Síður

sunnudagur, 9. október 2011

Smáhlaup á sunnudegi

Fór út að hlaupa um hádegisbil, þrátt fyrir að hafa setið sviðaveislu í gærkvöldi og drukkið ómælt rauðvín. Ég bað, Simma minn, að koma á bílnum á eftir mér. Lagði til að hann legði af stað hálftíma eftir að ég færi að heiman. Ég setti stefnuna út í Selvog, á nýja Suðurstrandaveginum og fann strax að þetta var kolvitlaus ákvörðun hjá mér því það var hávaðarok beint í fangið á mér.  Mér finnst vont að hlaupa á móti vindi en hélt samt áfram. Vildi athuga hvað ég gæti. Þegar Simmi minn kom á bílnum var ég búin að hlaupa eða skokka í 35-40 mínútur og var bara búin að leggja að baki 4,5 km. Afsökunin er sviðaátið, rauðvínsdrykkjan og rokið.
Er samt bara nokkuð stolt af sjálfri mér, alla vega fyrir það að fara út i dag og gera eitthvað smá.
Hljóp næstum því út í Krísuvík.
Smá hlaup er betra en ekkert hlaup.

föstudagur, 7. október 2011

200 grömm í gróða

Stóra tá komin út úr á vinstri skó.
Það var alveg óhætt hjá mér að vera pollróleg yfir 300 gr í skuld fyrir viku síðan. Ég er nefnilega núna með 200 gr í gróða. Ég tapaði af sjálfri mér heilum 800 grömmum þessa vikuna. Það hlýtur að vera hlaupunum að þakka. Ég held mínu striki með sundið á morgnana og hef bætt hlaupaprógramminu við. Ég er enn standandi hissa á því að ég get hlaupið. Í dag gerði ég nákvæmlega það sama og á mánudaginn.  Mér fannst dálítið erfitt  að gera æfingarnar á mánudaginn enda var erfitt að fara fram úr rúminu á þriðjudagsmogrun. Mér fannst eins og ég hefði lent undir valtara. En ég varð eins og nýsleginn eftir sundið. Í dag var ekkert mál að gera æfingarnar. Ég virðist þjálfast við þetta prógramm.
Þetta er bara skemmtilegt.
Skemmtilegt að hlaupa.
Skemmtihlaup.

miðvikudagur, 5. október 2011

Tilraunaeldhús

Karfi í raspi og karfi í sesamfræjum
Mangósósa og sósa úr pakka
Það er eiginlega bara skondið hvernig matarsmekkur okkar, Simma míns, hefur þróast í sín hvora áttina eftir að hafa mallað matinn saman í 40 ár eða svo. Ég pæli alltaf meira og meira í hollustunni en hann vill endalaust hafa veislu. Honum finnst ekki nóg að fá magafylli. Hann þarf að geta notið matarins á einhvern hátt sem ég ætti kannski ekki að skilgreina fyrir hann en ég skynja að er meira en að verða saddur. Það er honum mikið í mun að maturinn smakkist vel. Ég þarf aftur á móti að finna fyrir matnum. Ég vil þurfa að skera hann á disknum og ég vil finna fyrir honum í munninum og  ég vil tyggja hann.
Í kvöld var tilraunaeldhús heima hjá mér. Okkur áskotnaðist karfi, sem hefur ekki verið á matseðlinum hingað til en ég verð alltaf spennt ef við prófum eitthvað nýtt. Ég gúglaði nokkrar uppskriftir og fann eftir það hvað hentaði okkur. Hann fékk sína bita velta upp úr raspi.  Ég mína bita velta upp úr sesamfræjum. Hann bjó til sósu úr pakka en ég gerði mangósósu úr ab-mjólk, epli, gulrótum og mangó chutney. Hann bætti kartöflum við, ekki ég.
Við vorum bæði ánægð með árangurinn og pakksöddd.

þriðjudagur, 4. október 2011

Sumarsöknuður

Kósíkvöld
Sólbrekka var dregin í vetrargeymslu í gær. Hún er farin úr innkeyrslunni. Þá er sumarið örugglega alveg búið. Enda langar mig ekki í útilega þegar laufin eru farin að detta af trjánum. Ég vil heldur ekki fara að vori fyrr en laufin eru komin aftur. Þar dreg ég mörkin hvað útilegur varðar. Ég varð pínu döpur þegar við skildum Sólbrekku eftir við flugskýlið sem hún verður í, í vetur. Það er svo gaman að fara eitthvert út í buskann með hana í eftirdragi og gista einhvers staðar. Við, Simmi minn, náum algörri slökun við þær aðstæður. Það er meira að segja gaman í útilegu þegar farið er að rökkva og við kveikjum á ljósum úti. Við erum alltaf með eina jólaseríu og hengjum hana upp á Brekku eða í nálæg tré. Það er bara kósí.
Við náðum að sofa 51 nótt í Sólbrekku í sumar. En það helgaðist nú af því að Simmi minn fékk óvenju langt sumarfrí þetta árið.

sunnudagur, 2. október 2011

Í roki og rigningu

Komin heim, heldur betur ánægð.
Ég ætlaði að taka þriðja vers, fyrstu viku í hlaupaprógramminu á föstudaginn en veðrið bauð ekki upp á útivist. Ég synti mína 1000 metra þann morguninn svo ég var í gíðum gír. Veðrið var ekkert betra í gær svo skokki var frestað þar til í dag. Úti er enn þá rok og rigning og eftir að hafa farið út veit ég að rok og rigning er engin afsökun. Það var gaman að takast á við veðrið. Ég byrjaði á að skokka rólega í 30 mínútur og fór þá hringinn minn góða en stað þess að enda heima fór ég út á frjálsíþróttavöll og tók þar sex sinnum hundrað metra hlaup. Þá lék vindurinn við mig. Ég hljóp í norðurátt til að hafa sunnanvindinn í bakið og það var eins og hann vissi að ég ætti að herða á mér þessa hundrað metra því hann blés þannig á mig að ég herti á mér ósjálfrátt. Ég átti að slaka á í 30 sekúndur á milli en ég gekk rösklega á móti rokinu til að geta hlaupið aftur með vindinn í rassinn. Þegar þessu lauk tók ég próf á sjálfri mér með skeiðklukku. Ég hljóp einn kílómetra á 6 mínútum og 23 sekúndum. Það er kannski enginn topptími en gaman fyrir mig að eiga þennan tíma því nú hef ég ekki bara 10 kílómetrana að stefna að heldur líka að bæta hraðann.
Ein bjartsýn.

föstudagur, 30. september 2011

300 gr í skuld

Ég stend í stað á vigtinni og er hæstánægð með það þó svo að þessi 300 gr sem eiga að fara af á viku hafi ekki farið núna þá veit ég að þau fara bara næst. Ég get hugsað um þau sem 300 gr í skuld og að ég verði að ná 600 gr af næstu viku en ég get líka dreift þeim á næstu vikur eins og hægt er að gera með VISA reikninginn.
Ég er svo ánægð með það að ég hef ekkert fyrir þessu. Þá á ég við að mér finnst ég ekki láta neitt á móti mér eins og var í megrunarkúrunum hér áður fyrr. Ég borða allt  það sem mig langar í en skríð svona hægt og rólega niður á við samt. Ég hef tekið ýmislegt út af matseðlinum mínum en ég hugsa ekki um þær matartegundir með söknuði heldur er svo hreykin af sjálfri mér fyrir að velja hollan mat í staðinn.
Ég skynjaði þessa hugsun mjög sterkt í morgun þegar ég kom upp í skóla. Þar var verið að leggja á borð afganga frá 10. bekkjar kaffsölunni í gær og það hvarflaði ekki að mér að fá mér bita af neinni köku eða tertu. Ég var nýbúin að borða hafragrautinn minn og það sem var þarna á boðstólum er ekki með á mínum matseðli og þá nær það ekki lengra. Ég var ekki á hnefanum, ég var ekki slefandi yfir gúmmulaðinu. Þessi tegund matar rúmast bara svo illa á matseðlinum mínum.
Ég var spurð að því hvort ég ætlaði ekki að fá mér á disk. Ekki vil ég vera með einhverjar yfirlýsingar eða almenn leiðindi en var svo heppin í þetta skipti að hafa nýétinn hafragrautinn sem afsökun.

fimmtudagur, 29. september 2011

Enn af hlaupum

Þegar ég bjó fyrir austan fór ég að skokka. Skokkaði þar í tæp tvö ár. Það var svo fínt að skokka þar, út úr bænum, sama í hvora áttina var og heim aftur. Ef það var rok lét ég Simma minn skutla mér í þá áttina að ég hefði rokið í rassinn. Ég hljóp aldrei meira en 3-3.5 km þar. Ég veit ekki af hverju ég festist í þeirri vegalengd. En ég fann vellíðunina eftir hverja ferð og fannst þetta æðislegt. Þegar ég flutti að austan breyttust aðstæður og hlaupn lögðust af.
Það var svo í fyrra að ég fór að prófa hvort ég gæti þetta. Tólf árum síðar og ég komin á sjötugsaldur.
Ég varð sjálf steinhissa á því hvað mér reyndist þetta, þannig lagað, auðvelt. Ég gat með góðu móti skokkað 3 km.
Það var svo í ágúst að ég hljóp fyrst 5 km með Svövu Rán í hlaupinu hennar. Hún í Wales og ég í Bláskógabyggð. Ég varð svo spennt fyrir hlaupum að ég hljóp 3 km skemmtiskokk í Reykjavíkurmaraþoninu. Það var sérstök upplifun að hlaupa með svona svakalega mörgu fólki.
Núna áskotnaðist mér hlaupaprógramm sem á að kenna mér að hlaupa 10 km. Ég er búin með tvær fyrstu æfingarnar í því prógrammi. Í gær hljóp ég sem sagt samtals 5 km. Á morgun sýnist mér að ég eigi að fara enn lengri vegalengd. Það sem gerir þetta svo skemmtilegt eru æfingarnar með. Mismunandi hraði, valhopp og teygjur inn á milli.
Kannski fer ég 10 km  einhvern tímann.

föstudagur, 23. september 2011

Föstudagar eru vigtunardagar

Ég var dálítið smeyk um að þyngjast í Spánarferðinni og þar með fitna. Það er ekki hægt annað en að breyta um mataræði þegar dvalið er í öðru landi um hríð. Ég ætlaði að elda mér hafragraut, eins og ég geri á hverjum morgni hér heima en það varð bara einu sinni. Í staðinn gúffaði ég í mig jógúrt, örugglega stútfullri af sykri, og hrærði haframjölinu út í. Í hádeginu fékk ég mér oftast einhvers konar salat, eins og heima en á kvöldin var alltaf veisla með rauðvíni og alles. Það sem var aðallega öðruvísi en heima var hvítvínið í hádeginu og oftar yfir daginn.
Það leit út eins og ég hefði bætt einhverju á mig þegar ég kom heim en af því ég tek bara mark á föstudagsvigtinni þá beið ég spennt þar til í morgun.
Vigtin sýndi 69,9 kg, aðeins 200 gr meira en föstudaginn áður en ég fór í ferðina.
Það sem ég er ánægð með þetta.
Ég er búin að losa mig við 6,5 kg  síðan í apríl sem þýðir að 300 gr hafa farið á viku. Ef ég held svona áfram, að missa 300 gr á viku, verða 3,9 kg til viðbótar farin á Þorláksmessu. 69,9 mínus 3,9 er jafnt og 66.
Nýtt markmið er komið í hús. 66 kg um jólin.

miðvikudagur, 21. september 2011

Daglegt líf, aftur


Í göngutúr á ströndinni
Við lentum á klakanum klukkan hálf átta í gærkvöldi. Forseti borgarstjórnar tók á móti okkur. Við hefðum, bæði, viljað iðka þetta dásemdar iðjuleysi lengur en það var bara ekki í boði.
Hið venjubundna líf, sem er líka dásamlegt, tók við í morgun. Vorum mætt í sund klukkan sjö og það var ekkert mál að synda þúsund metra, eins og ég hefði ekki tekið mér neitt frí. Við vorum reyndar mjög dugleg við að fara í röska göngutúra á Costa del sol enda býður strandlengjan upp á það.
Það var líka gott að koma í vinnuna og hitta samstarfsfólkið og nemendurna.
Það var bara aldeilis frábært að lengja sumarið um nokkra daga.

mánudagur, 19. september 2011

Kaþólsk messa

Kirkjan okkar
Það er með ólíkindum hvað okkur Simma mínum dettur í hug að gera. Þegar við vorum að rölta um gamla bæinn í dag dettur mér allt i einu í hug kort af bænum, sem ég hafði skoðað. Ég mundi að einhvers staðar á þar að vera kirkja. "Heyrðu, Simmi minn, sagði ég, hér einhvers staðar á að vera kirkja. Gaman væri að skoða hana." Þar sem við vorum stödd segir Simmi minn: "Þetta gætu verið kirkjudyr." Og viti menn, við vorum fyrir framan kirkjuna. Það var búð fyrir utan og rusl og alls konar, og maður sá ekki neinn kirkjuturn nema að beygja hausinn eins langt aftur og hægt var.
Jæja, við fórum inn, settumst á bekk og horfðum á allt skrautið. Fólk fór að streyma inn og allt í einu fóru kirkjuklukkurnar að hringja, ljós voru kveikt, prestur skaust fram á sjónarsviðið og messa hófst. Við sátum full lotningar og hlustuðum á spænska kaþólska messu. Allt í einu fattaði ég að Simmi minn var í stuttbuxum og ég í sjústringbol. Það var algjörlega bannað á Ítalíu að fara inn í kirkju með berar axlir. Eftir að hafa talað agnarögn við guð minn og hulstað á spænska prestinn dró ég Simma minn út því ég held að guð vilji ekki að ég sé með berar axlir í hans húsi. Þetta var samt góð stund sem við áttum þarna inni áður en ég fattaði þetta með beru axlirnar. Við fórum með trúarjátninguna á spænsku, eða þannig, og höfðum bara gaman að þessari óvæntu uppákomu.

Simmi minn sextugur


Skál fyrir sextugum kalli

Með Gussa
Í dag er dagurinn sem varð til þess að skruppum þessa sólarlandaferð. Simmi minn er sextugur í dag. Okkur finnst einhvern veginn að öll ferðin sé afmæliseitthvað þannig að gerðum ekkert spes í dag nema ég færði honum kampavínsflösku á sundlaugarbarnum í morgun og nokkrir landar sungu afmælissönginn fyrir hann. Við fórum á kínverskan stað á laugardagskvöldið og það finnst honum hafa verið afmælihátíðin. Hann um það. Mér finnst sama hátíðin vera á hverju kvöldi. Alltaf jafn gaman að fara út að borða.
Við, nokkur saman, sungum líka afmælissönginn á Gussabar í gærkvöldi, eftir miðnætti á spönskum. Það var bara gaman að koma við á Gussabar. Gussi er búinn að reka staðinn í 26 ár. Stendur sjáfur vaktina frá klukkan níu öll kvöld nema mánudagskvöld. Þvílík elja.

sunnudagur, 18. september 2011

Hitabylgja

Hér drýpur smjör af hverju strái eða ávöxur
Við höfum verið mjög dugleg við að fara í göngutúra hérna í hitanam á Costa del sol. Okkur finnst bráðnauðsynlegt að hreyfa aðeins á okkur rassgatið. Það er um klukkutíma gangur að skemmtibátahöfninni og fórum við í þriðja sinn í dag þangað. Það var kannski ekki mjög gáfulegt af okkur. Við fórum þegar mestur er hitinn á daginn og ekki nóg með það heldur er mesti hitinn í dag, að við höldum. Hér er einhver dularfull hitabylgja á ferð. Við heyrðum talað um 42 gráður þegar við komum heim, dauðuppgefin, úr göngutúrnum. Peysurnar sem áttu að halda á manni hita á kvöldin eru bara hlægilegar ofan í tösku ennþá.
Ég sit núna úti á svölum, sólin að ganga til viðar en það er svo heitt ennþá að það verður bara erfitt að hífa sig upp í kvöldrúntinn. En það verður ekkert slegið slöku við það. Nú stendur til að fara á Gussabar. Við, Simmi minn, erum eins og álfar út úr hól að hafa aldrei komið þangað. Hér er fólk með okkur sem kemur hingað ár eftir ár, sumir eiga 40 ára sögu að baki sem Costa del sol fólk og það fólk þekkir Gussa vel og heilsar auðvitað upp á hann alltaf þegar það kemur.
Við verðum að vera eins og hinir.
Kíkja á Gussabar.
Svona til að vera gjaldgeng.

laugardagur, 17. september 2011

Mijas og Molino


 
Til þess að brjóta upp leitlífið aðeins brugðum við okkur af bæ í gær og fórum í típíska ferðaskrifstofuferð. Gréta systir segir að það sé ekkert mál að taka strætó til Mijas og heim aftur og miklu ódýrara. Ég er bara ekki búin að læra  á strætókerfið eða hef öllu heldur ekkert pælt í því svo við keyptum okkur ferð með Heimsferðum til Mijas og Molino del la Placa.


Hin fræga kapella í Mijas


 
Ólífutrén í Molino
Við komum til Mijas síðast fyrir 36 árum, þá til að fara á asnabaki eittvert upp í sveit þar sem við borðuðum Paellu í fyrsta skipti. Nú skoðuðum við bæinn, kapelluna frægu,þar sem við kveiktum á kertum og létum fallegar hugsanir streyma gegnu heilabúið, skoðuðum kaþólska kirkju, stóðum fyrir utan nautabanahring, okkur langaði ekki inn og almennt nutum þess að vera í þessu fallega fjallaþorpi.
Við fórum líka á sveitabæ þar sem ólífurækt er aðaljobbið og fengum fræðsluerindi um feril ólífunnar til þess að verða olía og hratið hennar að eldsneyti.
Í molinos var farið í keppni um það að sýta ólífusteini sem lengst út úr sér. Simmi minn var lengst af með lengstu spýtinguna, um 8 metra en þá kom Húsvíkingurog bætti um betur.

Skemmtilegt.
Svo var farið í sóbað.
Og út að borða.
Og njóta þess að geta farið í svona afslöppunarferð

fimmtudagur, 15. september 2011

Strandlífið á við okkur


Strandalíf, sólbað, letilíf og almennt að gera ekkert af viti finnst okkur, Simma mínum, ótrúlega næs. Við venjumst þessu eiginlega bara allt of fljótt. Eftir að hafa legið á ströndinni í morgun og legið í hótelgarðinum eftir síestu fengum við okkr frábæran göngutúr í fjöruborðinu alla leið í smábátahöfnina. Hitinn er rétt við 40 gráðurnar og svitinn lekur stríðum straumum. Við vorum rétt tæpan klukkutíma að ganga þetta og það var ekkert rölt. Við gengum frekar rösklega. Heimleiðin var tekin á göngustígnum fram fyrir klett og þaðan í fjöruborðinu heim. Það er algjörlega nauðsynlegt að hreyfa sig svona á hverjum degi til að vega upp á móti sólbaðslegunni.
Enginn miði á flöskunni, skrítið.
Fengum okkur pizzu í kvöld. Mín var þokkaleg, Simmi minn var glaður með sína en rauðvínið var örugglega heimabruggað. Það var enginn miði á flöskunni og þegar flaskan tæmdist var grogg innan í henni eins og þegar ég tæmi flösku af berjasaft sem ég gerði um daginn úr krækiberjum
Bara grogg eftir.


Samt næs.
Samt gott.



miðvikudagur, 14. september 2011

Matur og meiri matur

Keypti þá ekki en djöfull eru þeir flottir
Vð ætluðum ekki að borða neitt í gær því við vorum bæði einhvernveginn svo hrikalega södd. Römbuðum um í gamla bænum í gærkvöldi og það er sko ekki leiðinlegt og áður en við vissum af vorum við sest með paella fyrir framan okkur. Enn eitt kvöldið vorum við ofursödd.
Í dag lágum við á ströndinni til að byrja með fórum svo heim í smá síesta og ætluðum að taka reiðhjól á leigu og hjóla með ströndinni.  Þá var ekkert hjól inni og gaurinn vissi ekki hvenær væri hægt að leigja hjól af honum næst. Frekar áhugalítill ferðabísnissgæi.  Þá tókum við smá sólbað í garðinum okkar og  fórum svo bara í göngutúr með ströndinni fram.
Alltaf er eitthvað að sjá, eitthvað að pæla og eitthvað að spekulera í.


Það verður eð eiga vatn í þessum hita

 Við ætlum í kvöld að ganga upp tröppurnar í gamla bæinn og sjá til hvort við höfum pláss fyrir eina góðu máltíðina enn. Hver veit? Það er því miður alltaf rúm fyrir góðan mat.

þriðjudagur, 13. september 2011

Það er sko heitt

Þeir kunna alveg að laga gott kaffi
Við heyrðum í gær talað um 35 stiga hita. Við lágum allan daginn á ströndinni og urðum að fara öðru hverju í sjóinn til að kæla okkur. Í dag er álíka heitt en við höfum legið í sólbaði heima á hóteli, svona til þess að hitta aðra mörlanda og sýna okkur og sjá aðra. Það gekk eftir.
Við erum búin að borða á einum venjulegum stað, pizzastað og  í gærkvöldi á indverskum veitingastað. Borðuðum "pompadom" með mangósósu og  lauk í forrétt.  Ég fékk mér kjúlla í körrí og Simmi minn, lamb vindaloo og svo fengum við okkur tvær tegundir af grjónum og einn grænmetisrétt að auki. Við erum enn svo södd að við erum að pæla í að borða ekki neitt í kvöld. Sjáum samt til með það.

Sit núna á svölunum mínum með hrikalega ljóta ústsýnið sem er samt töff. Sólin er enn að og verður til klukkan níu.

mánudagur, 12. september 2011

Göngutúr

Við smábátahöfnina
Í gær fórum við í svakalega langan göngutúr. Mágsi minn, Gunnar,  var búinn að segja okkur að það væri gaman að ganga að smábátahöfninni og það væri ekki svo mikið mál. Við ákváðum eftir hádegi að hvíla okkur á sólbaðinu, fórum í íþróttaskóna og lögðum af stað eftir strandgötunni í átt að smábátahöfninni. Það tók okkur einn og hálfan tíma að ná þangað og auðvitað sama tíma til baka. Við gengum samt rösklega eins og fólk í likamsrækt. Við vorum voða ánægð með okkur þegar við komum heim.
Á heimleið eftir langan göngutúr

Eftir hvíld og sturtu heima tókum við lyftuna upp á 7 hæð og gengum þaðan út í bæ. Fundum þennan líka fína pizzastað og þar með var kvöldmaturinn ákveðinn. Pizza og Rioja rauðvín. Vitum fátt betra. Hitinn gífurlegur en þannig viljum við hafa þetta.

sunnudagur, 11. september 2011

Að gleyma og gleyma

Þegar ég ætlaði að snyrta mig pínu í morgun, bera á mig dagkremið og svona, fann ég hvergi snyrtipunginn. Hann hlýtur að vera heima á baðherbergisborðinu. Sem betur fer keypti ég mér maskara og ilmvatn á Leifsstöð þannig að það verður látið nægja næstu daga sem bjútímeðferð.


<>           Lagstur í sólbað

Útsýnið af svölunum.
  Við fengum okkur morgunverð á hótelinu og svo var stefnan tekin á ströndina.  Við erum bæði stranda, sjó -og sandfólk. Þá uppgötvaðist að strandtaskan varð eftir heima. Við neyddumst til þess að festa kaup á einni, ofur hallærislegri, því hvernig kemst maður öðruvísi með handklæðin, sólarvörnina, bækurnar, peningabudduna og vatnsflöskuna með sér?
Við erum í þokkalegri íbúð en með hrikalega ljótt útsýni af svölunum.
Ég býst samt ekki við því að við höngum mikið inni.
Það er svo gaman úti.

laugardagur, 10. september 2011

Á Spáni


Fer í sólbað á morgun.
Þegar ég varð sextug fékk ég mína drauma uppfyllta. Mig langaði að halda upp á afmælið mitt á Ítalíu. Mig langaði að ganga á fjöll. Mig langaði að sýna Simma mínum fegurðina við Gardavatnið. Ég varð sextug 8. júní 2010 og var við Gardavatnið, gangandi á fjöll og Simmi minn var með mér.
Ógleymanleg ferð.
Hann, Simmi minn er alveg að verða sextugur. Hann langar bara að liggja í leti í sól og sandi. Ég get alveg gert það með honum eins og hann nennti að ganga á fjöll með mér, án þess að hafa snefil af áhuga á því. Ég hef, nefnilega, smá snefil af áhuga á því að  liggja í leti í sól og sandi.
Þess vegna erum við mætt á Costa del sol og ætlum að liggja í sandi og sleikja sól næstu 10 daga.
Spánn tók einstaklega vel á móti okkur í dag. Hér er 25 gráðum heitara en heima á Fróni.

Ströndin er æði.
 Við erum ákveðin í  að njóta þess í botn.

föstudagur, 9. september 2011

Ellilífeyriskelling


Á leið í vinnu. 41. árið að hefjast.
Ég er eiginlega enn að átta mig á því að vera komin á lífeyri og bara ráðin í 49% stöðu við skólann. Breytingin fellst aðallega í hve mikinn tíma hef ég núna fyrir sjálfa mig. Ég mæti bara þrjá daga til vinnu því ég þarf bara að skila 9 kennslustundum. Ég er hæst ánægð með þetta fyrirkomulag en hef samt nokkrar áhyggjur af því að lenda utanveltu í starfinu, þá meina ég að ég missi af einhverju, fylgist ekki nógu vel með og verði eins og álfur út úr hól. Ég verð að vera með augu og eyru galopinn þessa þrjá daga sem ég mæti. Ég hef skipulagt líkamsrækt út frá þessari breytingu í mínu lífi. Í stað þess að synda alla virka morgna fyrir vinnu þá skokka ég núna mánudaga og föstudaga og fer eftir það í stutta sundferð en syndi hina dagana mína 1000 metra fyrir vinnu. Mér finnst ég vera lukkunar pamfíll. Heppin að lenda á 95 ára reglunni.

sunnudagur, 14. ágúst 2011

Hlauptu, kona hlauptu


5 kílómetrar að baki


Ég er enn í sæluskýi eftir 5 kílómetra hlaupið í gær og um leið ákaflega stolt af henni dóttur minni. Það er allt henni að þakka að ég dreif mig í að prófa hvort ég gæti hlaupið svona langa vegalengd. Hún bauð fésbókarvinum að hlaupa með sér í lokatakmarkinu á hlaupaprógrammi sem hún hefur verið í undanfarnar vikur. Ég hafði sem sagt örfáa daga til að þjálfa mig upp. Á fimmtudag fór ég 5 kílómetra innan þorps en hljóp og gekk til skiptis. Þannig að ég vissi ekki hvort ég gæti þetta.
Við fórum með Sólbrekku upp í Reykholt á föstdag og byrjuðum á því að mæla 2,5 kílómetra frá tjaldstæðinu og upp á veg í átt að Geysi. Þar settum við á okkur merki, aðeins lengra en afleggjarinn að bænum Felli. Ég var bæði kvíðin og rosa spennt fyrir þessu. Undirbjó mig vel með hvíld og hollum mat og sleppti auðvitað öllu rauðvínssulli. Fór ekki með vinunum á pöbbinn um kvöldið heldur skreið í rúmið með bók.
Vaknaði klukkan korter fyrir átta og smessaði á Svövu Rán að ég væri í startholunum og fór svo af stað. Simmi fór með mér en hætti fljótlega að skokka og gekk alla leiðina. Honum er illt í hnénu. Mér leið ótrúlega vel á leiðinni. Hugsaði aldrei um að hætta að skokka, ekki einu sinni þegar kom að brekku. Þegar ég fór niður brekku lengdi ég skrefin alveg ósjálfrátt.
Ég ætlaði varla að trúa mínum eigin augum þegar ég koma að skiltinu að Felli, sneri þar við og þá var ég laus við vindinn sem var á móti mér áður. Brekkan sem var létt áður var nú upp í móti og ansi erfið. Ég hægði á mér og tautaði í sífellu: Við getum þetta Svava Rán, við getum þetta.
Og við gátum þetta. Ég skokkaði alveg heim að dyrum á Sólbrekku, náði í myndavélina og gekk á móti Simma til að taka myndir af honum.
Ég er svo ánægð með árangurinn að ég ræð mér varla fyrir gleði.
Ekki skemmdi svo fyrir að loksins sá ég nýja tölu á vigtinni. Hinn langþráði draumur að fara niður fyrir 70 kíló rættist.

laugardagur, 13. ágúst 2011

Ég setti persónulegt met í dag og hljóp 5 kílómetra í einu.

fimmtudagur, 11. ágúst 2011


Hvíldardagur
Ég þorði ekki að skokka í dag. Ég fann að ég reyndi talsvert á mig í gær enda hef ég heyrt talað um að það eigi að hvíla öðru hverju. Ég tók bara stuttan hjólatúr með Simma mínum og Nönnu ömmustelpu.
Nanna er búin að vera hjá okkur síðan á mánudagsmorgun. Hún er á glerlistanámskeiði hjá Dagnýju í Hendur í Höfn. Hún tók líka eina viku í fyrra þannig að stelpan er komin í framhaldsnámskeið. Hún vill ekkert fara út á kvöldin þó það sé spurt eftir henni. Hún vill bara sitja hjá gamla settinu sínu spjalla, horfa á sjónvarpið og prjóna. Já, sú stutta fitjaði uppá peysu á mánudagskvöld og er langt komin með hana. Gróft garn en það er sama. Hún er ótrúlega iðin. Finnst reyndar ekki eins gaman að prjóna ermarnar og bolinn.
Hulda langamma er afar stolt af stelpunni. Hún er alveg bit á barnabörnin sín hvað þau eru löt við hannyrðir. Hún vill meina að ein kynslóð hafi dottið út.
Nanna bjargar sinni kynslóð.
Dugleg stelpa.

miðvikudagur, 10. ágúst 2011

Þjálfun í algleymingi
Hlaupaþjálfunin mín gengur bara ótrúlega vel. Í gær fór ég hringinn minn, ýmist gangandi eða skokkandi en í dag keyrðum við, Simmi minn, fimm kílómetra í átt að Selvoginum, sem sagt á hinum nýja Suðurstrandavegi. Þar fór ég út úr bílnum og byrjaði strax að skokka. Simmi keyrði á eftir mér og náði ég að skokka samfellt þrjá og hálfan kílómetra, ganga hálfan, skokka hálfan og ganga hálfan. Veðrið var alveg frábært og fjallahringurinn fagur á að líta. Ég sá, í upphafi hlaups, út á sjó þar sem Keflavíkin er. Það er svo skrítið að þó ég sé bara fimm kílómetra frá þorpinu sjást engin ummerki um það. Engin hús og engin mannvirki. Þorpið hverfur ofan í lægð. Fyrsta merki mannabygðar var Dólósinn sem er á miðri umferðareyjunni fyrir utan þorpið.
Ég er alsæl með sjálfa mig því ég hafði ekki hugmynd um að ég gæti þetta.
Hvað ég geri á morgun, kemur í ljós.

mánudagur, 8. ágúst 2011

Hlaupakelling
Ég hef ekki mikið leikið mér við íþróttagyðjuna í sumar. Ekki stundað neina hreyfingu reglulega. Hef samt gengið á tvö fjöll, Skálafellið og Miðfellið í Hrunamannahreppi. Það er reyndar lítið en við, félagarnir, gengum yfir það.Svo hef ég synt nokkrar ferðir í ýmsum sundlaugum, hist og her á landinu og rölt á barinn ef svoleiðis lagað er þar sem ég hef komið Sólbrekku fyrir.
Ég hélt ég væri búin að tapa niður öllu þoli og er þess vegna að springa úr monti því ég skellti mér út áðan og hljóp sama hringinn og ég hljóp fyrir mörgum mánuðum síðan. Hann er rúmlega þrír kílómetrar. Ég geng í fimm mínútur, hratt, og skokka svo í 20 mínútur.
Ég varð að fara út í dag og gá hvað ég gæti því ég ætla að taka þátt í hlaupinu hennar dótlu minnar á laugardagsmorgunin. Ég vildi nú helst hlaupa við hliðina á henni en það verður ekki að þessu sinni svo ég hleyp hérna í Þolló með henni í anda. Hún ætlar að hlaupa fimm kílómetra sem lokatakmark í hlaupaprógrammi sem hún hefur verið í en ég býst við að ég gangi og hlaupi til skiptis. Nema ég nái að þjálfa mig upp í fimm. Ég hef fjóra daga. En það er nú eins og að læra fyrir próf nóttina fyrir prófdag. Það hefði aldrei gengið hjá mér.
Djöfull, sem ég er nú samt ánægð með sjálfa mig.

þriðjudagur, 12. júlí 2011


Akureyri
Mér finnst ómögulegt annað en að koma til Akureyrar a.m.k. einu sinni á sumri. Ég er sem sagt á Akureyri núna. Komum hingað í gær, í bongó blíðu. með Sólbrekku í eftirdragi. Að vera á tjaldsvæðinu á Þórunnarstræti er toppurinn. Það er svo fallegt hérna og alltaf jafn gaman að labba niður í bæ og skoða mannlífið. Við fórum á Bautann í gærkvöld og fengum okkur pizzu, það tilheyrir líka. Röltum svo um og komum við á Götubarnum, samt bara mánudagur. En við erum í fríi. Það er ekki alveg eins mikil sól núna og í gær en það hlýtur að lagast.
Ég er alltaf í smá pílagrímaferð þegar ég kem á Akureyri. Það rifjast alltaf upp fyrir mér þegar ég missti fóstur hérna, einmitt á tjaldsvæðinu. 26. júlí 1973, komin þrjá mánuði á leið. Við vorum hér í litla bláa topptjaldinu okkar með Kalla eins og hálfs árs. Ég var lögð inn á sjúkrahúsið í útskröpun og þeir feðgar keyrðu tveir heim. Ég var inni í nokkra daga og flaug svo heim. Atburður sem ekki gleymist.
Ég hef sest inn í kirkjuna og beðið fyrir litla barninu mínu. Ég hef líka farið í messu í kapellu í kjallarunum. Éf ég kemst ekki inn í kirkjuna bið ég fyrir barninu á kirkjutröppunum.
Einhvern veginn tengist kirkjan litla barninu, sem mér finnst að hafi verið stelpa og ég á líka nafn handa henni.

fimmtudagur, 7. júlí 2011

Í útilegu
Eins og oft hefur komið fram þá líður okkur, Simma mínum, ótrúlega vel í Sólbrekku, alveg sama hvar við plöntum henni. Við náum einhvern veginn þægilegri slökun og finnst bara fínt að gera ekki neitt. Um hádegisbil í dag drógum við Sólbrekku upp að Flúðum, á Laufskálaflötina, sem við erum farin að kalla okkar, og settum okkur þar niður.
Ég ætlaði að liggja í sólbaði en einhver óboðinn vindur birtist óforvarandis svo sólbað var ekki lengur í boði. Ég hef samt haft nóg fyrir stafni, sem áhorfandi. Hér er verið að heyja og það er ögn öðruvísi en þegar ég var í sveit fyrir hálfri öld. Nú eru notaðar stórtækar vinnuvélar en það er svo gaman að horfa á vélarnar vinna. Þær raka saman heyið og taka það svo upp í rúlluvél og sem síðan er bundið inn í plast. Ótrúlegt. Nú þurfa bændur ekki lengur að eiga hlöður hvað þá súrheysturna.
Ég hef einnig fylgst með Simma mínum aðstoða Víkinginn við ýmsa hluti, eins og að flytja tré, sem var sjálfsáð, á betri stað, festa niður staur sem gegnir hlutverki spröngu, eins og í Eyjum, lagfæra þakið á andakofanum, sækja hellur sem lagðar voru kringum nýja flotta andapollinn og sitthvað fleira.
Já, það er nóg að gera í sveitinni.

föstudagur, 1. júlí 2011

Vigtunardagur.
Það er búið að taka mig fimm vikur að ná af mér tveimur kílóum. Mér finnst það bara fínt. Það er hrikalega spennandi að sjá vigtina síga þó það sé svona hægt og rólega vegna þess að það sem ég geri til að léttast er ekkert mál. Bara borða hollt og gott og sleppi að borða óhollt. Það er allt og sumt. Ekkert mál, bara hugsa áður en troðið er í gúllann.
Það er betra að vera 70,5 kg heldur en 76,5 kg.
Nú styttist í að ég sjái nýjan tug.
Vá, hvað ég hlakka til að verða 60 og eitthvað. Þó það sé 69 komma eitthvað.

fimmtudagur, 30. júní 2011


Matarstúss í útilegu
Hann, Simmi minn, ákvað að gefa sjálfum sér ristilspeglun í 60 ára afmælisgjöf. Flott hjá pilti, að mínu mati, þar sem 140 manns greinast árlega með krabbamein í ristli. Hann fór í þessa skoðun á þriðjudaginn var. Kom flott út þannig lagað. Það voru brenndir í burtu þrír litli separ sem hefðu mögulega getað orðið leiðindatól eftir fimmtan, tuttugu ár.
Læknaferðir þetta sumarið slíta í sundur fyrir okkur útilegur og ferðir með Sólbrekku. Ég átti tíma hjá hjartalækninum mínum í vikunni áður. Honum leist nú ekki betur á mig en það að ég ég á að koma í þrekpróf til hans 14. júlí. Þá er nú reyndar sumarfríið hans Simma míns á enda runnið.
Það sem ég ætlaði að sagt hafa var þetta með matinn og útilegur. Simmi minn, varð að vera á fljótandi fæði í tvo og hálfan sólarhring áður en speglunin var gerð. Við vorum sem sagt á Geysi í Haukadal í útlegu fyrsta daginn sem hann þurfti að vera á fljótandi fæði. Ég er svo meðvirk að ég ákvað að vera á fljótandi með honum þannig að það var enginn matur eldaður eða grillaður. Eina sem þurfti að gera var að hella einhvers konar safa í glas og drekka. Það var reyndar ótrúlega auðvelt að lifa þannig. Ég hefði ekki trúað því að óreyndu að það væri hægt að lifa, þó ekki væri nema hálfan dag, án þessa að BORÐA. Ég verð að skera matinn í sundur og bera hann að munninum með gaffli og tyggja hann. Það er það besta sem ég veit.
Þarna vorum við í útilegu og þurftum ekki að elda.
Þá fattaði ég hvað matargerð er stór og mikill þáttur í útilegunni.
Það er svo gaman að vesenast með matinn. Skera niður grænmeti og grilla það, krydda kjöt eða fisk og grilla og bara standa í matartilbúningi. Taka tappa úr góðri rauðvínsflösku og dreypa á með grillinu og ég tala ekki um að vaska upp á eftir og fá svo kaffi og grand.
Sumarið er tíminn.

mánudagur, 20. júní 2011


Flakk og útivera
Mikið sem okkur, Simma mínum, finnst gaman að búa í Sólbrekku. Við plöntuðum hjólhýsinu, Sólbrekku, á flötinni hjá Magga Gríms að Laufskálum við Flúði fyrir tíu dögum. Erum sem sagt búin að vera þar í tíu sólarhringa. Við urðum að fara heim í dag því ég þarf aðeins að spjalla við Helga lækni í fyrramálið og svo á ég tíma hjá hjartalækninum mínum á fimmtudaginn.
Það er alltaf gott að koma heim en ég hlakka samt til að fara af stað aftur. Til stendur að fara að Geysi um næstu helgi. Ég á von á að við förum stax á fimmtudagskvöld til að taka frá gott pláss fyrir ferðafélagana.

mánudagur, 13. júní 2011

Messa
Þegar ég byrjaði aftur að ferðast um landið, eftir ýmsar breytingar í mínu lífi, ákvað ég að ég skyldi á hverju sumri fara nýjar slóðir eða aka vegi sem ég hefði aldrei farið áður. Þetta hefur gengið eftir. Alltaf finnum við vegarspotta sem ég hef ekki farið áður eða minnist þess ekki. Ég fór, sem barn ýmsar leiðir með mömmu og pabba en þori ekki að ábyrgjast lengur hvort ég muni rétt eður ei.
Í dag keyrðum við vegarslóða sem ég man ekki eftir að hafa keyrt áður. Sem er í rauninni ótrúlegt því á þessum slóðum hef ég oft dvalið með mínu fólki. Ég er að tala um veginn að Hruna. Þar hef ég ekki komið áður en tók þátt í messu þar í dag. Hrunakirkja er lítil, falleg sveitakirkja byggð árið 1865 en sagan segir að Gissur Þorvaldsson hafi fæðst að Hruna þannig að hefð er fyrir kirkjusatað þarna frá elleftu öld.
Messan í dag var frábær. Allt öðruvísi. Tónlistin var í jassútsetningu Stefáns Þorleifssonar, Róberts Dan og söngkonunnar Guðlaugar Ólafsdóttur. Presturinn, séra Eiríkur var frekar óformlegur en samt náði hann að fanga kirkjugesti með fallegri predikun sem hann fór með blaðlaust.
Góð stund á fallegum sumardegi.
Góð stund í íslenskri sveit.
Íslenskur jass í sveitinni.

miðvikudagur, 8. júní 2011


Árin líða og líða
Það munu vera 40 ár síðan ég útskrifaðist sem kennari. 40 ár síðan ég byrjaði að kenna. 40 ár síðan hitt og þetta. Varð ólétt, byrjaði að byggja hús, byrjaði að búa. Við byrjuðum að búa í kennarabústaðnum, B-götu 7. Við bjuggum á efstu hæð, Jón og Ásta Júlía á miðhæðinni og Vernharður Linnet í kjallaranum. Jón byrjaði líka að kenna 1971. Við höfum verið lengst allra kennara starfandi við Grunnskólann í Þorlákshöfn. Hann hefur reyndar vinninginn yfir mig vegna þess að ég fór í burtu um tíma en kom aftur.
Í partýinu í gærkvöldi vildi skólastjórinn endilega minnast þessara tímamóta okkar Jóns og færði okkur smá gjöf.
Ég held upp á árin 40 með því að hefja töku lífeyris 1. ágúst og kenna bara nokkra tíma á viku.
Mér finnst það mjög spennandi.
Elska starfið mitt en er alveg tilbúin að minnka aðeins við mig.
Það er af sem áður var
Það er af sem áður var þegar við, Simmi minn, komum alltaf fyrst þegar boðið var til teitis og fórum iðulega síðust heim. Í gær var pallateiti hjá skólastjórahjónunum, eins og alltaf á síðasta vinnudegi skólaársins. Þau bjóða öllu starfsfólki skólans og mökum. Og auðvitað er alltaf jafn gaman.
Við skemmtum okkur konunglega í gærkvöldi eins og endra nær, fórum heim þegar þreytan gerði vart við sig, settumst í leisí fyrir framan sjónvarpið, steinsofnuðum bæði, vöknuðum og skriðum í bælið, kveiktum, einhverra hluta vegna, á útvarpinu og heyrðum sagt: Útvarp Reykjavík, klukkan er tólf á miðnætti.
Okkur fannst þetta frekar skondið.
En það var ósköp notalegt að vakan í morgun, hress og kát, orðin 61 árs.

mánudagur, 6. júní 2011


Fjallganga
Það er akkúrat ár núna síðan við Simmi minn vorum við Gardavatnið að ganga á fjöll. Þar fórum við í fjallgöngur á hverjum degi í eina viku. Það var ofboðslega gaman. Það er svo gott að ganga í hitanum og góða veðrinu. Við höfum ekki gengið á fjall síðan fyrir utan að skreppa á Miðfell við Flúði þar til í kvöld að við gengum á Skálafell með Ferðamálfélagi Ölfus. Við vorum 12 saman og keyrðum Hellisheiðarmegin inn á gamla veginn að Hverahlíðarvirkjun og lögðum þaðan af stað. Það tók okkur bara einn tíma og tíu mínútur að komast á toppinn. Það sem ég var hreykin af sjálfri mér. Útsýnið alveg dásamlegt en rokið þarna uppi og kuldinn gerði það að verkum að ekki var hægt að staldra lengi við. Af toppnum sjást öll þorpin eða bæirnir þ.e. Hveragerði, Selfoss, Stokkseyri, Eyrarbakki og Þorlákshöfn. Þaðan sjást fimm jöklar og líklega 14 kirkjur. Við fórum annars staðar niður og gekk ferðin ótrúlega vel, tók ekki nema tvo og hálfan tíma alls.
Það er frábært að komast á toppinn.

laugardagur, 4. júní 2011


Hafnardagar
Nú um helgina er hátíð í bæ. Bærinn minn er 60 ára gamall um þessar mundir og svo er auðvitað sjómannadagurinn á morgun. Þessu tvennu er slegið saman og mikið um að vera í bænum. Útvarp Hafnardagar hljómar frá morgni til kvölds sem skapar skemmtilega stemmingu. Þar hefur Simmi minn verið að segja sögur frá bernskuárunum. Hann verður líka 60 ára í ár. Jafngamall þorpinu. Bænum er skipt upp í hverfi sem fá hvern sinn lit. Við búum í bláa hverfinu og skrýddumst bláum fötum í gærkvöld þegar hverfahátíðin fór fram. Hverfin hafa grillveislu og hittast svo í skrúðgöngu sem er mjög skemmtilegt. Í gær var gengið niður á bryggju og þar fóru fram skemmtiatriði hverfanna. Þar voru bláir náttúrlega bestir. Við erum svo heppin að eldri borgarar búa flestir í bláa hverfinu og þeir eiga kór sem heitir Tónar og trix. Kórinn sté á svið og söng Gordjöss, lagið hans Palla, og gerðu það svona líka vel.
Við skemmtum okkur konunglega.
Enda blá.
Með blátt blóð í æðum.

föstudagur, 3. júní 2011

Grömm
Ég var bara nokkuð sátt við vigtina mína í morgun. 300 grömm sem hverfa eru betra en ekkert. Ég vigta og mæli allt sem ofan í mig fer, alla vega þegar mögulega er hægt. Ég varð bara að giska á karólínufjölda millibitans í gær því hann var snæddur á Íslenska barnum við Austurvöll í höfuðborginni.
Sátt við 300 g.
Ekkert erfitt.
Bara gaman.

fimmtudagur, 2. júní 2011



Herinn er skemmtilegur
Eftir heljarinnar hjólatúr í morgun skelltum við Simmi minn okkur í hðfuðhreppinn til þess að fylgjast með tískusýningu á vegum Hjálpræðishersins. Við erum nú ekkert sérlega tengd þeim gövga her nema hvað tengdadóttirin, forseti bæjarstjórnar og ömmustelpa voru á meðal þeirra sem sýndu föt. Þetta var hin ágætasta skemmtun, fötin flott og tískusýningarfólkið skemmtilegt. Mínar konur voru náttúrlega flottastar. Borgarstjóri toppaði samt sjálfan sig. Dóra Sif frænka var viss um að hann kæmi í dragi en viti menn hann sýndi skátabúning og var með íslenska fánann. Einhvern veginn bara fyndið.
Ég styrkti herinn með því að kaupa bláan stráhatt sem ég mun bera stolt á morgun fyrir bláa hverfið mitt.

föstudagur, 27. maí 2011

Vigtunardagur
Föstudagur hefur verið minn vigtunardagur í æði mörg ár. Þegar ég hef gert morgunverkin á mér, snara ég mér á vigtina, ákaflega klæðalítil ef ekki nakin og vigta mig. Ég held endilega að á þessum tíma sólarhringsins sé ég léttust. Þrátt fyrir þennan gjörning einu sinni í viku hef ég bætt á mig alls 15 kílóum á 30 árum. Samt hlýtur vigtunin að þjóna þeim tilgangi að passa upp á kílóin. Þau læðast að manni og smjúga inn og halda sér sem fastast. Ég hef spornað við fótum og rekið kvikindin á brott en oft beðið lægri hlut. Nú eru 10 of mörg utan á mér, innan í mér og allt um kring. Ég er að sporna við.
Vigtin sýndi í morgun 72,5 kg. 900 g farin frá því síðasta föstudag.
Skammtímamarkmiðið er að komast í 71 kg eða eins og ég var eftir sumarið 2009 en þá hrakti ég á brott sjö kíló og komst aftur í stærð 14.
Langtímamarkmiðið er fara niður fyrir 70 og sjá annan tug.
Allt í rólegheitum.
Telja kaloríur og vigta matinn.
Telja og mæla, vigta og pæla.
Allt skráð í dagbók.
Bara spennandi.

fimmtudagur, 26. maí 2011

Að verða gamall
Skruppum til Hveragerðis að heimsækja tengdapabba, sem býr á Ási. Honum líður bara vel þarna sýnist mér. Ég vona samt að ég þurfi aldrei að dveljast á svona stofnun. Ég verð svo sorgmædd þegar ég sit hjá tengdapabba og ég fæ stóran kökk í hálsinn þegar ég kveð hann. Ég sé einhverja sorg í augunum hans.
Honum líður vel en er samt með sorg í augunum.
Það er sorglegt.
Mjög sorglegt.

miðvikudagur, 25. maí 2011

Golf og aftur golf
Fór í kvennagolf í kvöld eftir kennslustund hjá golfkennara.
Hef í hyggju að fara aftur og aftur.
Bara gaman.

þriðjudagur, 24. maí 2011

Tíminn er afstæður
Rúðan í milliforstofuhurðina var tilbúin í dag, aftur. Ferð var gerð í höfuðhreppinn til þess að sækja hana og færa ömmustelpu afmælisgjöf í leiðinni af því hún verður 11ára á morgun. Við hittum doktorinn, forsetann og ömmustelpu á kaffihúsi og áttum skemmtilegt spjall við þau. Ömmustelpa ætlar að bjóða bekknum sínum heim í pizzur og fagna tímamótunum.
Ömmustelpa undirbýr afmæli.
Forsetinn hefur í ansi mörgu að snúast.
Doktorinn vantar nokkra tíma í sólarhringinn.
Við, Simmi minn, tökum lífinu með ró og njótum þess að vera bara saman.

mánudagur, 23. maí 2011

Smátjón
Við urðum fyrir foktjóni um daginn. Ég opnaði útidyrahurðina um leið og Simmi minn opnaði þvottahúshurðina með þeim afleiðingum að inniforstofuhurðin skall aftur og glerið sprakk. En eins dauði er annars brauð. Myndlistarkennarinn hefur auglýst eftir rúðugleri í allan vetur. Til stendur að gera listaverk úr gleri. Ég fór þess vegna með rúðubrotin upp í skóla í þeirri von að brotna glerið nýttist eitthvað.
Við, Simmi minn, fórum aftur á móti í höfuðhreppinn og pöntuðum nýtt gler. Það tókst ekki betur til en það að rúðan var of stór þegar heim var komið með hana. Það er ekki sama stíft mál og mál sem snikkari tekur. Smá misskilningur á ferð.
Smátjón.
Smámisskilningur.
Leiðréttingin er komin í ferli.

sunnudagur, 22. maí 2011


Fínir skápar
Þegar við fluttum í húsið, okkar fyrir tæpum sjö árum, var ekkert í baðherberginu nema klósett og sturta. Við vorum svo hepinn að eiga lítinn vask og blöndunartæki sem sett var upp og til þess að geta haft handklæði og annað baðherbergisdót þar inni notuðum við gamlar frístandandi hillur frá Svövu Rán. Handklæðaofn keyptum við og sturtuklefa. Ég var hætt að taka eftir þessu hálfkláraða herbergi, orðin samdauna einhvern veginn. Mér brá bara þegar gestir sögðu: "Má ég nota baðherbergið." Þá mundi ég eftir ástandinu og skammaðist mín.
Við létum loksins vera að því um daginn að kaupa innréttingu. Notuðum auðvitað heimamennina í smíðina þ.e. Fagus.
Ég er svakalega ánægð með baðherbergið mitt núna.
Gestir geta notað það að vild án þess að ég skammist mín.

föstudagur, 20. maí 2011

Eilífðar kíló
Ég hef síðan ég var 17 ára hugsað um línurnar, eins og það hét í þá daga eða verið í megrun. Ég kom nokkrum kílóum þyngri eftir tveggja mánaða dvöl í London þegar ég var 17 ára og þá byrjaði ég að pæla í megrunarmat. Ég er alltaf að læra eitthvað nýtt. Ný speki verður til á hverjum degi og ég er svo áhrifagjörn og trúi öllu sem ég les eða heyri. Þannig að ég er eins og hinir búin að prófa næstum því allt. Ég man ekki hvað ég var þung hérna á ungdómsárunum nema hvað að ég man að ég fór í Línuna kringum 1980 og missti nokkur kíló og man að ég var 59 kíló í nokkra daga. Á myndum af mér síðan þá er ég kinnfiskasogin og tekin í andliti. Þetta hlýtur að hafa tekið svona á.
Mér finnst eins og ég hafi lengst af verið 60 og eitthvað kíló. En svo skemmtilega vill til að hin rúðustrikaða ég geymi ýmsa pappíra þar sem ég hef skráð niður þyngd mína þar sem ég hef af góðum ásetningi ætlað mér að léttast. Byrja að skrá og nota alltaf föstudaga sem skráningardaga og hef byrjað á einhverjum kúr eða í einhverju átaki og skrái samviskusamlega en svo hætti ég að skrá. Skýringin hlýtur að vera að ég hef gefist upp og farið í gamla farið mitt aftur.
Alla vega sýnir skráningin, þegar ég tek saman tímabilin sem ég á, að ég rokka upp og niður um sömu kílóin aftur og aftur. Fyrsta talan sem ég á á blaði er frá 15. júní 1997 en þá er ég 76 kíló. Fer niður í 68 kíló í júní 1999 upp í 75 kíló í júlí 2003 niður í 67 í mars 2004 og svona gengur þetta upp og niður, upp og niður alltaf sömu kílóin. Vorið 2009 var ég orðin 78 kíló. Þá fór ég að vigta matinn minn og telja hitaeiningar. Ég náði 7 kílóum af mér þetta sumar og var voða ánægð með sjálfa mig.Minnkaði um eitt fatanúmer og hélt að ég væri búin að ná tökum á þessu. Rankaði svo við mér um daginn 76 kíló.
Samt hugsa ég endalaust um að borða hollan mat. Ég hef tekið ýmislegt út sem ég borðaði áður. Ég reyni að borða temmilega og fæ mér ekki aftur á diskinn. Samt koma gömlu kílóin alltaf aftur. Ég borða nánast ekkert brauð, drekk aldrei gos og hef ekki sett sósu á diskinn minn í mörg, mörg ár nema einstöku sinnum og þá hélst ef kjöt í karrí er í matinn eða kínverksur pottréttur. En það er alltaf sjaldnar og sjaldnar. Ég hef ekki borðað kex í mörg ár, ekki eina köku og tertur borða ég bara í veislum. Unnin kjötvara fer varla inn fyrir mínar varir.
Ég held að ég verði að vigta matinn minn. Skammtarnir stækka alltaf hjá mér ef ég vigta ekki. Alveg ósjálfrátt. Vigta og telja hitaeiningar og skrá í dagbók. Um að gera að nota rúðustrikaða elementið í mér.
Svo er það þetta sem dótla mín segir og ég hef líka lengi sagt: Maður verður að borða minna og hreyfa sig meira.
Í morgun sýndi vigtin mín 73,4 kíló. 2,6 farin síðan um miðjan apríl.
Hið besta mál.

fimmtudagur, 19. maí 2011


Golf
Ég skellti mér í golf í gærkvöld. Kvennagolf svokallað sem vinkona mín sér um. Hún hefur oft hvatt mig til að koma en ég hef annaðhvort gleymt því eða haft öðrum hnöppum að hneppa. Ég bæði hlakkaði til og var með smá kvíðahnút í maganum. Kvíðahnúturinn var þarna vegna þess að ég hef tvisvar áður snert golfkylfur og þá gekk mér ekkert rosalega vel að munda kylfuna og hitta kúluna. Ég þoli nefnilega ekki að ganga illa við það sem ég tek mér fyrir hendur.
Ég fékk smá tilsögn hjá spænskum golfkennara á Spáni fyrir allmörgum árum, eða árið 1987. Ég hef örugglega ekki skilið hann nógu vel því ég hitti illa kúluna og gat ekki gert þetta rétt. Þegar ég bað um að mynd yrði tekin af mérvið þessa iðju stillti kennarinn mér upp í rétta sveiflustellingu því ég fann hana ekki að hans mati sjálf. Þessi reynsla skemmdi sjálfstraustið hvað golfkunnáttu varðaði.
Mörgum árum síðar fór ég með Kiwanisklúbbnum í golfkeppni sem var kölluð Betri boltinn og ég leit á sem meira til skemmtunar en eitthvað alvöru.
Mig hefur alltaf langað að gera alvöru úr þessu en ekki vitað hvernig ég ætti að byrja. Einhver verður að kenna manni þetta. Golf er ekki meðfætt.
Þegar Simmi minn, hafði orð á því um daginn að það væri kannski sniðugt fyrir okkur að fara í golf ákvað ég að skella mér í kvennagolfið, það gæti jafnvel hjálpað til með að byrja leikinn.
Það sem gerði útslagið var að ég fékk klukkutíma kennslu hjá frábærum kennara áður en kvennagolfið byrjaði.
Ég lærði heilmikið.
Ég hitti kúluna oft.
Ég kom kúlunni ofan í holur.
Við fórum fjórar holur.
Ég ætla aftur.
Þetta var svo gaman.

föstudagur, 13. maí 2011

Mórall og góður matur
Ég á það til að gera eittthvað svo hrikalega mikið af mér að ég er með móral svo dögum, jafnvel vikum skiptir á eftir. Stundum er samt einhver nálægt mér og stoppar mig af eins og þegar ég ætlaði að æða út á dansgólfið á árshátíð eldri borgara því ég hélt nú aldeilis að ég kynni kúrekadansinn sem var verið að sýna jafnvel og dansarnir sem voru klædsdir í kúrekaföt og dönsuðu fyrir okkur hin. Öllu heilli var mamma með mér á ballinu og varnaði því að ég færi út á gólfið til að sína kúrekadansmennt mína. „Þú ferð ekki fet,“ sagði sú gamla og sat fyrir mér. Það sem ég var fegin daginn eftir.
Ég fór án eftirlits á Gelluna. Mamma víðs fjarri og Simmi minn í Noregi. Og hvað gerist þá? Ég tók þátt í armlyftukeppni með Barböru menningarfulltrúa úti á miðju gólfi í knallstutta fjólubláa kjólnum mínum. Ég vona að allir hafi verið í meiri rauðvínsþoku en ég og muni ekki eftir þessu skemmtiatriði. Ekki nóg með það heldur tók ég þátt í bögglauppboðinu líka. Athyglissýkin alveg að drepa mig. Ég vann sælkeraveislu fyrir tvo á Lækjarbrekku og voða fallegt sjal. Borgaði dágóða upphæð fyrir þetta. Hugsa með mér að Kiwanisklúbburinn komi aurnum í góð málefni. Hugga sjálfa mig þannig svo mórallinn drepi mig ekki.
Í gærkvöld nutum við Simmi minn þessarar frábæru sælkeraveislu. Skelltum okkur í höfuðborgina, röltum um miðbæinn og enduðum á Lækjarbrekku. Við þurftum ekkert að panta, matseðillinn var ákveðin fyrir okkur. Hreindýra karbatsíó í forrétt. Humar í milliforrétt. Laxamús í millirétt. Lamb og humar í aðalrétt og margskonar ís og kökur og gúmmulaði í eftirrétt.
Þvílík veisla.
Bara fyrir bögglauppboð sem ég var löngu búin að borga.

miðvikudagur, 11. maí 2011


Hjólatúr
Þegar við, Simmi minn, bjuggum fyrir austan vorum við voða dugleg að skokka. Við keyptum okkur skokkföt til að vera flott á hlaupum. Einn daginn sneri ég við því ég sá, þegar við vorum nýlögð af stað í dagsskokkið okkar, að við vorum eiginlega alveg eins klædd. Mér fannst þetta svo hryllilega halllærislegt að ég sneri við og skipti um fðt svo ég gæti skokkað þann daginn.
Fyrir akkúrat ári síðan keypti ég mér hjól og heldur betur notið þess að hjóla um þorpið mitt. Ég lagði því í vetur á meðan hálka og snjór voru á götum en hef að öðru leyti eingöngu notað hjólið innanbæjar.
Í dag keypti Simmi minn sér hjól. Og viti menn, hjólið hans er sama tegund og mitt og eins á litinn bara kallaútfærsla.
Við erum alltaf eins eða þannig.
Tókum flottan hjólatúr í dag eftir vinnu.
Á hvítum hjólum.
Bara gaman.

mánudagur, 9. maí 2011


Frón fyrir alla
Við, Simmi minn, skutluðum the Jonses´á Leifsstöð eldsnemma í morgun. Þau dvöldu á landinu kalda í sex sólarhringa að þessu sinni. Dave hefur ekki komið síðan 2007 og var það sönn ánægja að fara með honum "gullna hringinn" og upplifa landið með augum útlendingsins. Hann hafði aldrei séð foss áður, hvað þá Gullfoss og það er svo magnað hvað það er hægt að standa nálægt ofurkraftinum og skynja náttúruaflið. Ég "fattaði" það núna. Geysissvæðið tók ekki síður á móti Veilsverjunum mínum. Strokkur lét ekki standa á sér og gaus nokkrum sinnum. Ég er nú svo mikið dauðyfli að ég hafði aldrei séð gos, svona nálægt eins og hægt er, fyrr en dótla dró okkur þangað í fyrrasumar. Og svo aftur núna. Hreint og beint frábært. Þingvellir voru teknir í nefið en túrinn byrjaði á Kerinu.
Ég er enn að hugsa um landið mitt með augum ókunnugra.
Einu sinni skammaðist ég mín fyrir trjáleysi og kulda.
Núna er ég hreykin af þessu og ýmsu öðru.

mánudagur, 25. apríl 2011


Skírn í Hrepphólakirkju
Við vorum í dag við skírn í þessari litlu, fallegu sveitakirkju. Ingibjörg og Siggi báru til skírnar litla soninn þeirra, sem fékk nafnið Alexander Jón. Afi og amma Ingibjargar buðu upp á veislu að athöfn lokinni heima hjá þeim sem er býli á Hrepphólajörðinni. Afinn, Sigurður Jónsson, var himinlifandi yfir nafngiftinni, því bæði nöfnin eru úr ættum hans og konu hans.
Áttum við notalega stund í sælu sveitarinnar og nutum góðra veitinga.

laugardagur, 23. apríl 2011

Hundblaut
Eftir morgunverðinn og lestur dagblaða var ekki lengur hægt að humma fram af sér göngutúr. Enda skein sólin og togaði mann út. Simmi minn skellti sér með mér og var stímið tekið á litla hringinn sem tekur aðeins hálftíma að ganga. Við vorum rétt lögð af stað þegar við lentum í éljagangi sem breyttist svo í rigningu. Þrátt fyrir að við styttum göngutúrinn niður í korter komum við heim eins og hundar af sundi dregnir.
Við fengum þó smá aukasúrefni í lungun.
Og smá aukahreyfingu.
Alla vega meiri hreyfingu en ruggið í leisiboj gefur.

föstudagur, 22. apríl 2011


Föstudagurinn langi
Ég held ég hafi ekki gert neitt eins lítið í langan tíma og í dag.
Ég hef mest megnis setið í leisíboj og slakað á. Spjallað við hann, Simma minn og hlustað á útvarpið. Við ætluðum um miðjan dag að fara út að ganga en svo nenntum við því alls ekki.
Ég hengdi út á snúru nokkrar flíkur, þær fyrstu á þessu ári og fann þá að veðrið er miklu berta en ég hélt. Settist bara samt aftur í leisí.
Mér finnst þetta frábær dagur.
Langur og góður.
Fæ örugglega sérrí þegar sérrítíminn hefst.
Fæ mjög líklega fiskrétt að hætti Simma míns í kvöldmat.
Sit og hef það næs í leisíboj.

fimmtudagur, 21. apríl 2011

 
Páskar nálgast
Ég keypti bara tvö páskaegg fyrir þessa páska. Þau eru komin í hendur eigenda sinna. Annað var sent til Wales umlukið popkorni enda komst það heilt á leiðarenda. Hitt fékk ömmustelpan. Elsta barnabarnið borðar ekki páskaegg svo hann fékk bara andvirðið í beinhörðum. Hann var hæstánægður með það.
Posted by Picasa

miðvikudagur, 20. apríl 2011


Hamagangur á Hóli
Við, Simmi minn, erum búin að vera í húsinu sem við eigum núna, síðan haustið 2004. Fyrir framan húsið hafa verið tveir litlir grasblettir, sinn hvoru megin við stétt, umluktir kræklóttu íslensku birki. Það hefur ekki verið gaman að draga garðsláttuvélina þarna yfir til að slá. Enn leiðinlegra að raka þessa bletti og koma grasinu einhvers staðar fyrir. Maður lætur sig samt hafa þetta því meira verður að gera en bara það sem er skemmtilegt.
Í fyrrasumar keyptum við okkur hjólhýsi og þegar við vorum ekki að flakka vildum við hafa hýsið, sem auðvitað heitir Sólbrekka, í innkeyrslunni en ekki úti við aðalgötu eins og við gerðum við gömlu Brekku, þ.e. fellihýsið sem við áttum. Við vorum orðnir snillingar í að koma Sólbrekku fyrir í innkeyrslunni en þá vorum við í vandræðum með bílinn. Gátum jú sett hann við hliðina á Brekku en komumst varla út úr honum fyrir trjám.
Þá fékk ég hugmynd. Rífa bara upp trén, innkeyrslumeginn við húsið, kantinn og allt gras. Líka grasið hinu meginn við stéttina og setja möl í staðinn.
Þetta er búið og gert. Ekki aftur snúið. Núna þurfum við ekki að slá fyrir framan húsið. Núna komast, bæði Sólbrekka og bíllinn fyrir með góðu móti. Og það er nóg pláss fyrir gestabíla.
Mér finnst dálítið grátt að líta út um eldhúsgluggann en ég ætla að fá mér blómaker og dreifa þeim smekklega um hið grá svæði .

þriðjudagur, 19. apríl 2011


Lífrænn úrgangur
Ég hef lengi haft áhuga á hvers konar endurvinnslu úrgangs og gert mitt besta til að leggja eitthvað af mörkum til þeirra mála. Flokka allt rusl sem mögulegt er og reyni að vera enginn umhverfissóði. Það eru svona 15-20 ár síðan ég fór með allan lífrænan úrgang út garð og gróf hann þar þegar það var hægt þ.e. yfir sumartímann. Áhugi á safnkassa kviknaði þá. Um tíma bjó ég samt þannig að ég gat ekki haft safnkassa svo draumurinn um hann lá niðri.
Nú hef ég átt garð síðan 2004 og í fyrrasumar festum við, hjónakornin, okkur kaup á moltukassa. Mér fannst það allt í einu betri hugmynd en safnkassinn. Moltukassinn var smelltur saman og þoldi ekki veturrinn. Hann lá í frumeindum á lóðinni þegar snjóa leysti og haugurinn, sem ég hafði safnað í hann, lá við hliðina.
Um daginn skellti hann, Simmi minn, sér á nokkrar spýtur og smíðaði þennan líka fína þriggja hólfa safnkassa. Fyrsta hólfið er strax orðið fullt. Hann mokaði í það haugnum frá í fyrra og ég er byrjuð að henda í hólf tvö lífrænum úrgangi úr eldhúsinu.
Gamall draumur rættist.

föstudagur, 18. mars 2011


Allt er hey í harðindum.
Ég ákvað í dag að nota. í kvöldmatinn, einhverja af þeim frábæru uppskriftum sem dótla mín hefur sett út á heimasíðuna sína. Ég hef náttúrlega oft eldað eftir hennar uppskriftum og svo líka orðið þess aðnjótandi að borða það sem hún eldar. Og allt er gott. Hvort sem ég reyni að gera eins og hún eða borða það sm hún framfærir.
Ég ákvað, sem sagt,að hafa um helgina sítrónukjúllann hennar eitt kvöldið og kúrbítsbökuna eitthvert annað kvöldið.
Ég skeiðaði út í búð, full eftirvæntingar en varð fyrir vonbrigðum. Engar kjúklingabringur voru þar á boðstólum og enginn kúrbítur var sjáanlegur í grænmetisborðinu. Nú voru góð ráð dýr.
Ég ákvað samt að hafa kúrbítsbökuna, þrátt fyrir engan kúrbít. Ég notaði bara í staðinn gamla grænmetisblöndu úr poka sen var á síðasta snúningi.
Ekki nóg með það, heldur var kotasælan mín löngu gengin fram yfir dagsstimpil,þannig að í staðinn fyrir hana notaði ég gríska jógúrt.
Annað gerði ég eins og dótla mín leggur til og viti menn, þetta varð hin dýrðlegasta máltíð. Eina sem skyggði á var að ég sat ein að öllum matnum sem hefði dugað handa hálfri hersveit.
Eða heilli.
Ég á alla vega mikinn afgang þrátt fyrir að hafa kýlt vömbina all hressilega.

mánudagur, 28. febrúar 2011


Upplestur
Ég keypti mér, í dag, aðgang að vefsíðunni hlusta.is. Sat svo í dag og prjónaði og hlustaði á tvær sögur og eina smásögu. Fyrst hlustaði ég á söguna Ást og auður eftir Jóhann Gunnar Sigurðsson. Ég hef ekki lesið ástarsögu árum saman. En það var unun að hlusta á þessa sögu. Hún er svo fallega skrifuð að það er leitun að öðru eins. Ég dáist að orðgnótt gömlu skáldanna okkar. Íslenskan er svo falleg og djúp þannig að maður dettur inn í samtímann og öðlast líf með sögupersónunum. Þessi saga fær sorglegan endi en samt svo falleg.
Ég hlustaði einnig á söguna Vistaskipti eftir Einar Hjörleif Kvaran. Einnig ákaflega vel skrifuð saga og fróðleg að hlusta á. Nútímamaðurinn á erfitt með að gera sér í hugarlund hvernig kjör hreppsómaga voru á árum áður. Í þessari sögu kemst lesandi(hlustandi) aðeins inn í þann heim.
Síðan hlustaði ég á smásöguna Grímur kaupmaður deyr eftir Gest Pálsson. Ég kannaðist nú eitthvað við hana. Hef líklega lesið hana í skóla hér á árum áður. Hún er skrifuð undir áhrifum raunsæis eins og Gestur gerði gjarnan. En skemmtilegt að rifja þetta upp.
Ég á örugglega eftir að nýta mér þennan vef mikið.
Mér finnst skemmtilegra að hlusta á talað mál heldur en rokk eða popp.
Mér er skítsama þó einhver segi að hér sé um ellimörk að ræða.
Ég tek elliárunum með stolti.
Og hlusta á gömlu skáldin.
Og nýt þess.

laugardagur, 26. febrúar 2011


Lego
Þegar ég var lítil átti ég nokkra Legokubba. Ég man ekki hvernig ég eignaðist þá en það sem ég gat byggt úr þeim var eitt ákveðið hús. Ég átti hvíta kubba, rauða kubba og nokkra glugga og eina hurð. Ég var búin að byggja svo oft úr kubbunum mínum að ég vissi nákvæmlega hvernig hús ég gat byggt svo það yrði fullkomið. Hvítir veggir og rautt þak. Enginn kubbur í afgang, allt gekk upp. Ég átti mér samt þann draum að eignast nokkra kubba í viðbót svo ég gæti byggt öðruvísi hús. Ég man ekki eftir því að það væri hægt að kaupa nokkra kubba í lausu. Alla vega eignaðist ég ekki fleiri kubba þrátt fyri einhverja drauma þess efnis.
Einn góðan veðurdag var ég á gangi eftir Smáratúninu, líklega á leið til vinkonu á Engjaveginum, og finn eina Legohurð á götunni. Hvernig stóð á því að hún lá þarna á götunni var mér hulin ráðgáta en þvílíkur fundur. Ég sá fyrir mér að ég gæti breytt húsinu mínu heil ósköp ef ég bætti þessari hurð við safnið mitt. Hún myndi breyta öllu. Mér fannst ég ekki eiga þennan dýrgrip þó ég gripi hann upp af götunni.Það hafði bara einhver misst hann alveg óvart og hlyti að sakna hurðarinnar sárt.
Vá.. hvað mig langaði samt að eiga hurðina. Hvað átti ég að gera? Stinga henni í vasann og "stela" henni? Nei, það gat ég ekki. Hvað var þá til ráða? Jú, mér datt snjallræði í hug. Ég tók hurðina upp af götunni, þurrkaði hana með fingrunum og lagði hana upp á girðinuna sem hún lá við og hugsaði með mér að ef hún yrði enn uppi á girðingunni þegar ég kæmi til baka yrði hún mín eign.
Ég kom rosalega spennt til baka nokkru síðar. Og viti menn, hún lá enn á girðingunni. Hurðin. Legohurðin. Dýrgripurinn.
Ég tók hana, fór með hana heim og bætti henni við safnið mitt, Byggði nýtt og betra hús en það var eitthvað að. Þessi hurð var illa fengin, eiginlega stolin, svo hún féll eiginlega ekki að gömlu kubbunum. Hún var aðskotahlutur. Veitti enga ánægju.
Það er ekki hægt að gleðjast yfir illa fengnum hlutum.
Legokubbar hafa samt veitt mér ómælda ánægju á efri árum.
Ég hef byggt heilu ævintýrin með barnabörnunum. Þá helst strákunum mínum.
Legó.
Ótrúleg uppfinning.
Félag eldri borgara
Þegar ég kom heim úr Ítalíuferðinni í vor, orðin sextug, gekk ég í Félag eldri borgara í Ölfusi. Mér fannst ekki eftir neinu að bíða. Ég vissi það alveg að í þessu félagi ætti ég eftir að starfa og vildi bara hefja störf strax. Mér fannst líka dálítið skondið að fara í félag með mömmu og pabba og ekki verra að hann væri formaður.
Í dag var aðalfundur og dreif ég mig á hann til þess að kynnast starfsseminni. Þetta var ljómandi góður fundur og varð ég öllu fróðari um starfið. Ég var kosin í hlutverk. Er hér með skoðunarmaður reikninga.
Pabbi, sem hefur gegnt formennsku í mörg ár, gaf ekki kost á sér áfram en Anna Lú var kosin í hans stað.
Ég leit yfir salinn og sá að ég var yngst. Það er bara fínt að vera einhvers staðar yngstur.
Yngst í félagi eldri borgara.