Síður

þriðjudagur, 8. desember 2009

Jólabakstur
Ég hef verið að pæla í því að baka bara ekki neitt fyrir þessi jól af því að ef ég á kökur þá ligg ég í þeim og fæ svo bara illt í magann og samviskubit. Simmi minn borðar ekki kökur og við erum ekki með jólakaffi fyrir neinn sérstakan. Fyrir utan það þá hendi ég kökunum síðar af því mér tekst yfirleitt ekki, sem betur fer, að klára úr stömpunum.
Samt langar mig svolítið að baka. Það fylgir jólunum.
"Finnst þér að ég eigi að baka eitthvað fyrir þessi jól," spurði ég Simma minn.
"Já, mig langar svolítið í brúna lagtertu," svaraði hann að bragði.
Hann borðar ekki kökur en langar í brúna lagtertu.
Auðvitað fær hann brúna lagtertu.
Ég fæ súkkulaði-og hnetukökur.

2 ummæli:

murta sagði...

Úúúúú... það er nú eitt. Svona hörð lagkaka. Hún er uppáhaldið mitt. Hvernig ætli uppskriftin að henni sé?

Guðrún sagði...

Ég er hætt að gera hana harða. Sú er hnoðuð. Nú geri ég hrærða, mjúka. Þér finnst hún ekki eins góð, ég veit það.