Síður

mánudagur, 4. janúar 2010


Árið 2009
Eftir hinn fyrsta vinnudag á nýbyrjuðu ári er ég að velta því fyrir mér hvernig árið 2009 var. Ég var ekkert að spekulera í þessu á meðan ég var í frábæru jólafríi en þegar rútínan tekur aftur við rankar maður til lífsins og fer aftur að hugsa.
Mér finnst árið 2009 hafa runnið hjá án þess að ég tæki neitt sérstaklega eftir því. Það finnst mér sorglegt því hver mínúta sem maður lifir er svo dýrmæt.
Ég verð að draga fram úr hugskoti mínu hvað ég gerði á þessu ári og reyna að rifja það upp. Þegar ég legg mig fram þá kemur ýmislegt skemmtilegt í ljós sem ég gerði en ég held að í mínum huga verði árið 2009, í framtíðinni, árið eftir hrun. Árið sem ég var að jafna mig andlega eftir hrunið.
Hrunið skildi eftir sig djúpt far hjá mér. Ekki það að ég tapaði peningum, ég átti enga fyrir, heldur varð ég svartsýn á framtíðina og fann til mikils svartnættis þegar ég hlustaði á Geir Haarde fara með Guð blessi Ísland ræðuna 6. okt 2008. Ég sá bara enga framtíð neins staðar. Það var bara svartur veggur framundan.
Ég held að ég hafi að mestu leyti náð mér en þó finn ég stöku sinnum örla á þessu hræðilega svartsýni. Ég reyni að sjá björtu hliðarnar og tek undir með fólki þegar talað er um að ekkert annað en bjartsýni á framtíðina sé í boði en ég er oft að leika þá og látast.
Maður getur verið skratti góður leikari.

sunnudagur, 3. janúar 2010

Matseðill
Við, Simmi minn vorum að plana matseðil næstu viku, svona til hægðarauka og kannski sparnaðarauka. Í kvöld var kjötsúpa, sem gamlingjarnir okkar snæddu með okkur. Á morgun verður afgangurinn af henni í matinn. Á þriðjudaginn verður saltfiskur með kartöflum og rófum. Ég ætla að sleppa rúgbrauðinu vegna hitaeininganna í því. Á miðvikudaginn verður hakk og spaghettí. Á fimmtudaginn verður kjöt í karrí. Á föstudaginn verður pizza. Á laugardaginn verður steik með grjónum og bernaisesósu. Sunnudagurinn er óráðinn enn.
Í hádeginu borðar Simmi minn á einhverjum veitingastað á Suðurnesjunum en ég fæ mér eitthvað létt. Einn daginn verður það grænmetisbaka a la Svava Rán. Einn daginn hrátt grænmeti með kotasælu og kannski túnfisk. Einn daginn bökuð sæt kartafla með kotasælu. Einn daginn brauðsneið með osti.
Í morgunmat fæ ég mér appelsínusafa og hafragraut með kanil.
Um miðjan dag fæ ég mér ávexti og möndlur.
Svo er bara að gæta þess að hitaeiningarnar fari ekki yfir 1500.
Ef markmiðinu skal náð.
Ég á mér markmið.

laugardagur, 2. janúar 2010

Nýársheit
Á nýju ári
á labbi
á neshringnum
í blankalogni
í frosti
í góðu skapi
með plan í huga
með von um gott og gjöfult ár
með áætlun fyrir framtíðina
hringinn
neshringinn
við göngum ævihringinn

föstudagur, 1. janúar 2010


Áramót
Við, Simmi minn, eyddum gamlárskvöldinu tvö í tangó og höfðum það bara næs. Hann fékk að ráða aðalréttinum en ég sá um forréttinn og eftirréttinn. Það var nú ekki flókið. Ég fékk hráskinku í jólagjöf frá vinnuveitenda mínum sem ég setti á diska ásamt melónusneiðum og klettasalati. Frábær forréttur. Í eftirrétt var svo heimagerði jólaísinn, sem við gleymdum að borða á jólunum, ásamt súkkulaðisósu og ávöxtum.
Í aðalrétt hafði Simmi minn læri af lambi undan Eyjafjöllunum.
Við horfðum á skaupið og erum viss um að þetta sé besta skaupið hingað til. Það var eins og að horfa á bíómynd.
Það brást ekki, frekar en venjulega, að ég grenjaði þegar árið fjaraði út á sjónvarpsskjánum. Það er bara eitthvað sem ég ræð ekki við. Eftirsjá eftir einhverju sem maður þekkir og kvíði fyrir því sem maður þekkir ekki, gæti verið skýring á viðkvæmninni en það er kannski bara bölvuð della að reyna að útskýra viðkvæmni. Simmi minn hélt utan um mig og reyndi, af vanmætt,i að skilja þessi ósköp. Dótla mín stóð oftast hjá mér, hér á árum áður og grét með mér en nú hringdi ég í hana, yfir hafið til að athuga hvernig hún hefði það. Og auðvitað var hún í góðum gír með sínum strákum og vinafólki. Sama var með Vesturgötuliðið. Það var í góðra vina hópi að fagna nýja árinu.
Þegar 2010 var örugglega byrjað að tifa og við búin að opna kampavínsflöskuna töltum við yfir götuna til Finna og Jónu. Sátum hjá þeim í góðu spjalli eitthvað fram á árið.
Nýársdagur hefur liðið í indælis ró við slökun, lestur og góðan göngutúr.

miðvikudagur, 30. desember 2009

Áramótasteikin
"Vantar þig eitthvað úr Krónunni," spurði Simmi minn í símanum í dag. Hann var á leiðinni heim. Ég var nýkomin úr Bónusferð frá Selfossi.
"Nei, ég er búin að redda öllu fyrir áramótin, ekki hafa áhyggjur af neinu, elskan. Ertu kominn á heimstímið?"
"Já, félagi minn á bara eftir að kaupa fyllinguna í kalkúninn, svo leggjum við í hann."
Ég fékk eins og létt högg í hausinn og blés út úr mér, þarna í símann, því sem ég var búin að hugsa en vissi alveg að þýddi ekki neitt fyrir mig að tala um.
"Af hverju getum við ekki haft kalkún eða hreindýr eða andabringur eða nautalundir eða gæs í matinn á gamlárskvöld? Af hverju þarf alltaf að elda það sem þú vilt?"
"Heyrðu, ástin mín, tölum um þetta þegar ég kem heim."
Þegar Simmi minn kom heim heim stakk hann bara upp á því að um næstu áramót yrðum við á Kanarí eða einhvers staðar að heiman þar sem við snæddum á veitingastað svo hver geti pantað það sem hann vill borða.
Já, sumir komast létt frá hlutunum.
Það er ekki hægt að segja annað.

laugardagur, 26. desember 2009


Jólamús
Í gær, eftir að myrkrið skall á, það skall reyndar ekkert á, það bara er á þessum árstíma, þá vorum við Simmi minn á heimleið, gangandi úr veislu og vorum komin allan göngustíginn milli Skálholtsbrautar og götunnar okkar þegar mús gekk í veg fyrir okkur.
Ég hef hingað til séð mýs skjótast allhratt eða hlaupa í felur. Þessi var ekki í þeim gír, hún bara gekk í veg fyrir okkur sallaróleg. Hún var ekki á útsýnisgöngu, gæti hafa verið á heilsubótargöngu. Hún var alla vega ekki hrædd við neitt eða að flýja aðstæður.
Mér fannst allgjör upplifun að sjá músina svona afslappaða. Ég á mér nefnilega leynda samvisku af því ég drap svo margar mýs á Tærgesenárunum. Það var svo leiðinlegt að hafa þær skokkandi yfir salinn þegar gestir sátu við borðhald eða öllu verra að heyra skrjafið í þeim á morgnana ofan í kornflekspakkanum þannig að við vorum sífellt á músaveiðum. Svo fengum við okkur kött. Þá breyttist allt sem viðkom músum á Tærgesen en það er önnur saga.
En þessi litla sæta, feita mús sem ég sá í gærkvöldi var næstum búin að fá boð um að kíkja í heimsókn.
Simmi minn lagði til að flýttum okkur að loka dyrunum á eftir okkur svo hún kæmi ekki inn.
Ég rankaði við mér og fannst það góð tillaga.
Ég var samt að hugsa um greyið úti í kuldanum og vorkenna henni.
Mér fannst hún krúttleg.
Krúttleg jólamús.

þriðjudagur, 22. desember 2009

Jólatrté
"Simmi, áttu ekki að vera að selja jólatré, núna", spurði ég Simma minn í skelfingarkasti seinnipartinn á sunnudag.
Hann stökk upp úr leisíboj, frá því að horfa endalaust á fótbolta í sjónvarpinu, snerist í hringi og spurði mig hvaða dagur væri.
"Simmi", sagði ég umvöndunartón, eins og við lítinn strák.
Hann rauk fram í forstofu og í yfirhöfn og á meðan hann klæddi sig í á hlaupum las hann blaðið frá KIwanisköllunum, þar sem á stendur hver á að sjá um sölu hvenær. Og viti menn, ég hafði rétt fyrir mér, hann átti að selja þennan dag nema hvað sölu lauk þann dag klukkan sex og akkúrat á þessu augnabliki var klukkan sex.
Hann fór úr frakkanum og skammaðist sín.
Daginn eftir, þar sem ég synti mína þúsund metra í rólegheitum, þannig lagað, ég var komin í jólafrí, fattaði ég að jólatrjáasölu Kiwaniskallanna lauk alveg á sunnudag.
Ég gleymdi að kaupa jólatré.
Tíminn flaug frá mér.
Ég reddaði tré í höfuðborginni í dag frá Flugbjörgunarsveitinni.
Einhvern tímann verður allt fyrst.
Flugbjörgunartré í stað Kiwanistrés.
Jólatréð í stofu stendur...............

sunnudagur, 20. desember 2009

Jólalög
Ég á þrjú uppáhaldsjólalög, allavega tvö þeirra tengd miklum tilfinningum.
Á toppnum trónir War is over með þeim skötuhjúum John Lennon og Yoko Ono.
Þetta lag hafði ég heyrt, en ekkert sérstaklega tekið eftir, þegar við Simmi minn vorum stödd í Hull, af öllum stöðum á jarðríki, fyrir nokkrum áratugum síðan, í byrjun desember og þvældumst inn á einhvern lókaklúbb um kvöld eftir að hafa lokið verkefnum dagsins.
Þarna var heldur betur þröngt á þingi og þröngt setinn bekkurinn. Fyrir einhverja guðsmildi fengum við sæti. Simmi minn fór á barinn, eins og svo oft áður, og náði fyrir okkur í drykki.
Þar sem við sátum á baklausum bekkjum og höfðum bara veggina til að styðja okkur við setti plötusnúðurinn War is over eða eins og ég vil frekar kalla lagið So this is christmas á fóninn á þeim hæsta styrk sem um getur. Veggirnir titruðu þannig að tónlist Lennons hríslaðist inn í mig.
Algjörlega.
Ég fékk lagið beint í æð.
Síðan þá situr þetta lag gikkfast í mér sem jólalag jólalaganna.

laugardagur, 19. desember 2009

Jólainnkaup
Ég dró hann Simma minn í höfuðborgina í dag til að kaupa síðustu jólagjafirnar. Á tossalistanum stóð líka Bónus og neðst hafði ég laumast til að skrifa jólakjóll.
Ég þurfti ekki að hafa tossalista, ég vissi alveg hvað átti eftir að kaupa en Simmi minn krafðist þess að ég hefði lista meðferðis, þannig að til þess að friða hann skrifaði ég lista.
Það gekk bara vel að kaupa það sem var á listanum. En þegar var komið að jólakjólnum þá þurfti að fara að flýta sér, því það var leikur í sjónvarpinu sem mátti ekki missa af.
Að velja kjól með þetta á bakinu er ekki auðvelt. Ég reyndi að láta sem ég hefði ekki heyrt þetta og dró Simma minn í þrjár kjólabúðir.
Ég sá bara druslur til að byrja með og var við það að gefast upp þegar ég sá tvo nokkuð góða kjóla hangandi hlið við hlið í sömu búðinni.
Ég mátaði báða en aðeins annar kom til greina. Simmi minn vildi að ég keypti
báða en það var örugglega til þess að forðast valkvíðakast og komast sem fyrst heim í sjónvarpið.
Ég var fljót að velja, því annar var með band sem átti að binda um sig miðjan, en það er eitthvað sem ég þoli ekki á fötum. Það má ekki binda neitt neins staðar í fötum sem ég klæðist.
Ég valdi fínan jólakjól.
Ég á fínan jólakjól.
Held það verði kjólajól í ár.

miðvikudagur, 16. desember 2009

Bjölluhljómur
"Hlátur þinn hljómar eins og klukknahljómur í mínum eyrum," sagði Simmi minn í morgun við mig þegar við hittumst við Íþróttamiðstöðina, hann að koma úr ræktinni og ég að bíða eftir að sundlaugin verði opnuð.
Mér fannst hann svo rómantískur og sætur að ég ætlaði að rjúka á hann þarna fyrir framan félaga mína í Húnafélaginu og kyssa hann fyrir hugguleg orð í minn garð. Ég hafði einmitt verið að hlæja að einhverju fyndnu sem einhver Húnninn hafði látið út úr sér.
Þá upplýsti minn elskulegi að hann hefði stolið þessari setningu frá Trúðnum og klikkti svo út með að lýsa einhverju atriði úr þeirri sjónvarpsþáttaseríu.
Rómantíkin flaug á enda veraldar.
Það mátti nú láta sig dreyma.
Smá stund.
Andartak.
Andartak í rómantískum draumi.

sunnudagur, 13. desember 2009

Bakstri frestað
Ég var alveg ákveðin í því að baka í dag. Það er ekki eins og það sé nauðsynlegt fyrir mig að baka. En einhvern veginn tilheyrir það jólaundirbúningnum að baka og af því ég er búin að undarbúa flest annað þá var kominn tími á baksturinn.
En ég mátti vita það. Ég hef svo oft lent í því. Í rauninni lendi ég alltaf í því þegar mér dettur í hug að skella í köku.
Það er alveg sama þó ég lesi uppskriftina vel og vandlega áður en ég kaupi inn, þá vantar mig alltaf eitthvað til þess að geta búið til deigið. Venjulega verð ég að hlaupa, ekki einu sinni heldur tvisvar út í búð til að kaupa það sem vantar. Það getur verið sykur af því ég átti ekki alveg nóg í skúffunni eða eitthvert krydd eða bara hvað sem er.
Þannig var það núna. Ég tíndi allt til sem á að vera í brúnni lagtertu og þá vantaði púðursykurinn.
Á sunnudögum er ekki opið í matvöruverslunni hér, þannig að ég hafði góða afsökun fyrir því að fresta bakstrinum og gera eitthvað annað.
Slaka á og prjóna.
Ég er eiginlega alltaf að hafa það næs og slaka á.

föstudagur, 11. desember 2009


Jólafílingur
Ég fékk nett nostalgíukast í dag þegar ég setti á fóninn disk sem ég fékk sendan frá dótlu minni í gær. Ég fæ pakka upp á hvern dag nú orðið. Ég veit ekki hvernig þetta endar.
Sum sé, í gær dró ég upp úr sendingu, frá Wales, pakka sem á stóð að við Simmi minn ættum að opna hann strax, já, núna.
Við þorðum ekki annað en að hlýða þessari skipun. Úr pakkanum kom diskur sem við könnuðumst við frá fornri tíð.
Willie Nelson-PRETTY PAPER.
Jóladiskur jóladiskanna.
Þessi diskur....nei þessi plata var sett á fóninn þann 1. des. ár hvert, í mörg ár, á mínu heimili. Það var frí í skólanum og ég notaði tækifærið og bakaði smákökur til jólanna, það var kveikt á jóladagatalakertinu og hnetukerlingarnar voru hengdar upp og Willie settur á fóninn. Ilmur bakstursins fyllti húsið um leið og rödd Willie Nelsons hljómaði.
Jólin voru greinilega á næsta leiti.
Þetta er siður sem gleymist ekki en hefur breyst í tímans rás eins og allt annað.
Annað væri óeðlilegt.
Ég fékk Willie aftur núna og rifjaði upp gamla tíð.
Ég hef ekki spilað hann í mörg ár af því fónninn er ekki lengur til á heimilinu.
Willie er komin í hús og það er gott mál.

fimmtudagur, 10. desember 2009

Jólabollar
Ég fékk pakka í pósti í gær. Ég hélt að það væri komin sending frá Wales en svo var ekki. Pakkinn reyndist vera frá Noregi. Ég varð alveg standandi hissa og renndi í gegnum hugann þeim sem ég þekki í Noregi. Þeir eru ekki svo margir en einhverra hluta vegna hugsaði ég mest til kærs æskufélaga, sem búið hefur í Noregi í mörg ár, á meðan ég tók pakkann upp. Átti samt alls ekki von á neinni sendingu frá honum. Ég reyndist sannspá. Upp úr pakkanum kom hugguleg orðsending og tveir bollar með jólasveinamyndum á. Sendandinn var Bárður.
Ég geri ráð fyrir að færsla mín, frá því um daginn, um norsku jólaglösin, eigi hér einhvern hlut að máli.
Ég varð svo glöð um leið og ég var hissa en af því Bárður byrjaði á því að biðja mig um óskapast ekkert yfir þessu, þá ætla ég ekki að gera það. Bara halda áfram að vera glöð yfir því að eiga svona huggulegan og skemmtilegan vin.
Og vera glöð með jólabollana mína.
Nú á ég norska jólabolla fyrir kaffið sem verður drukkið með koníakinu úr norsku jólaglösunum.

þriðjudagur, 8. desember 2009

Jólabakstur
Ég hef verið að pæla í því að baka bara ekki neitt fyrir þessi jól af því að ef ég á kökur þá ligg ég í þeim og fæ svo bara illt í magann og samviskubit. Simmi minn borðar ekki kökur og við erum ekki með jólakaffi fyrir neinn sérstakan. Fyrir utan það þá hendi ég kökunum síðar af því mér tekst yfirleitt ekki, sem betur fer, að klára úr stömpunum.
Samt langar mig svolítið að baka. Það fylgir jólunum.
"Finnst þér að ég eigi að baka eitthvað fyrir þessi jól," spurði ég Simma minn.
"Já, mig langar svolítið í brúna lagtertu," svaraði hann að bragði.
Hann borðar ekki kökur en langar í brúna lagtertu.
Auðvitað fær hann brúna lagtertu.
Ég fæ súkkulaði-og hnetukökur.

sunnudagur, 6. desember 2009

Rökstólar
Fyrir nokkrum árum keyptum við, Simmi minn, tvo körfustóla á lagersölu hjá einhverju kompaníi í höfuðborginni og komum þeim fyrir í litlu stofunni okkar. Þeir eru ekki svona kósístólar. Maður verður að sitja nokkuð beinn í baki og lappastuttir verða að tylla sér á brúnina til að ná með fótunum niður. Ég var lengi að sætta mig við þessa aumu ákvörðun að kaupa þessa stóla.
Nú hef ég tekið þá algjörlega í sátt.
Þessir stólar heita rökstólar á heimilinu núna og eru notaðir seinnipart dags þegar færi gefst.
Það er þegar, Simmi minn er heima seinnipartinn. Þá setjumst við í þessa stóla og röbbum saman um lífið og tilveruna, hvað er nýjast í fréttum, hvort sem það eru fréttir af familíunni eða landsmálunum.
Við setjumst á rökstóla.
Við, Simmi minn.
Þegar færi gefst.

föstudagur, 4. desember 2009


Jólaglös
Ég kom við í Jólagarðinum í Eyjafirði í sumar og keypti þar tvö koníaksglös. Ég ætlaði ekki að kaupa neitt. Var búin að skanna búðina og komast í jólaskap, þrátt fyrir að það var mitt sumar en ég var enn undir áhrifum kreppunnar og gat ekki hugsað mér að eyða aurunum mínum í einhverja vitleysu.
Þar sem ég var á leiðinni út úr Garðinum, kom ég auga á glös og skálar og eitthvað fleira, skreytt með gamaldags jólasveinamyndum og gyllingu. Þetta fangaði mig. Ég fór, sum sé, út með tvö rándýr glös, að mínu mati. Ég var með dálítið samviskubit fram eftir hausti,vegna eyðslusemi en þegr ég dró glösin fram um daginn og bauð Simma mínum að fá sér koníksdreitil með mér, fannst mér að ég yrði að eignast fleiti glös.
Ég mannaði mig upp í það áðan að hringja í Jólagarðinn í þeirri von að jólasveinninn þar sendi mér rauðvínsglös fyrir jólin.
Ég verð að bíða eftir þeim, því allt er uppselt hjá honum.
Nema ég skreppi til Noregs og kaupi þau beint frá frá Magnor glassverk. Nei, ég segi bara svona.

miðvikudagur, 2. desember 2009


Dónadúettinn
Rosalega varð ég hissa þegar ég fór bloggrúntinn minn í dag og við mér blasti mynd af syni mínum á síðu dr. gunna. Þetta var þá mynd af Dónadúettinum en dr. gunni mun hita upp fyrir þá á útgáfutónleikunum sem verða í kvöld á Kringlukránni.
Ég hlakka rosalega til að fara. Þarna eru á ferð tveir snillingar (ég veit, ég á annan og hverjum þykir sinn fugl fagur og allt það) á ferð, hr.Óttó og dr. Kalli. Lögin þeirra eru öll stutt, einskonar örlög. Þeir semja lög með viðlagi en endurtaka viðlagið aldrei. Það er bara fyndið. Svo eru textarnir fyndnir þó þeir fjalli um kúk og piss og ýmis viðkvæm mál.
Maður mætir í vissum gír, húmorgír, þegar maður fer á tónleika með Dónadúettinum.
Á síðu dr.gunna er hægt að nálgast eitt laga dúettsins: Dagbjört og Rúna

þriðjudagur, 1. desember 2009

Fyrirhuguð dekkjaskipti
Ég var send í dag til þess að kaupa notuð dekk undir Lindu Black, koma þeim og Lindu til dekkjakarlsins til að skipta út sléttum dekkjum fyrir þessi nýju, notuðu. Ég var eins og útspýtt hundsskinn á milli mjalta og messu til að gegna þessum erindum. Kuldinn alveg að drepa mann en þessu erindi varð að sinna.
Hringir ekki dekkjakarlinn í mig, rétt fyrir kvöldmat og tjáir mér að dekkin sem ég hafi komið með passi ekki undir bílinn.
Hvað var hann Simmi minn að pæla?
Veit hann ekki hvaða dekkjastærð er undir Lindu?

mánudagur, 30. nóvember 2009


Perutré
"Ég ætla rétt að vona það, að enginn taki eftir því að við erum að hengja ljósin á perutréð," kallaði ég niður til hans Simma míns, þar sem ég var að nálgast himininn, búin að klifra svo hátt upp í stóru öspina í garðinum, en hann stóð fyrir neðan og þóttist rétta mér seríuna.
"Nú, af hverju segirðu það," spurði hann.
"Finnst þér í lagi að ég sé hérna uppi og þú þarna niðri?"
"Já, það er í góðu lagi. Þú klifraðir upp í fyrra, þannig að þú ert í æfingu en ekki ég."
Perutréð er fallegra en í fyrra. Það gerir æfingin.

laugardagur, 28. nóvember 2009


Ekta enska
"Hvernig er það, ástin mín, ertu ekki farin að pæla í að baka ekta ensku jólakökuna," spurði Simmi minn starandi á flöskur í koníaksrekkanum í Ríkinu.
"Jú, ég er búin að taka þá ákvörðun að baka hana ekki í ár."
"Nú, af hverju?" spurði Simmi minn, enn að virða fyrir tegundir koníaks.
"Ég tók þá ákvörðun um daginn, að með því að sleppa því að baka ekta ensku í ár, sparaði ég fullt af af peningum. Þetta er sem sagt liður í sparnaði heimilishaldsins."
"Nú, er það," sagðí,Simmi minn, með vonbrigðasvip á andlitinu um leið og hann sneri sér frá koníaksrekkanum.
Ég ákvað að vorkenna honum ekki neitt. Hann hefur aldrei borðað eina sneið af ekta ensku. Ég borða af henni eins og ég get og svo skemmist afgangurinn. En hann, Simmi minn, hefur séð um að vökva kökuna, eins og nauðsynlegt er, einu sinni í viku a.m.k. með koníaki en ég hef alltaf verið svo hissa á því hvað flaskan tæmist á skömmum tíma á miðað við það, að það á bara að dreypa nokkrum dropum yfir kökuna í hvert eitt sinn.
En þarna er kannski komin skýring á því af hverju þessi sorgar-og vonbrigðasvipur var á Simma mínum þegar ég sagði honum að kaka yrði ekki bökuð í ár.

föstudagur, 27. nóvember 2009

Jólahreingerning
Ég kom svona líka hress heim úr vinnunni í dag. Ég réð bara ekki neitt við neitt og var búin að taka bókahillurnar í gegn áður en ég vissi af. Ég á margar bækur, margar, margar bækur og þær safna ryki. Það er argans mikil vinna að taka hverja einustu bók úr hillunum og bursta af þeim rykið, þurrka rykið, sem hefur safnast fyrir á bak við bækurnar og koma þeim svo fyrir á réttan stað í hillunum aftur.
En ég er búin. og ekki nóg með það heldur bættti ég herbergisgluggunum við, þreif þá hátt og lagt, þvoði gardínur, líka rimlagluggatjöldin, og kom jólaljósum fyrir.
Hér angar allt af hreinlæti.

miðvikudagur, 25. nóvember 2009

Blóðsykur
Ég er oft hrikalega áhrifagjörn og er oft sammála síðasta ræðumanni, jæja, kannski ekki alveg alltaf en mér finnst margir svo klárir og gáfaðir að ég fæ minnimáttarkennd. En ég ríf mig nú ofast upp úr því og laga til sjálfstraustið.
En aftur að áhrifagirninni.
Ég las í DV í fyrradag um hinar ýmsu matartegundir sem vinna á fitu. Þar var margt forvitnilegt. Til dæmis þetta með kanilinn. Ég nota kanil eingöngu út á grjónagraut og þá baðaðan sykri og svo í einhverjar smákökutegundir. En ¼ úr teskeið, t.d. út á hafragrautinn eða jógúrtið eða hvað sem er, á að halda blóðsykrinum í jafnvægi. Lauren Slayton, löggiltur næringarráðgjafi í New York segir að blóðsykur hækki oft eftir máltíðir og gefi líkamanum til kynna að hann eigi að geyma fituna frekar en brenna henni.
Ég hugsaði strax með mér að kannski væri eitthvað að blóðsykrinum í mér og fékk mér kanil út á hafragrautinn minn í morgun.
Nú bíð ég spennt hvort ég finni einhvern mun á mér.
Það er bara verst að ég veit ekki hvað ég á að finna.

þriðjudagur, 24. nóvember 2009

Að lifa lífinu
Ég heyri stundum fólk, þá sérstaklega ungt fólk, tala um að það eigi sér ekkert líf og er þá yfirleitt að skírskota til þess að það vinni svo mikið eða að það fari svo mikill timi í skólalærdóm.
Mér finnst þetta eiginlega alveg hræðilegt. Hræðilegt að því leyti að fólk virðist ekki skilja að lífið er núna. Það kemur ekki eftir vinnu eða þegar búið er að læra.
Lífið er augnablikið sem maður lifir.
Það er ekki alveg nóg að skilja þetta, það þarf líka að læra að njóta hvers augnabliks í lífinu. Ekkert kemur til baka, stundin sem maður dregur andann er mikilvægust og framtíðin er óráðin.
Eða eins og Dónadúettinn syngur: Um leið og þú hugsar um núið er það búið.

sunnudagur, 22. nóvember 2009

Jólaljós
Ég keypti ný jólaljós í stofugluggana í Garðheimum á föstudaginn og þau voru hengd upp í gær. En áður en það gerðist tók ég gardínurnar niður og þvoði þær, þreif gluggana og áður en ég vissi af var ég búin að taka alla stofuna í gegn, þvo alla glerhundana og strjúka veggina.
Nú er stofan eiginlega tilbúin til að taka á móti jólunum.
Ég var hrædd um að ljósin yrðu einhvern veginn yfirþyrmandi og of mikil en þau eru bara þægileg og mjúk.
Ljósin í gluggunum eru bara flott.
Flott jólaljós.

laugardagur, 21. nóvember 2009


Álegg
Hann Simmi minn var heldur búralegur í gær þegar hann sauð og pressaði rúllupylsur sem hann hanteraði um daginn og hafði verið með í saltpækli í nokkra daga.
Rúllupylsupressuna tókum við svilkona mín traustataki úr Búrfelli ÁR 40 þegar við höfðum ítök í því skipi. Við gerðum ekki ráð fyrir að kokkurinn þar notaði pressuna nokkuð. Pressan er enn í okkar fórum og Simmi minn notar hana stundum.
Og nú eigum við álegg á margar, margar brauðsneiðar.

föstudagur, 20. nóvember 2009

Jólainnkaup
Þó að ég sé búin að kveikja á skammdegisljósunum mínum, fyrir nokkru, þá er ég ekki endilega komin í jólaskap. Það er ekkert samhengi þar á milli. Skammdegisljósin eru eitt og jólafílingur er annað.
En ég hengdi upp eldhúsjólagardínur áðan. Nýjar gardínur. Við, Simmi minn, fórum sum sé saman í Rúmfatalagerinn í dag með ýmis verkefni í huganum, eins og að skoða garn í peysu á dótlu, sem vill lopapeysu sem er ekki úr lopa, athuga jólaljós í stofugluggann og skoða eldhúsgardínur.
Við fórum tæpum tólfþúsundum fátækari út úr búðinni með nýjar gardínur í poka, stóran pakka af batteríum og sílikon sleikju.
Ég var sirka 30 mínútur að falda gardínurnar (á hliðunum) og hengja þær upp. Ég gat ekki beðið. Áður þreif ég gluggann með útþynntu Ajax, þannig að nú er orðið ótrúlega jólalegt hjá mér, bæði hvað sjón og lykt varðar.

fimmtudagur, 19. nóvember 2009


Hvað er í matinn?
Það mætti halda að hann Simmi minn hafi liðið matarskort í æsku eða einhvern tímann þurft að búa við hungur og hörmunga. Hann pælir endalaust í því hvað á að vera í matinn. Hann er oftast búinn að skipuleggja matseðilinn fram í tímann.
Það er alls ekki sama hvað er í matinn. Það þarf að vera soðið eða steikt, kjöt eða fiskur.
Ef mig langar í eitthvað "léttara" og sting upp á því þá kemur á hann sérstakur svipur sem segir mér að hann sé ekki alveg nógu ánægður. En stundum fer ég mínu fram og elda pasta eða kjúklingabringur eða grænmetisrétti. Hann borðar þetta allt, það er ekki það,en honum finnst þetta varla matur og á það til að segja eins og mamma hans heitin:
"Þetta er nú alveg á við máltíð."
Það er besta hrósið sem ég fæ.

miðvikudagur, 16. september 2009

Keimlík hjón
Þegar ég kom heim úr vinnunni í dag sá ég að Simmi minn hafði tekið gúllas úr frysti áður en hann fór til vinnu í morgun. Ég hafði náttúrlega ekki haft hugsun á því.
Ég hringdi í hann til þess að fá að vita hvort hann hefði haft einhvern sérstakan rétt í huga þegar hann tók bitana úr frysti.
"Nei, nei, ástin mín eldaðu bara úr þessu það sem þér dettur í hug," sagði hann.
"OK, ég finn eitthvað út úr þessu og kem þer á óvart," sagði ég.
Mér datt strax í hug að elda úr þessu kínverskan pottrétt og snaraði mér í það þegar leið að kvöldverði. Þegar ég var búin að steikja kjötið og skera niður gulrætur, paprikku og lauk og ætlaði að finna til ananasinn og soyasósuna var hvorugt til. Ég slökkti á eldavélinni og skondraði út í kaupfélag, sem heitir núna Kjarval, og reddaði því sem vantaði.
Þegar ég kom heim var síminn hringjandi. Í símanun var Simmi minn með frábæra hugmynd.
"Heyrðu, elskan, hvað segirðu um að elda kínverskan pottrétt úr gúllasinu?"
Ætli þetta sé ekki dæmi um að eldast saman og í sömu átt en ekki að þroskast í sundur eins og stundum er talað um?

miðvikudagur, 9. september 2009

Aftur í sund
Mikið lifandis skelfingar ósköp var gott að komast í sund í morgun. Ég var skíthrædd um að ég væri búin að gleyma sundtökunum en svo var ekki. Ég synti mína 1000 metra eins og ekkert væri.
Ég gæti líka alveg vanist því að ganga fyrir vinnu á morgnana. Ég er búin að gera það núna í tvær vikur og finnst það alveg frábært en ég býst við að sundið hafi yfirhöndina.
Sundið hressir kroppinn og nærir sálina.

þriðjudagur, 8. september 2009

Fleiri kreppuráð
Ég eignaðist nokkrar "nýjar" flíkur um helgina. Það er nú kannski ekki í frásögur færandi en mér finnst það dulítið merkilegt af því að þetta voru allt föt, hangandi inni í skáp hjá mér, sem ég var hætt að nota ýmist vegna þess að þau voru svo hrikalega ljót á litin eða orðin snjáð og mött af mikilli notkun eða þvotti.
Ég keypti mér svartan fatalit og skellti hrúgunni í þvottavélina, í tveimur hollum, og litnum með ásamt kíló af salti og viti menn: Snjáða ljóta fatahrúgan breyttist í hin fínustu föt, splunkuný að sjá.

Þegar launin lækka verður að gera eitthvað í málinu.
Þetta er einn liður.

miðvikudagur, 2. september 2009

Kreppuráð
Neyðin kennir naktri konu að spinna, segir máltækið. Það sannast á mér þessa dagana. Ég hef aldrei getað hugsað mér að byrja skóla að hausti án þess að eiga einhverja nýja flík, helst margar en nú bregður öðruvísi við. Það eina sem ég hef fengið nýtt utan á mig að undanförnu eru prjónaðar lopaflíkur. Það er vegna þess að lopinn er ódýrasta fataefnið sem ég veit um. Vesti fæst á innan við þúsund kall og peysa á milli tvö og þrjúþúsund.
Annað ráð sem ég hef tekið upp til að klæðast "nýjum" fötum er að nota fötin aftur sem ég var búin að leggja til hliðar. Það kom reyndar ekki til af góðu. Ég hef einfaldlega stækkað upp úr mörgum flíkum án þess að vera búin að fá leið á þeim hvað þá slíta. En ég sneri vörn í sókn í vor gagnvart ofstækkun og þar af leiðandi er ég farin að nota bæði pils og buxur sem ég var hætt að komast í.

þriðjudagur, 1. september 2009

Bresk kurteisi
"Segðu góða nótt við ömmu," sagði dótla mín, hinum megin við Atlantshafið og rétti Lúkasi símtólið.
"Good night, amma,"sagði Lúkas.
"Góða nótt," Lúkas minn,"ertu að fara að sofa?"
"Not, yet."
"Hvað fékkstu að borða?"
"Can I watch the TV, please?"
"Já, já,Lúkas minn þú mátt horfa á sjónvarpið."
Þá heyrðist hvíslað: "I love you."

Hvað ætli, bráðum sex ára gutti, nenni að röfla við ömmu sem talar ekki sama tungumál og hann!
En hann gleymir ekki að vera kurteis.

mánudagur, 31. ágúst 2009

Bjartur dagur
Ég var orðin frekar döpur þegar hann Simmi minn las laugardagsmoggann því hann gat tuðað yfir einhverju á hverri einustu blaðsíðu.
"Helvítis fíflið."
"Andskotans aumingjar."
"Þetta gengur ekki lengur."
"Það verður að fara að gera eitthvað í þessu."
Svona gekk lesturinn fyrir sig þangað til að hann var kominn á næstöftustu síðu þá kom fyrsta ljós dagsins.
"Mikið djöfull er Madonna alltaf flott."

Guði sé lof að maðurinn minn fann eitthvað jákvætt. Honum er þá ekki alls varnað.

föstudagur, 28. ágúst 2009

Ein útilega enn
"Er komin vetur?" spurði mágur minn í gær.
Hann var í símanum og ég vissi alveg hvað hann meinti svo ég svaraði því til að það væri sko ekki kominn vetur.
Við ætlum sem sagt í eina útilegu enn. Það er spáð blíðskaparveðri á Suðurlandi og við förum á eitthvert gott tjaldstæði þegar Simmi minn kemur heim úr vinnunni.
Og nokkrir góðir vinir með.

fimmtudagur, 27. ágúst 2009

Prjónadella
Ég kláraði hettupeysu á Nönnu á dag. Hún liggur á gólfinu til þerris. Mig vantar bara tölur á hana. Nanna pantaði bláa hettupeysu hjá mér þegar ég var búin að prjóna svarta lobbu á Kolbein.
Ég get varla beðið með að komast í búð á morgun að kaupa lopa í peysu á sjálfa mig. Næst verður það fjólublá peysa úr léttlopa og einbandi.

miðvikudagur, 26. ágúst 2009

Endalaust montin mamma
Ég sá það á fésbókinni hennar Elsu að hún hefði verið að hlusta á svefndoktorinn á Morgunvaktinni í morgun. Ég skil ekkert í því að ég skuli ekki hafa verið látin vita að hann yrði þar.
En sem betur fer er allt á netinu þannig að ég gat hlustað á hann í hádeginu.
Á Morgunvaktina kemur einu sinni í viku einhver sérfræðingur. Hann útskýrir sitt sérsvið og svo geta hlustendur hringt inn og spurt sérfræðinginn að hverju sem tengist hans sviði.
Mér finnst það í rauninni enn dálítið óraunverulegt að ég skuli eiga sérfræðing, vísindamann, doktor eða hvað nú ná að kalla hann Kalla minn.
En hann stóð sig vel eins og hans var von og vísa og ég sat brosandi útaað eyrum af monti á meðan ég hlustaði á hann tala.

mánudagur, 17. ágúst 2009

Skólabyrjun

Það var bara fínt að mæta til vinnu í morgun eftir stórgott sumarfrí. Ég segi ekki að ég hefði ekki getað dúllað mér lengur heima en það er líka gott að hitta allt samstarfsfólkið. Við fengum fyrirlestur í dag um grenndarkennslu. Bragi prófessor við Háskólann á Akureyri var með fyrirlesturinn frá kl. 10 til 15. Anna Solla og Unnur kynntu verkefni sem þær unnu í sínu námi sem er líka um grenndarkennslu. Þetta var allt mjög áhugavekjandi. Gott að byrja skólaárið svona.
Ég fékk stundatöfluna mína í hendur og fannst hún heldur einkennileg á að líta. Ég er orðin svo gömul að ég hef ekki nema 19 tíma kennsluskyldu og fæ barqa tvo í yfirvinnu vegna kreppunnar. Ég hef alltaf verið með mikla kennslu og mikla yfirvinnu svo þetta verður aldeilis breyting en því miður kemur það líka við pyngjuna, hún mun léttast en það verður að bíta í það súra enni eins og maðurinn sagði.
Ég fór fýluferð í sundlaugina í morgun. Hafði ekki hugmynd um að hún væri lokuð og yrði svo í nokkra daga.
Ég fór út áðan og skondraði hálftímahringinn til þess að hreyfa mig eitthvað. En sundið er best en það verður að vera fyrir hádegi.

laugardagur, 15. ágúst 2009

Útilegur nútímans

Einhvern tímann verður allt fyrst, segir máltækið. Hvern hefði órað fyrir því fyrir nokkru síðan að maður færi í útilegu með tölvuna með sér og nettengingu.
Þannig er það hjá mér núna.
Þegar við Simmi minn fórum að fara í útilegur saman, fyrst á unglingsaldri síðan með börnin okkar, þá var ég yfir mig hneyksluð á honum að taka bók með sér. Ég man að við tjölduðum einhvern tímann í Þjórsárdal með Kalla lítinn og Simmi tók upp Alister Mc Lane og fór að lesa. Ég átti ekki orð. Ég hafði vanist því með mömmu og pabba að skoða landið í útilegum og njóta þéss að vera úti.
Það er eins gott að pabbi frétti ekki að ég er farin að taka tölvuna með í útilegur.

föstudagur, 14. ágúst 2009

Sumarfrí á enda

Þessi föstudagur er síðasti virki dagurinn sem ég á frí þetta sumarið. Letilíf og leikur er á enda. Á mánudag tekur alvaran við. Ég á að mæta til vinnu.
Sumarið er búið að vera alveg frábært. Við höfum verið á miklu flakki með Sólbrekku í eftirdragi og verið einstaklega heppin með veður. Sól og blíða hvar sem við höfum staldrað við nema á Ísafirði, þar fengum við rok og rigningu og það snjóaði niður í miðjar fjallshlíðar. Það gerði samt ekkert til.
Ég kem afskaplega vel nærð á sál og líkama undan þessu sumri og hlakka til að hitt samstarfsfólkið á mánudaginn.

fimmtudagur, 13. ágúst 2009


Brotið var blað í sögu hans Simma míns þegar hann lét snoðklippa sig í fyrradag. Hann hefur alltaf verið með frekar mikið hár svo þetta er mikil breyting. Honum bregður enn þegar hann lítur í spegil og ég er enn að átta mig á breytingunni.

þriðjudagur, 30. júní 2009

Nanna og Jara, vinkona hennar, voru að leika sér úti í garði í gærkvöldi þegar þær komu hlauðpandi inn til að segja okkur frá sniglum sem þær fundu í grasinu. Mér finnst sniglar ógeðslegir, þannig að ég hélt mér til hlés en Simmi setti djöfsana í krukku til að geta skoðað þá betur.
Þetta eru heljar hlunkar brúnir eða rauðbrúnir að lit og verða nokkrir sentimetrar að lengd þegar þeir teygja úr sér. Okkur datt Spánarsnigillinn í hug en ég held að hann sé svartur.
Þetta minnti okkur líka á "the slugs" sem við urðum vör við í fyrrasumar hjá Svövu Rán í Wales. "The slugs" koma upp á yfirborðið eftir að dimma tekur og skilja eftir sig slikju af einhverju ógeði hvar sem þeir fara. Og miðað við hraða snigilsins var oft ótrúlega mikil slikja á jörðinni þegar við komum út á morgnana. Einu sinni voru skórnir hans Simma míns þaktir þessu dularfulla efni. Honum var nær að gleyma þeim úti.
Simmi minn, hringdi áðan og bað mig um að halda lífi í sniglunum í krukkunni með því að gefa þeim hundasúrur eða eitthvað að borða. Hann var búinn að hringja í einhvern fræðing og sá vill fá sniglana.
Ég get ekki hugsað mér að opna krukkuna svo ég bíð eftir að stelpurnar vakni svo þær geti hjálpað mér.
Þær eru ekkert smeykar við kvikindin.

mánudagur, 29. júní 2009


Við, Simmi minn skruppum, í heimsókn til the Jones´s í Rhosllanercrugog
fyrstu helgina í júní. Við getum ekki látið of langt líða milli þess sem við sjáum yngsta barnabarnið. Hann er algjör snillingur hann Lúkas þorlákur. Duglegur í skólanum og fær oft verðlaun fyrir dugnað og háttprýði. Hann er á öðru ári í skóla þrátt fyrir að vera enn bara fimm ára.
Afi mældi piltinn og gerði strik á vegginn. Lúkas var þá 120 cm.
Nú er ég búin að vera í sumarfríi í tvær vikur og finnst það alveg dásamlegt. Ekki það að ég sé neitt leið á vinnunni minni, það er langt í frá, það er bara svo notalegt að þurfa ekkert að gera nema það sem hugurinn býður upp á þegar farið er á fætur.
Ég hef alltaf lagt morgunsundið niður um leið og skólinn er búinn en nú hef ég haldið áfram að fara í sund á hverjum morgni og finnst það alveg ómissandi.Ég jók við metrana mína, sem ég syndi fyrir nokkrum vikum síðan og fer ekki ofan í vatnið núna fyrir minna en einn kílómetra.
Þannig að ég syndi fimm kílómetra a.m k. á viku og geng svo um helgar.
Líkamsræktinni ætti þannig að vera þjónað.

sunnudagur, 16. mars 2008

Pálmasunnudagur
Ég er vön að taka inn eina grein eða svo af trjánum mínum í garðinum svona rétt mátulega fyrir páska, stinga henni í vatn og bíða svo spennt eftir að laufin spretti út. Síðan skreyti ég þessa grein með ýmislegu páskaskrauti sem mér hefur einhvern veginn áskotnast um dagana. Ég er örugglega orðin of sein þetta árið. Ég gleymdi mér. Tíminn flýgur svo hratt að maður verður að fara að binda sig einhvers staðar fast niður.
Ég fjarlægði öll rauð kerti og setti græn og gul í staðinn, renndi á bak við gardínu jólahrönglinu frá Georg Jensen. Það tekur því ekki að taka það niður. Náði að því búnu í páskaskrautið út í skúr og setti nokkra postulínsunga hjá kertunum.
Það renna saman hjá mér jól og páskar.

laugardagur, 19. janúar 2008

Einsemd

Ég er búin að vera svo lengi ein heima, án þess að sjá nokkurn mann, að ég er farin að tala upphátt við sjálfa mig til þess að mér leiðist ekki eins mikið.
Ég lýg aðeins núna, mamma og pabbi ráku inn nefið í gær til að athuga með mig en það var bara vegna þess að ég hringdi í þau til þess að segja þeim að ég væri með flensu.
Ég notaði tækifærið og sendi pabba út í búð. Mig vantaði te, undanrennu og ávexti.

Ég heyrði sjálfa mig segja áðan: "Ég ætla að snyrta neglurnar."
Þá fór ég og snyrti neglurnar.

Nú býð ég spennt eftir hvað ég heyri næst.
Afkomendur mínir




Mér var það mikið kappsmál að ná saman á mynd öllum afkomendum mínum þennan tíma sem dóttirin stoppaði heima um daginn. Þó að börnin mín séu vel sjálfuppalin og barnabörnin ákafleg prúð og kurteis þá hefur hvert og eitt sínar sérþarfir sem ber auðvitað að virða þannig að afrakstur myndatöku varð frekar rýr.
Montin mamma


Ég er ákaflega stolt af börnunum mínum. Svona litum við út í byrjun þessa árs. Ég farin að velta fyrir mer starfslokum, dóttirin að hefja framhaldsnám í haskóla og doktorinn alltaf með einhverjar rannsóknir á prjónunum.
Vangaveltur

Ástæðan fyrir því að ég hætti að skrifa hugrenningar mínar á blogger var sú að ég gat ekki komið út á vefinn langri færslu. Ég var nú samt ekki alltaf að skrifa langar færslur, er miklu hrifnari af stuttum skemmtilegum athugasemdum heldur en einhverjum langlokum. En það kom samt alltof oft fyrir að ég varð eð senda pistla mína út í tvennu lagi. Svo les ég færslur hjá öðru fólki sem eru langtum lengri en ég hef nokkurn tíma reynt að koma út á netið.
Nú gæti eitthvað verið að hjá mér tæknilega séð, ég meina eitthvað að tölvunni minni en þá kemur að því vandamáli, ég er óttalega miklill tækniauli.
Ég hef reynt að vera á moggablogginu síðan ég gafst upp á blogger en, hvernig sem á því stendur, þá líður mér ekki nógu vel þar. Ég veit ekki hvort ég get útskýrt þetta fyrir nokkrum manni, það er alls ekki víst. Það eru í rauninni margar ástæður fyrir vanlíðan minni, vanlíðan er þó ofsagt. Ein ástæðan er sú að á blogger gat ég sett út á netið eina litla hugmynd og liðið vel með það. Á moggablogginu finnst mér ég verða að segja sögu með upphafi, miðju og endi. Það er líka gaman en ég vil fá að ráða hvenær ég geri það og hvenær ekki en ekki láta moggabloggið ráða yfir mér. Ég veit að ef ég segði þetta upphátt við einhvern fengi ég holskeflu athugasemda og ég kaffærð. En svona er þetta samt. Margir á moggablogginu eru með stuttar athugasemdir og þá helst fréttatengdar og mér finnst það í flestum tilfellum afar hallærislegt. Mér finnst líka hallærislegt þegar fólk endurskrifar fréttir en kemur ekki með neitt nýtt innlegg.
Jæja, fólk má auðvitað vera eins og það vill og ég þarf ekkert að lesa það sem mér finnst ekki skemmtilegt.
Ég er samt enn að reyna að skilja þessa þörf hjá mér að bulla á þessum vettvangi eitthvað um sjálfa mig.
Kannski kemur þetta í staðinn fyrir símafælnina? Hvur veit?

miðvikudagur, 28. mars 2007

Nýtt lykilorð

Loksins í dag sendu Moggabloggamenn mér nýtt lykilorð í pósti þannig að ég lemst inn á þá síðu. Ég er að hugsa um að fara þangað aftur. Komið með mér, þið tíu sem ég þekki og líka þið hin 40 eða 50 sem ég þekki ekki.
http://sigriks.blog.is/blog/sigriks/

Ég ætla bara að vera eins og ég er þar en ekki rembast við neitt annað eins og mér sýnist að margir séu að gera.

þriðjudagur, 27. mars 2007

Orðaleikur
- eða -
stafaleikur

Ef ég væri enn á Mogga-
blogginu hefði ég vafalaust kommentað á eina litla skemmtilega frétt á mbl.is í dag. Þar segir frá lengstu vefslóð sem vitað er um. Þessi slóð er frá bæ í Wales og mbl.is segir að slóðin sé frá hverfi í bæ einum í Wales. Ég hef þær upplýsingar um þetta nafn að það sé nafn á lestarstöð í bænum Llanfair og þetta sé janframt lengsta orð í Bretlandi og þriðja lengsta orð í heimi. Nafnið á lestarstöðinni er sem sem sagt
Llanfairpwllgwyngyllgogerychwyrndrobwllllantysiliogogogoch. Ég treysti mér ekki til þess að bera orðið fram en ég veit að tvö l eru borin fram eins og hl t.d. eins og byrjun orðsins hland.
En ég veit hvað þetta langa orð þýðir. Þetta er sem sagt The Church of St Mary - in the hollow of the white hazel - near the fierce whirlpool - and the Church of St Tysilio - by the red cave.

Ég birti hér með, í gamni, mynd sem ég tók síðastliðið sumar af verslun í Llangollen í Wales og þar getur að líta nafn verslunarinnar á skilti fyrir ofan innganginn.

sunnudagur, 25. mars 2007

Dagurinn í dag

er sloppadagur
innidagur
friður og ró ríkir
í veðrinu
og sálinni líka

laugardagur, 24. mars 2007



Minning

Blessuð sé minning Þórunnar Engilbertsdóttur.

Hún lést 17. mars sl. og var borin til grafar á Selfossi í dag. Þórunn dó langt fyrir aldur fram. Hún hefði orðið 57 ára í sumar. Þórunn var skólasystir mín en líka systir Jónu Stínu svilkonu minnar.

Það eru fjögur af bekkjarsystkinum okkar dáin úr krabbameini og einn af slysförum.

Blessuð sé minning þeirra allra.

föstudagur, 23. mars 2007

Píkusalat


Eftir vinnu í dag, lágmarksþrif á heimilinu og Bónusferð á Selfoss hef ég verið að æfa mig í að ganga og dansa á píkusalatsskóm dauðans.
Það ræðir ekkert um annað.
Hégóminn er og verður minn förunautur.

miðvikudagur, 21. mars 2007

Jafndægur á vori

Í dag er vorjafndægur. Hvorki sálartetrið né kroppurinn finna það. Úti er hávetur. Það er skítkalt, snjókoma aðra stundina. rigining hina og éljagangur inn á milli. Jörð er mestmegnis hvít. Það sem hrjáir mig helst þessa stundina er það að ég ætti að vera úti í garði í vorverkum.
Í fyrradag kom garðyrkjumaðurinn minn og klippti hjá mér trén. Ég var búin að biðja hann um að koma til mín í vor og sjá um snyrtingar á trjánum því ég reyndi það sjálf í fyrra með miður góðum árangri.
Það sem bíður mín eftir komu garðyrkjumannsins er að sópa saman afklippunum. Þær liggja eins og hráviði um alla lóð og fyrir utan lóðina líka. Nú er ég svo hrædd um það að vegfarendur, og þá helst gangbrautaarvegfarendur, hugsi ekki nógu vel til mín. Ég lít út fyrir að vera hin mesta drusla af því ég týni ekki óhroðann upp eftir mig. En afsakanirnar fyrir því að fara ekki út núna í vorverkin eru af ýmsum toga: Það er svo kalt úti, það liggur snjór yfir öllu, það snjóar, það rignir, það er erfitt að nota hrífu í snjó, það er asnalegt að sópa greinunum saman með strákústi.
Þannig að greinarnar fá að bíða eftir mér og ég bíð eftir að geta sópað þær upp.

þriðjudagur, 20. mars 2007


Draumórar


Nemandi minn einn, stúlka frá Tælandi, var að skoða síður á netinu frá Tælandi og sagði mér frá hinu og þessu sem kom á skjáinn. Mjög fróðlegt margt af því sem hún sagði á sinni takmörkuðu íslensku. Á meðal þess sem hún sýndi mér var nýlega byggt hús og hún klikkti út með að svona hús væri systir hennar búin að byggja í Tælandi. Við spjölluðum aðeins um húsið og þar á meðal kom fram hvað húsið kostaði.

"Vá, sagði ég. Ég ætla að selja húsið mitt og byggja svona hús í Tælandi og eiga fullt af peningum í afgang."

"Nei, sagði skjólstæðingur minn, þú skulda svo mikið!"


Annaðhvort er barnið með skyggnigáfu eða það hefur aðgang að bankaviðskiptum mínum. Það er líka hugsanlegt að við höfum eitthvað misskilið hvor aðra.

Hún kom mér alla vega niður á jörðina.

sunnudagur, 18. mars 2007

Mæðradagur

Ég fékk upphringingu frá Wales í dag af því þar er mæðradagur. Ég gáði á dagatalið og mæðradagurinn er ekki fyrr en 13. maí hér á landi. Ég hlýt þá að græða mæðradagskveðjur tvisvar á ári. Allavega á meðan Dabbiló býr i Wales og Doktorinn á Fróni.

Hjá ömmu og afa
Löggilti táningurinn og ömmustelpa voru í fóstri hjá okkur um helgina. Okkur finnst voða gaman að fá þau og leika við þau eina helgi.
Þau eru svo blíð og ljúf og góð og þægileg í umgengni.
Í búðinni.
Nanna: Amma, má ég fá svona? (Hún bendir á poka af Skittles).
Amma: Já, já Nanna mín, þú mátt fá svona.
Nanna: Það er svo gaman að vera hjá þér amma, af því ég má allt.
Ömmu finnst nú poki af Skittles ekki vera svo mikið.

fimmtudagur, 15. mars 2007

Að detta

Ég datt í dag.
Ég var að ganga, á stéttinni minni, út í bíl á leið í vinnu eftir hádegi og datt þar. Það var eins og fótunum væri allt í einu kippt undan mér. Óhugguleg tilfinning. Ég skall á bakið. Önnur rasskinnin lenti á steyptum girðingakanti, þannig að nú bíð ég eftir marbletti þar. Ég hlýt að hafa borið fyrir mig hægri hendina, því mér er illt í lófanum á þeirri hendi. Hausinn slapp við að lenda á kantinum en ég er samt með vott af hausverk. Versti verkurinn er samt einhvers staðar inni í mér, bak við brjóstin eða milli þeirra. Ég skil ekki alveg af hverju ég finn til þar en Simmi minn, sem var áhorfandi að þessu, heldur að þetta sé tak sem ég hef fengið vegna þess að ég kýldi mig alla saman í fallinu.
Ég sagði honum fyrst að ég finndi hvergi til, skömmin var svo mikil og fyrsta hugsun var hvort einhver hefði séð til mín.
Ég fór auðvitað í vinnunna en lafði bara til klukkan fjögur. Þá varð ég að fara heim að hvíla mig.

miðvikudagur, 14. mars 2007

Mannakorn og fleira

Ég nenni helst aldrei að fara út efir kvöldmat. Ég er samt búin að fara núna út þrjú kvöld í röð.
Á mánudaginn var aukakóræfing vegna tónleika sem við sungum á í gærkvöldi í Versölum. Tveir aðrir kórar sungu líka, Söngsveit Hveragerðis og Jórukórinn á Selfossi. Þetta varð hin besta skemmtun með fjölbreyttu og skemmtilegu prógrammi. Við buðum gestunum upp á kaffi og góðgæti eftir tónleika.
Útivistarútstáelsið á mér var toppað í kvöld með tónleikum í Versölum, eina ferðina enn, en það voru hinir frábæru Mannakorn sem voru þar með tónleika. Þó að hárið hafi breytt um lit hjá þeim köppum, Pálma og Magga, hafa þeir engu gleymt, nema síður sé.
Ég fékk létt nostalgíukast þegar þeir tóku lög af fyrstu Mannakornsplötunni. Þá sá ég allt í einu plötualmbúmið fyrir mér. Plötubúnka heimilisins var raðað upp við vegg en stóð á gólfinu. Það þótti örugglega nokkuð töff í þá daga, sirka fyrir þrjátíu árum. Doktorinn, sem var nokkurra ára gamall, var algjörlega heillaður af plötuumslaginu. Það var alveg sama hvað plötu ég setti fremst, alltaf tók hann þessa einu og setti fryrir framan hinar, lagðist svo á magann fyrir framan búnkann og skoðaði myndirnar á umslagínu tímunum saman. Það var eitthvað sem heillaði.
Nokkuð seinna, þegar dótla fór að spekúlera í lífinu og tilverunni heillaðist hún líka af hluta Mannakorna. Hún sagði alltaf að flottustu mennirnir sem hún vissi um væru pabbi, Pálmi og Helgi P.
Það sem tengdi þá saman var yfirvaraskeggið.

Einu sinni áttum við Pálmi alveg nákvæmlega eins peysur. Enginn annar á jörðinni átti svona peysu. En það er önnur saga.

mánudagur, 12. mars 2007

Vélar, tæki og takkar

Þegar ég lagði bílnum mínum við skólann í morgun, eftir sundið, þá slokknuðu ljósin ekki á honum. Það pípti á mig eitthvert hljóð og ég gat með engu móti slökkt ljósin. Ég fiktaði í öllum tökkum og ekkert gekk.
Ég gerði það sem mér dettur alltaf fyrst í hug að gera þegar eitthvað bjátar á en það er að hringja í Simma minn en hann hefur verið kominn út á sjó, þannig að ekkert gagn var í honum.
Samstarfskona mín ein, ákveðin og snöfurmannleg, kom þarna að mér og spurði hvað væri að. Þegar ég sagði henni farir mínar ekki sléttar þá tók hún af mér bíllyklana, stakk lylinum í svissinn, sneri lyklinum og þar með fóru ljósin.

Maður bara er stundum ......svolítið vitlaus.

laugardagur, 10. mars 2007

Söngur

Ég er vön því að fara seint á fætur á laugardögum og dúlla mér í morgunsloppnum fram yfir hádegi, drekka kaffi og maula morgunmat og lesa blöðin vel og vandlega.
Ég varð að brjóta þessa hefð í morgun þar sem blásið var til kóræfingar klukkan 10 en það er svo skemmtilegt á kóræfingum að þetta var allt í lagi. Við sungum til klukkan 2 og stjórnin bauð upp á léttan mat í hádeginu.
Það raulast enn í hausnum á mér I got a rope, you got a rope, all Gods children got a rope...
en það er nú bara gaman að því þangað til Simmi minn segir:
"Eigið þið að syngja þetta á tónleikunum?"
Þá fatta ég að þetta er ekki aðeins inni í höfðinu á mér heldur er ég að raula upphátt og örugglega ekkert áheyrileg svona ein.
Við ætlum að syngja á tónleikum á þriðjudagskvöld í Versölum.

Svefn og svefnleysi


Eftir kóræfingu í dag brunuðum við Simmi minn í Fífuna í Kópavogi og hlýddum þar á fyrirlestur í tengslum við sýninguna Tækni og vit. Fyrirlesturinn hét Er svefn nauðsynlegur?

Allir sofa og pæla eitthvað í svefni og hef ég haft áhyggjur af svefnleysi mínu í gegnum tíðina. En eftir að hafa hlýtt á þennan frábæra skemmtilega og fræðandi fyrirlestur ætla ég aldrei að hafa áhyggjur af svefnleysi meir eða öllu heldur ekki láta áhyggjur af svefnleysi halda fyrir mér vöku.


Fyrirlesarinn var doktor Kalli.

föstudagur, 9. mars 2007



Saumaklúbburinn minn

Þessi mynd var tekin 8. febrúar 2007

Minning elskulegrar vinkonu

Eina stundina er gleði og gaman. Hin næsta færir sorgartíðindi.

Fyrir mánuði síðan hittumst við, saumaklúbburinn Hraðar hendur eða Hjólliðugt málbein eða hvað okkur datt í hug að kalla hann þá stundina, vegna þess að það fréttist að Begga væri á landinu. Mannabreytingar hafa átt sér stað í saumaklúbbnum okkar í gegnum tiðina en við sem vorum í klúbbnum fyrir 1980 hittumst á veitingastað í Reykjavík og áttum við saman yndislega kvöldstund.
Begga sagði okkur að hún væri veik. Hún sagði okkur að hún væri með krabbamein í lungum. Hún sagði okkur að hún ætlaði ekki að gera neitt í því. Við höfum líklega ekki gert okkur grein fyrir því hversu veik hún væri. Við ætluðum allavega að hittast aftur því það var svo gaman. Begga var söm við sig og sagði okkur sögur af sinni alkunnu snilld. Við hlustuðum á hana og hlógum því hún kunni svo sannarlega að segja frá.

Hún mun ekki segja fleiri sögur. Hún dó í gær.

Ég sit hér og græt.
Ég hugsa um allar skemmtilegu stundirnar okkar saman.
Ég hugsa um alla saumaklúbbana þegar hún sá um fjörið.
Ég hugsa um þegar hún spilaði fyrir okkur á gítarinn og söng.
Ég hugsa um þegar hún heimsótti okkur Simma á Tærgesen
og við spjölluðum saman um lífið og tilveruna langt fram á nótt.
Ég hugsa um Birgittu og Jón Tryggva.
Ég hugsa um lífshlaup Beggu.

Blessuð sé minning hennar.
Blessuð sé minning Bergþóru Árnadóttur.

laugardagur, 3. mars 2007

Skólaheimsókn

Við, kennararnir, við skólann í Þolló, kenndum ekki í gær heldur fórum af bæ. Það er margra ára hefð fyrir því að Foreldrafélagið hefur ofan af fyrir börnunum einn dag á vetri. Þá fá börnin starfskynningu og eitthvað skemmtilegt að gera en við förum og leitum okkur þekkingar annars staðar. Að þessu sinni heimsóttum við Grunnskóla Grindavíkur. Þar fengum við höfðinglegar móttökur hjá Gulla skólastjóra og hans fólki og mjög vel skipulagða dagskrá. Það var eftirtektarvert hversu andrúmsloftið í skólanum var afslappað og þægilegt. Nemendur hafa stórt og bjart rými fyrir sig í frímínútum og nóg af stólum og borðum. Þar er spilað og telft og spilað á gítara. Tveir gítarar hanga uppi á vegg og nota nemendur þá óspart í frímínútum. Það skapar þægilega og skemmtilega stemmingu og hvetur aðra til þess að fara að spila. Það ku vera nokkrir góðir gítarleikarar í hverjum árgangi.
Í skólanum í Grindavík er unnið sftir Uppbyggingastefnunni sem við fengum kynningu á. Við höfðum reyndar fengið kynningu á henni hér heima fyrir nokkrum árum. Kennaranir voru þess fullvissir að sú stefna bæri árangur.
Ég hitti kennarann sem sér um nýbúafræðsluna og var mjög gaman að hitta hana og gátum við margt spjallað. Ég fékk hugmynd eftir að hafa verið í stofunni hennar og setið að spjalli og get varla beðið eftir að komast í vinnuna og byrja að vinna með hugmyndina mína.
Þegar verið er á slóðum Bláa lónsins er við hæfi að fara þangað sem sumir nýttu sér en ég nennti ekki þegar til kom að fara í það. Ég var alveg sammála einni samstarfskonu minni sem sagði að það væri alveg óþarfi að rífa sig alltaf úr fötunum og bleyta í sér þegar verið er á stuttu ferðalagi.

fimmtudagur, 1. mars 2007

Gildnandi budda

Mikið held ég að það verði gaman, hér eftir, að fara út í búð að versla í matinn og borga langtum minna en áður.

þriðjudagur, 27. febrúar 2007

Í fýlu

Ég er búin að vera í einn mánuð að skrifa netdagbókina mín hjá Mogganum. Mér hefur ekki liðið vel þar að öllu leyti. Ég kann vel við hið íslenska umhverfi og allt er svo auðvelt þar en ég hef fundið fyrir ótrúlegu stressi. Mér finnst ég ekki mega hafa húmor fyrir sjálfri mér og mínum og vera sjálfhverf í mínum skrifum heldur verða að hafa skoðanir á málefnum líðandi stundar og skrifa helst eitthvað fréttatengt. Ég veit að enginn hefur sagt þetta við mig en þetta er eitthvað sem mér finnst. T. d. hef ég fundið fyrir þessu í kommentum hjá mér.
Sumir eru líka að reyna of mikið að vera með skoðanir á allt og öllu án þess að ráða við það og það er bara hjákátlegt.
Ég hef snúið mér aftur að gamla blogger en er samt hundpirruð á honum því hann er svo svifaseinn.

Wales

Ég notaði vetrarfríið mitt vel sem var dagana 15.- 19. febrúar. Við, Simmi minn brugðum fyrir okkur betri fætinum og skelltum okkur til Manchester þar sem the Jones fjölskyldan tók á móti okkur. Þar sem Icelandair flýgur aðeins tvisvar í viku þangað komumst við ekki fyrr en á föstudeginum 16. feb. Það varð bara að hafa það. Það var samt betra en ekkert.

Áætlunin var að leika við Lúkas alla helgina og tileinka honum þessa heimsókn algjörlega. Það er búið að þvælast með okkur um allar trissur þarna í kringum Wrexham svo engin skoðunarferð var á dagskrá í svona stuttri heimsókn.

Ekki var Lúkas litli Þorlákur í miklu leikstuði þessa helgi. Hann var búin að vera með flensu og var langt frá því orðin góður þegar við komum. Hann vildi helst liggja í sófanum. Þegar hann lætur lestarnar sínar og lestarteinana liggja ónotað er hann lasinn. Það fer ekki á milli mála.

Við urðum að láta nægja að horfa á hann. Ég get líka gert það svo tímum skiptir, hann er svo fallegur.

Á köldum klaka

Ég held að Moggabloggsaðstandendur vilji ekki hafa mig innanborðs hjá þeim. Þeir hafa sett mig út á kaldan klaka, helvítis beinin. Þeir klúðruðu leyniorðum allra um daginn og segast hafa sent öllum ný lykilorð í tölvupósti. Ég fæ ekkert þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til þess að hafa samband við þá. Ég veit vel að ég er búin að skipta um netfang en ég hef sent þeim nokkur tölvubréf þess efnis. En ég heyri ekki múkk í þeim.

laugardagur, 24. febrúar 2007

Vangaveltur

Ég er að velta því fyrir mér hvort mig langi að vera áfram á Moggablogginu eður ei. Ég á í smá tilvistarkreppu hvað þetta varðar. Er að hugsa málið.

mánudagur, 22. janúar 2007

Vegna þess hve blogger er seinvirkur, oft erfiður viðureignar og leyfir mér aldrei að skrifa langt mál hef ég snúið mér að moggablogginu, allavega um stundarsakir.
Ég er að velta því fyrir mér hvort blogger hefur haft áhrif á ritstíl minn sem mér finnst sjálfri frekar knappur. Moggabloggið mun skera úr um það.
Hin nýja slóð er http://sigriks.blog.is/blog/sigriks/

laugardagur, 20. janúar 2007


Ég þurfti ekki að eyða kröftum mínum í að stjana við bónda minn í gær þó svo að bónda- dagurinn væri. Hann kaus frekar að snæða þorramat með Kiwanisfélögum sínum heldur en að láta mig elda eitthvað gott handa sér. Mér finnst þessi nýi siður þeirra kivaniskalla, að borða saman þorramat án maka, frekar klénn. Ég vil fá að gera kalli mínum gott á þessum degi eins og ég er vön, en hann um það. Ég er svo sem ekkert í fýlu eða þannig, ég keypti blóm handa honum eða reyndar listaverk eftir hana Brynju í Blómastúdíóinu. Kallalegan blómavönd eins og hún sagði.
Doktorinn, tengdadóttirin og ömmustelpa komu í hádegismat og varð ömmustelpa eftir hjá okkur gamla. Við erum núna að bíða eftir því að pizzadegið hefist.
Nanna er búin að teikna, kubba, leika með baby born, föndra, búa til pizzadeig, leika í pleimó, skrifa og lesa, fara í búðina, leika úti í snjónum, finna týnda gemsann minn og syngja. Ég er líka búin að syngja fyrir hana um aula Gvend (ekki þennan í Byrginu heldur allt annan)tvisvar sinnum. Hún er búin að kryfja textann í tætlur og skilur ekkert í því hvað hann Gvendur getur verið vitlaus.
Ég bauð henni upp á bland í poka af því það er laugardagur. Hún afþakkaði pent og kaus heldur harðfisk. Hún þurfti ekki að nefna það tvisvar.

mánudagur, 15. janúar 2007


Mannamunur
Það bankaði lítill fugl upp á
ég hleypti honum ekki inn
ég varnaði honum inngöngu
hann þráaðist við
vildi koma inn til mín

ég stóð í forstofunni
með gæsahúð
vorkenndi honum samt
hann gæti verið svangur
eða kalt

ég vil hafa fugla í vissri fjarlægð

laugardagur, 13. janúar 2007

Sjálfsmynd
Stundum nokkuð heil
stundum í molum á stéttinni
stundum samanlímd
stundum alveg viss

óróleiki
óvissa

ég er best
varir því miður bara stutta stund

föstudagur, 12. janúar 2007

Ég get verið asnalega tilfinninganæm og grenjað yfir ótrúlegustu hlutum. Stundum get ég ekki svarað viðmælanda mínum af því að ég vil ekki að hann sjái hvað það hefur mikil áhrif á mig sem hann er að tala um við mig.
Ég held samt að ég hefði aldrei fengið kökk í hálsinn eða tár á vanga þó að ég væri prófessor við Háskóla Íslands og hefði heyrt tilkynningu um að skólinn hefði fengið þrjá milljarða í aukafjárveitingu til rannsókna.
Ég trúi þessu ekki.
Ég finn bara kosningafýlu af svona frétt.
Jafnvel skítalykt.

fimmtudagur, 4. janúar 2007

Nú get ég brosað og hlegið án þess að líða illa yfir grárri tönn. Ég fékkk nokkurs konar "extreme makeover" hjá tannlækninum mínum í dag. Gömul silfurfylling hafði á nokkrum árum gert eina framtönnina gráa. Mér leið svakalega illa vegna þessa. Ég gerði mér ekki grein fyrir hve ógeðslega ljót tönnin var fyrr en sá mynd af sjálfri mér, þar sem ég brosti út að eyrum. Síðan það var hef ég verið ómöguleg. Ekki brosað mikið, því mér dettur ljóta tönnin alltaf í hug. Síðast þegar ég ræddi þetta við tannsann minn var svo dýrt að gera við tönnina og hann hvatti mig ekkert sérstaklega til að láta til skarar skríða. En þegar ég mætti hjá honum um daginn byrjaði hann að segja þegar ég gapti framan í hann. "Þessa gráu tönn þurfum við að laga."
Og nú er tönninn orðin hvít.
Og ég get farið að brosa.
Og hlæja.
Og skella upp úr.

þriðjudagur, 2. janúar 2007

Ég strengdi áramótaheit en það er svo hallærislegt og ófrumlegt að ég ætla bara að halda því fyrir mig eina.

mánudagur, 1. janúar 2007

Við Simmi minn fengum okkur hressingargöngu um miðjan dag svona til þess að anda að okkur hreinu lofti á hinum fyrsta degi hins nýbyrjaða árs. Bærinn minn er fjötraður í hvíta kápu úr hrími. Það er algjört logn og hrímið gerir bæinn minn undurfallegan. Það voru ekki margir á ferli, einn og einn á rúntinum og nokkrir krakkar að tína prik. Gífurlegu magni að flugeldum var skotið á loft í gærkvöldi enda var veðrið ákjósanlegt til þess.
Ég fagnaði nýju áru í faðmi srórfjölskyldunnar. Næstum því allir hittust heima hjá Magnþóru og Bjössa og þar var etið og drukkið og sprengt og trallað. Eftir brennu var horft á annál Magnþóru. Hún safnar í gegnum árið myndskeiðum af fjölskyldumeðlimum og gerir alveg frábæran annál úr því. Síðan var horft á Skaupið sem mér fannst mjög skemmtilegt. Ekki voru allir á einu máli um það en það verður bara hver að fá að hafa sína skoðun í friði.
Ég fékk engan tíma til þess að grenja klukkan tólf eins og svo oft áður því árskiptin voru í sneggra lagi núna. Ég meina að áður voru stafirnir lengi að hverfa á skjánum og nýja árið lengi að birtast og þá hafði ég tíma til þess að láta tilfinningarnar ná tökum á mér. Núna liðuðust stafirnir yfir skjáinn og hurfu strax og nýja árið spratt fram. Það kom ekki einu sinni kökkur í hálsinn.
Ég fordæmi aftöku Saddams Hussein. Mér finnst þeir menn, sem ákveða að lífláta annan mann í skjóli valds og laga, engu betri en sá sem þeir eru að dæma til dauða. Þrátt fyrir að einhver fyrirskipi manndráp, eins og komið hefur í ljós að Saddam gerði á sjítum og líklega kúrdum, og er auðvitað viðurstyggð, finnst mér ekki að neinn hafi vald til þess að drepa hann samt.

sunnudagur, 31. desember 2006

Þegar hann Simmi minn vaknaði í gærmorgun var hann eitthvað svo asnalegur að eigin sögn. Átti vont með að anda og fann til í brjóstinu eða hjaratanu. Hann á alvöru blóðþrýstingsmæli sem hann notar óspart og var þrýstingurinn alltof hár og púlsinn alveg út úr kú. Ég hlustaði hjartað með eyranu og það var eins og bilaður mótor sem gekk ekki á öllum. Þegar hann fór að tala um lækni fór ég að hlusta á hann.
Hann talaði við lækni á Selfossi og sá sagði honum að koma strax. Ég keyrði hann upp á Selfoss og eftir skoðun þar var hann sendur í bæinn á bráðamóttökuna með blikkandi og vælandi sjúkrabíl. Sjúkdómsgreiningn var gáttatif. Hann fékk blóðþynningarsprautu og lyf við óróleikanum í hjartanu. Sjúkraflutningsmennirnir voru mjög traustvekjandi. Virtust kunna fagið vel.
Ég fór heim og skipti um bíl, mér líður betur á jeppanum, sé allavega betur út um gluggana á honum. Setti slopp í poka og tannbursta. Fór svo í bæinn og uppgötvaði á leiðinni að peysan hans Simma, jakkinn og skórnir urðu eftir í hinum bílnum. Hann fór sko ber að ofan í sjúkrabílnum. Maður getur nú ekki hugsað fyrir öllu, allavega ekki þegar maður er í stresskasti.
Ég fór beint upp á Vesturgötu og fóru Kalli og Elsa með mér að leita að gáttaþef. Hann var á bráðmóttökunni tengdur við hjartalínurit og búinn að fá lyf sem áttu að koma hjartanu í réttan gír aftur. Ef það gengi ekki á tveimur klukkutímum átti að svæfa hann og gefa honum rafstuð. Þegar læknirinn kom inn til að sækja hann í rafstuðið, því ekkert breyttist með hjartsláttinn, þá hrökk hann í gírinn og allt varð í fína með hann. Púlsinn fór í normal og hjartað fór að slá eðlilega.
Simmi minn varð ósköp feginn að sleppa við svæfingu og rafstuð. Hann fékk ný blóðþrýstingslyf og hjartamagnyl og á að fara í ómskoðunartækið nýja, fína þegar hann kemst að þar. Þar skilst mér að allt sjáist.

föstudagur, 29. desember 2006

Er að hlusta á Rás 2. Þar er verið að taka á móti ábendingum um mann ársins. Mér finnst sumar tilnefningar alveg út í hött. Aðrar get ég fallist á. Mér dytti aldrei í hug að kjósa forsetann eða Dorrit. Það er bara vinnan þeirra að vera forsetapar og ekkert merkilegt við það. Aftur á móti gæti ég hugsað mér að kjósa Omar Ragnarsson. Hann er hetja í mínum huga. Hann fórnar sér fyrir málstaðinn sem hann trúir á og fyrir það má hrósa. Annars er mér eiginlega alveg sama hver fær þennan titil. Ég held að fjölmiðla vanti bara efni og búi þetta kjör til, til þess að hafa eitthvað að gera. Það er búið að kjósa íþróttamann ársins og tímaritið Ísafold hefur nú þegar kosið Ástu Lovísu (http://www.123.is/crazyfroggy/)mann ársins og annaðhvort Mannlíf eða Nýtt líf kaus Dorrit þannig að þegar upp er staðið eru margir menn ársins. Erum við ekki bara öll menn ársins?

fimmtudagur, 28. desember 2006

Mér finnst tíminn milli jóla og nýárs æðislegur. Frí í vinnunni og hægt að hafa það eins og maður vill. Verst að Simmi minn þarf að mæta í vinnu en ég hangi heima og geri ekkert nema slaka á. Lesa, ráða krossgátur, myndasögur og sudokur og lesa meira og japla á einhverju óhollu eins og smákökum og konfekti.
Simmi kom með löggilta táninginn og ömmustelpu með sér í gær og voru þau hjá okkur í nótt. Við vorum vakin í morgun klukkan hálf tólf. Þá skelltum við ömmustelpa okkur í sund. Við áttum laugina aleinar.
Vesturgötuforeldrarnir náðu svo í börnin í dag.

miðvikudagur, 27. desember 2006


Löggilti táningurinn hringdi skömmu fyrir jól og spurði:
"Amma, megum við fjölskyldan vera hjá þér í gegnum aðfangadaginn?"
Þrátt fyrir enskuskotna íslensku skyldi ég hvað hann vildi og tjáði honum að fjolskyldan væri hjartanlega velkomin. Vesturgötuliðið dvaldi hér sum sé "yfir" aðfangadag, jólanótt og jóladag. Það er alltaf jólakaffi hjá mömmu og pabba á jóladag þar sem allir afkomendur þeirra mæta.
Við fórum í messu á aðfangadagskvöld og höfðum jólahaldið eins og venjulega. Sami matur og sömu siðir. Og þó. Við höfðum forrétt núna sem við höfum ekki verið með áður. Simmi minn gerði þessa líka forláta humarsúpu. Við vorum lika með purusteik ásamt hinum venjulega hamborgarhrygg. Svo stal ég gamalli hugmynd frá Dóru Odds og lét möndlu hjá öllum í ris a´la mande sem er ómissandi á jólum. Sem þýddi að ég varð að vara tilbúin með möndlugjöf handa öllum.
Nú bíð ég bara eftir því að keltneski víkingurinn hringi og spyrji hvort the Jonses megi vera hjá okkur um jól.
Hver veit hvar hann dansar um næstu jól?

sunnudagur, 24. desember 2006


40 jólaljós prýða litla grenitréð sem ég plantaði út í garðinn minn í vor. Það ber ekki mikið á því en ég er ákaflega stolt af því. Ég horfi á það og sendi öllum vinum og vandamönnum bestu óskir um gleðileg jól.

laugardagur, 23. desember 2006


Þorláksmessa
skötulykt hangir yfir
lét bjóða mér í skötu
í hádeginu
(samt alveg sama þó lyktin af skötunni væri í mínu húsi)
bara gaman að vera með mörgum að snæða þennan furðulega, yndislega mat
við Elsa og Nanna mætum hjá mömmu og pabba í skötu
en Simmi fer með strákana, Kalla og Kolbein, til Svenna
hangikjötið soðið
rauðkálið tilbúið í ísskápnum
og nú bætti ég við sultuðum rauðlauk
jólaísinn kominn í frysti
gjafirnar tilbúnar í fallegum umbúðum
jólakveðjurnar í útvarpinu
húsið allt tandurhreint
jólin eru alveg að koma
hátíðleikin nálgast
og ég að verða væmin
ræð ekki við það
Þorláksmessa

fimmtudagur, 21. desember 2006

Það að nýr vegur hafi verið lagður að bænum mínum virðist ekki hafa náð að festast í minni mínu. Ég hef tvisvar ekið út úr bænum ein á bíl síðan vegurinn var lagður og í bæði skiptin hef ég ætlað að fara gömlu leiðina. Á föstdaginn, á leið minni í höfuðborgina, var ég komin að Eim þegar ég rankaði við mér. Ég sneri við og fór "Herjólfsleiðina" og þannig upp á nýja veginn.
Í morgun þurfti ég að bregða mér á Selfoss og var komin að Þormóði ramma þegar ég kveikti á perunni. Sneri við og ók nýja fína veginn okkar.
Ég er geinilega ekki oft á ferðinni ein í bíl.
Það er eitthvað brogað við minni mitt eða ég svona hryllilega utan við mig.
Ég hef samt ekki verulegar áhyggjur af þessu.

fimmtudagur, 14. desember 2006


Ég er búin að lesa bókina Stelpan frá Stokkseyri. Bókin er mjög skemmtileg og vel skrifuð af Þórunni Hrefnu. Ég hef aldrei verið spennt fyrir ævisögum, er líklega ekki nógu forvitin um hag náungans, en mig langaði strax að lesa um Möggu þegar ég sá bókina auglýsta. Magga er svo fljúgandi greind og skemmtileg stelpa. Þess vegna lét ég mig ekki vanta í bókasafnið okkar í dag þegar lesið var upp úr nýjum bókum. Magga var þar að lesa upp úr bókinni sinni. Hún valdi tvo góða kafla að lesa og naut ég þess að hlusta á hana lesa það sem ég var nýbúin að lesa sjálf. Ég fann á mér að hún læsi frásögnina um Finnu á Bakka. Það er tilfinningaþrungin minning og fær engan ósnortin. Hinn kaflinn sem hún las um sjálfa sig sköllótta í vinnunni, á fundum og í sjónvarpi, var fyndinn en grátbroslegur.
Ævar Örn Jósefsson las einnig úr bók sinni Sá yðar sem synlaus er. Ég ætla að lesa þá bók seinna. Alla vega gerði Ævar bókina spennandi með sínum lestri.

föstudagur, 8. desember 2006

Ég hlýt að hafa það alveg eins og drottning. Ég uppgötvaði það áðan, þegar ég ók að bensíntanknum til þess að taka bensín, að þann gjörning hafði ekki framið árum saman. Ég þurfti að athuga hvoru meginn bensíntankurinn var og leita svo að lyftitakkanum inni í bílnum. Það hafðist. Þá var komið að dælingu. Ég var skíthrædd um að vera við vitlausan tank en ég las leiðbeiningar og valdi þetta blýlausa, ekki litaða olíu (eins og hefur hent suma). Það gekk ekki nógu vel að dæla. Ég vildi gera þetta af krafti en þá hætti dælingin alltaf, þannig að ég varð að dæla í rólegheitum. Mér var orðið svo kalt á höndunum þegar komið var á fyrir 3003 kr. að ég hætti að dæla. Ég fékk þær upplýsingar hjá sjoppukonunni að ég hef lílega stungið stútnum of langt inn. Maður er stöðugt að læra.
Næst sting ég honum stutt inn og dæli af krafti.

miðvikudagur, 6. desember 2006

Í dag hefði Siggi mágur orðið 52 ára ef hann hefði fengið að lifa lengur. Hann dó langt fyrir aldur fram aðeins 45 ára gamall. Ég sakna Sigga. Blessuð sé minning hans.

laugardagur, 2. desember 2006


Ég þurfti að senda henni dótlu minni smávegis í pósti. Langaði að hún fengi pakkann fyrir helgi. Treysti því ekki alveg að það tæksist því, bréfið komst ekki í póst fyrr en seinnipartinn á miðvikudag. Viti menn, hún fékk sendinguna í gær, föstdag. Mér finnst þetta méð ólíkindum. Frá Þorlákshöfn á Íslandi til Rosllanercrugog í Wales. Ég veit að bréfið fór héðan klukkan hálf fimm á miðvikudag upp á Selfoss í sorteringu og þaðan um kvöldið til Reykjavíkur. Ég veit ekki hvort það fór með vél beint til Manchester eða millilenti í London. Alla vega á Pósturinn hrós skilið fyrir fljóta og góða þjónustu.

mánudagur, 27. nóvember 2006

Doktorinn hringdi til að segja mér að hann væri búinn að kaupa sér nýjan bíl. Ég var rétt búin að kveðja hann þegar ég heyrði viðtal http://dagskra.ruv.is/streaming/ras2/?file=4249650/6
við hann hjá Freysa í útvarpnu um svefnvandamál. Mér fannst voða krúttlegt hvernig hann endaði viðtalaið. Hann vitnaði í mömmu sína.
Rétt eftir að viðtalinu lauk bankaði hann, með familíuna, upp á til að sýna mer bílinn.

mánudagur, 20. nóvember 2006


Simmi minn komst ekki á sjó alla síðustu viku vegna veðurs. Ég naut góðs af því. Fékk heitan mat tvisvar á dag alla vikuna.
Í dag er hann á sjó og mér sýnist sem svo að það verði bara skyr í kvöldmatinn hjá mér. Ég er ekki eins fyrirhyggjusöm og hann að taka tímanlega úr frysti.
Þannig að skyrið verður að nægja.

laugardagur, 18. nóvember 2006

Ég varð mjög glöð þegar ég heyrði í útvarpinu að Njörður P. Njarðvík hefði hlotið verðlaun á degi íslenskrar tungu. Hann kenndi mér bókmenntafræði í Háskóla Íslands á sínum tíma. Mér fannst hann æðislegur kennari. Það voru ekki allir sammála mér. Sumum fannst hann ekkert skemmtilegur. Ég fór ekki í Háskólann til að skemmta mér heldur til þess að öðlast sjálfstraust til þess að geta kennt efstu bekkjum grunnskólans íslensku án þess að vera með hnút í maganum yfir því hvað ég kynni lítið. Ég fékk stóran bónus þennan vetur því ég skemmti mér konunglega. Þetta ár var eitt besta í lífi minu. Að vera í Háskólanum og læra var gaman.
Njörður er mikill fræðimaður og ber ég mikla virðingu fyrir honum. Hann er líka reffilegur og flottur kall. Hann sagði okkur fljótlega að við skyldum muna það að það væri alltaf hægt að læra, þrátt fyrir kennarann. Þessi setning greiptist í heilabúið mitt og er þar. Ég vildi bara að grunnskólabörn skildu hana.
Njörður sagði okkur líka að við ættum að lesa 104 bækur á ári, þ.e. tvær á viku. Ég hef reynt að taka mér þetta til fyrirmyndar. Stundum tekst það og stundum ekki.
Mér fannst alltaf einhver ólýsanleg sorg í augum hans. Það er sjálfsagt vegna þess að hann var tiltölulega nýbúin að gefa út bók sína Ekkert mál þegar hann kenndi mér. Hann sagði okkur að hann hefði gefið þessa bók út sem forvörn í fíkniefnanotkun en þegar hann kom til Þorlákshafnar nokkrum árum síðar og las úr henni á foreldarfundi sagði hann að bókin hefði líklega ekkert gagn gert því eftir útkomu hennar hefði fíknefnanotkun á Íslandi margfaldast.
Ég ber mila virðingu fyrir Nirði sem fræðimanni, kennara og ekki hvað síst sem rithöfundi.

miðvikudagur, 15. nóvember 2006


Það er eins og að koma að bláókunnugum stað
þegar keyrt er heim eftir nýju aðkomunni í þorpið.
Skrýtið en skemmtillegt.
Ég býð eftir að umferðaljósin verði tekin í notkun því ég hræðist krossgötur.
Mér sýnist eins og þessar séu slysagildra.

mánudagur, 13. nóvember 2006

Ég hefði haldið að vinir mínir myndu virða óbeit það er ég hef á óvissuferðum og slílum uppákomum. Sú varð ekki raunin þegar ág átti að mæta í saumaklúbb á föstudagskvöldið í bingódressi, með bokku á mér og aur í vasanum. Ég gat nú gert veður út af þessu með bíngódressið því bíngódress er ekki endilega það sama og bíngódress. Ég þvingaði fram nokkrar aukaupplýsingar og viti menn ég kom klædd svipað og hinar en ekki allt öðruvísi eins og ráð mátti gera fyrir.
Okkur var smalað saman upp í litla rútu og farið með okkur upp í sveit, að Tungu í Gaulverjabæjarhreppi. Þar tók húsmóðirin Sóley á móti okkur með fyrirfram pantaðan mat. Var þetta hið ágætasta kvöld með stelpunum og skemmtum við okkur konunglega. Maturinn var frábær og umgjörðin öll kósí. Við fengum svo að kíkja í sveitbúðna Sóley, sem konan rekur líka, og þar eyddum við allar einhverjum peningum.
Vel til fundið hjá stelpunum í saumó.
Nú stendur upp á mig að halda desemberklúbbinn og er ég búin að plana hann. Við ákváðum í haust að halda þennan veturinn öðruvísi klúbba en undanfarið 35 ár. Það má sem sagt ekki vera með hann heima og bera fram rjómatertu og mæjonnesjukk.

fimmtudagur, 9. nóvember 2006


Ég mæli með Kraká sem borg til að heimsækja og njóta.
Ég mæli með Kraká sem borg til að fara í vinnuferð til.
Þarna er skemmtilegur gamall miðbær.
Góður matur á góðum veitingastöðum.
Flottar búðir.
Frábært að kaupa varning með íslenskum launum.
Gaman að kynnast pólskum skólum og pólsku menntakerfi.
Þarna er besti framhaldsskóli í Póllandi.
Þarna rennur Visla sem var áður fyrir mér bara setning í gamalli kennslubók.
Á upptök sín í Karpatafjöllum og rennur til sjávar í Eystrasalti.
Allt í einu var Visla raunveruleg.
Útrýmingarbúðir Gyðinga urðu því miður líka raunverulegar fyrir mér eftir skoðunarferð til Auschwitz. Ógleymanleg ferð og mikil lífsreynsla.
Mig langar aftur till Kraká, þá að sumri til þegar gróðurinn er í blóma.

þriðjudagur, 7. nóvember 2006


Lúkas Þorlákur er orðinn þriggja ára gamall. Hann á afmæli 6. nóvember.
Hann er svo heppinn að vera búinn að fá tvær afmælisveislur. Fyrst á Íslandi hjá ömmu og afa og svo heima í Wales á sunnudaginn. Í íslensku veislunni voru íslenskir ættingjar bæði úr ætt ömmu og afa en í velsku veislunni komu ekki eingöngu ættingjar úr föðurættinni heldur og Harpa, Arnar og Katrín Sigríður.
Hann fékk margar gjafir, bæði mjúkar og harðar. Það sem hann hefur mest gaman af eru bílar og járnbrautarlestir. Hann sefur með bíl eða lest í fanginu eins og önnur börn hafa bangsa.
Vonandi eiga amma og afi eftir að vera með í fleiri afmælisveislum Lukku Láka.

miðvikudagur, 1. nóvember 2006

Datt inn á sjónvarpsþátt i gær sem heitir Innlit-útlit. Þar var spjallað við ungan mann sem nýlega hafði fest sér kaup á íbúð á Granda. Sýnt var hvernig íbúðin leit út og síðan átti að sýna hvernig hún liti út eftir gagngerar endurbætur nýja eigandans. Í fyrstu hélt ég, í einfeldni minni, að það væri búið að gera íbúðina upp, svo fín fannst mér hún.
En þegar spyrillinn fór að tala um hversu ógeðsleg eldhúsinnréttingin væri fóru að renna á mig tvær grímur. Það kom í ljós að það sem mér hafði fundist vel íbúðarhæft var svo ógeðslegt í augum mannanna að það var ekki einu sinni hægt að pissa á klósettinu, svo ógeðslegt var það. Það sást samt að þar inni var salerni og vaskur og baðkar og flísar á veggjum.
Orðið ógeðslegt notuðu þeir aftur og aftur um alla hluti þarna inni. Eldhúsið, parketið, fataskápana, allt var jafn ömurlegt. Mér var farið að líða hálf illa fyrir hönd fólksins sem á sínum tíma hafði innréttað þessa íbúð, því að á innréttingunum að dæma voru það ekki svo ýkja mörg ár.
Nýi eigandinn hafði hugsað sér að nota viðarrimlagluggatjöldin sem fyrrum eigandi hafði skilið eftir en þegar vinur hans einn kom í heimsókn var hann næstum búin að æla á nýja paketið af ógeði yfir rimlunnum.
Breytingin var síðan sýnd. Íbúðin hafði verið gerð fokheld. Öllu hafði verið rúttað út og allt sett nýtt inn í staðinn.
Jú,jú,íbúðin varð eftir breytingu ósköp falleg.
En fyrr má nú fyrr vera.
Skilaboðin sem fólk fær með svona sýningu eru ótvíræð.
Það skal ekki notað gamalt.
Það skal ekki endurnýta neina hluti.
Það skal alls ekki lappa upp á og laga neitt.
Kauptu nýtt og vertu í tísku.