Síður

mánudagur, 20. júní 2011


Flakk og útivera
Mikið sem okkur, Simma mínum, finnst gaman að búa í Sólbrekku. Við plöntuðum hjólhýsinu, Sólbrekku, á flötinni hjá Magga Gríms að Laufskálum við Flúði fyrir tíu dögum. Erum sem sagt búin að vera þar í tíu sólarhringa. Við urðum að fara heim í dag því ég þarf aðeins að spjalla við Helga lækni í fyrramálið og svo á ég tíma hjá hjartalækninum mínum á fimmtudaginn.
Það er alltaf gott að koma heim en ég hlakka samt til að fara af stað aftur. Til stendur að fara að Geysi um næstu helgi. Ég á von á að við förum stax á fimmtudagskvöld til að taka frá gott pláss fyrir ferðafélagana.

2 ummæli:

murta sagði...

Endum við bara ekki saman í trailerpark einhverstaðar?

Bardur sagði...

Thetta er ekki hjólhýsi Gunna mín.
Frekar "Hjólahöll" med stóru Hái.
Eg á sjálfur "hjólakofa" 4 metrar á lengd og 38 ára gamalt, en nota thad nú bara einu sinni á hverju sumri God sommer.