Síður

föstudagur, 11. janúar 2013

Bóklestur

Fyrsta rafbókin mín
Þegar ég var í Háskólanum, hérna um árið, sagði Njörður P að við ættum að lesa tvær bækur á viku eða 104 bækur á ári. Þetta situr alltaf í mér. Mér finnst að ég eigi að gera þetta en hef líklega aldrei komist nálægt þessari tölu.
Um áramótin, í fyrra, keypti ég litla bók, á bókasafninu, þar sem maður skrifar niður allar bækur sem maður les, höfundinn, dagsetningu og úrdrátt úr bókinni. Fyrsta bókin sem ég skráði var jólabókin sem ég fékk á síðustu jólum, en það var Jójó eftir Steinunni Sigurðar og síðasta bókin sem ég skráði var Veiðimennirnir eftir Jussi Adler Olsen, en hana kláraði ég rétt fyrir jól. Sú bók reyndist vera númer 32. Ég náði að lesa 0,6 bækur á viku árið 2012.
Nú stendur til að gera betur. Ég fékk þessa fínu spjaldtölvu í jólagjöf og keypti mína fyrstu rafbók á aðfangadagskvöld en það var Dóttir húshjálparinnar eftir Barböru Mutch.
Mér finnst miklu auðveldara að lesa á spjaldtölvuna heldur en í bók en ég mun varla tíma að kaupa allar bækur sem mig langar að lesa, þannig að að ég verð nú að taka eina og eina venjulega bók, af bókasafninu,  inn á milli.
En byrjunin lofar góðu.

mánudagur, 7. janúar 2013

Að kenna fullorðnum

Fræðslunet Suðurlands
Ég tók að mér verkefni fyrir Fræðslunet Suðurlands á síðastliðinni haustönn. Hringt var í mig og ég beðin að kenna fullorðnum íslensku í Þorlákshöfn þar sem til stæði að setja upp útibú Grunnmenntaskóla, frá Selfossi. Ég hélt fyrst að ég réði ekki við þetta verkefni  en féllst samt á að koma á fund og ræða málið við verkefnastjóra. Þegar mér varð ljóst að námefnið yrði nánast sama efni og 10. bekkjar námsefni þá sló ég til. Ég kann 10. bekkjar námefnið, þannig lagað. Ég kenndi 60 kennslustndir á haustönn og nú er síðasti hlutinn að hefjst. Ég á eftir að kenna 30 stundir og þá eiga nemendur mínir að geta tekið 102 í íslensku. Þá kemur að því að ég þarf að hugsa upp úr grunnskólanum og á framhaldskólastigið. Það verður nú bara gaman enda ég er ég byrjuð að undirbúa væntanlegt próf.
Í morgun undirbjó ég mig aftur á móti til þess að kenna Auðunar þátt vestfirska í næsta tíma ásamt ýmsum, blönduðum  verkefnum í málfræði.
Það er ótrúlega skemmtilegt að kenna fullorðnum.

laugardagur, 5. janúar 2013

Spjaldtölvur

Nýja flotta spjaldtövan mín
Ég fékk í jólagjöf frá honum, Simma mínum, spjaldtölvu. Hann hafði heyrt mig tala um það að mig langaði í svona grip, áður en ég yrði of gömul til að læra á hann. Sem betur fer náði hann þessari ósk minni þannig að úr varð jólagjöf.
 
 Ég hef oft sagt að ég voni það að tækninni fleygi ekki það ört fram, á meðan ég er ofar moldu, að ég geti ekki fylgst með. Oft hef ég líka sagt að nú sé bara komið nóg í bili. Maður hefur ekki við að skilja allar nýjungar. En það er alltaf eitthvað nýtt, eiginlega á hverjum degi.
                                                                                       
Ég sá og skildi kosti spjaldtölvunnar fyrir mig. Það er í þokkalegu lagi með sjónina mína nema til lestrar. Mér finnst stafirnir dansa og allt letur í móðu þannig að ég var farin að lesa uppi í rúmi með bensíngleraugu ofan á mínum eigin gleraugum og til viðbótar leslampann alveg ofan í bókinni. Spjaldtölvan hefur innibyrgt ljós og maður getur valið sér leturstærð. Þetta sá ég í hillingum með öldrun í huga. Ég get ekki hugsað mér framtíðina án lesturs góðra bóka. 

Nú er ég búin að læra á gripinn. Svava Rán byrjaði að hjálpa mér að skilja en ég var svo heppin að vera stödd hjá henni í Wales þegar ég tók jólapakkann upp. Hún tengdi tölvuna við netið og strax þarna, á aðfangadagskvöld, keypti ég fyrstu rafbókina mína. Ég fékk svo Magnþóru til mín og fékk hjá henni góða kennslu á þetta. Ég lærði líka að maður verður að spyrja eins og fávís kerling til að fá svör við öllum spurningunum sem brenna á manni.
                                                                                                          
Hvernig getur bók allt í einu verið í litlu spjaldtölvunni minni? Stórundarlegt.
                              
 Ég er alveg hrikalega ánægð með jólagjöfina frá honum, Simma mínum, í ár.

föstudagur, 4. janúar 2013

Aftur til vinnu

Grunnskólinn í Þorlákshöfn
Skólinn byrjaði aftur í dag eftir jólafrí. Ég þurfti ekki að mæta til kennslu þar sem ég kenni ekki á föstudögum en ég fór samt upp í skóla, eftir indælt morgunsund, til þess að skrifa pistil í Bæjarlíf. Þar sem pistlarnir mínir heita Skólalíf var skrýtið að fara að skrifa um skólalíf, fyrsta dag eftir jólafrí. En mér datt bara í hug að tala um jólafrí, svona yfirleitt og spjallaði svo við nokkra nemendur um jólafrí og tók nokkrar myndir af þeim til aðskreyta pistilinn með. Ég veit að þetta er væmið og alls ekki skemmtilestur en samt eitthvað.

fimmtudagur, 3. janúar 2013

Árið 2012 í hnotskurn

Simmi minn er alltaf að læra eitthvað nýtt á tölvuna sína. Seigur sá gamli.
 Kominn á facebook en tjáir sig lítt þar. Segir það vera vegna gamallar lesblindu.


30. mars áttum við, Simmi minn, 40 ára brúðkaupsafmæli.
Við erum bara nokkuð lukkuleg með hvort annað.
 
 
 

40 ára brúðkaupsferðin var farin í apríl.
 Heimsóttum dótlu í Wales og notuðum tækifærið
 og fórum með lest til Liverpool og auðvitað á Bítlaslóðir.
Það var kannski mest gert fyrir mig.

21. maí rann upp stór dagur. Ég fór í brjóstaminnkun.
 Ein sú besta ákvörðun sem ég hef tekið.
Þó að aðeins um hálft kíló hafi verið tekið af hvoru brjósti er það ótrúlega mikill léttir

 
Allar helgar sumarsins förum við eitthvert með Sólbrekku í eftirdragi
og slökum á úti í guðsgrænni náttúrunni.



Við fórum hringinn í ágúst og komum m.a. við í Atlavík.
Það fór hitinn upp í 28 gráður.
 
Þegar hausta tekur er farið að huga að vetrarforðanum.
Nokkur slátur voru tekin og einn hestur á fæti
til að salta í tunnu en blessuð skepnan er lifandi enn.

Hekla er orðin eins árs. Hún var hjá okkur eina helgi í byrjun desember.
Hún var farin að ganga um 10 mánaða aldur og kann mörg orð. Hún tekur fjarstýringuna og bendir henni á sjónvarpið og segir: "Pó." Það þýðir að hún vill sjá Stubbana.


Jólunum var eytt í aðmi dótlu og fjölskyldu í Wales.
Höfðum íslensk jól á aðfangadagskvöld og svovar okkur  boðið í mat
 á jóladag til tengdaforeldra Svövu Ránar. Lúkas Þorlákur var alveg hlessa á öllum þessum gjöfum.
"People must really like me," sagði hann þegar hann sá að hann átti flesta pakkana.


Við komum heim á annan í jólum
og eyddum áramótunum með Kalla og kó hjá Dóru Sif og kó.
 







miðvikudagur, 22. ágúst 2012

Fitusog

Flott breyting eftir fitusog
Hitti Þórdísi lýtalækni morgun. Það var síðasta skoðun frá því brjóstaaðgerðin fór fram.. Það voru 13 vikur á mánudaginn var frá aðgerðinni. Hún er hæst ánægð með sitt verk og hvað þá ég. Það er allt annað að vera með brjóst númer E eða GG. Ég held að mér líði betur andlega en líkamlega eftir breytinguna. Ég var voða fljót að venjast sjálfri mér. Mér finnst eins og ég hafi alltaf verið svona. En samt er ég enn hissa þegar ég handfjatla nýja brjóstahaldarann minn. Mér finnst hann svo krúttlega lítill.
Þórdís var búin að vara mig við að eftir aðgerð myndi ég verða meira var við bumbuna. Enda létti ég mig meira en hún bað um, bara til að vera betur undir bumbuáfall búin. Það kom í ljós að ég vissi ekki hversu stór maginn í raun væri. Ég sá aldrei neitt annað en brjóst. Núna er ég alveg ómöguleg yfir því hve maginn er stór. Ég er að reyna að passa upp á mataræðið og það gengur þokkalega nema hvað sumarfríið fór aðeins með það.
Ég er byrjuð aftur að synda reglulega en hef ekki komist í hlaupagírinn eftir sumarfrí.
Þórdís sáði frækorni í heilann á mér í morgun þegar ég kvartaði yfir stórum maga. Hún sagðist alveg geta hjálpað mér. Mér snarbrá og spurði hvort hún væri að meina að ég færi í svuntuaðgerð.
"Já, eða fitusog", sagði hún.
Nú get ég ekki um annað hugsað og er búin að lesa um fitusog á netinu og horfa á myndband þar sem einmitt hún Þórdís mín er að framkvæma fitusog á konu.
http://www.visir.is/section/MEDIA99&fileid=CLP815
Það ku vera rétt að sá sem fer í eina lýtaaðgerð getur ekki hætt.

þriðjudagur, 3. júlí 2012

Aftur að synda

Í gær voru sex vikur frá brjóstaaðgerðinni. Í bæklingnum, um brjóstaminnkun, stendur að það megi ekki stunda líkamsrækt fyrr en 6-8 vikum eftir aðgerð. Samt sagði einhver á spítalanum að ég ætti að hlusta á líkamann.
Ég fór í sund á föstudaginn í fyrsta skipti en synti bara 6 ferðir af því mér fannst ég finna fyrir "einhverju." Í gær skokkaði og labbaði ég 4 kílómetra og fannst litlu brjóstin mín hoppa of mikið í fína haldaranum. Allt í einhverju stressi hjá mér. Kannski er ég bara að passa mig of mikið og of hrædd við að gera hlutina.
Mér hefur alltaf þótt vont að setjast fram á rúmstokkinn á morgnana eða á nóttinni við næturpissið en í morgun fann ég ekkert til. Þvílíkur munur. Ég hef alltaf fundið eins og straum í brjóstunum eða eins og eitthvað streymi inni í þeim. Alveg eins og þegar ég fór fyrst á fætur eftir aðgerð. Það er andskoti vont. Vonandi er þessi "straumur" alfarinn.
Ég skellti mér í sund í morgun, með húnaflokknum og ég fann ekkert til í sundinu. Þorði meira að segja að prófa skriðsund og bakskrið og ekkert mál. Ég synti bara 20 ferðir en finn að þetta er allt að koma.
Kannski höfðu brjóstin bara gott af því í gær að hoppa pínu pons.

miðvikudagur, 27. júní 2012

Hlaupaföt

Ég gekk litla hringinn minn, rösklega, í gær en skokkaði hann í dag. Allan. Þrjá og hálfan kílómetra. Það kom enginn bakverkur en ég fann fyrir slöppum vöðvum í fótleggjum og svo varð ég svo móð. En gafst ekki upp.
 Ég fór að velta fyrir mér  hlaupabúningnum mínum. Það er víst eins gott að ég er bara að hlaupa í einrúmi en ekki í hóp því ég myndi setja ljótan blett á fatastílinn.
Þetta er flíspeysa, keypt 2001 í Ameríku á "outlett" hjá Gap.Þannig að hún hefur verið í tísku fyrir rúmlega einum tug.Mér finnst hún góð vegna vasanna á henni en þar hef ég húslykla og síma á hlaupunum.
Fjallabuxurnar mínar keypti ég í sportbúð á Egilsstöðum áður er ég gekk yfir Fimmvörðuháls 1997. Ég get ekki ímyndað mér að það hafi verið framleiddar betri buxur. Þessar hleypa svita í gegnum sig og eru mjög hlýjar.

Þetta er nýjasta fatið. Íþróttabrjóstahaldari sem ég varð að kaupa fyrir brjóstaminnkun. Keypti náttúrlega allt of lítinn til þess að hafa gott aðhald eftir aðgerð. Litlu dúllurnar mínar hreyfast ekkert í þessum.
Næst nýjasta hlaupadótið. Geggjaðir sokkar sem ég keypti í Nikebúð í bítlaborginni Liverpol í vor." Dry-fit" og merktir með L og R svo maður fari örugglega rétt í þá.  
Þarna sést í naríurnar mínar. Gasalega góðar úr Merinóull, keyptar í Álafossbúðinni. Gallinn er bara sá að þær detta út í götum. Sem er ekki smart en ég nota þær samt.
Ekki er hægt að hlaupa nema eiga góða skó. Ég er svo heppin að dótla mín sér um þann þáttinn og hefur tvisvar sent mér skó frá Bretlandi. Það munar svo milu á verði. Þessa fékk ég í jólagjöf.
Ég nota hina og þessa boli undir flíspeysuna. Þessi á að vera "dry-fit" en er það alls ekki. Ég svitnaði alveg svakalega og fann dropana renna niður eftir bakinu og handleggjunum á mér. Það er frekar óþægilegt. Ég ætla ekki að nota hann oftar.

mánudagur, 25. júní 2012

Aftur að skokka

Kannski er ekkert skrýtið þó ég hafi fengið
 bakverki við að skokka með öll þessi
ósköp framan á mér.
Í dag eru fimm vikur síðan brjóstaaðgerðin var framkvæmd. Ég hélt upp á daginn með því að fara út og skokka. Ég gekk fyrst 500 metra og tók svo á rás og ég gat þetta. Kláraði litla hringinn minn sem er rúmlega 3 km. Ég var pínu stressuð út af brjóstunum og hef líklega verið dálítið stíf í öxlunum en þetta gekk. Ég var í nýja fína íþróttahaldaranum og hann gerði sitt gagn. Brjóstin eru aðeins bólgin ennþá og fann ég fyrir þeim en haldarinn er góður.
Besta var að ég fékk engan bakverk eins og svo oft þegar ég skokka. Kannski hafa gömlu stóru brjóstin verið orsakavaldur að bakverkjum. Ég setti það aldrei í samhengi. En ég hef ekki fundið fyrir neinum bakverkjum eftir aðgerð. Ég fékk alltaf verk, hægra megin í bakið aðeins fyrir ofan mitti, þegar ég ryksugaði, það sáran að ég varð oft á tíðum að taka pásu. Ég fann ekki fyrir neinu þegar ég ryksugaði fyrir helgi.
Nú er spurning með vöðvabólguna. Fer hún sjálfkrafa eða verð ég að fara í nudd?
Ég ætla að bíða og sjá til.

fimmtudagur, 21. júní 2012

Brjóstaskora

Ég fór í göngutúr dagsins fyrir hádegi. Bara svona af því ég vakanaði snemma og var tilbúin. Gat gengið allrösklega og sveiflaði handleggjunum í gríð og erg. Mig langaði svo mikið að prófa að skokka en þorði það ekki. Er pínu hrædd um að skemma eitthvað, ég veit einu sinni ekki hvað. Jú, að saumar opnist og aðgerðin sé fyrir bí og brjóstin á mér verði hryllingur.
Minni brjóstaskora. Engin millibrjóstafýla.
I hádeginu, áður en ég fór í sturtu eftir göngutúrinn, heimtaði Simmi minn að fá að skoða saumana nákvæmlega af því ég er alltaf að kvarta yfir einhverju sem ég veit varla sjálf hvað er. Eitthvað sem tekur í og eitthvað sem gæti gefið sig og allt skemmst. Bara svona stress í gangi.
Simmi minn, tók í burtu síðasta hrúðrið með saum, sem var við samskeytin, austur/vestur og norður. Mér létti. Nú tekur minna í. Það lítið að ég þorði að leggjast á magann í sólbaði í dag. Þó ég hafi ekki alveg lagst á brjóstin var geðveikt gott að leggjast á magann og lesa bók í sólbaði.
Er greinilega öll að koma til.
Líklega á ég aldrei oftar eftir að finna millibrjóstafýlu.
Góð tilhugsun.

þriðjudagur, 19. júní 2012

Stirðleiki

Svona var brjóstaskoran (jan 2011)
Í gær voru fjórar vikur síðan ég fór í brjóstaminnkunina. Það þýðir að sá tími, sem mér var bannað að vinna heimilsstörf, er liðinn. Ég hélt upp á daginn með því að ryksuga enda hefur hann Simmi minn ekkert of oft tekið í ryksuguna þessar fjórar vikur. Ég hef stolist í að gera ýmislegt hérna heima eins og að moppa gólfin, í rólegheitum, sjá um þvottinn og elda stundum matinn.
Ég sat í vörubílnum hjá Simma mínum í morgun til að veita honum félagsskap. Ferðin tók um einn og hálfan tíma. Ég fann, þegar ég kom heim og brölti niður úr bílnum, að ég er farin að stirðna í líkamanum vegna hreyfingarskorts. Ég hef áður verið næstum því komin í kör af hreyfingarleysi. Það var fyrir nokkrum árum. Þá hélt ég að ég væri "búin að vera í skrokknum." Til að gera eitthvað í mínum málum þá fór ég að synda á hverjum degi og síðan að ganga og skokka og bætti svo hjólinu við. Það var akkúrat ekkert að skrokknum nema hreyfingarleysi.
Til þess að bæta úr stirðleikanum, sem ég fann í morgun, dreif ég mg út áðan og gekk rösklega litla hringinn minn þrátt fyrir að líkamsrækt sé bönnuð í 6-8 vikur eftir brjóstaminnkun. Ganga er jú líkamsrækt en ég réð fullkomlega við þetta og líður miklu betur. Nú stendur til að gera þetta á hverjum degi þangað til ég þori að prófa að skokka.  Kannski eftir viku.
En sund og heita potta má ég fara í um leið og öll hrúður eru farin af saumunum. Það eru nokkur smá hrúður eftir.

miðvikudagur, 13. júní 2012

Á fjórðu viku

Þórdís lýtalæknir.
Átti tíma í dag hjá Þórdísi lýtalækni. Hún skoðaði brjóstin á mér í bak og fyrir og tók myndir og sagði að allt liti vel út. Ég hef verið dálítið stressuð undanfarna daga af því ég finn svo mikið fyrir brjóstunum, ég finn fyrir sviða og  eins og rafstraumur fari öðru hverju um þau og eitthvað tekur í og svoleiðis.
Þórdís tók alla plástrana af og sagði mér að fara í "léttari" brjóstahaldara, bera E-vítamín olíu á saumana og AD-smyrsl á hrúðrin. Þetta allt saman gerði það að verkum að mér líður miklu betur, bæði á sál og líkama. Líklega hafa plástrarnir verið að toga eitthvað í og ég haldið að það væri að skemma eitthvað.
Ég hef mest megnis haldið mér ens og prinsessu, helst ekki gert neitt og kemst upp með það, nema smáverk sem ég stelst í. Simmi minn, snýst í kringum mig og bannar mér að gera nokkurn skapaðan hlut. Ég hef tekið mjög  alvarlega það sem ég las í bæklingnum um brjótaminnkun og það sem mér hefur verið sagt, þannig að ég varð bæði glöð og hissa þegar Þórdís sagði mér í dag að eftir viku til tíu daga mætti ég fara í sund og heitan pott.
Vá, hvað ég hlakka til að fara að hreyfa mig almennilega.

fimmtudagur, 31. maí 2012

Langar neglur

Lengstu neglur sem ég hef haft
Halldór skólastjóri spurði mig í gær, þegar ég skrapp upp ískóla, hvort ég væri ekki leið á að hanga svona heima. Ég þurfti að fara í örskots naflaskoðun til að svara spurningunni og það var enginn vandi. Mér finnst einfaldlega ofboðslega gott að hanga heima. Mér finnst reyndar ekki hægt að kalla það að hanga heldur finnst mér gott að vera heima. Ég hef alltaf nóg fyrir stafni. Þó ég sé að jafna mig eftir brjóstaminnkun og má alls ekki gera allt sem mig langar til þá hef ég samt nóg að gera við tímann. Ég er ekki alltaf að gera eitthvað gáfulegt eða nytsamlegt ég er bara hér, við lestur, prjón eða hekl, útvarpshlustun, netflakk og ýmislegt fleira.
Ég er t.d. núna í óða önn að safna nöglum. Það hef ég aldrei getað en núna eru neglurnar bara fínar og ótrúlega langar á minn mælikvarða. Annaðhvort er ástæðan sú að ég geri heimilsverkin ekki þessa dagana eða sú að ég hef tekið inn tvær matskeiðar af lýsi í stað einnar nú í skamman tíma.

miðvikudagur, 30. maí 2012

Bað

Mikið var það dásamlegt að fara í heilsturtu í morgun. Ég þvoði hárið sjálf og blés það líka. Ég á að hllusta á líkamann, hvað hann getur, og það var alveg hægt að blása hárið. Ég labbaði svo í rólegheitum í skólann og gekk þar frá smámálum og labbaði svo til múttu. Göngutúrinn gerði mér bara gott en ég fer hægt yfir. Finnst vont að ganga hratt.
Horfði á brjóstin mín í speglinum en ekki lengi.
 Ég hefði aldrei getað orðið hjúkka. Fæ alltaf illt í rassgatið þegar ég sé skurð eða sár.

þriðjudagur, 29. maí 2012

Brjóstaskoðun

Ég átti tíma hjá Þórdísi lýtalækni klukkan 10 í morgun. Simmi minn keyrði mig á stofuna til hennar og kom með mér inn. Þórdís sjálf var ekki við heldur staðgengill hennar, Þyrí sjúkraliði. Ég varð pínu spæld en Þyrí kunni greinilega alveg til verka og hún skoðaði mig og tók plástra sem voru yfir drenlagnargötunum og gaf mér fulla skoðun. Brjóstin mín líta eins vel út og þau eiga að gera átta dögum frá aðgerð. Ennþá er bólga og bjúgur í þeim en það er eðlilegt. Hún sagði að ég mættti fara í sturtu, bara standa ekki lengi og láta buna á mig og ekki of heita.
Ég fékk nýjan tíma hjá Þórdísi eftir hálfan mánuð.

mánudagur, 28. maí 2012

Afmælisveisla

Nanna, ömmustelpa, varð 12 ára  föstudaginn 25. maí. Þá bauð hún öllum bekknum í partý heim til sín en í dag bauð hún ömmum og öfum, frændum og frænkum í mat. Við tókum mömmu og pabba og Nonna með okkur og vorum náttúrlega ekki svikinn af matnum hennar Elsu. Hún gerir alveg ótrúlega góðar pizzur, bara í ofninum sínum. Þær eru betri hjá henni en á mörgum veitingastöðum. Hún gerir sósuna líka sjálf frá grunni. Nammi, namm. Og svo var súkkulaðiterta í eftirrétt.
Ég var með smá kvíða í brjósti að ég ræki mig utan í einhvern og finndi til í litlu brjóstunum mínum en það var auðvitað alveg ástæðulaust. Ég sat bara á stól og lét Simma minn stjana við mig. Ég er auðvitað aum ennþá enda bara ein vika frá aðgerð. Það var allt í lagi að sita í bílnum og allt í lagi með mig.
Posted by Picasa

sunnudagur, 27. maí 2012

Brjóstamjólk?

Mér líður betur og betur með hverjum deginum. Verkirnir minni og minni og þar með fækkar verkjastillandi pillunum jafnt og þétt sem ég hef verið að gleypa.
Ég var að spekulera í því morgun af hverju ég kannaðist svona við þessa tilfinningu sem ég hef í brjóstunum. Af því ég hef aldrei áður farið í brjóstaminnkun ætti ég ekki að kannast við tilfinninguna. En svo kveikti ég á perunni. Tilfinningin var eins og brjóstin væru stútfull af mjólk. Það eru reyndar 37 ár síðan en ég man tilfinninguna. Þrýstingur í brjóstunum og þau stíf. Þannig er ég núna. En það er af bjúg og bólgu sem á eftir að hjaðna.
"Það er eins og þú hafir misst 10 kíló," sagði María við mig í dag í sunnudagakaffinu hjá mömmu.
Gaman að heyra svona.

laugardagur, 26. maí 2012

Eins og sjúklingur

Mamma og pabbi kíktu við í gær. Mamma sagði að ég liti út eins og sjúklingur. Ég var ekki allskostar ánægð með þá athugasemd svo ég fór í sturtu til að þvo af mér aumingaútlitið. Þar sem ég er með mikla sauma umhverfis brjóstin, sem má ekki bleyta, varð ég að finna eitthvert ráð. Sturtubaðið fór sem sagt þannig fram að Simmi minn berháttaði sig og fór inn í sturtuklefann, ég stóð fyrir utan og stakk hausnum inn fyrir og hann þvoði mér þannig um hárið. Síðan fór ég inn í klefan og sturtaði mig frá tám og upp að mitti. Mér leið óneitanlega betur á eftir. En hárið var látið þorna af sjálfu sér og þá koma í það alls kyns fettur og brettur sem ég vil ekki hafa. Þannig að leikurinn var endurtekinn í morgun, alveg eins nema nú kláraði Simmi minn dæmið þannig að hann blés líka á mér hárið. Svo litaði ég augabrúnirnar.
Ég trúi því ekki að mamma segði í dag, ef hún sæi mig, að ég lti út eins og sjúklingur.
Ég á eftir að segja Simma mínum að við hárþvottinn í morgun, var ég með opin augun.

föstudagur, 25. maí 2012

Eftir aðgerð

Loksins rann dagurinn upp sem ég hafði beðið svo spennt eftir í rúmt ár. Aðgerðardagurinn. Brjóstaminnkunardagurinn. Ég hafði fengið daginn 7. maí úthlutaðan en hann var tekinn af mér og aðgerðinni seinkað um hálfan mánuð. Það kom sér vel, vegna vinnunnar, þannig að ég var alveg sátt. Mánudaginn, 21. maí, skutlaði Simmi minn mér á Landsspítalann Fossvogi, kvaddi mig þar um 10 leytið og ég hóf undirbúning fyrir aðgerð. Ég var náttúrlega fastandi, þannig að undirbúningur var byrjaður og ég hafði farið í sótthreinsandi  sturtu kvöldið áður en nú fór ég aftur í sturtu og þvoði mér samkvæmt fyrirmælum, háttaði ofan í rúm og beið smá stund. Þá var mér ekið í rúminu á skurðstofu , sem var á einhverri annarri hæð. Ég hitti Þórdísi Kjartansdóttur, lýtalækni og hún mældi brjóstin á mér út með venjulegu málbandi og teiknaði á þau hin ýmsu strik með svörtum tússpenna og spurði mig hvaða stærð ég óskaði eftir. "C," svaraði ég. Ég veit ekki enn hvort mér hefur orðið að ósk minni. Svo man ég að ég fékk net til að setja yfir hárið, sem var nóta bene blautt eftir sturtuna, og horfði upp í skurðstofuljós, fékk æðalegg, klukkan var hálf eitt og svo veit ég ekki meir fyrr en einhver sagði eitthvað við mig klukkan hálf fimm. Ég var meira og minna vönkuð það sem eftir lifði dags og margt er í þoku. Ég man þó að áður en nóttin skall á vildu hjúkkur að ég færi fram úr. Ég gat ekki staðið hjálparlaust, fékk stuðning og bað um að fara á klósettið. Ég var leidd þangað og þá gerði ég mér grein fyrir að ég var með dren úr báðum brjóstum. Það tók í og ég fann svo mikið til og svimaði svo mikið að ég gleymdi að hugsa um lítil brjóst.
Ég svaf mest lítið um nóttina. Lá á bakinu og leið þokalega vel.
Dagur tvö leið hratt, ég fékk morgunmat og borðaði hann með góðri lyst, eins og allan mat, naut umönnunar frábærs starfsfólks og hlustaði á útvarp. Simmi kom og einnig Kallli og Nanna.
Venjulega fara konur heim sólarhring eftir aðgerð en vegna drenlagnana fékk ég að vera annan sólarhring til. Mikið var ég fegin. Drenlögnin fór illa í mig. Bara það að vita að rör lægju inn í líkamann var óhugguleg tilhugsun.
Ég horfði á sjónvarpið um kvöldið, þ.á.m. fyrri undanúrslit í Júróvision þar sem Gréta Salóme og Jónsi komust áfram. Ég svaf vel alla nóttina og morguninn líka, þrátt fyrir annir á spítalanum.
Um morguninn, á degi þrjú  voru drenlagnirnar teknar. Það var ekki þægilegt en mér fannst útilokað að kvarta þar sem þetta var sjálfskaparvíti hjá mér. Þ.e. ég bað um aðgerðina en fékk ekki einhverja veiki. Mér leið pínu eins og aðskotahlut eða svindlara þar sem ég lá innan um alvörveikt fólk. En þetta var bara mín eigin hugsun. Allir hafa staðið pottþétt við bakið á mér. Líka starfsfólkið á spítalanum. Simmi minn kom um hádegisbil og fór ég með honum heim. Sat eða hálflá í stól allan daginn og reyndi að hafa það næs en varð bara þreyttari og þreyttari í bakinu. Svaf eiginlega ekkert um nóttina vegna þreytuverkja í bakinu en varð samt að liggja á því. Þori að leggjast á hliðina.
Dagurinn í gær var þokkalegur. Simmi er eins og besti læknir. Hann skipti um á skurðinum og klæddi mig í annan haldara. Hann stjanar við mig.
Ég fann svo í morgun þegar ég vaknaði, eftir góðan nætursvefn, að mér leið miklu betur en veit að ég á taka lífinu með ró og mun gera það.

laugardagur, 21. apríl 2012

Bæjarhreinsun

Ég nota mikið göngustíginn sem tengir götuna mína við Skálholtsbraut, bæði gangandi og hjólandi. Hann hefur verið frekar subbulegur upp á síðkastið eða kannski miklu lengur. Það fer alltaf meira og meira í taugarnar á mér. Ég hef ekki orðið var við það að hann hafi nokkurn tíma verið hreinsaður síðan ég flutti í götuna fyrir átta árum. Hann var fullur af laufi og grastoppar vaxa alls staðar meðfram girðingarkantinum sem er öðru megin.
 Ég tók mig til í morgun, vopnuð stunguskólflu, mokstursskóflu og strákúst og þreif stíginn eins vel og ég gat. Sópaði laufinu saman og pjakkaði svo grastoppana upp og skóf líka fullt af mosa upp. Þegar þessu lauk var ég svo ánægð með verkið að ég lét ekki staðar numið heldur þreif líka meðfram girðingunni innst í botnlanganum. Þar var gras vaxið yfir malbikið á stóru svæði og þurfti ég að stinga það upp með stunguskóflunni. Þetta var svolítið erfið vinna þannig að ég plataði, Simma minn, í að hjálpa mér sem hann og gerði. Við vorum komin með svo myndarlega hrúgu af grasi, mosa og laufum þegar verkinu lauk að við urðum að ná í jeppakerruna hans pabba og moka hrúgunni upp í hana og fara með úrganginn á haugana.
Ef allir bæjarbúar gerðu þetta, þ.e. að fara út og hreinsa götun sína, meðfram girðingarköntum  og gangbrautarköntum hjá þeirra húsum liti bærinn miklu betur út. Og ekkert mál ef allir hjálpast að.
Ég var í einn og hálfan klukkutíma við mína hreinsun og hvað er það að gefa samfélaginu til að bærinn verði snyrtilegri?
Og mér líður svo vel að hafa unnið þessa vinnu.