Ég er farin að hafa það fyrir venju að fara í bókasafnið á föstudögum og ná mér í lesefni.
Fyrir rúmri viku tók ég þrjár bækur og las tvær þeirra um síðust helgi. En ég hef greinilega gullfiskaminni. Ég skilaði þeim í gær og man ekki í dag hvað þær heita. Það sem ég man er að ein bókin var ljóðabók eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur. Ég las ljóðin hennar einu sinni yfir. Pældi ekki mikið í þeim. Líklega hefur mér ekki fundist þörf á því. Ein bókin var ný smásögubók eftir Ágúst Borgþór. Ég hef alltaf verið "svag" fyrir smásögum. Sögurnar hans Ágústs eru góðar. Skrambi góðar. Þriðja bókin er eftir Krístínu Ómarsdóttur. Ég hef ekki orðið svo fræg að lesa neitt eftir hana og var frekar spennt að komast í þessa bók. Ég las fyrstu 10 eða 20 blaðsíðurnar fletti svo í gegnum hana og lokaði bókinni og skilaði henni. Það er ekki oft sem ég gefst upp við bók. Mér finnst það vont mál að byrja á bók og ljúka ekki við hana. Aumingjaskapur eða eitthvað. Ég veit ekki hvað þeð er. Mér reynist það erfitt að viðurkenna fyrir sjálfri mér að mig langi ekki að lesa bók sem ég byrja á. En þetta var raunin. Hermaður að drepa fólk og gæla við hænu. Ekki fyrir mig. Nema ég hafi ekki gefið sögunni nægan sjens og pælt í raunverulegri merkingu.
Í gær fór ég sem sagt á bókasafnið og nældi mér í tvær bækur. Ég byrjaði á þeirri fyrri klukkan hálf ellefu í morgun og lauk lestrinum nú síðdegis. Frábær spennusaga eftir Karin Alvlegen sem heitir Týnd upp á íslensku en Saknad á frummálinu. Ég gat varla lagt bókina frá mér, hún var svo spennandi. Mæli méð henni fyrir spennufíkla. Enda fékk Karin, Glerlykilinn, fyrir Týnd sem besta Norræna glæpasagan árið 2000. Samt eyddi ég smá tíma í að moppa gólfin. Það er í manni eitthvert húsmóðurgen sem ræðst ekki svo vel við.
Í fyrramálið ætla ég að byrja á hinni bókinni sem ég tók en það eru Samkvæmisleikirnir etir Braga Ólafsson.
Hlakka til.
Annar góður dagur í að lesa góða bók.
Þarf mjög lílega ekki að moppa á morgun.