Loksins rann dagurinn upp sem ég hafði beðið svo spennt eftir í rúmt ár. Aðgerðardagurinn. Brjóstaminnkunardagurinn. Ég hafði fengið daginn 7. maí úthlutaðan en hann var tekinn af mér og aðgerðinni seinkað um hálfan mánuð. Það kom sér vel, vegna vinnunnar, þannig að ég var alveg sátt. Mánudaginn, 21. maí, skutlaði Simmi minn mér á Landsspítalann Fossvogi, kvaddi mig þar um 10 leytið og ég hóf undirbúning fyrir aðgerð. Ég var náttúrlega fastandi, þannig að undirbúningur var byrjaður og ég hafði farið í sótthreinsandi sturtu kvöldið áður en nú fór ég aftur í sturtu og þvoði mér samkvæmt fyrirmælum, háttaði ofan í rúm og beið smá stund. Þá var mér ekið í rúminu á skurðstofu , sem var á einhverri annarri hæð. Ég hitti Þórdísi Kjartansdóttur, lýtalækni og hún mældi brjóstin á mér út með venjulegu málbandi og teiknaði á þau hin ýmsu strik með svörtum tússpenna og spurði mig hvaða stærð ég óskaði eftir. "C," svaraði ég. Ég veit ekki enn hvort mér hefur orðið að ósk minni. Svo man ég að ég fékk net til að setja yfir hárið, sem var nóta bene blautt eftir sturtuna, og horfði upp í skurðstofuljós, fékk æðalegg, klukkan var hálf eitt og svo veit ég ekki meir fyrr en einhver sagði eitthvað við mig klukkan hálf fimm. Ég var meira og minna vönkuð það sem eftir lifði dags og margt er í þoku. Ég man þó að áður en nóttin skall á vildu hjúkkur að ég færi fram úr. Ég gat ekki staðið hjálparlaust, fékk stuðning og bað um að fara á klósettið. Ég var leidd þangað og þá gerði ég mér grein fyrir að ég var með dren úr báðum brjóstum. Það tók í og ég fann svo mikið til og svimaði svo mikið að ég gleymdi að hugsa um lítil brjóst.
Ég svaf mest lítið um nóttina. Lá á bakinu og leið þokalega vel.
Dagur tvö leið hratt, ég fékk morgunmat og borðaði hann með góðri lyst, eins og allan mat, naut umönnunar frábærs starfsfólks og hlustaði á útvarp. Simmi kom og einnig Kallli og Nanna.
Venjulega fara konur heim sólarhring eftir aðgerð en vegna drenlagnana fékk ég að vera annan sólarhring til. Mikið var ég fegin. Drenlögnin fór illa í mig. Bara það að vita að rör lægju inn í líkamann var óhugguleg tilhugsun.
Ég horfði á sjónvarpið um kvöldið, þ.á.m. fyrri undanúrslit í Júróvision þar sem Gréta Salóme og Jónsi komust áfram. Ég svaf vel alla nóttina og morguninn líka, þrátt fyrir annir á spítalanum.
Um morguninn, á degi þrjú voru drenlagnirnar teknar. Það var ekki þægilegt en mér fannst útilokað að kvarta þar sem þetta var sjálfskaparvíti hjá mér. Þ.e. ég bað um aðgerðina en fékk ekki einhverja veiki. Mér leið pínu eins og aðskotahlut eða svindlara þar sem ég lá innan um alvörveikt fólk. En þetta var bara mín eigin hugsun. Allir hafa staðið pottþétt við bakið á mér. Líka starfsfólkið á spítalanum. Simmi minn kom um hádegisbil og fór ég með honum heim. Sat eða hálflá í stól allan daginn og reyndi að hafa það næs en varð bara þreyttari og þreyttari í bakinu. Svaf eiginlega ekkert um nóttina vegna þreytuverkja í bakinu en varð samt að liggja á því. Þori að leggjast á hliðina.
Dagurinn í gær var þokkalegur. Simmi er eins og besti læknir. Hann skipti um á skurðinum og klæddi mig í annan haldara. Hann stjanar við mig.
Ég fann svo í morgun þegar ég vaknaði, eftir góðan nætursvefn, að mér leið miklu betur en veit að ég á taka lífinu með ró og mun gera það.