Síður

sunnudagur, 5. september 2004


Dóra Sif bauð í dinner í gærkvöldi. Okkur Simma, mömmu sinni, Kalla afa og Nonna. Hún á svo æðislega sæta og fína íbúð sem hún er nýflutt í. Og það er eins og að afkomendur Siggu ömmu geti ekki gert að því að elda góðan mat. Hún hefur erft þann þáttinn eins og margir aðrir í fjölskyldunni. Góður matur, smekklega fram borinn og skemmtilegt kvöld. Posted by Hello

föstudagur, 3. september 2004


Dave, tilvonandi tengdasonur minn, á afmæli í dag. 31árs strákurinn. Góður strákur. Traustur og góður. Hann er mjög stoltur af Lúkasi og mikill pabbi.  Posted by Hello

fimmtudagur, 2. september 2004

Ég gæti seint haldið því fram að líf mitt hafi verið í föstum skorðum undanfarin ár. Það eiga sér sinkt og heilagt einhverjar breytingar stað. Ég er enn í sæluvímu yfir nýju húsi og alls ekki búin að venjast því, þegar hann Simmi minn byrjaði að vinna hjá öðrum en sjálfum sér. Hann byrjaði í gær að vinna í flugeldhúsinu á Vellinum. Hann vinnur þar á vöktum en það hefur hann ekki gert áður en þá telst sjómennskan ekki með. Þessi vinna kemur til af því að hann er að missa húsnæðið sem Krónika hefur verið í. Það á færa bókasafnið í Mosó á hæðina sem Krónika er og hann verður að gjöra svo vel og fara með allt sitt hafurtask út fyrir næstu mánaðamót. María ætlar að elda á meðan eitthvað er til í frystikistunni og hann þegar hann er ekki í nýju vinnunni. Það er ýmsu að venjast þessa dagana. Það er eins gott að maður er ekki orðin eins gamall og hundurinn sem ekki var hægt að kenna að sitja.

mánudagur, 30. ágúst 2004

Þó að ég ætti aðeins hálftíma í mat í dag fór ég samt heim að borða af því það er svo gaman að koma heim núna. Allt að verða svo fínt hjá mér. Enda er ég ekki nema 3-4 mínútur að labba í vinnuna. Ég labba reyndar hratt en það er sama það eru forréttindi að hafa það svona gott. Kassarnir sem á eftir að taka upp úr eru inni í litla herbergi og ég tek bara einn og einn svona þegar ég nenni. Mér finnst svo gaman að vera búin að endurheimta húsmóðurtitilinn að ég sletti í form, eins og Sissa kallar það, þegar ég kom heim úr vinnunni í dag. Bara til að prófa ofninn. Virkar flott. Eldaði skötuselsrétt í kvöldmat, upp úr mér, en lukkaðist mjög vel. Rúnar minn Gunnarsson færði mér skötuselinn sem innflutningsgjöf. Sætur í sér þessi elska.

sunnudagur, 29. ágúst 2004

Ég er búin að selja hosiló og kaupa mér höll.
Nú er ég drottning í hárri höll.
Mér líður eins og drottningu.
Eða eins og mér finnst að drottningu ætti að líða.
Frábært hús sem ég á.
Frábært umhverfi sem ég er í.
Frábær garður við höllina mína.
Mér llíður vel.
Betur en í langan tíma.
Mig hefur vantað eitthvað í átta ár.
Ég er búin að finna það.
Held ég.
Vona ég.


Höfuðdagurinn er í dag.
Ég fékk tvo blómavendi í tilefni dagsins.
Simmi minn gaf mér rauðar rósir.
Mamma kom með rosa fallegan vönd.
Tilefnið er að við Simmi minn erum búin að vera heitbundin í 34 ár.
Við verðum örugglega stoppuð upp eins og hefði átt að gera við síðasta geirfuglinn.




laugardagur, 21. ágúst 2004


Hún Elsa mín á afmæli í dag. 32 ára stelpan. Hún ætlar að verja kvöldinu með fjölskyldunni uppi í sveit, hjá vinkonu sinni Simone, sem eldar fyrir hana afmælismatinn og dekrar við hana. Á myndinni eru þær mæðgur heima hjá hinni frönsku Simone, sem Nanna kallar ömmu. Simone ræktar allt sitt grænmeti sjálf og bakar brauð sem hún selur á bændamarkaði. Elsa hjálpar henni stundum. Enda á það við hana Elsu mína að vasast í matartilbúningi. Posted by Hello
"Lukkan hefur alltaf verið með okkur," sagði hann Simmi minn í dag þar sem við sátum í sólstólum í frábærum garði og slökuðum á. Ég gat ekki annað en verið sammála honum.

mánudagur, 16. ágúst 2004


Það er ekki leiðinlegt að hafa svona útsýni út um gluggann hjá sér á 18 hæð, svona einn sólarhring. Borg vindanna, Chicago, tók vel á móti okkur. Við sáum ekki nema lítið brotabrot af henni en það sem við sáum var stórkostlegt. Borgin stendur við Lake Michigan sem útaf fyrir sig er ógleymankegt að sjá. Stöðuvatn, þar sem ekki sést á bakkann hinu meginn. Við brugðum okkur á ströndina, fyrir börnin, og þau busluðu í vatninu. Fallegur garður er við vatnið sem peningamennirnir sjá ofsjónum yfir, þeir sjá bara byggingarland og vilja kaupa landið en það er í einkaeign og þeir fá ekkert að gert.  Posted by Hello
Mér finnst ég lifa í köflum eins og í skáldsögu. Í morgun byrjaði að segja frá þegar ég vinn í skólanum. Nýlokið er kaflanum þegar ég var í Ameríku og þar á undan var það kaflinn þegar ég annaðist barnabörnin mín í sex vikur. Allir þessir kaflar eru mjög ólíkir. En eins og í góðri skáldsögu tengist efnið þó það virðist ólíkt í fyrstu.

sunnudagur, 15. ágúst 2004

Tengdapabbi vakti okkur um hádegisbil með símhringingu. Við erum greinilega þjökuð af flugþreytu, því ég man ekki eftir því að hafa sofið til hádegis síðan ég var unglingur. Erindi Kalla Karls var að minna okkur á 85 ára afmæli Laufeyjar systur hans. Við höfðum ekkert heyrt minnst á það en áttum auðvitað að vera með á nótunum þar sem hún, blessunin, hélt upp á 80 ára afmælið sitt hjá okkur á Tærgesen, Reyðarfirði. Við hentumst á fætur og brunuðum á Hafið Bláa þar sem við hittum þennan unga öldung. Það er óþarfi að kvíða framtíðinni ef maður verður jafn sætur og hress og Laufey Karlsdóttir er á afmælisdaginn sinn 85 ára.
Við erum búin að skila barnabörnunum af okkur. Flugum til Minneappolis. Kalli og Elsa voru bæði þar til að taka á móti. Frá Minneappolis er um fimm klukkustunda akstur suður sléttuna miklu til Iowa. Útsýnið er alltaf það sama, enginn tilbreyting. Bóndabæir og maísakrar, svo langt sem augað eygir. Við dvöldum að 1130 East Washington street í Iowa City, í 11 daga, fyrir utan sólarhringinn sem við vorum í Chicago, nutum þess að láta sólina baka okkur og hafa fjölskylduna, sem við hittum svo sjaldan, svona nærri. Við vorum alveg klár á því að vera örugg með gott veður, þannig hefur það verið í Iowa í ágúst síðan mælingar hófust. Auðvitað var slegið kuldamet rétt á meðan við dvöldum þarna og hitamet á meðan á Íslandi! Kuldinn var nú samt sem áður ekki meiri en það að mér þótti vissara að hafa peysu með þegar ég labbaði niður í bæ.

þriðjudagur, 27. júlí 2004

Sem betur fer á ég netmyndavél, þannig að ég get talað við hinn tölvuvædda dótturson minn sem býr í Wales. Hann er bara 8 og hálfs mánaða gamall en við vorum í sambandi alveg í 30 mínútur í dag. Hann situr eins og kóngur í hástólnum sínum spjallar út í loftið og við mig, örugglega, og er rosalega sætur og myndarlegur. Ég vona að þetta samband okkar hjálpi upp á íslenskunámið hans.  Það eru nú samt ekki mjög uppbyggilegar samræður sem við eigum enn. "Æ, hvað þú ert sætur kallinn minn, litla ömmuljósið mitt."  Æ, hvað ömmu langar að taka þig í fangið og knúsa þig." Hann horfir út í loftið og veit ekki alveg hvaðan á honum  stendur veðrið. En ég stend í þeirri trú að þetta sé upphaf á góðu ömmu/dóttursonarsambandi. Vil trúa því. Trúi því.

sunnudagur, 25. júlí 2004


Kolbeinn er búinn að tala um Gullfoss og Geysi síðan hann kom. Þetta eru staðir sem örugglega væri vert að skoða. Ég var ekki alveg með á nótunum í fyrstu en svo rifjaðist upp fyrir mér hvað mamma hans var að tala um þegar hún kom í vetur. Hún vildi helst fara í minjagripabúðir og kaupa hraunaða öskubakka, uppstoppaða Lunda og staup merkt Brennivín. Já, Íslendingar búandi á erlendrei grundu, sjá Ísland í rómantísku ljósi og þess vegna brunuðum við í dag með "Ameríkanana" okkar að skoða Gullfoss og Geysi. Þetta var hin besta ferð, veðrið indælt og allir í dúndrandi ferðamannastuði. Posted by Hello

Nönnu fannst berin jafnvel merkilegri en jökullónið sem þarf að fara yfir til þess að berja dýrðina í Þórsmörk augum. En sú stutta vílaði ekki fyrir sér að ganga inn alla Stakkholtsgjá, alveg inn í botn og heimtaði að fara upp á hæsta steininn þar inni til þess að sjá hinn tilkomumikla foss sem þar fellur fram af brún í gegnum gat. Hún var yngsti göngumaðurinn í hópnum. Kolbeinn fór langt á undan okkur með nokkrum aukakrókum samt upp á hina og þessa bakka og hjalla, ekki ósvipað manni nokkrum, allskyldum honum, um tuttugu árum áður. Posted by Hello

Helgina 16.-18. júlí var legið í tjaldi við Hamragarða. Kiwanisútilega. Hér slakar Kolbeinn á í útilegusófa með íslenskt malt. Hann fór nokkrar ferðir upp á fjallið fyrir ofan, bak við Seljalandsfoss og fór í náttúrlegt sturtubað í oðrum aðeins minni fossi. Posted by Hello
Systkinin, Kolbeinn og Nanna, héldu veislu fyrir ættingja og vini mánudaginn 19. júlí. Tilefnið var 11 ára afmæli Kolbeins en Nanna mátti eiga afmæli líka. Henni fannst það nú einkennilegt því það væri ekki 25. maí. En hún fékk afmælispakka líka. Það var boðið til kvöldverðar í Café Króniku og mætti skyldfólk þeirra frá mörgum ættbogum og mörgum kynslóðum.
Ef ég kemst að í tölvunni fyrir unglingnum á heimilinu skríður litli álfurinn upp í fangið á mér og heimtar Barbí eða vill skoða myndirnar mínar. Það skýrir fálæti mitt að undanförnu hér á þessum vettvangi. Unglingurinn notar tölvuna til leikja og að skoða Warhammersíður.  Ég hélt að ég væri voða sniðug þegar ég sýndi álfinum Barbie.com. Það þýddi það auðvitað að hún vill skoða Barbí aftur og aftur. Þegar ég var búin að fá mig fullsadda, kenndi ég henni á músina. Það var eins og það væri meðfætt að stýra músinni. Nú finn ég síðuna fyrir hana og hún leikur sér að klæða Barbí og vinkonur og greiðir þeim og snyrtir. Hún hafði greinilega tekið eftir hvar ég klikkaði á síðuna til að gera hitt og þetta og svo skilur hún auðvitað hið talaða mál á Barbie.com.

fimmtudagur, 15. júlí 2004


Við fórum á fótboltaleik í dag á Seltjarnarnesi. 5. flokkur var að keppa. Ægir og Grótta. Við fórum með sigur af hólmi, 6-5. Hér er höfðinginn, Karl Kolbeinn, að koma sér á réttan stað á vellinum. Völlurinn er á Valhúsahæð og útsýnið frábært.  Posted by Hello

þriðjudagur, 13. júlí 2004

Ég hef ekki fengið hana sonardóttur mína til þess að taka upp siði íslenskra barna þ.e. að fara að sofa á skikkanlegum tíma. Hún kom auðvitað með 6 klukkutíma rugling í sér og allmikið af þeim ruglingi hrjáir hana enn. Það er sem sagt ekki farið í bólið hér fyrr en undir miðnætti dag hvern. Við kúrum aftur á móti lengi fram eftir á morgnana. Ég veit að foreldrar hennar verða ánægðir með þetta þegar við skilum barninu af okkur en þá hlýtur hún að fara snemma í bólið upp á amerísku.

laugardagur, 10. júlí 2004


Húsdýragarðurinn var heimsóttur í gær. Hér er verið að fylgjast með þegar selum er gefið að borða. Veðrið gat ekki verið betra, sól og blíða.  Posted by Hello

föstudagur, 9. júlí 2004

Merkur málfræðingur sagði eitt sinn að börn væru bestu málfræðingarnir. Ég er alveg sammála þessari fullyrðingu. Þau eru meira að segja best í hljóðkerfisfræði einnig.
Við, Nanna, vorum að telja upp alla í fjölskyldunni og þegar kom að Dave sagði hún: "Það er ekki íslenskt nafn." Hún gerir greinarmun á hljóðkerfi íslensku og ensku. Það er líka gaman að heyra þegar hana vantar íslenskt orð en kann það á enskunni, þá skellir hún íslenskri endingu á orðið. Í gær spurði hún hvort maðurinn mætti "parka" bílnum þarna. Bíllinn var utan vegar.
Í einstaka tilfellum þýðir Kolbeinn beint yfir af enskunni á slæma íslensku. Í morgun gekk hann frá morgunmatnum og lét ostinn og fleira á sinn stað. Þá var hann "að láta allt til baka." Þegar ég benti honum á þetta vissi hann að það ætti að segja "ganga frá matnum" en fannst þetta léttara sagði hann.

mánudagur, 5. júlí 2004

Ég hef alltaf vitað það að forsetinn hefur synjunarvald. Af hverju þykjast sumir ekki vita það? Auðvitað mátti Óli neita að skrifa undir lög um fjölmiðla. Það stendur í landslögum. Auðvitað fer þá fram þjóðaratkvæðagreiðsla. Það stendur mjög skýrt í 26. grein laganna. Svo koma Davíð og hans kumpánar fram í fjölmiðlum og bulla og þeir halda að við trúum þeim. Nei, við erum ekki svo heimsk. Þvílíkur sandkassaleikur. Þeir þora einfaldlega ekki að láta þjóðina kjósa. Þeir þora ekki að takast á við útkomuna. Af því segja þeir: "Allt í plati, rassagati", og draga fjölmiðlafrumvarpið til baka.

sunnudagur, 4. júlí 2004

Grikkir unnu EM.
Hvað nú?
Ég er bara dálítið ráðvilt.
Í alvöru.
Grillpartýið á Heinó lukkaðist aldeilis vel. Aumingja þeir sem ekki komust vegna fjarlægðar eða anna á öðrum vettvangi. Hver og einn grillaði sína steik af eldmóð í bakgarðinum sem við höldum að hafi aldrei verið notaður áður þrátt fyrir að húsið sé 30 ára gamalt. Veðrið lék við hvurn sinn fingur og allir skemmtu sér vel. Fjórar kynslóðir voru mættar og gerast fjölskylduteiti vart betri. Yfir vötnunum sveif andi orðanna: "Mikið hefði Sigga amma haft gaman að þessu."

fimmtudagur, 1. júlí 2004


Að kvöldi komið.... Posted by Hello
Já, það er "full time job" að vera amma þegar tíu ára og fjögurra ára eru til heimilis.
Ég hef verið að velta því fyrir mér, hvernig ég fór að því að halda heimili með tvö lítil börn, með þriggja ára aldursmun, karlinn úti á sjó og ég í fullu starfi sem kennari. Krafturinn var þá til staðar. Það þurfti að sinna kennslunni, þrífa húsið, kaupa inn, elda, þvo, hengja upp, strauja, btjóta saman og svo var bakað, sultað og tekið slátur, saumuð föt og prjónuð. Ýmsum félagsstörfum var sinnt svo og skemmtanalífinu. Þessa stundina er ég "bara" amma og get ekkert gert annað. En það er líka ofsalega gaman.

mánudagur, 28. júní 2004

"Flettu því upp." "Ég skal fletta því upp." Setningar á borð við þessar fóru fyrir brjóstið á börnunum mínum á unglingsárum þeirra. "Oh, hún mamma þarf alltaf að fletta öllu upp." Þeim fannst þetta hallærislegt. En það þurfti stundum að finna út hver væri höfundur ljóðs, hver sagði hvað við hvern í Njálu, stafsetja rétt, eða hvað það nú var sem kom uppá í umræðunni. Í dag væri sjálfsagt farið á netið til að afla upplýsinga.
Ég varð heldur en ekki ánægð um helgina þegar Nanna, litla fjögurra ára, kom að máli við mig með blómvönd í hendi.
"Amma, hvað heita öll þessi blóm?"
"Þetta eru baldursbrá, sóley, geldingahnappur, gleymmérei, gullmura, dagsstjarna en hér er eitt sem ég veit ekki hvað heitir."
"Við skulum þá bara fá bók sem stendur í hvað það heitir," sagði barnið.
Mér finnst ég hafa uppskorið því sem ég sáði.

sunnudagur, 27. júní 2004

Það er aldeilis búið að taka á fótboltanum um helgina.
Höfðnginn, Karl Kolbeinn, spilaði með Ægi á Borgarnesmótinu og dvöldum við þar um helgina. Við áttum samastað á Mótel Venus því við erum langt kominn með kvótann í tjaldútilegu, allavega þegar spáð er rigningu. Ég pakkaði eingöngu niður fatnaði með rigningu í huga og var með hroll um mig alla á meðan. Það rættist sem betur fer úr veðrinu og var alveg þolanlegt alla helgina. Það var dálítill vindur og sólin lét sjá sig öðru hverju og meðan ekki rignir er allt fyrirgefið hvað veður snertir. Ægismenn tefldu fram nokkrum liðum á mótinu og var misjaft gengi þeirra eins og von er vísa. Minn maður lék með 5. flokki og hefði viljað að þeim gengi betur en hann sættir sig ótrúlega vel við lyktir miðað við keppnisskapið sem hann býr yfir. Yngstu krakkarnir í Ægi voru aftur á móti í fyrsta sæti. Gott hjá þeim. Mér finnst langskemmtilegast að fylgjast með þeim spila.
Nanna litla, ömmuljós, var ótrúlega góð alla helgina. Hún er mikill dundari og þarf ekki að hafa mikið fyrir henni. Hún tekur reyndar upp á því stöku sinnum að skipa okkur fyrir og þá hlýðum við bara. "Amma, stattu aðeins upp." Og þá stend ég upp. "Afi, komdu." Og þá kemur afi. Svo einfalt er það nú.

miðvikudagur, 23. júní 2004

Það er gott að vera amma.
Það er gott að finna litla arma um hálsinn.
Það er gott að heyra í gargandi tölvuleikjum.
Það er gott að þurfa stússast í eldhúsinu.
Það er gott að fara út á róló.
Það er gott að fara á fótboltakeppni.
Það er gott að vera amma.
Það er erfitt að sitja lengi á gólfinu í Barbie.

mánudagur, 21. júní 2004

Gestur Einar fékk nokkur prik hjá mér í morgun. Hann kvaddi viðmælanda sinn með orðunum: "Hafðu það gott í vinnunni alla vikuna." Venjulega tala þáttagerðamenn á mánudögum um að löng vinnuvika sé að hefjast og langt sé til helgarinnar. Því er troðið inn í kollinn á landslýð að vinnan sé böl. Enginn fær ósk um að hafa það gott nema það sé að nálgast helgi.
Ég er farin að telja niður þar til amerísku barnabörnin mín lenda á Fróni. Það eru bara tólf tímar núna klukkan sjö. Em þau lögðu af stað til Minneappolis klukkan hálf þrjú í dag. Þetta er ansi langt ferðalag fyrir lítil skinn.

sunnudagur, 20. júní 2004


Erla tók mig með í göngutúr í dag. Simmi keyrði okkur að Hafinu bláa og gengum við Skötubótina alla heim. Ég held að Skötubótin sé best geymda leyndarmál norðan Alpafjalla. Þvílík paradís sem þessi staður er. Við vorum alveg hissa á því að hitta ekki fyrir fólk á ferli því veðrið var svo gott og fegurðin þarna er engu lík. Við hittum reyndar þrjá litla krakka þegar nær dró bænum (þorpinu) en það voru börn aðkomufólks sem var að spila golf að þeirra sögn en börnin voru að leika sér í fjörubörðinu á sundfötum einu fata. Við, Erla, vorum aðeins einn og hálfan tíma að ganga þetta og vorum alsælar þegar við náðum byggð. Ég var búin að synda fimmhundruð metra í lauginni fyrir hádegi þannig að ég átti inni fyrir rjómapönnsu hjá mömmu í kaffinu. Posted by Hello
Það er greinilegt að hvorki Sigmundur Ernir né Sirrý hafa lesið Da Vinci lykilinn. Ég vissi svarið við fimm milljónkróna spurningunni í Viltu vinna milljón. Eingöngu vegna þess að ég er að lesa þessa frábæru bók.

laugardagur, 19. júní 2004


Ég eignaðist nýja græju í dag. Forláta myndavél frá Sony. Ég mátti til með að athuga hvort myndavélin gæti tekið mynd af okkur svona alein ....og það heppnaðist. Posted by Hello
Ég hef lang oftast hlaupið í Kvennahlaupinu. Í dag var ég í Króniku og náði ekki heim nógu snemma. Það var meira að gera en við bjuggumst við. En ég sá konurnar í Mosó mála bæinn bleikan. Þær voru rosalega margar. Ég hélt að þær ætluðu aldrei að hætta að fara framhjá. Þær voru flottar, það er engin spurning. Bleikar og sætar.

föstudagur, 18. júní 2004

Ég fékk höfuðhögg í gær. Fékk fiskikar í hausinn. Í ennið. Var nokkra klukkutíma að jafna mig. Er samt það aum í dag að ég held ég sleppi Jónsmessugöngunni sem ég var búin að ákveða að fara í (þó það sé ekki Jónsmessa alveg strax). Ég hagaði mér eins og hálfviti. Ég átti að fara upp úr lauginni þegar ég fékk karið í hausinn. Í staðinn dró ég það að bakkanum, með gleraugun í hendinni og risakúluna á hausnum og synti svo yfir aftur í stórri slöngu. Næstum ógerlegt að synda þannig en gerði það samt. Varð að standa mig. Ekki láta segja um mig að ég sé aumingi. Við töpuðum samt. Ætluðum að vinna fyrir hönd skólans. Keppni í óhefðbundnum íþróttum. Hausverkurinn sem ég fékk er ólýsanlegur. Það góða við þetta er að nú hef ég afsökun fyrir gleymsku og öðrum furðulegheitum í fari mínu. Ég fékk höfuðhögg.

miðvikudagur, 16. júní 2004


Við, Simmi minn, fórum út í búð áðan og keyptum nokkra flugmiða, þannig að þessar elskur verða komnar í fangið á okkur næsta þriðjudag. Þau ætla að fljúga ein frá Minneappolis til Íslands. Kolbeinn er alvanur þessu flugi, en Nanna síður enda miklu yngri. Þau fá flugfreyjufylgd á leiðinni. Við förum svo með þeim aftur út 2. ágúst og stoppum í nokkra daga. Æ, hvað ég hlakka til að fá að dúllast með þessi barnabörn mín í nokkrar vikur. Posted by Hello

þriðjudagur, 15. júní 2004

Í fyrra lífi, þegar ég var garðeigandi og ræktaði blóm og gras og tré, var miðað við að vera búin að slá einu sinni fyrir sautjánda júní. Allir vildu hafa fínt hjá sér á þjóðhátíðardaginn. Ég bý mér oft til einhverjar furðureglur til þess að muna hitt og þetta. Ég setti þennan slátt alltaf í sambandi við Hörpu litlu Guðfinns, því hún á afmæli fimmtánda og ég sló grasið alltaf þann dag til þess að vera örugglega búin fyrir sautjándann. Eitthvað hefur breyst frá því Harpa var lítil, því nú held ég að allir garðeigendur séu búnir að slá fyrir löngu og jafnvel tvisvar. Enda er Harpa þrítug í dag og margt breytist á skemmri tíma en þrjátíu árum. En af hverju ætti grasspretta að breytast? Það hlýtur að vera til skýring á því. Nenni ekki að pæla í því. Ég á ekki blóm og tré og bara orfá grasstrá. En Harpa litla Guðfinns fær hamingjuóskir frá mér með daginn.

mánudagur, 14. júní 2004

Tilfinningasveiflur

Allt er autt
húsið er tómt
hugurinn eirðarlaus
hjartað dapurt
sálin ein
þar til hurð er skellt
og söngur ómar
úr forstofunni.

sunnudagur, 13. júní 2004


Messan á Strönd í dag var tekin upp og verður útvarpað 8. ágúst. Við, í Söngfélaginu, stóðum okkur alveg þokkalega held ég. Séra Baldur talaði í prédikun sinni um velmegun okkar vesturlandabúa og fátækt, sjúkdóma og eymd annars staðar í veröldinni. Ýmislegt sem hann fjallaði um kom við kaunin. Fimm miljónir barna deyja úr sjúkdómum á ári í heiminum. Helmingur jarðarbúa þarf að lifa á 150 krónum á dag. Ríkidæmi okkar vesturlanda er fátækt annarra að þakka. Maður hrekkur við og íhugar smástund og fer svo heim og eldar góðan mat og belgir sig út þar til maður stendur á blístri. Mér kom í hug ljóð Njarðar P. Njarðvík, Barn í Bíafra.

Barn í Bíafra
bregður upp mynd sinni
eitt andartak
guðar það
á glugga sjónvarpsins

eitt andartk
horfir hungrið
inn í huga þinn
úr tærðu andliti
angistarfulls barns

eitt andartak
horfist sekt þín
í augu við sekt þína

eitt andartak
kemst þú við
klökknar og segir:
blessað barn
hvað þú átt bágt

og slekkur á sjónvarpinu
 Posted by Hello

föstudagur, 11. júní 2004


Fyrstu mánuðina sem Lúkas Þorlákur var til var hann svo alvarlegur að það var eins og hann bæri á herðum sér allar heimsins áhyggjur. Eftir að hann lærði að brosa virðist hann ekki hafa hætt því. Núna er eins og að lífið og tilveran sé bara til þess að hafa gaman af. Hann er alltaf jafn hress og kátur.  Posted by Hello

fimmtudagur, 10. júní 2004

Ég hef fylgst spennt með útdrætti Happdrætti Háskólans í kvöld. Skipst á að kíkja inn á textavarpið og heimasíðu happdrættisins. Ég á ekki miða í happdrættinu en við sem erum saman í léttvínsklúbbi notum öftustu tölu hæsta vinnings sem vinningsnúmer í litla skemmtilega leiknum okkar. Loksins birtist vinningsskráin á heimsíðunni. Sem betur fer vann ég ekki núna. Ég vildi alveg eiga allar flöskurnar tíu, það er ekki það. En af því ég fékk þær síðast vildi ég að einhver annar fengi pottinn núna. Það liti svo illa út ef ég fengi pottinn aftur af því ég kom klúbbnum á laggirnar. Það var heppinn kona, stödd í útlöndum, sem vann. Ég er búin að senda henni og öllum hinum sms skilaboð. Alvaldur aðalráður verður að standa sig sem formaður, skráningarstjóri, móttökustjóri og upplýsingafulltrúi klúbbsins, fyrst hann var að stofna hann.

miðvikudagur, 9. júní 2004


Vísindamaðurinn Kalli
Nýjustu rannsóknir í Bandaríkjunum sýna að....Vísindamenn í Bandaríkjunum hafa komist að....Þannig hljóma oft fréttir í ljósvakamiðlum eða fréttir í blöðum. Ég sé alltaf fyrir mér svakalega karla. Mikla spekinga. Mikla fræðimenn. Nú er strákurinn minn að verða einn af þeim. Jafnvel orðinn einn af þeim. Hann er alltaf að rannsaka svefn. Mikill svefnáhugamaður. Rannsakar rottuunga. Skrifar doktorsritgerð um það sem hann kemst að. Það er ekki hægt að segja frá því í stuttu máli hvað hann er að gera. Það er svo flókið. Það sem ég skil er að hann var valinn besti nemandinn í vísindum af Sleeping Research Society og fékk verðlaun. Þúsundir nema og annarra sóttu um með því að senda inn skýrslu af því sem þeir eru að gera. Þar á meðal prófessorinn hans Kalla. Kalli minn, strákurinn minn, var bestur. Hann var valinn besti nemandinn. Hann er núna í Fíladelfíu að taka á móti verðlaununum og verður þar af leiðandi að halda fyrirlestur á ráðstefnunni sem er haldinn í kjöfarið á valinu. Duglegur strákur Kalli. Strákurinn minn. Posted by Hello

þriðjudagur, 8. júní 2004


Þegar ég var sjö ára fékk ég hjól í afmælisgjöf. Pabbi keypti það af Páli sýslumanni og gerði það upp handa mér. Drífa Páls, sýslumannsdóttir, var fyrri eigandi. Ég var yfir mig hamingjusöm með "nýja" hjólið og Gréta systir fékk gamla hjólið mitt sem var stórt og mikið þrihjól. Ég man þegar ég eignaðist það, aðeins þriggja ára gömul. Það var keypt í Fálkanum og ég hjólaði út úr búðinni. Mjög stolt. Þriggja ára stór stelpa. Þessi mynd er tekin snemma morguns á 7 ára afmælisdaginn minn, 8.júní 1957.Sitjandi á afmælisgjöfinni.Ég náði ekki alveg niður á pedalann. Posted by Hello
Aumingja maðurinn, sem ég tek til hjá, varð svo um þegar hann fattaði um hádegisbil að það var afmælisdagurinn minn í dag að hann gat ekki á sér heilum tekið. Hann var ekki búinn að kaupa neina gjöf eða neitt. Mér var nú nokk sama. Afmælin koma of hratt orðið finnst mér. En þessi elska heimtaði að gefa mér skó. Hann vissi auðvitað að ég er með skódellu og ég sló hendinni ekki á móti þessu boði. Ég á nýja skó núna. Flotta skó.

mánudagur, 7. júní 2004

Ég ætla rétt að vona það að viðgerðinni á íþróttahúsinu fari að ljúka svo ég geti farið að synda aftur, því nú hlassast utan á mig aukakílóin aftur. Þvílíkt óréttlæti að mega ekki slaka á smá stund. Ég hef kannski borðað eitthvað meira undafarið en ég má en maður má bara ekki neitt. Maður má aldrei ekki neitt. Ég fengi ekki glansmynd hjá de danske núna. Eftir kvöldið í kvöld ætla ég að hella mér aftur í prógrammið þeirra. Það virkar ef maður fer eftir því. Og sundið, það virkar.

Keltneski víkingurinn Lúkas Þorlákur er orðinn 7 mánaða gamall. Varð það í gær. Á myndinni er hann um 5 mánaða í heimsókln hjá Gunnu ömmu og Simma afa.  Posted by Hello

sunnudagur, 6. júní 2004

Eftir messuna í morgun fórum við að leiðinu hennar tengdamömmu. Kalli tengdapabbi, þrír synir hans og við Jóna Stína. Við skiljum það ekki enn að hún skuli vera farin. Hún sem var sameiningartákn fjölskyldunnar. Hún hélt okkur saman, bar fréttir á milli og passaði okkur öll. Bar umhyggju fyrir okkur öllum, hlúði að og lét okkur finna fyrir væntumþykju, ást og blíðu. Margir spyrja okkur hvernig Kalli hafi það. Við getum aldrei dáðst nóg að honum. Hann er ótrúlegur. Ber harm sinn í hljóði en sýnir okkur skemmtilegu hliðina á sér. Við leiðið hlúði hann að blómunum og fannst þau ekki alveg nógu vel sett niður. "Það vantar aðeins meira mín megin," sagði hann.
Sjómannadagur
Selvogsbrautin er eins og gata í stórborg þessa stundina. Margir á ferli. Bílar aka um og fólk labbar úti í góða veðrinu. Greinilega mikið um að vera í bænum. Straumurinn liggur niður að höfn. Veðrið hefur allt að segja. Góður sjómannadagur.
Nú er ellin farin að segja til sín. Við nenntum ekki á sjómannaballið í gærkvöldi. Elduðum bara góðan mat, reyndar eins og alltaf, og kúrðum heima. Frábært. Höfðum það huggulegt. Ég söng svo í messu í morgun og ég var stolt af því að sjá að fimmtii hluti kirkjugesta var mitt fólk.

laugardagur, 5. júní 2004

Það var nóg að gera í Króniku í dag. Matur sendur út og margir borðuðu inni. Ég er bara orðin nokkuð lúnkinn við að útbúa crépes.
Bæði við að búa til pönnukökuna stóru á crépespönnunni og að að gera fyllinguna. Borðaði svoleiðis sjálf eftir sjálfa mig. Ummmm....

Hér er hið myndarlega og skemmtilega starfsfólk skólans. Posted by Hello
Við, Simmi minn, fórum í gær með starfsfólki skólans að sjá söngleikinn Chicago. Frábær sýning. Flottir dansar, flottir búningar, flottir strákar og flottar stelpur. Söngurinn æðislegur. Eftirminnilegur er leikur Eggerts Þorleifssonar. Ég hef aldrei "fílað" hann almennilega sem leikara. En hann fékk mörg prik hjá mér í gær fyrir sinn leik. Ég sá hann allt í einu í nýju ljósi. Flottur leikari. Skemmtilegt kvöld.

föstudagur, 4. júní 2004

Síðasti starfsmannafundurinnn var í morgun þó svo tveir vinnudagar séu eftir af þessu skólaári. Við, Ásta og Jón, notuðum tækifærið og buðum upp á afmæliskaffi. Slógum okkur saman. Buðum upp á brauð frá Mása og ýmislegt gúmmulaði með framleitt hér á landi eða útlöndum. Skemmtilegur siður að afmælisbörn bjóði upp á eitthvað. Sumir taka þetta alvarlega aðrir ekki. Eftir að skólaárið var lengt hef ég átt afmæli á skólatíma og það er svo í ár. En þegar ég var lítil átti ég afmæli um mitt sumar. Mér finnst það alls ekki lengur. Það er ekki einleikið hvað tíminn getur breyst á marga vegu.

miðvikudagur, 2. júní 2004

Ef ég fyndi rosalega mikið til í löppinni færi ég til Helga og kvartaði yfir því, svakalega aum, og bæri mig illa og segði honum að ég vissi bara ekkert hvað amaði að mér en ég vonaði að hann fyndi eitthvað út úr því. Þegar maðurinn, sem ég skúra hjá, finnur til í löppinni gengur hann draghaltur í hálfan mánuð og þegar hann getur varla dregist um hosiló lengur hringir hann í Helga, eftir áeggjan mína, og segir honum hvað sé að sér og hvernig pillur hann þurfi. Ég skil þetta ekki alveg, en hann er ekki haltur þessa stundina. Hann hefði kannski átt að verða læknir!

þriðjudagur, 1. júní 2004

Rigning.
Æ,æ.
Samt hlýtt og gott veður.
En blautt.
Rennandi blautt.

mánudagur, 31. maí 2004

Úff, hvað það var óhreint í eldhúsinu í Café Króniku þegar ég kom þangað klukkan 10 í morgun. Svakalega var hreint og fínt þar fjórum tímum síðar. En ég þurfti að fara í bað um leið og ég kom heim.

sunnudagur, 30. maí 2004

Söng í tveimur messum í dag.
Fyrst í Þorlákskirkju svo á Strönd.
Hvítasunnukaffi hjá mömmu.
Margir mættir.
Ekki allir.
Sumir eru að sóla sig.
Á sólaströnd.
Ásta mágkona kíkti við hjá okkur
í hosiló og Dóra Sif.
Alltaf gaman að spjalla við þær mæðgur.
Alltaf jafn gaman.
Góður dagur.
Góður letidagur.
Þrátt fyrir skyldustörf.

laugardagur, 29. maí 2004


Ég hef oft óskað þess að geta farið aftur í tímann til hennar ömmu á Velli þegar hún var ung með allan barnahópinn sinn. Það er ekki í boði en þessa frábæru mynd fékk ég senda. Hún er tekin árið 1925 Þegar amma var búin að eignast 11 börn. Eitt þeirra dó ungt. Þarna eru: Soffía, Guðrún, Sveinbjörn, amma með Margréti í fanginu, Sigursteinn, Ingvar, Ólafur, Ólöf, Guðfinna og Kristján. Ófædd eru: pabbi, Gísli, Aðalheiður, Jón og Helgi. Amma varð áttræð. Hún var fædd 1890 og dó 1970. Hún var yndisleg manneskja, hjartahlý og mjög skemmtileg. Posted by Hello

föstudagur, 28. maí 2004

Ég er eftir á, hef gleymt mér, er ekki með eða tek ekki eftir. Ég tala enn um þorpið, hreppinn, kaupfélagið, hreppsnefndina, bryggjuna, sveitarstjórann, hreppsvinnuna, A-götu og B-götu, Mundaver, Meitilinn og Gletting. Ég þarf greinilega að taka mig og reyna að halda í við nútímann. Ég vil helst ekki verða forpokað gamalmenni.

fimmtudagur, 27. maí 2004

Ég sat í þrjá og hálfan klukkutíma í bílnum mínum í gærkvöldi. Ég fór ekkert. Hefði getað keyrt langleiðina á Hornafjörð á þessum tíma en ég gerði það ekki. Ég sat í bílnum niður við höfn og horfði á strandað skip. Hernes. Vikurflutningaskip. Við, Simmi minn, ætluðum bara að skreppa og kíkja á þetta en við hljótum að hafa heillast eða orðið bergnumin því þegar skipið losnaði af strandstað var klukkan um hálf tólf en við fórum út upp úr klukkan átta. Við skiptum að vísu einu sinni um sjónarhorn en það var það eina sem við hreyfðum okkur þennan tíma. Ég skil þetta ekki alveg enn. Hvað var svona spennandi? Við botnuðum lítið í því hvað var að gerst. Horfðum á lóðsinn úr Eyjum og Ölver gera eitthvað en vissum ekki almennilega hvað og tíminn leið. Tíminn leið mjög hratt. Ótrúlega hratt.

miðvikudagur, 26. maí 2004

þriðjudagur, 25. maí 2004


Nanna ömmuljós er fjögurra ára í dag. Verst að geta ekki knúsað þessa dúllu í tilefni afmælisins. Ég verð að láta nægja að hringja og syngja. Hún verður vonandi ánægð með pakkann frá ömmu og afa. Hún ætlar að halda álfaprinsessuafmæli. Hún fékk álfaprinsessukjól frá Lúkasi frænda í Wales og það kemur álfamær í veisluna. Gestum verður boðið upp á pizzu og krækling. Kræklingur er uppáhaldsmatur Nönnu og bað hún um krækling í veisluna sína.  Posted by Hello

mánudagur, 24. maí 2004

Fór með 8. og 9. bekk í fjallgöngu í morgun. Sól og blíða. Dásamlegt veður. Vorum keyrð á Hengilsvæðið, gengum fyrir Ölkelduháls og þaðan niður í Reykjadali að Rjúpnabrekkum. Við hesthús Hvergerðinga biðu bílarnir. Fórum um jarðhitasvæði þar sem krakkarnir fóru í bað. Drullubað. Þeim fannst það toppurinn á ferðinni. Ég naut útiverunnar, göngunnar og útsýnisins.

sunnudagur, 23. maí 2004


Ég er montinn af stráknum mínum. Hann er búinn að fá vinnu í UCLA. Þriðja besta háskóla í USA. Hann fer þangað eftir eitt ár. Rannsóknarmaðurinn Kalli. Svefnrannsóknarmaðurinn og vísindamaðurinn. Los Angeles. Það er enn lengra þangað en til Iowa. Þar ætlar hann að vera í tvö til þrjú ár. Með Elsu sinni og ömmuljósunum mínum Kolbeini og Nönnu. Kolbeinn töffari. Fer í Junior High. Nanna í Elementary school. Posted by Hello

Lúkas Þorlákur meðan hann var enn með exem sár á kinninni sinni. Hann er góður í dag sem betur fer. Athugull strákur. Lukku Láki. Posted by Hello

Kalli og Svava Rán hittust á Íslandi í mars. Kalli sá þá Lúkas í fyrsta sinn. Við að sjá Kalla eftir tvö ár. Það er langur tími að sjá ekki börnin sín. Posted by Hello
Göngutúr.
Góður göngutúr.
Neshringurinn.
Smá skokk líka.
Vonandi sá enginn.
Við erum hálf álappaleg á skokkinu.
Gamla settið.
Getum það samt.
Erum bara nokkuð ánægð með okkur.
Þannig lagað.
Vonandi helst þetta góða veður.
Ég nenni ekki að ganga eða skokka í rigningu.

laugardagur, 22. maí 2004

Í gær var óvissuferð starfsfólks Grunnskólans. Þriðja helgin í röð hjá mér í vissu- eða óvissuferðum. Það var auðvitað alveg frábært. Verst hvað veðrið var leiðinlegt, rigning og meiri rigning. Við vorum í nokkurs konar keppni alla ferðina. Fjögur lið sem unnu sér inn stig í ýmsum þrautum. Ég var liðstjóri í mínum hóp og mér fannst við standa okkur mjög vel. Nonni og gærurnar hét liðið. Við áttum heróp, baráttusöng og skemmtiatriði. Lentum samt í þriðja sæti. Ótrúlega óréttlátt. Við hoppuðum líklega of hægt í snú-snú. Borðuðum lambalæri að Leirubakka í Landsveit. Gaman. Öðruvísi.
Ég vildi að ég gæti kysst hana Grétu systir til haminju með 50 ára afmælið en hún er á Spáni. Það væri ekki amalegt að vera þar með henni. En þetta er sá tími í skólanum þar sem erfitt er að fara frá. Ég gat kysst hana mömmu til hamingju með 75 ára afmælið sem var í gær. Hún fór til Spánar en kom heim daginn fyrir afmælið.

fimmtudagur, 20. maí 2004

Það var þéttsetinn bekkurinn í Strandarkirkju
eins og alltaf þegar messað er þar.
Þéttsetinn bekkurinn af fólki.
Þéttsetinn af trúuðu fólki.
Presturinn í Hveragerði þjónaði fyrir altari.
Séra Baldur predikaði.
Hann talaði um stríðshrjáðan heim eins og áður í sinni predikun.
Hann vonaði líka að guðs vilji verði á jörðu og himni.
Þegar maður sér í fréttum slösuð eða dáin börn vegna stríðsátaka spyr maður sjálfan sig hver sé vilji hans.
Maður finnur fyrir öllum þessum frídögum þegar maður er að reka veitingahús sem byggir á iðnaðar-og verkamönnum sem vinna virka daga og þurfa almennilegan íslenskan mat í hádeginu. Ég legg til að við hættum þessari hræsni og fækkum frídögum sem hafa orðið til vegna trúarinnar. Í Ameríku er það eingöngu ofsatrúarfólk sem tekur frí þessa daga og á Bretlandi fer fólk til vinnu þegar við erum með annan í þessu og annan í hinu. Við nennum ekki að vinna og notum hvert tækifæri til þess að hanga heima.

þriðjudagur, 18. maí 2004

Mikið er það nú svekkjandi þegar maður fer að heiman að morgni í támjóum skvísuskóm og stuttum leðurjakka og lendir svo í rigningu á leiðinni heim í hádeginu. Það er líka svekkjandi þegar maður missir ofan á sig tómatsneið, í þessu sama hádegi, og hún lendir ofan í brjóstvasa á nýþveginni og straujaðri skyrtu. En maður bítur bara á jaxlinn og bölvar í hljóði. Einhver kenndi mér það fyrir margt löngu.

mánudagur, 17. maí 2004

Mikil undur og stórmerki eru tölvur og það sem þeim tilheyrir. Við, Simmi minn, fylgdumst með Lúkasi Þorláki borða kvöldmatinn sinn í gær. Við horfðum á hann og heyrðum líka í honum. Ótrúlegt. Hann situr bara eins og fínn maður og lætur mömmu sína mata sig. Kominn með tvær tennur og borðar orðið allt. Við, amman og afinn, störðum á tölvuskjáinn með bros út að eyrum og vorum örugglega frekar fávitaleg, skríktum og hlógum en áttum varla orð til að lýsa því hvað barnið er myndarlegt og fallegt. Þegar hann eldist verður þetta orðinn eðlilegst hlutur í heimi, að tala saman í gegnum tölvuna.

sunnudagur, 16. maí 2004

Það er skemmtilegt fólk í Söngfélagi Þorlákshafnar.
Óvissuferðin var skemmtileg.
Skemmtileg óvissa.
Allur sólahringurinn var mjög skemmtilegur.
Ég gleymdi alveg að vera hrædd við óvissuna um leið og rútan lagði af stað.
Af því þetta var júróvisíondagur ríkti júróvisíonstemmning í hópnum. Gömul júróvisóionlög voru æfð og flutt. Veðbanki var í gangi um gengi okkar manns. Ég spáði honum áttunda sætinu af því átta er talan mín. Simmi spáði 19 sætinu af því 19 er talan hans. Hann vann sem sagt pottinn. Skipti honum reyndar með öðrum en varð nokkrum þúsundköllum ríkari. Komum heim úr ferðinni ríkari en við vorum við upphaf hennar. Þvílík lukka sem ríkir yfir okkum hjónunum þessa vikuna. Ég rauk í að athuga Lottótölurnar en ég var bara með tvær réttr. Það dugir víst ekki.

laugardagur, 15. maí 2004

Nú bíður óvissa.
Mikil óvissa.
Söngfélagsóvissa.
Mér líður betur þegar farið er í vissuferðir.
En læt mig hafa það.
Ég má ekki missa af neinu.
Er í útifötum.
Bíngódress í tösku og hvítvín.
Simmi minn tilbúinn og ætlar með í þetta skipti.
Bjór í bakpoka og tannbursti.
Kem eftir 24 klukkutíma.


föstudagur, 14. maí 2004

Vann í Króniku eftir vinnu í dag.
Nú eru komnir koflóttir dúkar á borðin.
Og kertastjakar.
Hjálpaði Maríu að skreyta með gerviblómum.
Ég skreytti með gerviblómum.
Við hengdum gerviburkna upp um allt.
Gervibukna. Ég.
Annaðhvort læt ég ráða yfir mér eða ég þekki mig ekki.
Það er svo fínt í Króniku núna.
Loksins alvöruveitingahús.
Café Krónika.
Það var opið til klukkan níu í kvöld
enda nokkrir kallar að borða
og fá sér bjór og hafa það huggulegt.
Mjög huggulegt.

fimmtudagur, 13. maí 2004

Nú eru kræsingarnar orðnar svo ómótstæðilegar í Króniku að það er engin leið að standast þær.

miðvikudagur, 12. maí 2004

Talan átta kom upp. Ég er 10 flöskum ríkari. Ég sem sagði við hann Simma minn í gær að ég vonaði að ég ynni ekki svona í fyrsta sinn af því ég dreif í stofna klúbbinn með látum. Ég er greinilega bara mjög heppin manneskja.

þriðjudagur, 11. maí 2004

Ég stofnaði léttvínsklúbb í dag. Stal hugmyndinni frá samstarfsfélögum, sem stálu henni annars staðar frá. Við erum 10 í klúbbnum og ég skipaði sjálfa mig sem formann og skráningarstjóra. Klúbbfélagar völdu sér tölu frá 0-9. Ég valdi mér auðvitað átta. Allir komu svo með eina flösku til mín í dag og nú er að bíða eftir því að það verði dregið í Happdrætti Háskólans, því sá sem hefur öftustu töluna í stærsta vinningi Háskólans hefur unnið allar flöskurnar.

mánudagur, 10. maí 2004

Í dag eru 40 ár síðan ég fermdist. Ég fermdist í Selfosskirkju ásamt 40 öðrum krökkum. Séra Sigurður Pálsson fermdi. Það var sól og blíða þennan dag. Ég var í bláum kjöl sem hún Rannsí saumaði á mig og með hvíta nelliku í hárinu. Lykt af nelliku minnir mig æ síðan á ferminguna. Á laugardaginn var hittumst við fermingarsystkinin í tilefni afmælisins. Við hittumst 19 krakkar á Selfossi klukkan fimm í bakarínu hans Guðna, fórum í skoðunarferð um Selfoss undir leiðsögn Gúnda og Valla, keyrðum í Ölfusið þar sem Hannes tók við fararstjórn og borðuðum svo öll saman á Hafinu Bláa.
Það var gaman.
Það var rosalega gaman.
Frá fyrstu mínútu var gaman.
Það var gaman allan tímann.
Mikið rosalega var annars gaman.
Mikið á ég skemmtileg fermingarsystkin.

föstudagur, 7. maí 2004

Í Bónus með Grétu systir.

Bónus, Bónus herm þú mér
er ódýrast að verlsa hjá þér?
Jóhannes brosti í kampnn og hló
en Jón Ásgeir bjó
um sig
í hjörtum landsmanna.
Nítján ferðir bringusund, léttar teygjur við bakkann djúpulaugarmegin, baksund yfir.
Líður eins og fuglinum fljúgandi. Frjáls. Svíf á vatninu.
Líkamsrækt dagsins aflokið. Góð tilfinning. Mjög góð.
Lauginni verður lokað um óákveðin tíma.
Á von á að fitna eins og þessi sem sat á fjósbitanum.

Er að velta fyrir mér hlaupaskónum þeim reyðfirsku.
Spegill,spegill....

Allir sáu hvað hún var illa til höfð
fötin fóru illa
buxurnar ópressaðar
hárið klesst
skórnir óburstaðir
Spegillinn sagði:
"Ekki gleyma varalitnum heima."

fimmtudagur, 6. maí 2004

Litli prinsinn minn af Wales er 6 mánaða gamall í dag. Fyrir 12 dögum síðan vorum við saman, heima hjá honum, í 20 stiga hita og klæddum okkur í sumardressið okkar, sem er alveg eins. Hvítur bolur og kvartbuxur úr hör.
Óskalisti

Ég vildi óska að það væru leikföng út úm allt.
Ég vildi óska að það væru fleiri raddir í kringum mig.
Ég vildi óska að ég þyrfti að reima skó.
Ég vildi óska að ég þyrfti að setja meira í pottana.
Ég vildi óska að ég væri að kaupa bleiupakka.
Ég vildi óska að ég segði stundum:"Ertu búinn að læra?"
Ég vildi að sumir vegir væru styttri.

þriðjudagur, 4. maí 2004

Hér fór fram mikil viðhöfn á dögunum. Maðurinn, sem ég sef hjá, fékk í jólagjöf fyrir einum 17 árum síðan forláta mikil kúrekastígvél. Hann hefur gengið í þeim síðan. Skiptir ekki máli hvernig búningurinn er sem maðurinn klæðist, alltaf hefur hann notað kúrekastígvélin. Vð spariföt, léttan klæðnað, gallabuxur, smóking og stuttbuxur. Veðrið hefur heldur ekki skipt máli. Stígvélin hafa verið notuð í sól og blíðu, kulda og trekki, rigningu og krapa, frosti og fannbyl. Nokkrum sinnum hafa þau fengið yfirhalningu hjá skósmið.
Um daginn benti ég manninum á að hann væri ekki lengur snyrtilegur í þessum stígvélum og benti honum ofurvarlega á gat hér og gat þar á stígvélunum. Orðið snyrtilegur fór eitthvað fyrir brjóstið á honum svo að hann kyssti stígvélin, viðhafði hugljúf kveðjuorð og lagði þau, í orðsins fyllstu, á hilluna. Núna skreyta stígvélin forstofuna í hosiló. Það hefur hvarflað að mér að láta gylla þau, eins og sumir gerðu við barnaskó hér á árum áður en ég held ég hafi þau eins og þau eru. Skökk, skæld og götótt.

föstudagur, 30. apríl 2004

Ég sá grasið grænka í gær. Mig langar út núna til þess að heyra það vaxa en ég er búin að láta bókhaldið sitja svo lengi á hakanum að það gengur ekki lengur.


þriðjudagur, 27. apríl 2004

Á rölti okkar um Chester varð á vegi mínum einn af þessum sem láta mig fá í hnén. Það er alveg sama hvernig maðurinn lítur út, bara ef hann er í pilsi. Hann þarf ekkert endilega að spila á sekkjapípu en það er ekki verra.
Ekki fer nú alltaf allt eins og ráðgert er. Laugardagurinn var æðislegur framan af. Við fórum til Englands, til Chester, í steikjandi hita og blíðu. Við lögðum bílnum fyrir utan borgina og tókum strætó inn í miðborg. Það er svo erfitt að finna bílstæði þar. Borgin er mjög falleg og allt svo hreint og snyrtilegt. Þar eru borgarmúrar frá dögum Rómverja. Við gengum eftir múrnum en könnuðum ekki hvort hann sé allur heill enn þá. Ég geri það bara næst. Iðandi mannlíf var í miðborginni og mjög gaman að ganga þar um. Aðeins var kíkt á veitingastaði og búðir. Þegar heim kom um kvöldið bjuggu Svava Rán og Dave sig upp og fóru á stredderí í fyrsta skipti saman síðan á þorrablóti í Þorlákshöfn 2003. Við, gamla settið, fengum að passa Lúkas. Það er ekki erfitt, við sitjum og horfum á barnið og dáumst að því. En þá gerðist það. Hann fékk allt í einu einkennileg útbrot og varð svo allur rauður. Okkur leist nú ekkert á þetta og vorum komin á fremsta hlunn með að hringja í foreldrana en liturinn hvarf af barninu og hann sofnaði vært svo við gerðum það ekki. Í hádeginu á sunnudeginum þegar við vorum að fara að búa okkur til að fara upp í sveit (í Wales) og skoða gamla kastala og minjar fékk Lúkas aftur svona einkenni en miklu sterkari og nú bólgnuðu augun líka og hann leið út af. Það var erfið stund að upplifa. Við fórum öll í hendingskasti með barnið á bráðamóttöku á spítala þar sem hann fékk meðhöndlun gegn bráðaofnæmi. Líklegast er ofnæmið vegna pensilíns sem hann hefur verið að taka vegna sýkingar í annarri kinninni. Hann var lagður inn en fékk samt að fara heim um kvöldið af því hann var orðin góður. Mánudagurinn fór svo einnig í spítala- og læknastúss með drenginn. Við Simmi könnuðum þá miðbæ Wrexham ofan í kjölinn. Við fórum í kirkju sem heitir The Parish Church of St. Giles. Elstu heimildir um hana eru frá elleftu öld. Þar inni kveiktum við á kertum og báðumst fyrir. Hver ástvinur fékk sitt kerti og sína bæn. Litla familían skutlaði okkur til Manchester um kvöldið og Lúkas lék á alls oddi sem betur fer.

laugardagur, 24. apríl 2004

Ég er nú ekki alltaf ánægð með fótboltaáhugann á heimilinu en þegar fótboltaáhugamenn taka sig til og panta leiguflugvél og fljúga beint til Manchester til þess að fara á leik verð ég uppnumin af hrifningu. Ég fékk sem sagt far í gær með mönnum á leið á Old Trafford að sjá Manchester United spila við Liverpool. Þetta flug tekur bara tvo og korter. Svava Rán, Dave og Lúkas tóku á móti okkur og bíltúrinn heim í Rhosllenercrugog tekur 40 mínútur. Veðrið alveg hreint frábært, sólin skín á okkur og allur gróður orðin grænn og blóm sprungin út. Þjóðarblómið þeirra Walesverja er pásklilja og vex hún hér út um allt. Við fórum í bæinn að skoða okkur um. Þá förum við sem sagt til Wrexham. Rhos er eins og Kópavogur en Wrexham Reykjavík. Simmi eldaði æðislegan humarrétt handa okkur þegar við komum heim. Dave hafði aldrei borðað humar áður. Áttum svo notalega kvöldstund. Vöknuðum snemma í morgun. Notum hverja stund sem gefst til að leika við Lúkas. Erum búin að taka morgungöngu um hverrfið þeirra. Hér er allt svo krúttlegt og sætt. Allir svo vingjarnlegir. Fólk heilsar og spjallar aðeins um allt og ekkert. Við erum á leið til Chester að skoða gamlar minjar frá Rómverjum.