Jólainnkaup
Þó að ég sé búin að kveikja á skammdegisljósunum mínum, fyrir nokkru, þá er ég ekki endilega komin í jólaskap. Það er ekkert samhengi þar á milli. Skammdegisljósin eru eitt og jólafílingur er annað.
En ég hengdi upp eldhúsjólagardínur áðan. Nýjar gardínur. Við, Simmi minn, fórum sum sé saman í Rúmfatalagerinn í dag með ýmis verkefni í huganum, eins og að skoða garn í peysu á dótlu, sem vill lopapeysu sem er ekki úr lopa, athuga jólaljós í stofugluggann og skoða eldhúsgardínur.
Við fórum tæpum tólfþúsundum fátækari út úr búðinni með nýjar gardínur í poka, stóran pakka af batteríum og sílikon sleikju.
Ég var sirka 30 mínútur að falda gardínurnar (á hliðunum) og hengja þær upp. Ég gat ekki beðið. Áður þreif ég gluggann með útþynntu Ajax, þannig að nú er orðið ótrúlega jólalegt hjá mér, bæði hvað sjón og lykt varðar.
2 ummæli:
Hmmm... en enginn lopalaus lopi.
Það er alltaf jafn upplífgandi og gaman að lesa bloggið þitt. Þú ert alveg ótrúlega fyndin og segir skemmtilega frá hlutunum. Ég er löngu farin að kveikja á ljósunum á þakkantinum. þetta heita heilsársljós hjá mér, mér finnst svo gaman að lýsa húsið upp í myrkrinu. Kanski að jólagardínurnar svífi upp á næstunni.
Kveðja, af Oddabrautinni
KS
Skrifa ummæli