Þegar líkaminn minn þrýstist
upp við líkama þinn
langar mig kannski meira í þig
en þig langar í mig
nema ef þig skyldi langa jafn mikið í mig
og mig langar þig
þá myndum við hittast
í hita leiksins
laugardagur, 11. febrúar 2012
fimmtudagur, 9. febrúar 2012
Líkamshreyfing
Ég gríp til eigin líkama
þegar ég vil hreyfa mig
get varla ætlast til þess
að ég
geti hreyft aðra líkama
nema ef vera skyldi
að kallinn vilji hreyfa sig
um leið og ég.
þegar ég vil hreyfa mig
get varla ætlast til þess
að ég
geti hreyft aðra líkama
nema ef vera skyldi
að kallinn vilji hreyfa sig
um leið og ég.
miðvikudagur, 8. febrúar 2012
Kuldahrollur
Hef breyst í kuldakreistu
hlusta á vindinn gnauða á nóttinni
í andvökunni
hann gnauðar á gluggann minn
rigningin ber og lemur
mér verður kalt við tilhugsunina
að skella mér út í laug
fyrir klukkan sjö
ákveð að fara ekki
mér gæti fundist of kalt
frétti svo á kennarastofunni
að vatnið hafi verið 29 gráður
hlusta á vindinn gnauða á nóttinni
í andvökunni
hann gnauðar á gluggann minn
rigningin ber og lemur
mér verður kalt við tilhugsunina
að skella mér út í laug
fyrir klukkan sjö
ákveð að fara ekki
mér gæti fundist of kalt
frétti svo á kennarastofunni
að vatnið hafi verið 29 gráður
miðvikudagur, 1. febrúar 2012
Hringormur
| Hann skælbrosir |
Þegar að þeirri stundu kom féll mér allur ketill í eld. Við hlið fiskbitans spriklaði þessi líka feiti og fíni hringormur. Hann hló framan í mig.Ég fékk gæsahúð af hryllingi um mig alla. Þó ég geri mér grein fyrir því að ég hljóti einhvern tíma í gegnum tíðina hafa gúffað í mig hringorm þá vil ég ekki vita af því. Ég tilkynnti Simma mínum, þegar hann kom heim úr vinnunni, að þennan fisk gæti ég ekki borðað og líklega engan fisk á næstunni, kannski aldrei. Við sem höfum aukið fiskneyslu upp á síðkastið svona sem liður í hollara fæði. Hann henti orminum í ruslið, skellti fiskinum í pott, bætti við rófum og gulrótum svo ég fengi eitthvað að borða, lagði á borð og sagði vesgú. Fiskfjandinn var svo hvítur og fallegur að ég fór að narta í hann og gat, með því að pikka hann í smátætlur, borðað pínu pons.
Ég er í fínu lagi í dag.
Enda heyrði ég einhvern tímann að hringormar væru bara prótein.
mánudagur, 30. janúar 2012
Starf eldri borgara
Ég hóf störf með eldri borgurum síðastliðinn mánudag. Ekki seinna vænna, búin að vera í félagi eldri borgara í eitt og hálft ár. Á mánudaginn var, byrjaði leshópur aftur eftir áramót og ákváðum við Sigga að taka þátt. Við mættum galvaskar og sögðumst vera komnar í aðlögun. Okkur var veltekið og virkilega gaman að spjalla um þær bækur sem viðstaddir höfðu verið að lesa.
Ég undisbjó mig betur fyrir daginn í dag en síðast. Helst átti fólk að lesa eitthvað sem tengdist Svarfaðardal, Dalvík eða einhverju á því svæði en þangað stendur til að ferðast næsta sumar. Ég tók úr bókaskápnum mínum bókina Pelastikk og rifjaði hana upp og ákvað að lesa upphaf bókarinnar því þar er góð lýsing á því hvaða leiðir hann Logi gat farið heiman frá sér og niður á bryggju, nokkurra ára gamall en þangað vildi hann komast óséður. Gaman væri að koma á þær slóðir og finna leiðirnar sem hann notaði
Ekki tókst betur til en það í dag en að ég klikkaði á tímanum og mætti klukkutíma of seint. Þetta var vatn á myllu kvennanna sem voru staddar á Níunni. Þeim fannst aðlögunin bara takast nokkuð vel hjá mér. Byrjaði á því að gleyma.

miðvikudagur, 25. janúar 2012
Menntaverðlaun
![]() |
| Forsetinn og skólastjórinn |
Það voru nokkrir sem fengu tilnefningar en okkar tilnefning var eftirfarandi:
Grunnskólinn Þorlákshöfn fyrir námslegar framfarir og samþættingu á leiklist og tónlistarlífi inn í starf skólans. Ber þar hæst öflugt samstarf við tónlistarskóla Árnesinga sem á sér orðið langa hefð í sögu skólans. Starfið hefur lagt grunn að því menningarlífi sem bæjarfélagið býr að og er einmitt til þess tekið í rökum þeirra sem sendu inn tilnefningar að með starfi skólans hafi verið lagður sterkur grunnur að því blómstrandi menningar og listalífi sem einkennir bæjarfélagið. Grunnskólinn er Grænfánaskóli þar sem nemendur vinna af metnaði að umhverfismálum. Svo sé vitnað orðrétt í tilnefningu móður 4 barna sem stundað hafa nám við skólann frá árinu 1987. Grunnskólinn í Þorlákshöfn er skóli í ungu og barnmörgu samfélagi þar sem fjölmenning er hátt hlutfall eða um 14 % og hefur skólanum tekist vel að sameina ólíka nemendur með fjölbreyttu starfi þar sem allir hafa möguleika á að finna sinn farveg.
laugardagur, 21. janúar 2012
Bóndadagur
| Simmi að velja lög með Beggu |
Hvernig þorramat viltu þá Simmi minn, spurði ég.
Harðfisk og hangikjöt, svaraði hann.
| .....svo voru Bítlarnir auðvitað settir á fóninn |
Æ, má ég ekki bara velja ganasteik? spurði hann.
Auðvitað mátti hann velja ganasteik. Ganasteik finnst mér besta afurð lambakjöts. Svo ganasteik var elduð í fyrsta skipti á nýju æðislegu Saladmaster rafmagnspönnunni og tókst svona líka frábærlega.
Þegar líða tók á bóndadaginn slökktum við á sjónvarpinu og Simmi minn, bóndinn, gerðist einkaplötusnúðurinn minn. Það finnst mér alltaf frábærar stundir. Hann sest á gólfið fyrir framan svakadiskagræju sem hann keypti sér á meðan hann rak veitingahús og spilar vel valin lög. Stundum nær hann í hjartaræturnar á mér þannig að ég fer að gráta af tilfinningasemi. Ég slapp við það í gær, þrátt fyrir að hann spilaði bæði Friðjón Jóhannsson og Beggu heitina Árnadóttur. Svo tökum við alltaf nokkur danspor t.d. við sum lög Björgvins.
Stuð á gamla dressinu.
miðvikudagur, 18. janúar 2012
Rósavettlingar
| Rósavettlingar á einmánuði heita þessir |
sunnudagur, 15. janúar 2012
Matarboð
Við, Simmi minn, brugðum okkur í höfuðborgina í gær, þegar ég kom heim frá frábærlega skemmtilegum bókafundi Delta Kappa Gamma sem haldinn var í best falda leyndarmáli Suðurlands, Hótel Eldhestum í Ölfusi.
Ferðin í höfuðstaðinn var til þess gerð að þiggja matarboð forseta borgarstjórnar og Doktors Kalla. Við vorum svona aukaspenar í þessu matarboði því uppistaðan var Yeomanfólkið. Það er nú ekki leiðinlegt að tengjast því skemmtilega fólki og eyða kvöldstund með því. Ástæða veislunnar var sjálfsagt sú að Kristín, sem býr í Seattle, var stödd á Skerinu ásamt eiginmanni og dótturinni Tönju. Þarna mættu öll systkini Elsu og flestir afkomendur þeirra, þannig að tvær kynslóðir skemmtu sér saman sem mér finnst alltaf skemmtilegast.
Á boðstólum var aðallega "heimaveidd" dýr eins Elsa orðaði það. Gæsabringur og gæsaleggir og andaeitthvað og andahitt og lundabringur og sjávarréttarsúpa og Lasagne og ég veit ekki hvað og hvað. Allt hvað öðru betra. Frábær eftirréttur, sem ég enn finn bragðið af.
Margir viðstaddir kunna að spila á gítar, þannig að spilað var og sungið og sungið meira.
Við, Simmi minn, fengum heila íbúð til afnota. Íbúð á Stýró sem systurdóttir Simma á. Þar höfðum við það eins og kóngafólk.
Svakalega líður mér alltaf vel í 101 Reykjavík.

sunnudagur, 8. janúar 2012
Iðjuleysi með prjónaskap
Sunnudagur
letidagur
morgunverður í rúmið, beygla með osti og sultu og bleksterkt kaffi
druslast á lappir
fréttarúntur á netinu
silfur egils
prjónað og hlustað á gamlar sögur á hlusta.is
núna er Jón Trausti uppáhalds
gott að sitja og prjóna og hlusta þegar rigningin lemur gluggana
næstbesta pizza í heimi sett í ofninn
smá rauðvín með
sunnudagur
unaðsleg værð yfir öllu
letidagur
iðjuleysi
hið fagra iðjuleysi

miðvikudagur, 4. janúar 2012
Textílkennari
Ég réð mig í dag í textílkennslu. Það vantar, frá og með áramótum textílkennara við skólann og svo skemmtilega vill til að ég á lausan tíma akkúrat þegar þessi kennsla er á stundaskrá. Þetta er val hjá 9. og 10. bekk og ég hlakka bara til. Ég tók handavinnu sem val í Kennó á sínum tíma og kann svo sem að taka upp snið og sauma flík þó svo ég hafi ekki kennt það áður. Ég saumaði mikið hérna í den. Saumaði bara allt sem vantaði á heimilið, nema jakkaföt á kallinn. Ég saumaði samt oft á hann buxur. Saumaði dragtir á sjálfa mig, kjóla, buxur og pils og náttúrlega á blessuð börnin. Mér sýnast efni hafa helst breyst frá því ég saumaði sem mest. Efnin hafa meiri teygjanleika núna en áður. Þá kemur til skjalann overlokksaumavél og þannig grip hef ég ekki notað svo þar er aðaláskorunin komin á mig.
Ég verð að læra á overlokk innan nokkura daga.
Ég bara verð.
![]() |
| Ég hlakka til að æfa mig á svona vél |
Ég verð að læra á overlokk innan nokkura daga.
Ég bara verð.
þriðjudagur, 3. janúar 2012
Ein voða vitlaus
| Lopapeysa í stærðinni medium |
Já, nú var ég dáldið vitlaus.
Og sit uppi með peysu sem mig vantar ekki.
mánudagur, 2. janúar 2012
Prjónadagurinn mikli
Á þessum síðasta degi jólafrísins hef ég setið og prjónað. Ég fór seinna á fætur en til stóð en um klukkan hálf eitt var ég sest með prjónana og prjónaði og prjónaði og hlustaði á Heiðarbýlið eftir Jón Trausta á hlusta. is. Ég sleppti prjónunum 10 klukkutímum síðar. Ég hefði klárað peysuna ef ég hefði ekki þurft að rekja smávegis upp. Ég stóð upp til að fara á klósettið, hella mér upp á kaffi, borða eitt epli og ostbita. setja upp saltkjöt sem hann Simmi minn var búinn að undirbúa, skjótast út í búð eftir rófum, skræla þær og bæta við í pottinn. Nú svo borðaði ég með Simma mínum en hélt annars mest megnis áfram að prjóna.
Mér er illt í bakinu, öxlunum, handleggjunum, fingrunum og úlnliðunum. Ég verð að prjóna eftir vinnu á morgun til að æfa þessa aumu vöðva meira. Þetta eru lopavöðvarnir sem hafa rýrnað. Ég hef verið að prjóna úr fínna garni að undanförnu og nota vöðvana greinilega einhvern veginn öðruvísi.
Ég á líka bara einn lestur eftir af sögunni. Klára að hlusta á morgun.

sunnudagur, 1. janúar 2012
Óráðin framtíð
Á áramótum verð ég alltaf meir og viðkvæm og fæ undarlega eftirsjá þegar ártalið hverfur af sjónvarpsskjánum á miðnætti og verð ringluð og finn fyrir óöryggi þegar nýja ártalið birtist. En þessi blanda furðulegra tilfinninga varir, sem betur fer aðeins skamma stund. Ég finn fyrir hátíðleika þegar Nú árið er liðið er sungið og kemst aftur í jafnvægi.
Í gærkvöld rann þetta allt einhvern veginn saman við það að hlusta, horfa og opna kampavínsflöskuna og fylgjast með flugeldabrjálæði og tala í símann við afkomendur.
Nýtt ár er hafið. 2012 er gengið í garð og við því tek ég með auðmýkt og þakklæti. Ég geng ekki að neinu sem gefnu í þessu lífi en er þakklát fyrir svo margt.
| Gleðilegt ár |

laugardagur, 31. desember 2011
Árið 2011 í hnotskurn
![]() |
| Í janúar fórum við til Tenerífe og vorum þar í tvær vikur í góðra vina hópi. |
| Í apríl tókum við ansi vel til í garðinum framan við húsið. Tókum upp tré og girðingu og grasbletti og settum möl í staðinn. |
| Í maí var farið í fyrstu ferð með Sólbrekku. Í fyrstu ferðinni þarf alltaf að huga að ýmsum málum eins og að tengja sjónvarpið. |
| Garðurinn minn í febrúar. Veturinn var snjóléttur og lljúfur. |
| Í júní gengum við á Skálfell með Ferðafélgi Ölfuss. |
| Í september varð hann Simmi minn sextugur. Hann kaus að flatmaga á sólarströnd á afmælisdaginn þannig að við vorum í 10 frábæra daga á Costa del sol. |
| Barnabörnin mín dafna og vaxa úr grasi. Kolbeinn varð 18 ára á árinu og er þar með orðinn sjálfráða. Nanna er 11 ára pæja og Lúkas er orðinn 8 ára. Hvert öðru fallegra. |
á
föstudagur, 30. desember 2011
Jólakíló
Já, já, það er föstudagur í dag og þá skrái ég skilmerkilega í dagbókina hversu þung ég er að morgni þegar ég vakna.Síðasta föstudag, Þorláksmessu, ætlaði ég að vera komin niður í 66 kílógrömm en það mislukkaðist aðeins. Ég reyndist vera 1, 1 kílói of þung á miðað við áætlun. Ég kenni um jólahlaðborðum og því að það byrjaði að snjóa þannig að minna varð um hlaup en ég hefði viljað. Í morgun kom í ljós að ég hef síðastliðna viku bætt 1,3 kílóum við mig. Ég tók dagatal og taldi hvenær ég yrði mögulega búin að ná þessum jólakílóum af, og komast niður í þessi 66 draumakílóatölu, ef ég tapa 300 grömmum á viku, eins og ég treysti mér til að gera, (þegar jóla-og áramótamaturinn hefur allur verið snæddur) og dagsetingin 24. febrúar 2012 kom upp. Í fyrstu fannst mér hræðilega langt þangað til en vitandi hversu tíminn líður hratt verður þessi dagur áður en varir liðinn. Ég er alveg róleg, pollróleg. Þetta kemur allt með kalda vatninu.
Líkamsræktin í dag var snjómokstur. Við, Simmi minn, mokuðum innkeyrsluna þannig að bíllinn komst inn í skúr og ruslatunnurnar eru lausar úr skafli og svo mokaði ég braut fyrir póstinn, já og okkur sem búum í húsinu.
Og það virðist ekkert lát á snjókomu.

fimmtudagur, 29. desember 2011
Sjálfhverfur þankagangur
Ég hef ekki endilega snúið sólarhringnum við, eins og stundum er sagt, heldur fer ég á nokkuð skikkanlegum tíma í bólið en alls ekki á skikkanlegum tíma á fætur. Ég sný mér bara á hina þegar Simmi minn, fer í ræktina, á því sem mér finnst um þessar mundir vera ókristilegur tími, þ.e. kl. sex og sofna aftur og aftur. Ég kveiki á útvarpinu með því forholli að hlusta á morgunvaktina og fara svo á fætur. Ég missi af mest öllu á morgunvaktinni og veit ekkert í minn haus fyrr en eftir klukkan tíu. Druslast á lappir og reyni að vera húsmóðurleg þegar, Simmi minn, kemur heim í hádegismat en það tekst ekki alltaf.
Ég fór þó út að hlaupa bæði í gær og fyrradag. Í gær hljóp ég göngustíg Selvogsbrautarinnar fram og til baka, þangað til ég hafði hlaupið í 27 mín., en hætti þá af því ég var ég stödd fyrir utan heima hjá mér. Ég mældi vegalengdina á kortvef á ja.is og reyndist þetta vera rúmir 4,4 km. Bara sátt við það í snjó og hálkublettum. Ég prófaði nýju vetrarhlaupaskóna mína, sem Jones´s gáfu mér í jólagjöf og reyndust þeir svakalega góðir. Það er nokkurs konar gaddar neðan á þeim sem koma svona vel út í vetrarfærðinni.
Ég átti að mæta í klippingu í dag hjá henni Röggu minni á Eplinu en ég fer ekki að æða yfir fjöll til að þjóna hégómanum í þessari færð og þessari veðurspá. Mér er líka alveg sama þó hárið vaxi aðeins. Ég hélt að ég fengi ekki nýjan tíma fyrr en eftir dúk og disk en ég má koma 6. jan. Ég vona að snjórinn verði horfinn þá svo ég komist heilu og höldnu yfir fjallið.
| Svona leit ég út í júlí s.l. |
| Nýklippt í ágúst s.l. |
þriðjudagur, 27. desember 2011
Jólaskraut
mánudagur, 26. desember 2011
Snjóhlaup
| Notalegt jólaljós |
| Við mæðgurnar á hlaupum |
Í dag er veðrið skaplegra svo ég bað hann Simma minn að horfa vel í kringum sig á leið til vinnu eftir hádegið og hringja svo í mig ef það væri búið að hreinsa snjó af götunum. Hann gerði þetta fyrir mig og tjáði mér að gangstéttir væru vel hreinsaðar. Ég skellti mér í hlaupagallann og fór út. Ég veit ekki af hverju ég lét ekki á mig mannbroddana og ég veit ekki af hverju ég fór í gömlu skóna en ekki nýju. Jú, þetta með skóna, ég get verið í ullarsokkum í gömlu skónum en ekki nýju og svo tími ég varla að nota þá, þeir eru svo fínir. Ég hljóp í 25 mínútur en ekki alltaf á vel ruddri braut. Sums staðar hafði ekki verið rutt og þá varð erfiðara um vik, ég varð að taka góðar hnjályftur og á einum stað óð ég snjóinn um stund upp í kálfa. En mikið lifandis skelfing var þetta hressandi.
Ég var að lesa um Gamlársdagshlup ÍR og langar svakalega að skrá mig en veit ekki hvort ég get hlaupið 10 km. Ég færi aldrei af stað nema vita hvort ég gæti þetta, vil ekki að gera mig að fífli. Mig vantar bara einhvern til að vera með. Vantar Svövu Ránina mína.
Annar í jólum
| Í jólaskapi |