Síður

fimmtudagur, 4. mars 2010


Hetjan hennar mömmu
Eftir að hafa lesið bloggið hennar dótlu minnar í dag og grátið af gleði fyrir hennar hönd, fór ég að hugsa aftur á bak og pæla í því hvenær hún byrjaði fyrir alvöru að fitna. Ég grúskaði í gömlum myndum og líklega fer að bera á fitu utan á litlum kroppi strax um sex ára aldurinn. Ég hafði ekki nokkrar áhyggjur af henni fyrr en nokkrum árum síðar þegar hjúkkan á staðnum stakk upp á því að setja hana á megrunarkúr. Við, mæðgur, fengum í hendurnar matarprógramm sem við fylgdum samviskusamlega eftir og barnið, um 10 ára, fór í vigtun einu sinni í viku.
Það er, eins og allir vita, algjört bull að fara í megrunarkúr. Kúr er eitthvað sem stendur yfir í stuttan tíma og á að leyssa allan vanda en eykur aðeins á vandamálið án þess að leysa nokkurn skapaðan hlut.
Dótla mín er búin að taka þá nokkra í nefið, megrunarkúrana. Ég hef tekið nokkra með henni og ég hef líka tekið marga án hennar en það er önnur saga. Við höfum t.d. prófað Herbalife og við höfum tekið hinar og þessar ákvarðanir um breytt og betra mataræði en eins og flestir vita þarf svo miklu meira en að taka eina ákvörðun, það þarf breytt hugarfar.
Ég á skynsama og klára dóttur. Hún tók, eftir mikla spekúleringu, ákvörðun um að reyna að skipta um hugarfar, hvað mataræði varðar, og hefur verið á réttu brautinni í heilt ár.
Hún henti út ýmsu rusli.
Hún pælir í hverju grammi sem hún lætur ofan í sig.
Hún fór að hreyfa sig.
Hún léttist, alein án nokkurar utanaðkomandi hjálpar, um 30 kíló.
30 kíló á einu ári.
Hún er hetja.
Hún er litla hetjan hennar mömmu.

miðvikudagur, 3. mars 2010

Íþróttataska eða plastpoki
Við, Simmi minn, hittumst stundum fyrir framan Íþróttamiðstöðina fyrir klukkan sjö á morgnana. Hann mætir klukkan sex, ég klukkan sjö.
Þegar ég mæti á húninn á sundlauginni, fyrir vinnu, er hann að ljúka sinni líkamsrækt enda á hann að vera mættur í vinnu í höfuðborginni klukkkan átta.
Mér finnst voða gott að sjá hann áður en ég smell inn í sundlaugina af því stundum vakna ég ekki þegar hann fer. Þá vantar gúdmorningkossinn.
Ég sé hann því stundum ganga frá syðri enda Íþróttahússinns í átt að þeim nyrðri, þar sem ég bíð eftir að mér sé hleypt inn en hann að bíða eftir Svenna.
Hann er flottur kallinn minn.
Samt er eithvað að.
Hann er íþróttamannlega vaxinn. Herðabreiður og miðmjór og gengur snöfurmannlega. En samt ekki eins og hinir gæjarnir sem koma úr rækitinni. Þar sem ég er að spekúlera í þessu kveiki ég á perunni.
Hinir eru allir með forláta íþróttatösku, annaðhvort á öxlinni eða bara í annarri hendinni.
Það er þetta sem Simma minn vantar.
Íþróttatösku.
Hann hefur íþróttafötin sín í plastpoka.
Og ekki nóg með það heldur stendur á pokanum : Gleðileg jól.
Gulur gleðileg jól plastpoki.

þriðjudagur, 2. mars 2010

Að samræmast sjálfum sér
"Rassgatið samræmist ekki löppunum á þér í þessum buxum," sagði Simmi minn, einhvern tímann á haustdögum þegar ég var að hafa mig til í vinnuna í gömlu gallabuxunum mínum.
Ég þekki minn mann og tók þessu bara sem viðvörun og engu öðru og móðgaðist ekki neitt.
Ég lagði samt fjandans buxunum og hef ekki farið í þær fyrr en í morgun þegar þær ultu út úr skápnum og ég tók skyndilega ákvörðun að skella mér í þær.
Mér datt ekki í hug að Simmi minn myndi eftir því sem hann sagði við mig í haust.
Þess vegna varð ég voða glöð þegar hann sagði í morgun.
"Sundið hlýtur að gera þér gott, því rassgatið og lappirnar eru alveg í samræmi núna.
Þetta er svona með flottara hrósi sem ég get átt von á frá manninum sem ég dró upp að altarinu hérna um árið.

mánudagur, 1. mars 2010

Stuttbuxnakall
Hann, Simmi minn, er stuttbuxnakall. Á sumrin gengur hann nánast eingöngu í stuttbuxum og þá helst gömlum gallabuxum sem hann rífur skálmarnar af. Eins og flestir vita er ekki hægt að rífa skálmar af gallabuxum þannig að skálmarnar verði jafnsíðar allan hringinn. Simma mínum er sléttsama um það. Bara að hnén séu frí og frjáls þá er hann alsæll.
Fyrir mörgum, mörgum árum gaf mamma honum forljótar stuttbuxur, að mínu mat. En honum þóttu þær bara skratti góðar. Í þessar buxur fór hann á hverju kvöldi þegar hann kom heim úr vinnu. Sem betur fer slitnuðu buxurnar í áranna rás og einn góðan veðurdag gat ég dæmt þær ónýtar. Ég lét þær gossa í ruslið, ánægð með að nú hlyti hann að fá sér einhverjar skárri til að skarta í á kvöldin.
Ég varð vitni að því nokkru síðar að Simmi minn, kvartaði við mömmu um það að ég hefði hent bestu stuttbuxunum hans. Dregur sú gamla ekki fram aðrar, nákvæmlega eins buxur og ég henti og gefur honum.
Hún hafði gert góðan díl á sínum tíma. Fékk þrjár fyrir einar.
Ég held að, Simma mínum, endist vart ævin til að slíta öllum þessum stuttbuxum.
Ég er orðin sérfræðingur í að láta sem ég sjái kvöldklæðnaðinn ekki.

þriðjudagur, 23. febrúar 2010

Sumarbústaðaferð
Við, Simmi minn, höfum ekki verið að troða stéttarfélögum okkar um tær hvað nýtingu sumarbústaða varðar. Við tókum á leigu kennarabústað á Flúðum, þegar ég varð fertug og það nálgast að vera 20 ár síðan.
Mér datt í hug um daginn að notfæra mér bústað aftur í vetrarfríinu (19.-22. feb.) en auðvitað var allt upppantað. Ég get aldrei hugsað nógu langt fram í tímann enda var ég alltaf að vona að ég dytti niður á ódýra ferð til Manchester þessa helgi sem varð nú ekki.
Simmi minn, hringdi í bríaríi í sitt stéttatfélag og viti menn, það var laust á Laugarvatni. Við höfum í nokkur skipti plantað Sólbrekku á tjaldsvæði vélstjóra á Laugarvatni og finnst alltaf jafn gott að vera þar. Tjaldsvæðið er við hliðina á sumarbústöðunum og er sameiginleg sundlaug þarna og heitir pottar.
Við dvöldum síðustu helgi í einu af raðhúsunum þeirra með einkapott og alles. Við áttum þarna frábæra helgi í afslöppun, við lestur, göngutúra, sjónvarpsgláp og fleira. Borðuðum og borðuðum og dreyptum á rauðvíni.
Ákváðum að vera þarna aftur um páskana en viti menn, allt er löngu upppantað.

fimmtudagur, 18. febrúar 2010

Vinadagar


Þemadagar voru í skólanum mánudag, þriðjudag og miðvikudag. Nefnd var skipuð í að sjá um þetta fyrir jól. Ég var gerð að framkvæmdastjóra nefndarinnar. Við byrjuðum strax fyrir jól að skipulegga og héldum marga fundi. Markmiðið var að efla og treysta vináttu innan skólans og kölluðum við þemað vinadaga.
Verkefnið tókst, að mínu mati, mjög vel. Við skiptum nemendum í sex hópa og unnu hóparnir tvær kennslustundir í senn í hverju verkefni en þau dreifðust á sex stöðvar. Markmiðið með verkefnum var að eitt sameiginlegt verk kæmi frá hverri stöð.
Unnið var við: ritun, málun og mótun, prjónaskap, sauma, smíði og sælgætis-og kökugerð.
Útivera var á hverjum degi.Við föðmuðum skólann og fórum í göngur, öll saman.
Ég er nú ekki meiri bógur en það að ég er enn dauðþreytt eftir öll skemmtilegheitin. Ég sá um annan af tveimur prjónahópum og af því ég þurfti að kenna mörgum undirstöðuatriði í prjónaskap var vinnustellinginn þessa daga ekki af besta taginu. Ég stóð fyrir aftan nemendann og teygði mig yfir hann og framfyrir til þess að hann sæi hvernig ætti að bera sig að. Þarna er ég hálfboginn í þrjá daga í þrjá klukkutíma í senn. Ofan á slæma vinnustellingu bættist stressið, sem ég gerði mér ekki alveg grein fyrir að ég hefði þjáðst af, fyrr en að þemadögunum lauk. Ég var með áhyggjur af því hvernig til tækist, hvort öllum liði vel, bæði nemendum og starfsfólki, hvort nokkuð hefði gleymst o.s.frv.
Þess vegna er vetrarfrí kærkomið.
Ég þarf að vinda ofan af mér.
En þessir dagar voru mjög skemmtilegir.

miðvikudagur, 17. febrúar 2010

Vetrarfrí
"Ég er ekki búinn að redda neinum blómum", heyrði ég að Simmi minn tautaði fyrir munni sér á sunnudagsmorguninn þegar látlaust glumdu í útvarpinu auglýsingar um konudagsblóm.
"Hafðu ekki áhyggjur af því", sagði ég "í dag er Valentínusardagur og við höldum ekki upp á hann."
"Nú, sagði minn heittelskaði, "Valentínusardagur og konudagur, hva..hve.. og.."
Hann vissi greinilega ekkert í sinn haus.
Nú er minn búinn að panta sumarbústað fyrir næstu helgi, bara svona til að hafa það huggulegt og næs, af því það er konudagur og vetrarfrí hjá mér og hann ætlar að taka vetrarfrí af eintómri meðvirkni.
Hlakka til næstu helgar.
Vetrarfrí og næs.
Löng helgi í sumarbústað.

föstudagur, 12. febrúar 2010


Prjón
Það eru fleiri en ég sem fá skrítnar prjónahugmyndir. Í næstu viku verða þemadagar í skólanum sem við köllum vinadaga. Unnið verður að ýmsum verkefnum sem eiga öll að efla og treysta vináttu allra í skólanum. Verkefnin verða flest samvinnuverkefni.
Ég verð á einni stöðinni með prjónaskap handa öllum. Það stendur til að prjóna vinaorm. Allir leggja sitt af mörkum, prjóna eins og þeir geta í eina eða tvær kennslustundir. Sumir eru náttúrlega byrjendur en það er allt í lagi. Einhvern tímann er allt fyrst. Vonandi verður til langur, mjúkur ormur sem hægt er að hringa utan um sig eða kúra hjá.
Nú sé ég að íbúar Fjallabyggðar ætla að prjóna trefil sem nær frá Siglufirði til Ólafsfjarðar í gegnum Héðinsfjarðargöng.
Skemmtileg hugmynd. Þar verður prjónað á öllum biðstofum og kaffistofum.
Já, það má segja að prjónarnir séu "inn" um þessar mundir.

fimmtudagur, 11. febrúar 2010

Montinn skokkari
Ég mældi gönguhringinn minn og komst að því að hann er 3,5 km langur. Ég notaði kort á ja.is og mældi þetta þar. Bráðsniðugt alveg. En ég er svo montinn yfir því að ég geng u.þ.b. hálfan kílómetra og skokka þrjá. Og get það.
Mér datt ekki í hug að þessi vegalengd næði þremur kílómetrum en það reyndist raunin.
Mér finnst fínt að skokka þrjá kílómetra. Ég þarf bara að huga að betri skóm og þægilegri fatnaði. Ég er örugglega dálítið asnaleg í snjóbuxum og úlpu. Ég sé engan þannig klæddan á skokki.
En mér er slétt sama um öll asnalegheit.
Ég skokka.

sunnudagur, 7. febrúar 2010


Leikhúsferð
Við, Simmi minn, fórum í dag að sjá Söngvaseið. Þessi leikhúsferð kom til vegna þess að Nanna var hjá okkur um daginn og sagði okkur að hana langaði svo að sjá Söngvaseið. Ég dreif mig á netið til að athuga með miða og komst að því að síðasta sýning væri í dag. Ég keypti miða, þrátt fyrir að þetta væri sunnudagurinn eftir þorrablót.
Það var auðvitað frábært að vera með ömmubarninu sínu í leikhúsinu. Hún skemmti sér konunglega en það var tilgangurinn. Við, gamla dressið, skemmtum okkur líka vel.
Mér finnst alltaf svo gaman að fara í leikhús.
Nú vonum við að Nanna muni eiga góða minningu um það þegar hún fór í leikhúsið með ömmu og afa.

föstudagur, 5. febrúar 2010



Föstudagskvöldmatur
Okkur, Simma mínum, finnst voða gaman að elda kvöldmatinn saman. Við getum það ekki alltaf því hann kemur svo seint heim úr vinnunni, þannig að ég elda virka daga og borða áður en hann kemur heim. Við lærum að lifa með því eins og öðru.
Á föstudögum er mjög oft pizza. Við kunnum alveg að gera fínar pizzur enda bökuðum við og seldum pizzur um tíma þegar við vorum í "útrás."
Í kvöld var hins vegar matreitt úr fiskihakki frá Selfossi. Skrítið en satt. Við stóðum saman hlið við hlið í eldhúsinu okkar og útbjuggum matinn, hann fyrir sig og ég fyrir mig. Hann setti út í hakkið sitt: salt, pipar, lauk,karrí, egg og hveiti og bjó úr þessu bollur sem hann steikti upp úr smjöri á pönnu.
Ég lét í hakkið mitt: salt,pipar,lauk,eggjahvítu og heilhveiti. Setti þetta í sílíkonform og bakaði inni í ofni.
Við nutum matarins bæði, þó ólíkur væri.

fimmtudagur, 4. febrúar 2010

Kaupstaðarferð
Fór á Selfoss í dag til tannlæknis. Bara svona eftirlit sem ég fer í einu sinni á ári. Af því ég var á Selfossi þá var ég komin í Bónus áður en ég vissi af, sjálfsagt til að nýta ferðina. Ég mundi samt ekki eftir neinu sem vantaði til heimilsins nema eyrnapinna. Ég rölti um búðina og týndi ofan í körfuna hitt og þetta sem kostaði um áttaþúsund. Dýrir eyrnapinnar það. Lét konu, sem var að kynna brauð frá Svíþjóð, plata mig til að kaupa slíkt. Ég spurði hana hvort það væri ekki stútfullt af E-efnum en hún sagði svo ekki vera en það væri óvenjupróteinríkt sem ég og sá á innihaldslýsingu. Ég er svo áhrifagjörn. Af því að hún dótla mín er að pæla í próteinum og kolvetnum þá keypti ég brauðið, handa mér.
Annað sem ég gerði á Selfossi var að ég fór í fiskbúðina. Aldrei gert það áður. Keypti fisk fyrir fjögurþúsund. Fiskur er einmitt líka próteinríkur. Mér finnst einhvern veginn enn þá að Simmi minn eigi að koma með fisk heim af sjónum en hann verður víst að vera á fiskibát till þess að það sé hægt.

þriðjudagur, 2. febrúar 2010


Gamlar venjur

Það er erfitt að kenna gömlum hundi að sitja. Það sést á mér. Ég var alveg sannfærð um það að ég hefði lært að hafa matarskammtinn af réttri stærð eftir að ég vigtaði allt ofan í mig í nokkra mánuði í fyrrasumar. Ég hef ekkert botnað í því núna, frá því í haust, af hverju ég léttist eiginlega ekki neitt. Tók því til gagngerar endurskoðunar matarskammtana og viti menn! Auðvitað borða ég allt of mikið. Ég hef sem sagt, hægt og rólega farið í gamla farið aftur og stækkað matarskammtana án þess að taka eftir því eða ekki viljað sjá það.
Núna verð ég að byrja aftur að vega og mæla, vigta og pæla.
Það eina sem ég vigta alltaf er haframjölið í morgungrautinn. Það kemur til af því að ég elda hann í örbylgjuofni í vinnunni og vigta í litla poka fyrir hvern dag. Ég er alltaf jafn hissa hve lítið er á disknum mínum, þess vegna ætti ég líka að vera hissa á kjötbitanum eða ostsneiðinni. En hef greinilega aukið við þann skammt.
Það þýðir víst ekkert að dæsa yfir þessu heldur safna liði og hefna.

sunnudagur, 31. janúar 2010


Þorrablót
Ég fór með Simma mínum á þorrablót í gærkvöldi, þar sem hans vinnustaður bauð til teitis. Þar var á borðum frábær þorramatur, borinn fram á kaffistofu fyrirtækisins, Björgunar ehf, og skemmtiatriði og ball fóru fram á verkstæðinu. Þetta var hin dægilegasta skemmtun þar sem ég þekkti mjög fáa og fannst það bara af hinu góða. Ég hef aldrei áður dansað á grófu verkstæðisgólfi þar sem vinnuvélar af ólíklegustu gerðum voru innandyra og hið undarlegasta dót sem ég kann engin skil á.
Við, Simmi minn, dönsuðum af okkur rassgatið, eins og tengdadóttir mín myndi orða það og tróðum upp með eftirlætisatriðinu okkar og skemmtum okkur frábærlega.
Við eigum það til að vera athyglissjúk og fengum því útrás með því að syngja Ídag kom hann Ingólfur Arnar......sem er að verða eins og vörumerkið okkar... af hverju, skil ég ekki alveg. Undirleikarinn í gær var ekki af verri endanum, Stefán Jökulsson, lektor við menntavísindasvið HÍ og fyrrum samnemandi minn við gamla Kennó.
Ég kynntist þarna fullt af fólki.
Fullt af skemmtilegu fólki.

föstudagur, 29. janúar 2010

Upp og niður
Loksins hreyfðist vigtin pínupons. Helmingurinn af hinu jólakílóinu er farinn. En hugsa sér. Janúar að verða búinn og enn er verið að reyna að komast á byrjunarreitinn. Ég er skíthrædd um að takmarkinu verði ekki náð. En ég gefst ekkert upp. Borða innan við 1500 kalóríur. Stundum langtum minna. Syndi og svo bæti ég stöku göngutúr við.
Ég hélt að sundið gerði líta meira fyrir mig en að halda gigtarverkjum niðri og minnka stirðleika. Ég komst að því um daginn að það hefur áhrif á þolið líka. Ég prófaði að skokka og gat það. Einn daginn tók ég tvo spretti í göngutúrnum og fannst það ekkert mál. Daginn eftir lengdi ég sprettina og fannst það ekkert mál. Þriðja daginn skokkaði ég næstum allan gönguhringinn minn og fannst það ekkert mál. Blés varla úr nös. Það var ekki fyrr en daginn eftir að ég fann fyrir harðsperrum eða einhvers konar verkjum í mjöðmunum.
Skokkið rifjaði upp kikkið sem ég fékk út úr því á Reyðarfjarðarárunum. Það var svo gaman að skokka þar að ég gat varla beðið eftir að sólarhringur liði svo ég gæti farið út aftur.
Ég ætlaði aldrei að hætta að skokka en þannig fór það nú samt.

föstudagur, 22. janúar 2010


Bóndadagur

Mamma kenndi mér það að á bóndadaginn gerði maður manni sínum sérstaklega gott í mat. Ég sauð alltaf hangikjöt handa honum hér á árum áður. Einhvern hefur þetta breyst og núna er þorramatur á borðum okkar svo skrítið sem það nú er því Simmi minn borðar ekkert súrt. Hann vill hangikjöt og svið en helst af öllu saltkjöt. Súri maturinn fer því ofan í minn maga og ég þykist vera að gera bónda mínum gott.
Jú, hann borðar harðfiskinn en ég gúffa í mig hákarlinn.
Ég færði honum líka blóm í dag í tilefni dagsins. Ég gaf honum ekki neitt afskorið sem er dautt í vasanum eftir nokkra daga heldur gaf ég honum jukku í potti. Hann er nefnilega blómakall hvort sem fólk trúir því eða ekki. Þetta kom í ljós á Reyðarfjarðarárunum okkar. Þá áttum við blóm í pottum og hann sá um þau. Ég gleymdi að vökva en ekki hann. Sama er að segja með pálmann sem Svava Rán skyldi eftir á Íslandi þegar hún yfirgaf klakann. Simmi minn hefur algjörlega séð um að halda lífi í pálmanum og er hann mjög fallegur og dafnar vel.
Nú situr hann og dáist að jukkunni sinni.

fimmtudagur, 21. janúar 2010


Menningarferð
Ég skrópaði í sundi í morgun. Ég sneri mér á hina hliðina þegar útvarpið vakti mig og reyndi að sofna aðeins aftur. Ég fann að ég átti eftir að sofa aðeins meir. Ég kom heim upp úr miðnættinu, eftir frábæran kvöldverð í Perlunni þar sem rauðvín var keifað með matnum. Annað hefði verið synd með fjögurra rétta málsverði og skemmtilegu fólki.
Áður en málsverður var snæddur, skoðaði hópurinn minn Guðríðarkirkju í Grafarholti. Þar tók sóknarpresturinn, séra Sigríður Guðmarsdóttir, á móti okkur og fræddi okkur um byggingu kirkjunnar, sem er yngsta kirkja landsins. Kirkjan er eins og skókassi að utan en ótrúlega skemmtileg og vel heppnuð að innan þar sem hugsað er fyrir öllum hlutum. Presturinn hafsjór fróðleiks og þrælskemmtilegur.
Ég ætlaði svo auðvitað að labba í dag í stað þess að sleppa sundi en ég hafði veðrið sem afsökun. Það er svo kolklikkað að Simmi minn kemst ekki heim úr vinnunni. Hann er á veðurvakt í Helguvíkinni.

laugardagur, 16. janúar 2010

Þorsti
Ég las um daginn, hjá einum Eyjubloggarana, að þorsti væri oft tekinn sem hungur. Ég tek þetta algjörlega inn á mig. Trúi þessu eins og nýju neti. Ég verð rosalega sjaldan þyrst en rosalega oft svöng. Nú hef gert það í nokkra daga að fá mér vatnssopa þegar ég finn fyrir hungri og viti menn, ég var bara þyrst.
Vonandi er þetta einn liður í að halda aukakílóunum frá.

föstudagur, 15. janúar 2010

Eftirköst jólanna
Hitt jólakílóið virðist vera alveg gikkfast á mér. Vigtin hefur ekkert breyst frá síðasta föstudegi. Ég hef í engu breytt frá áætlun minni nema það að ég gúffaði í mig kökum og brauði á kennarafundi á þriðjudaginn. Ég hefði kannski átt að fá mér eina sneið í stað margra.
Ég hafði þessa fínu afsökun að fá mér á diskinn því ef ég hefði ekki gert það fengi ég athugasemdir frá samstarfsfólki mínu og ég vil það ekki. Vil ekki vera félagsskítur og borða þess vegna með.
Frábær afsökun eða hitt þó heldur. Eins og að ég ráði því ekki sjálf hvað ég læt ofan í mig. Þetta er bara nammisýki og ekkert annað. En ég fór bara eina ferð. Lét þar við sitja.
Ég hef ekki bætt neinu við hreyfinguna. Syndi bara eins og selur á morgnana en er alltaf á leið út að labba eftir vinnu en er ekki farinn enn af stað. Mér finnst gaman og gott að ganga og geri það um helgar en er svo löt að loknum vinnudegi að leisíboj hefur vinninginn.
Held ótrauð áfram að borða innan við 1500 hitaeiningar og sé hvað setur næsta föstudag.

þriðjudagur, 12. janúar 2010

Skrúfur eða ekki skrúfur
Simmi minn, sagði upp úr eins manns hljóði um daginn, þegar hann hafði horft á auglýsingu í sjónvarpinu, að hann væri að hugsa um að kaupa skrúfubox á tilboði í Húsasmiðjunni. Ég horfði á hann í forundran og spurði hvers vegna.
"Mig vantar oft skrúfur," sagði hann.
"Ég man ekki eftir þér við að skrúfa neitt sérstakt."
"Nei, það er af því mig vantar skrúfur."
"Ég man ekki eftir þér neins staðar pælandi í því að það vantaði skrúfu einhvers staðar."
"Það getur verið gott að eiga skrúfur ef mann vantar þær," sagði hann þá.
Ég samsinnti því ennþá alveg forviða á honum.
Þegar hann kom heim úr vinnunni á föstudaginn sagðist hann hafa farið í Húsasmiðjuna og skoðað skrúfuboxin og munað eftir orðum mínum um að hann væri aldrei að skrúfa neitt svo hann fór bara í Ríkið og keypti bjór því ég hefði oft séð hann drekka svoleiðis.