Síður

miðvikudagur, 25. nóvember 2009

Blóðsykur
Ég er oft hrikalega áhrifagjörn og er oft sammála síðasta ræðumanni, jæja, kannski ekki alveg alltaf en mér finnst margir svo klárir og gáfaðir að ég fæ minnimáttarkennd. En ég ríf mig nú ofast upp úr því og laga til sjálfstraustið.
En aftur að áhrifagirninni.
Ég las í DV í fyrradag um hinar ýmsu matartegundir sem vinna á fitu. Þar var margt forvitnilegt. Til dæmis þetta með kanilinn. Ég nota kanil eingöngu út á grjónagraut og þá baðaðan sykri og svo í einhverjar smákökutegundir. En ¼ úr teskeið, t.d. út á hafragrautinn eða jógúrtið eða hvað sem er, á að halda blóðsykrinum í jafnvægi. Lauren Slayton, löggiltur næringarráðgjafi í New York segir að blóðsykur hækki oft eftir máltíðir og gefi líkamanum til kynna að hann eigi að geyma fituna frekar en brenna henni.
Ég hugsaði strax með mér að kannski væri eitthvað að blóðsykrinum í mér og fékk mér kanil út á hafragrautinn minn í morgun.
Nú bíð ég spennt hvort ég finni einhvern mun á mér.
Það er bara verst að ég veit ekki hvað ég á að finna.

1 ummæli:

murta sagði...

ef blóðsykurinn helst jafn þá áttu ekki að finna fyrir þessari "mig langar svo í eitthvað" tilfinningu. Allt er í balans og jafnvægi þangað til þú verður í "alvörunni" svöng. Og það er sko "mig langar svo í eitthvað" tilfinningin sem er mitt vandamál. Lov jú lóds. Ó og svo er þetta tilraun sem er þess virði, smá kanill út á hafragrautinn það er bara fínt, og þú tapar engu. Merkilegast finnst mér að ég skula hafa verið að prófa þetta svona að gamni hér heima án þess að lesa DV!