólans í Þo., af bæ og leitum okkur fróðleiks og þekkingar annars staðar en í eigin ranni. Oft höfum við farið í heimsókn í aðra skóla og fengið nýjar hugmyndir eða eflt sjálfstraustið. Í dag fórum við ekki í skólaheimsókn heldur fengum námskeið hjá Mentor. Ég er byrjuð að nota það kerfi aðeins en það var alveg frábært að fá kennslu á kerfið hjá sérfræðingi. Þetta er skráningarkerfi sem ég hlakka til að nota alveg, ekki hvað síst með samskipti foreldra í huga. Við fórum líka í Alþjóðahús og fengum frábærar móttökur þar og fræddumst heilmikið um starfsemima í því húsi. Það eina sem við höfum nýtt okkur frá þeim er túlkaþjónusta en við eigum örugglega eftir að nýta okkur eitthvað af námskeiðunum sem boðið er upp á.
Nemendur okkar......þeir fengu ekki frí í dag heldur sá Foreldrafélagið um starfskynningu og gerði ýmislegt annað, með börnunum, en þau eru vön að fá að gera svona venjulega í skólanum.
Þetta er yfir 20 ára gamall siður hjá okkur.
Vá.. ég trúi því varla að ég hafi skrifað þessa setningu.

miðvikudagur, 1. mars 2006

Ég finn alveg fyrir dulitlum spenningi fyrir þessum þremur dögum, bollu-, sprengi-og öskudegi. Það eimir eitthvað eftir af barninu í mér. Bolludagur og sprengidagur hafa samt breyst heilmikið. Ég fékk alltaf bolluvönd þegar ég var lítil, sem mamma bjó til og fyrir öskudag voru saumaðir öskupokar. Þann dag var líka alltaf frí í skólanum og við krakkarnir söfnuðumst saman á kaupfélagsstéttinni á Selfossi og laumuðum pokum á saklausa kúnna Kaupfélagsins. Í dag vita börn varla hvað eru bolluvendir og vita alls ekki neitt um öskupoka. Í staðinn banka þau upp á heima hjá fólki og sníkja gott. Ég læt sem ég sé ekki heima og svara ekki bjöllunni.
Mér finnst þetta svo leiðinlegur siður.