Síður

föstudagur, 14. apríl 2006

Ég hef mjög gaman að því að grilla úti. Hef verið í vandræðum í nokkurn tíma vegna grillleysis. Notaðist við lítið kolagrill á svölunum í blokkinni þangað til ég keypti í Ameríku ferðagasgrill. Það er ekki nógu stórt til þess að grilla fyrir matarboð þó það sé stærra en þessi sem eru seld hér heima (það er rétt að allt sé stærra í Ameríku) svo ég hef verið í grillhugleiðingum um nokkurt skeið. Þeim hugleiðingum lauk um jól er við fengum grill í jólagjöf. Keypt í Ameríku. Doktorinn og tengdadóttirin skelltu því með í gáminn með dótinu þeirra. Við, Simmi minn, urðum eiginlega agndofa þegar við fengum það, því við höfðum aldrei ímyndað okkur að við myndum eignast svona stórt grill. Aftur komum við að því að allt er stórt í Ameríku. Við héldum að við myndum aldrei nota nema einn þriðja af grillinu en annað kom í ljós. Við erum í því að grilla þessa dagana. Þegar maður hefur svona mikið pláss þá grillar maður allt. Ég dreifi grænmeti og kartöflum út um allt grill og veitir ekkert af plássinu. Grilligrilligrill. Simmi minn, sem aldrei hefur viljað grilla, kokkurinn sá, skiptir sér af öllu hjá mér og er greinilega að reyna að ýta mér frá eins og hann gerði hér forðum með eldhúsið.
Mér finnst það nú ekkert leiðinlegt.
Á þessari stundu ilmar bökunarlykt úr eldhúsinu.
Ég hef grun um að kokkurinn sé að baka brúntertu.

Engin ummæli: