Síður

þriðjudagur, 8. júlí 2003

Tívolíid var tekid med trompi í gærkvøldi. Í dag vorum vid ad spóka á Amager og røltum sídan um Cristianiu. Thad var skemmtileg upplifun. Tharna voru hassmolar og køgglar seldir í sølutjøldum, rétt eins og pylsurnar eru seldar úr á 17. júní heima. Og pípur og áhøld til notkunar í massavís. Allir voru ligeglad og ekki nokkur sála sýndi einkenni stress. En vid erum gengin upp ad øxlum.

mánudagur, 7. júlí 2003

Vedurfrædingarnir klikka hér eins og heima. Thad var búid ad spá sól og blídu i gær svo rádgerdum ferd a strøndina en sólin lét ekki sjá sig svo fórum i gøngutur med Gudlaugi Arasyni rithøfundi um Íslendingaslódir. Vid Simmi fórum í svoleidis túr fyrir 5 árum en thad var alveg thess virdi ad fara aftur. Nú glósadi ég il litla kompu thad helsta sem Gudlaugur sagdi thví minnid er ordid svona og svona. Hann fór adeins ødruvísi túr en vid fórum ádur svo nú erum vid alls fródari um Køben. Vid gengum okkur upp ad øxlum í gær thví vid héldum áfram eftir ad Gudlaugur kvaddi okkur. Vid bættum Rosenborgarhøllinni vid og Rosenborgargardinum og vid Alda skelltum okkur upp i Rundetårn. Thadan sáum vid yfir alla borgina og jafnvel Stórabeltisbrúna. Vid tókum svo strætó út á Amager til Eiríks og Gudfinnu og litlu Sigrídar Telmu í matarbod.
Vid høfdum afmælisveisluna hennar Øldu á laugardagskvøldid á fínum veitingastad og kráarrølti nidur Strikid og nidur á Nýhøfn. Í dag, á sjálfan afmælisdaginn, ætlum vd ad slaka á núna fyrripartinn (thad er svo huggulegt hverfid okkar og vid erum búin ad finna hverfiskrána))og fara svo í Tívolí í kvøld.
Sólin er nú eitthvad ad glenna ødruhverju.

laugardagur, 5. júlí 2003

Og enn rignir. Alda, Valdi og Simmi bordudu morgunmat uti i solskini (eg missti af thvi, la bara i bælinu) en thad for skyndilega ad rigna og rignir enn. Thad verdur bara ad hafa thad.

föstudagur, 4. júlí 2003

Vøknudum i morgun vid fuglasøng og ljufa rigningu. Heilsdudum upp a Lailu og hun visadi okkur a S-toget sem vid tokum nidur i bæ. Dulludum okkur i allan dag i bænum, bordudum brunch a veitingasdtad vid hlidina a Tivoli (vid Simmi høfum komid thar adur, med kennaralidinu heima). Gudfinna kom og hitti okkur thar. Ofarlega a Strikinu fekk Simmi minn kaupadellu og keypti a sig ledurjakka. Meira sem eg er anægd med kallinn, hann vill nefnilega helst aldrei kaupa neitt a sig. Valdi keypti rosaflottan gellu ledurjakka a Øldu. Svo fekk eg lika thessa finu sko a Kolbein, hann a ekki ad geta slitid theim a manudi eins og øllum ødrum skom.Thad komu svkalegar rigningardembur ødru hverju svo vid neyddumnst til ad fara inn a bari og kaupa okkur bjor. Audvitad settumst vid inn Hvids vinstue og fengum okkur thar godan drykk. Islendingar eru her um allt, vid verdum ad passa okkur ad vera dønnud i ordbragdi thvi madur veit aldrei nema madurinn vid hlidina se samlandi. Vid erum buin ad heyra i og sja svona 30 mørlanda. Vid fengum okkur kvøldskattinn a sætum stad vid Nyhøfnina. Thad er jazz festival i borginni, sem byrjadi i dag og mun standa til 13. juli. Vid lentum a tonleikum i rigningu vid Nyhøfnina, thar sem nokkrir grahærdir sætir kallar voru ad jazza. Geggjud stemmning. Hun er buin ad koma ser vel regnhlifin sem eg keypti i Edinborg um daginn. Her er folk berfætt i bandaskom med regnhlif.

fimmtudagur, 3. júlí 2003

Vid heimsottum Eirik og Gudfinnu og fundum filinguna ad vera i Køben. Wonderful Copenhagen.
Klukkan er half thrju upp a dønsku og vid erum mætt hja Lailu a Fossgardsvej 11. Okkur list rosalega vel a okkur. Vedrid er himneskt og Danmark er dejlig. Gudfinna tok a moti okkur a flugvellinum. Eirikur var ad hringja. Hann er buinn i vinnunni i dag og vid ætlum ad byrja a thvi ad heimsækja thau a Amager.
Það dugar ekkert minna en vika til að halda upp á 200 ára afmæli. Það finnst okkur fjórmenningunum, mér, Simma, Öldu og Valda alla vega. Alda verður síðust af okkur að verða fimmtug og í tilefni þess förum við til Köben í fyrramálið að halda upp á afmælið hennar, 7. júlí, og okkar hinna pínulítið líka. Allt er klárt. Tengdamamma og Erla mágkona sjá um Króniku og Svava mágkona sér um Kolbein. Hann var alsæll að fá að vera hjá henni í viku. Þar er fullt hús af strákum og tölva og sjónvarp með DVD spilara og allir á kafi í fótbolta. Já,vel á minnst, Kolbeins lið fékk bikara fyrir þriðja sæti á Borgarnesmótinu.
Við ætlum að vera í heimagistingu hjá henni Lailu Petersen á Fossgardsvej 11. Það verður örugglega gaman að búa í íbúðahverfi og taka strætó niður í bæ í stað þess að verma rúmin á hóteli eins og maður hefur gert hingað til. Hjá Lailu eru tvö herbergi í útleigu svo við höfum neðri hæðina fyrir okkur, tvö herbergi, bað og eldhús. Og við getum fengið morgunmatinn úti í garði. Það er svolítið sem mér finnst æðislegt. Já, kóngsins Kaupmannahöfn bíður.

þriðjudagur, 1. júlí 2003

Kolbeinn kom með okkur í bæinn í morgun og við skutluðum honum til Erlings Aspelund. Hann ætlar að vera hjá honum í dag. Þeir voru mestu mátar á meðan Erling bjó í Ameríku og nú er verið að endurnýja vinskapinn.
Ég fór í göngu í gærkvöldi með Ferðafélagi Ölfuss. Gengið var á Hengilssvæðinu, kringum Hróðmundartind, í Tindgili meðal annars, áð í Seltungum og Þverárdalur genginn til baka. Veðrið var yndislegt og útsýnið stórkostlegt, alveg yfir að Þingvallavatni. Mér finnst landið mitt skreppa saman og verða minna og minna eftir því sem ég kynnist því meira. Þetta var þriggja tíma ganga í kvöldhúminu. Nú bíð ég bara spennt eftir næstu göngu.

mánudagur, 30. júní 2003

Við, gamla settið, urðum að gegna hlutverki foreldra um helgina og fara með Karl Kolbein á fótboltamót í Borgarnesi. Það var ægilega gaman en við vorum í tjaldvagni og ég held að við séum búin með þann kvótann. Það væri kannski í lagi ef það rigndi aldrei og ekkert blotnaði en því var ekki að heilsa. Það varð allt svo rennandi blautt og ógeðslegt að við nenntum ekki að bíða eftir verðlaunaafhendingu. Við hefðum þurft að sitja í blautum vagninum í 3 klukkutíma. Svo eru svona gamlir skrokkar ekki gerðir fyrir þunnar svampdýnur. Það var ansi erfitt að skríða á fætur þessa tvo morgna. En það var gaman að fylgjast með boltanum, sérstaklega hjá yngstu flokkunum. Okkar manni finnst frekar fúlt að tapa, hann á eftir að læra það aðeins betur, en hans lið vann þrjá leiki, gerði eitt jafntefli og tapaði tveimur (ef ég man þetta rétt). Hann átti góða spretti og skoraði flott mörk. Svo var honum kippt inn sem markverði í annað lið og það fannst honum upphefð. Ef hann ætlar að koma aftur næsta sumar og æfa fótbolta verðum við á hótelinu, það ræðir ekkert um annað en mér skilst að þá sé eins gott fyrir mig að fara að panta.
Það er merkilegt þetta með hana dóttur mína. Þegar hún var lítil kölluðum við hana stundum Dúllu Jones. Núna býr hún með Dave Jones og það stendur til að hún beri það nafn í framtíðinni. Ég kallaði hana líka stundum Dabbiló. Hún kallar kærastan svona upp á íslensku Dabba. Þegar ég var 17 ára fór ég til spákonu sem þar á meðal gaf mér upp öll þau lönd í heiminum sem ættu vel við mig. Það voru svona 6-7 lönd og þar á meðal Wales sem ég hef aldrei komið til en á örugglega eftir að vera þar með annan fótinn að heimsækja Dúllu og Dabba Jones og aðalhöfðingjann, litla prinsinn af Wales.
Það er allt annað umhverfi í blogger í tölvunni heima en í Króniku. Hvernig í ósköpunum stendur á því ? Arg og garg..... Mér líkar betur við það í Króniku.
Ég er að klikkast á þessu...... Dabbiló þyrfti að vera heima núna.
Nú er ég að vona að íslensku stafirnir séu komnir inn. Ég skil ekki vandræðin sem ég er búin að vera í. Það er eins og tölvan mín heima sé eitthvað að stríða mér en sú gamla í Króniku hagar sér betur við mig. En ég sé að ég á góða vini sem sjá um mig. Það er góð tilfinning.

sunnudagur, 29. júní 2003

Ég er að pæla í hvað ég á að gera til að ná öllum ?????? í burtu.

miðvikudagur, 25. júní 2003

Hvar eru þessir feitu Bretar sem Fréttablaðið segir frá í dag? Ég sé Breta fyrir mér lágvaxinn, fíngerðan og grannan en ekki feitastan allra Evrópubúa. Spánverjar lifa lengst Evrópubúa þrátt fyrir að reykja mest, segja þeir. Ja, hérna hér. En það besta er að fáir Frakkar deyja úr hjartasjúkdómum og skýringin er ást þeirra á rauðvínum. Ég hef örugglega verið Frakki í fyrra lífi því ekki á íslensk kerling, fædd um miðja síðustu öld, að elska rauðvín jafnmikið og Frakki. Ég vona bara að rauðvínið geri mér jafn gott og Fransmönnum. Það slæma í fréttinni er að ungverska gúllasið hefur vond áhrif; Ungverjar eru skammlífastir allra Evrópubúa og gúllasinu kennt um. Eins og það er nú gott á vetrarkvöldi, með ungverska rauðvíninu Egri Bikavér (ég held að það þýði nautablóð) og tónlist sem skapar vampírustemmingu.
Og svo er það spurning hvort á að skrifa stemming eða stemning? Ég bara spyr eins og fávís kona.
Ætli sumarið sé liðið og komið haust?
Var í Króniku í gær og var í Króniku í dag. Í gær var Kolbeinn einn heima en með langömmu og langafa í bakhöndinni (þetta er örugglega ekki góð íslenska). Hann snæddi hádegisverðinn hjá þeim og fór svo seinnipartinn í sund með langafa. Hann er ótrúlega duglegur að sjá um sig sjálfur nema ég sé búin að gleyma því hvenær börn eru sjálfbjarga með ýmsa hluti. Já, þegar ég hugsa til baka minnir mig að börnin mín hafi þurft að gera ýmsa hluti sjálf um 10 ára aldurinn. En Kolbeinn er nú samt ´spes´, sama hvað hver segir. Hann kom með okkur í dag og fékk ýmis verkefni eins og að sjá um vatnskönnurnar og koma þeim á borðin og vaska upp (með aðstoð). Hann ætlaði að hitta Kormák, gamlan vin, en hann var í sumarbúðum.

mánudagur, 23. júní 2003

Var í Króniku í dag. Tókum höfðingjann litla með okkur í bæinn því hann var boðinn í 11 ára afmæli vinar síns Sigurjóns. Sigurjón og Kolbeinn hafa verið vinir frá því þeir kynntust í Sælukoti eins eða tveggja ára gamlir. Ég er ekki sniðin fyrir svona vinnu eins og hún gerist í Króniku eða á öðrum veitingastöðum sem hann Simmi minn hefur látið mig vinna á. Ég verð svo þreytt í fótunum að ég stend varla undir sjálfri mér. Svo er svo heitt þarna og ég svaf nánast ekkert í nótt og svo.......æ ég veit það ekki, ég var bara svakalega þreytt. Var ákveðin í að fara snemma í bólið en þá slapp höfðinginn út (ætlaði á rampinn ) og nú erum við gamla settið að pæla í því að fara og gá að honum. Við eyddum lunganu úr kvöldinu í að gera klárt fyrir Borgarnesmótið. Gera tjaldvagninn klárann og finna þetta og græja hitt. Við erum nú reyndar alveg komin úr útilegu "fílingunni". Fórum aldrei í útilegu í fyrra en hvað gerir maður ekki fyrir höfðingja?

sunnudagur, 22. júní 2003

Laugardagurinn 21. júní var útskriftardagur dóttur minnar Svövu Ránar. Hún var að útskrifast úr enskuskori heimspekideildar Háskóla Íslands. Við, foreldrar hennar, erum ákaflega stolt af henni. Hún dró það við sig að skrifa lokaritgerðina og það var farið að íþyngja henni dálítið. Við vorum mest hrædd um að þessi ritgerð liti ekki dagsins ljós. En stelpan okkar dreif sig á Hornafjörð síðastliðið haust, gerðist þar framhaldsskólakennari og dútlaði við ritgerðina í frístundum í rólegheitunum fyrir austan. Hún skrifaði 10 eininga ritgerð sem heitir THE SEXUAL VAMPIRE: Marginalisation in the Vampire Genre or the Blurring of Gender. Hún fékk 8.0 fyrir ritgerðina. Ekkert útskriftarpartý var haldið. Hún var ekki einu sinni viðstödd útskriftina enda byrjuð búskap á erlendri grundu.
Að ganga um fjallendi Íslands, að kvöldi til og fram á nótt þegar lengstur er sólargangur, er ólýsanlegt. Leiðsögumaðurinn, Björn Pálsson, þekkir hverja þúfu á hvern blett með nafni og ekki var leiðinlegt að fá smá jarðfræðilýsingar um leið og örnefnin voru nefnd. Þó svo að nöfnin festist ekki öll í kollinum á manni verður göngutúrinn samt miklu meira lifandi við að heyra nöfnin. Við vorum um 20 manns úr Höfninni sem gengum þarna saman. Byrjuðum við Hveradali og gengum fyrst í vestur (í áttina að Þrengslavegi) og sveigðum svo í suður og enduðum við Hjalla í Ölfusi. Skálafell var á vinstri hönd lengst af og Meitlarnir á hægri. Við vorum fjórar klukkustundir og tuttugu mínútur á leiðinni. Ég hefði ekki viljað missa af þessari upplifum þrátt fyrir mikla strengi daginn eftir. Ég ætla að sleppa allri notkun lýsingarorða, það yrði væmin upptalning hjá mér.

föstudagur, 20. júní 2003

Nú er maður sko komin í göngugírinn. Til stendur að ganga í kvöld gönguleið 8 FFÖ sem er Skálafell og Vatnabrekkur að Kerlingabergi Ferðamálafélag Ölfus skipuleggur ferðina.Eins og segir í lýsingu ferðarinnar verður komið heim í húmi nætur. Lengstur sólargangur er um þessar mundir og veðurspáin er góð. Ég á líka von á að þarna verði hópur af frábæru fólki og fróður farrarstjóri.
Kolbeinn er hjá Sigurjóni vini sínum en Sigurjón verður hjá okkur þar næstu nótt í staðinn.

fimmtudagur, 19. júní 2003

Ég ætla að taka þátt í kvennahlaupinu í kvöld. Ég heyrði í Íslandi í bítið í morgun að það er í tísku að nota göngustafi. Mikið er ég fegin, ég hefði aldrei þorað að fara með stafina mína í 'venjulega' göngu nema að vita að það sé í tísku. Svona er nú sjálfstæðið mikið. En málið er að mér finnst miklu betra að nota stafi. Ég ætla að taka stafina með í kvöld og stika 5 km.
Þá daga sem Kolbeinn fer á fótboltaæfingu erum við heima en tengdó fer í Króniku með Simma. Við Kolbeinn kunnum að hafa það náðugt. Við förum seint á fætur og striplumst þá gjarnan fáklædd og gerum helst ekki neitt. Þegar líður á daginn fer svo allt á "fúllsving". Frændur Kolbeins, unglingarnir Geir og Ási, eru duglegir að taka hann með í sund og bara eitthvað að hanga eins og unglingar gera. Kolbeinn er afskaplega ánægður með þetta því hann er að eigin mati meira svona eins og unglingur heldur en krakki. Hann hlustar á unglingatónlist og hugsar eins og þeir, segir hann. Hann er samt mjög ánægður í fótboltanum og hlakkar til að fara á Borgarnesmótið.

mánudagur, 16. júní 2003

Það spáir rigningu á morgun, 17. júní. Mágur minn, Gunnar Daníel, segir að sé ekkert skrítið, rigningin hafi verið lögtekin á Þingvöllum 1944 um leið og lýðveldishátíðin var haldin. Í minningu minni finnst mér samt að það hafi alltaf verið sól á 17. júní þegar ég var lítil stelpa heima á Selfoss. Við, systurnar, fengum að fara í jólakjólana, frá síðustu jólum, og stutta hvíta sokka og spariskóna, sem líka voru hvítir. Það var farið í skrúðgöngu og tekið þátt í hátíðarhöldum í Tryggvagarði. Seinna varð ég skáti og þá marseraði maður í svörtum skátakjól í skrúðgöngunni, mjög stolt og allir í takt. Það var alltaf æfing í taktgangi kvöldið áður. 1968 var ég fjallkona í Þorlákshöfn og svo aftur nokkrum árum síðar. Er maður bara ekki alltaf fjallkona? Það held ég.

sunnudagur, 15. júní 2003

'Lazy sunday' indælt líf. Ein bíómynd í rúminu fyrir hádegi, söng við fermingarmessu eftir hádegi. Einn nemandi minn, hún Dídí var að fermast. Þær voru glæsilegar mæðgurnar, Ingibjörg í íslenskum búning og Dídí í færeyskum búning. Hátíðleg og skemmtileg stund. Við, gamla settið, fórum í sund með sonarsoninn, gullpunginn, og lágum þar í leti í eina klukkustund eða svo. Það fór sem sagt lítið fyrir sundi en sólskinið sleikt þess meira. Kolbeinn sér í rómantískum hillingum sunnudagakaffi hjá ömmu svo við kíktum þar við en það mæta alltaf færri þegar sumarið brestur á. Við mættum í dag og liðið hans Bjössa. Amma Hulda slapp því alveg við lognmollu. Enda er það eitthvað sem hún þolir ekki. Við, Simmi minn, eyddum síðan nokkrum mínútum saman í eldhúsinu og elduðum þennan líka fína ítalska rétt. Mættum svo klukkan átta í höfuðstöðvar Ægis og greiddum mótgjaldið fyrir júníorinn á Borgarnesmótið. Við verðum að gjöra svo vel og haga okkur eins og við værum tuttugu árum yngri. Það er bara svo einfalt. En djö..... höfum við gaman að því.

laugardagur, 14. júní 2003

Fengum okkur lítinn, sætan göngutúr í dag og lentum í bakgarðinum hjá Grétu og Gunnari í þvílíkri sól og blíðu. Gengum síðan lengra og, viti menn áður, en við vissum af vorum við stödd í Skálanum að Lotta og þar voru á sama tíma gamlir æskuvinir, þau Valdi Svavars og Dóra. Þau voru að koma af golfvellinum. Þangað förum við reyndar aldrei. Alltaf gaman að hitta Valda og Dóru, þau koma með ferska vinda og nýjan blæ, þessar elskur. Þarf að fara að rifja upp allar sögurnar sem eru til um Valda síðan hann vann í Boða hjá pabba mínum. Legg hausinn í bleyti og spyr mér minnugra fólk.
Það er útilokað að fara til Skotlands án þess að fá fræðslu um 'whiskyið' þeirra. Áður en við, kennaraliðið, fórum áð skoða skólakerfið þeirra Skota, fengum við fræðslu um 'whisky'. Við fórum á safn sem heitir The Scotch Whisky Heritage Centre Limited. Þar fórum við í gegnum sögu 'whisky' og fengum kennslu í að þekkja það. Nú er spurningin hvort maður er lowland, highland, speyside eða island manneskja.
Kvöld eitt, í Edinborg, fórum við sex stelpur út að borða. Fórum á kínverskan stað og fengum frábæran mat og þjónustu. Við ákváðum að taka leigubíl heim á hótel eftir matinn í stað þess að ganga. Það voru pantaðir tveir bílar því þeir taka einungis fimm farþega. Annar bíllinn kom á undan hinum og fannst mér alveg fráleitt í augnibliki skemmtilegheitanna að sundra hópnum svo ég snara mér að leigubílstjóranum (þeir hafa rúðurnar alltaf niðurskrúfaðar) og spurði á minni frábæru ensku:"Is it impossible to have sex in here?" Ekki veit ég hvað leigubílstjórinn hélt í alvöru en hann svaraði að bragði: "It is o.k by me but not with the taxi."
Edinborg er frábær borg að heimsækja. Hún er falleg og skemmtileg. Ég var líka með fallegu og skemmtilegu fólki þar í nokkra daga um daginn, kennaraliði Grunnskólans í Þorlákshöfn. Við heimsóttum tvo skóla, "primary school" fyrir 5-12 ára og "secondary school" fyrir 13-18 ára. Við fengum einnig fyrirlestur hjá Bob Young um skoska skólakerfið og ytra og innra mat skóla. Þetta var allt mjög áhugavert og fróðlegt að sjá og heyra. Af mörgu er að taka til að segja frá en mér detta fyrst í hug skólabúningarnir. Í yngri barna skólanum voru flest allir krakkarnir í búningum en þó ekki blazer jökkum með bindi eins og maður sér í bíó heldur þægilegum fötum af ýmsum toga en liturinn var grænn. Það var ekki skylda að nota búninginn en mælst til þess. Í eldri barna skólanum var ekkii búningur heldur mælst til þess að fötin væru í svörtu og hvítu en það var ekki virt af öllum. Umbunakerfið sem notað var í skólanum vakti til umhugsunar ekki hvað síst vegna þess að það var gegnum gangandi notað í öllum bekkjum í öllum skólanum (liður í stefnu skólans) en ekki eitt hjá einum kennara og annað hjá þeim næsta. Mér leið líka eins og frekri heimturófu þegar ég bar vinnuaðstöðu kennarana saman við okkar, húsnæðið almennt og fjölda nemenda í bekk.
Áður en Kolbeinn flutti til Iowa var uppáhaldsveitingastaðurinn hans McDonalds en besti staður afa hefur verið til margra ára Ítalía. Það þurfti oft hér áður að fara samningaleiðina þegar til stóð að fara út að borða. Pilturinn kvartaði yfir því í fyrrakvöld að við hefðum aldrei boðið honum út að borða þegar hann var hjá okkur í fyrra. Ég minnti hann á að við hefðum farið á Pizza Hut á afmælinu hans og boðið mörgum strákum. "Það telst ekki með, ég meina svona ÚÚÚT að borða", sagði hann. Hann var spurður hvert hann vildi þá fara ´'úúút' að borða. "Auðvitað á Ítalíu", svaraði hann um hæl. Þetta fannst afa bera vott um mikið þroskamerki hjá sonarsyninum.

fimmtudagur, 12. júní 2003

Ég fékk sms áðan frá 'mæfjútjúrsoninlov'. Hann var að gefa mér upp póstnúmerið hjá þeim skötuhjúum svo nú get ég sent pakka eða eitthvað skemmtilegt.
Hann hefur áður sent mér kveðju þessi elska, það var á afmælinu mínu og til að gefa mér upp nýja símanúmerið þeirra.
Svo fer maður kannski að heyra meira frá Svövu Rán.
Kolbeinn fékk smá 'sjokk' í morgun. Var að pæla í því hvað klukkan væri í Iowa. Hann langaði að heyra í mömmu sinni og pabba en saknar aðallega Nönnu litlu systur. Það er svo gaman að heyra hvað hann talar fallega um hana. Hann var sjö ára þegar hún fæddist og hún er sannkölluð prinsessa í hans augum. Hann notar orð eins og krútt og dúlla um hana.
Fyrir nokkrum vikum keypti ég mér nýja baðvog. Sú gamla var þannig að maður gat ráðið svolítið um nokkur kíló upp eða niður. Nýja vogin er svo flott að hún er höfð í stofunni sem skrautmunur fyrir utan það að hún vigtar nákvæmlega upp á 100 grömm.. Á hverjum föstudagsmorgni er mikil og virðuleg athöfn viðhöfð eftir morgunpissið og áður en nokkur föt eru komin til skjalanna. Daginn þann er vigtin var keypt var gerð áætlun um að nú skyldi verða tekið á því. Áætlunin var að hálft kíló fengi að fjúka á viku hverri. Áætlunin náði til dagsins sem haldið var til Edinborgar. Einhver misskilningur átti sér stað á milli mín og nýju baðvogarinnar en þennan umrædda morgun höfðu ein tvö og hálft kíló bæst við öll hin sem fyrir voru.
Ég datt inn í þátt hjá Oprah í morgun þar sem, eins og svo oft áður, var komið inn á umræðu um aukakíló og ég greip þar nokkra punkta sem ég ætla að hafa að leiðarljósi þangað til ég fer næst til útlanda. Það stendur til að skreppa til Köben 3. júlí en þar til eru þrjár vikur.
Hún Nanna Christiansen, gamla bekkjarsystir mín úr Kennó og samkennari til þriggja ára, hóaði saman á þriðjudaginn nokkrum umsjónarkennurum í viðtal. Hún er að vinna að mastersritgerðinni sinni og gerir rannsókn á samskiptum foreldra og kennara. Mér fannst þetta frábær stund sem við áttum þarna því við vorum að skiptast á skoðunum, hugmyndum og reynslu. Við hlustuðum hver á aðra gripum ekki fram í hver fyrir annarri eins og oft vill verða í hita dagsins. Kannski hefur litla segulbandið átt einhvern þátt í að við höguðum okkur svona kurteislega og ekki skaðaði að Nanna kom með þessar fínu trakteringar og rauðvínsflösku. Ég er ekki að segja að ég sé alltaf að hitta ókurteist fólk, heldur finnst mér of oft samskipti fara þannig fram að skoðanir annarra eru ekki virtar heldur sjá sumir bara sínar eigin skoðanir sem þær einu réttu. Við þannig þenkjandi fólk á ég erfitt með að eiga samskipti við.

miðvikudagur, 11. júní 2003

Ég skrópaði í vinnunni í dag og fór með Simma í Króniku. Ég er samt ekki með samviskubit því ég get unnið það sem ég á eftir að gera nánast hvenær sem er í sumar. Ég veit samt að það væri best fyrir mig að ljúka þessu af en það var nauðsynlegt að fara í bæinn í dag ekki eingöngu til að hjálpa Simma heldur til að kaupa ýmislegt sem höfðingjann Kolbein vanhagaði um. Hann ákvað að vilja fara í fótboltann og hann vantaði skó,legghlífar og sokka til þess að vera gjaldgengur á æfingu. Við fórum í Intersport og fengum skóna og legghlífarnar en enga sokka. Skrítið, úrvalið af skónum var þvílíkt að maður varð að horfa á einn punkt til þess að verða ekki ruglaður, en sokkarnir voru búnir. Ég nennti ekki að keyra niður í bæ til þess að leita að sokkum og stakk upp á að fá þá að láni einhvers staðar en það fannst mínum hallærislegt og afi tók undir það. Hann fór með piltinn aðra ferð niður í bæ þar sem keyptir voru sokkar og sundskýla.
Á þessari stundu er höfðinginn á æfingu með 6. flokki Ægis í Þorlákshöfn.

þriðjudagur, 10. júní 2003

Óskaplega líður tíminn hratt. En það er kannski vegna þess hversu mikið er að gera. Mér finnst ég ekki geta um frjálst höfðuð strokið en ég er samt ekki að kvarta yfir neinu, það er allt skemmtilegt sem ég er að gera. Ég átti afmæli á sunnudaginn, hvítasunnudag, en gerði ekkert sérstakt fyrir mig þann dag heldur fór norður í Skagafjörð í fermingarveislu. Anna Lísa Wium var svo sæt að bjóða okkur systrum og mömmu og pabba og við drifum okkur þótt það væri yfir langan veg að fara. Ómar Habib var fermdur og veislan haldin að Árgarði í Skagafirði. Við vorum mætt þar klukkan fjögur. Slóruðum heilmikið á leiðinni, aðallega svo mamma og Gréta gætu sinnt nikótínþörfinni. Á heimleiðinni komum við við hjá Ella, hálfbróður mömmu, á Stóru Ásgeirsá í Húnavatnssýslu. Elli er bara ári eldri en ég þótt hann sé bróðir mömmu. Við vorum svo heppinn að koma á mjaltatíma þannig að við kíktum í fjósið og það er ævintýri fyrir svona malbiksbúa eins og okkur. Kolbeinn var í fyrstu ekkert spenntur fyrir að fara en svo ákvað hann að vera jákvæður og var það allan tímann. Frá Rauðavatni og til Þorlákshafnar söng hann án þess að hnökra:
I know a song that gets on everybodys nerves,
everybodys nerves
everybodys nerves
I know a song that gets on everybodys nerves,
and this is how it goes.
Hann hlýtur að vera heimsmeistari í þessu.

laugardagur, 7. júní 2003

Það tók mig átta klukkutíma að þrífa íbúðina í dag. Simmi sagði að það væri ekkert skrítið, ég hefðði komið með svo mikið ferðaryk með mér frá Edinborg. En hann er rosalega duglegur að lyfta upp fótunum þegar ég nálgast henn með ryksygu eða skúringarkúst, sem betur fer, annars flæktist hann bara fyrir mér og tefði mig. Nógu langan tíma tók þetta samt. Hann var nú, karlgreyið, að elda í Króniku mest allan tímann sem ég var að þrífa. Ég held ég hafi mokað út ryki í heila sæng. Ég tók líka ryk og fitudrullu ofan af eldhússkápunum og á ryk á botninum í fataskápunum og allt þar á milli.
Hringdi í Dúllu Jones til að athuga hvernig hún hefði það á nýjúm stað og það var gott í henni hljóðið nema hvað húsið var drulluskítugt og voru þau skötuhjú búin að eyða deginum í að þrífa.
Ætla að hringja yfir Atlantshafið á eftir því ég fann svo rosalega flottan kerlingasparibol í töskunni hans Kolbeins, sem passar alveg á mig, en hann segir að einhver önnur kona eigi að fá bolinn, einhver skyld henni Auði. Ég veit ekki alveg um hvað málið snýst en bolinn verð ég að eignast.

föstudagur, 6. júní 2003

Þetta var svo flókinn dagur í dag að ég varð að sleppa fimmtugsafmælinu hjá Steina frænda. Mamma og pabbi fóru sem fulltrúar okkar fjölskyldu. Ég sé samt eftir því að hafa ekki skipulagt daginn betur og heiðrað Steina en það er of seint.
Við mæðgur stóðum okkur bara nokkuð vel á Leifsstöð, tárin og kökkurinn í hálsinum var jú til staðar hjá okkur báðum en við hörkuðum af okkur og hún er sem sagt alfarin til síns nýja heimilis í Rhosllanercrugog í Wales. Næst sjáumst við 1. ágúst en þá þarf hún að koma heim til að sækja um fæðingarorlof.

Elsa hringdi frá Chicago. Þau eru þar á lúxúshóteli og Kalli var einmitt að vinna sitt verk á ráðstefnunni þegar hún hringdi.

Það er alveg frábært að hafa höfðingjann Kolbein hér.

fimmtudagur, 5. júní 2003

Komin heim eftir frábæra dvöl í landi Skota. Þeir eru 9% af bresku þjóðinni svo smá fróðleikur flækist hér með. Það var gott að koma heim í rigninguna og fá Kolbein í fangið en hann lenti á Leifsstöð nokkrum klukkutímum á undan mér. Hann er orðinn algjör Ameríkani. Hann þurfti að pissa á leiðinni heim og hljóp lengst útí móa, það mátti sem sagt enginn sjá neitt. Hann vantar líka mörg íslensk orð í daglegt mál og slettir því í allar áttir. Mamma hans og pabbi eru í Chicago á ráðstefnu um svefnrannsóknir en Svava Rán hringdi á hótelið sem þau eru á og lét skilja eftir skilaboð að hann væri mættur heill á húfi. Hann var klukkutíma í flugvél frá Chicago til Minneappolis og svo sex tíma þaðan og heim. Honum fannst því ekki mikið til um tveggja tíma flugið mitt frá Glasgow.
Næsta mál er svo það að einkadóttirin flytur alfarin á morgun til Wales. Ég held að ég sé ekki alveg búin að ná því. Hún hefur svo oft farið út í heim og dvalið mánuðum saman þannig að það er ekki nýtt að grenja með henni á Leifsstöð en nú má ég það ekki. Hún ætlar að fara að búa með honum Dabba Jones og Lúkas kemur svo í október og um það snýst hamingjan núna. Dave er búin að búa um rúmið hennar svo það er nú ekki amalegt fyrir hana að koma til hans.
Svona seint á kvöldin í logni eins og núna er Þorlákshöfnin fallegust en ég er þreytt og ætla að skríða upp í til tveggja Karla.

fimmtudagur, 29. maí 2003

Skólanum var slitið í dag. 10. bekkingar fengu samt ekki útkomu samræmdra prófa, því enn er prófanefnd að fara yfir. Skólaslitin voru hátíðleg og mér finnst Halldór skólastjóri gera hárrétt með því að gera að umtalsefni í ræði sinni allt skólastarf, ekki eingöngu bóknámið. Nemendur fá viðurkenningar fyrir íþróttir, þátttöku í kórstarfi, góða umgengni á ferðalögum, svo eitthvað sé nefnt. Þegar ég leit yfir nemendahópinn varð ég klökk, þeir voru svo stilltir, fallegir og prúðbúnir. Ég ræð bara ekki við kökkinn, mér þykir svo rosalega vænt um alla krakkana sem ég kenni.

Nú er ég búin að pakka. Nokkrir klukkutímar í brottför frá Leifsstöð til Edinborgar þar sem við, kennararnir, ætlum að grandskoða skólstarf þeirra Skota. Ég ætla líka að hitta Nessie í Loch Ness (ég man ekki hvernig á að skrifa þetta og nenni ekki að fletta því upp núna) og skoða viskíbrugghús. Annað væri nú bara synd. Vonast til að heyra í sekkjapípu og sjá skotapils.

mánudagur, 26. maí 2003

Nanna litla varð þriggja ára í gær. Ég hefði nú heldur viljað geta knúsað hana heldur en að syngja í gegnum símann yfir Atlandshafið: Hún á afmæli í dag,
hún á afmæli í dag,
hún á afmæl'ún Nanna,
hún á afmæli í dag.
Það varð löng þögn í símann eftir sönginn en svo sagði hún með alvöruþrunginni röddu: "Má ég tala við afa Simma?" Henni hefur líklega ekkert litist á þessi ósköp.
Þegar hádegi nálgaðist í gær hringdum við Simmi minn í pabba og hann skutlaði Svövu Rán að Skeiðaafleggjara og við skutluðum henni á Hornafjörð. Við erum búin að fara þessa leið svo oft í vetur að okkur finnst þetta ekkert mál. Það var að öllum líkindum farið of hratt, stöku sinnum, miðað við umferðarlagareglur en ég fann ekkert fyrir því, bíllinn platar dulítið. Svava Rán þurfti að mæta í vinnu í dag vegna prófasýningar og svo var ráðgerður fundur á föstudag en sem betur fer var honum flýtt fram á miðvikudag og við erum að hugsa um að skutlast eftir henni þá. Við spörum eitt fluggjald á þessu og svo langar okkur bara að vera sem mest með litlu stelpunni okkar því það styttist óðum í að hún flytur af landi brott. Sjúkk... ótrúlegt.
Það hefur verið meira um útiveru undanfarna daga hjá mér en síðan ég veit ekki hvenær. Það eru vordagarnir í skólanum, fimmtudag, föstudag og mánudag. Ég fór á hestbak á laugardaginn með saumó og sat svo í heita pottinum á eftir. Ég er öll einhvern veginn hressari eftir alla þessa súrefnisöndun enda veitir ekki af svona þessa síðustu daga í skólanum.
Saumaklúbbsferðin um helgina var æðislega skemmtileg. Við byrjuðum á því að mæta í Hestakránna, hjá Dúnu og Alla, um hádegisbil og fengum okkur súpu og brauð. Spjall og meira spjall. Hestaferðin með öllu sem henni tilheyrir verður ógleymanleg. Hesthúsið, hjálmarnir, hnakkarnir, beislin, komast á bak, tölt, stopp, hestaskál, veðrið, landið, fólkið og samveran. Heiti potturinn og bjórinn. Kvöldverðurinn, þriggja rétta. Trúbadorinn Addi Ása og dansinn og fjörið fram eftir nóttu. Þetta var ferð sem seint gleymist.

föstudagur, 23. maí 2003

Þvílík bongóblíða. Ég er búin að grilla mig. Sat úti á skólalóð í morgun, á meðan á grillinu stóð, á móti sól og fór síðan í sund, eða sko heita pottinn og sólbað, og var þar í tvo tíma. Fór síðan í skotið hjá mömmu og sólaði mig enn meir, þannig að nú er ég eins og grillaður humar í framan og á öxlunum. Frábært, þannig vill maður hafa það.

Það er búið að plana morgundaginn. Saumó ætlar loksins, eftir áratugi, að fara að skemmta sér og taka með eiginmennina með. Við ætlum að mæta í Hestakrána, hjá Dúnu og Alla, um hádegið, borða saman léttan verð, fara á hestbak, í heita pottinn, borða kvöldmat og skemmta okkur og gista þar. Við tökum þetta fram yfir 'júróvsíon'. Við hljótum að frétta hvernig Birgittu gengur. Ég er búin að redda mér reiðbuxum og reiðstígvélum, þannig að ég er tilbúin.
Þá eru prófin búin og vordagar standa yfir. Sólin skín í heiði og allir brosa út að eyrun. Ég er ekki nærri búin að ganga frá öllu mínu. Það er í svo ótrúlega mörg horn að líta og engu má gleyma. Ég er að læra á Stundvísi. Það er heilmikill tímasparnaður að nota það kerfi alla vega hvað útreikning á starfseinkunn varðar.

fimmtudagur, 22. maí 2003

Nú er það klappað og klárt, Karl Kolbeinn kemur til Íslands 4. júní. Þá verð ég reyndar úti í Edinborg með kennurunum, í vinnuferð, en kem heim daginn eftir. Afi gamli verður á Leifstöð nokkra daga í röð því 6. júní mun einkadóttirin flytja alfarin til Wales. Ég á eftir að átta mig á því enn að börnin mín og barnabörn skulu öll vera á erlendri grundu í framtíðinni. Það er eins gott að við gamla settið séum góð hvort við annað - svona alein. Það er huggun harmi gegn að Kolbeinn skuli vilja vera hjá okkur á sumrin.

Gréta systir á afmæli í dag. Ætla að skjótast til hennar með smá pakka.

þriðjudagur, 20. maí 2003

Við mæðgur sátum fyrir framan tölvuna í gærkvöldi, í eina fjóra klukkutíma, að fínpússa BA ritgerðina hennar. Það átti bara eftir að laga örfáar stafsetningar-og ásláttarvillur og samræma punkta og kommur í tilvitnunum. Ritgerðin er 10 eininga ritgerð (með 80 tilvitnunum og einar 60 blaðsíður) og hún er búin að fá einkunn fyrir hana þó að hún sé í fjölritun í dag. Einkunnin er 8.0. Ég er óskaplega ánægð fyrir hönd dóttur minnar að þessu afreki skuli lokið því hún er búin að burðast með þetta á herðunum í 5-6 ár. Raunveruleg skrif hófust ekki fyrr en í haust og mest megnis var hún skrifuð á viku. Hún verður ekki viðstödd útskriftarhátiðina 21. júní, því hún verður flutt til Wales þá.

mánudagur, 19. maí 2003

Gréta systir segir stundum við mig á vorin: "Hvenær á ég að koma að hjálpa þér að þrífa?" Hún heldur því fram að ég verði að búa mér til nýtt hreiður eins og fuglarnir á vorin. Þetta er náttúrulega bara árás því ég hef ekki hreyft mig síðan árið 2000. Þá flutti ég líka þrisvar. En í stað þess að flytja eitthvert núna þá breyttum við aðeins uppröðun húsgagna í gærkvöldi og gátum með þokkalegu móti útbúið svefnstæði fyrir Svövu Rán í pínulitla herberginu. Þar mun svo væntanlega höfðinginn Karl Kolbeinn hafa aðsetur í sumar. Í staðinn varð tölvan að fara inn í stofu. Ég er ekki viss um að Hús og hýbýli hefði áhuga á að mynda neitt hjá mér þó að þeim yrði boðið það því hér ríkir algjört stílleysi. En um leið og þessar breytingar áttu sér stað hér í gær notaði ég tækifærið og henti drasli og þurrkaði ryk þar sem áður var erfitt að komast að. Gott mál.

sunnudagur, 18. maí 2003

Simmi minn lokaði Króniku aðeins fyrr á föstudaginn og við brunuðum austur á Hornafjörð til að hjálpa Svövu Rán að pakka saman búslóðinni og senda hana af stað til Wales. Það er sem sagt búið og gert. Við erum svo vön að pakka saman og flytja að við ættum bara að taka þetta að okkur fyrir fólk. Ég á alltaf límrúllu til að loka kössum með og græju fyrir límið svo mér eru allir vegir færir að stofna fyirtæki um þetta. En búslóð Svövu Ránar verður komin til Wales 2. júní og hún flýgur út þann 6. júní, alflutt til kærastans. Hann er búinn að fá íbúð handa þeim í Rhosllanercrugog (ég skrifaði þetta svo oft í gær að mér tókst að læra nafnið) sem er rétt við Wrexham þar sem David á heima núna.
Þegar við komum heim í gær, skelltum við okkur í betrigallann og heiðruðum hann Dóra hennar Ránar með nærveru okkar í fimmtugsafmælinu hans. Hann var með þetta grand strákurinn, heljarpartý í Versölum, nóg að borða og drekka og voða gaman. Svava Rán skilur alls ekki úthaldið sem við gamla settið höfum, hún var svo þreytt í gærkvöldi að hún lá bara fyrir, á meðan við skemmtum okkur. En þetta hefur kannski eitthvað að gera með Karlottu. Hún tekur sinn toll.

föstudagur, 16. maí 2003

Nú er heimsborgarabragurinn farinn að teygja anga sína hingað til Þorlákshafnar. Í gær var opnuð hérna áfengisútsala. Þetta er skrítin tilfinning að geta labbað niður í bæ (þetta er reyndar ekki orðalag sem notað er hér- ennþá) og keypt sér rauðvín með pizzunni eða grillinu. Það þarf ekki lengur að skreppa af bæ til þess. Ef ég bara man það rétt fyrir klukkan sex þá er sá möguleiki núna fyrir hendi að ég segi við hann Simma minn: „Heyrðu elskan, ættum við kannski að fá okkur rauðvín með kvöldmatnum?" Ef hann segir já, þá get ég skroppið „niðreftir" (þetta er orðaleg sem er notað hér) og keypt flöskuna. Það tekur örugglega einhvern tíma að venjast þessu.
Fengum svona ljómandi góðan fyrirlestur um einelti eða öllu heldur stefnu skóla í eineltismálum, hjá Vilhelm Norðfjörð, sálfræðingi skólans. Á eftir unnum við öll, starfsfólk skólans, í umræðuhópum og það stendur til að skólinn marki sér stefnu hvað þessi mál varðar. Þó einelti verði aldrei liðið er heldur aldrei hægt að koma í veg fyrir það. Það er, eins og einn af fundarmönnum komst að orði, eiliíðarvinna, eitthvað sem verður að lifa með.

fimmtudagur, 15. maí 2003

Ég var að lesa verkefni sem hún Sigríður Guðnadóttir var að vinna í sínu framhaldsnámi. Þetta er kennsluvefur um Þorlákshöfn, hugsaður fyrir grunnskólabörn. Ég mæli eindregið með honum. Fyrir utan það að ég varð klökk við lestur sumra síðnanna en það er ekki kannski ekki alveg að marka tilfinningaskjóðuna mína, hún þarf að tæma sig við ótrúlegust aðstæður og skilyrði.

miðvikudagur, 14. maí 2003

Á meðan forsetinn býður til samkvæmis í Borgarleikhúsinu vegna 60 ára afmælis síns er ég að útbúa afmælispakka fyrir Nönnu sem verður 3 ára 25.maí. Mér er sagt að hún sé algjör dúkkukerling enda hef ég séð til hennar dedúa við dúkkurnar sínar en það er reyndar komið á annað ár síðan. Þá söng hún þær í svefn með amerískum vögguvísum. Af því ég gaf henni Baby born í jólagjöf verð ég að gefa henni núna einhverja fylgihluti sem eru auðvitað alveg bráðnauðsynlegir til þess að Baby born geti þrifist. Gréta systir var svo sæt að keyra mig á Selfoss í Baby born innkaup. Við kíktum við í Lindinni og Skóbúðinni. Ég sá fullt af fötum og tvenna skó sem ég get hugsað mér en keypti ekkert. Svo skrítið sem það nú er þá voru fötin of stór á mig, hef aldrei lent í því áður, og málið með skóna er það að mig vantar þægilega götuskó en skvísan í mér tekur alltaf yfir og ég mátaði bara flotta hælaskó. Skynsemin réð áður en ég tók ákvörðun og ..... ég fór út skólaus. Þarf að leggja hausinn í bleyti.

þriðjudagur, 13. maí 2003

Mig minnir að ég hafi bara átt að vera þakklát um síðustu áramót þegar ég fékk 3% launahækkun. Hafði reyndar verið samið um það fyrir allnokkru síðan. Núna fá sumir sem búa í þessu landi, án þess að berjast fyrir því, launahækkun sem samsvarar mánaðarlaunum eins kennara. Hvernig hljóðuðu öll slagorðin sem duttu inn um bréfalúguna hjá okkur öllum fyrir örfáum dögum?
Ég vildi að ég nennti að fara í rannsóknarstúss. Þá myndi ég reyna að finna út úr því af hverju íslensk börn eru látin sofa úti í vögnum. Af hverju sumarbörn fara út tveggja vikna og vetrarbörn fjögurra vikna. Ég myndi líka rannsaka hve gamall þessi siður er og hvort það sé til eitthvert það land í veröldinni sem fer svona með ungbörnin sín annað en Ísland. Mig langar líka til að vita hvenær barnavagnar komu til landsins. Þessar vangaveltur urðu annars vegar til þegar dóttir mín sagði mér frá belgíska kennaranum, sem dvaldi hjá henni í hálfan mánuð um daginn og tók mynd af hornfirsku barni sofandi úti í barnavagni. Hún vildi segja vinkonu sinni frá þessum furðulega íslenska sið og fannst vissara að hafa sönnunargagn. Hins vegar fór ég að velta þessu fyrir mér vegna Karlottu. Ef hún yrði uppfædd á Íslandi svæfi hún sjálfsagt úti í vagni eins og önnur íslensk börn hafa gert, alla vega um tíma, en það stendur til að hún verði alin upp í Wales og þar er þessi siður ekki þekktur. Mun Karlotta bíða skaða af að missa af öllu íslenska heilnæma loftinu eða hljóta betra af að sleppa við það? Miklar geta spekúlasjónir þessa heims verið.
En mikið rosalega vildi ég geta dvalið, þó ekki væri nema einn dag, með henni ömmu minni á Syðra-Velli í Flóa og fylgst með henni sinna daglegum störfum með barnahópinn sinn stóra. Skyldi hún hafa átt barnavagn? Spyr pabba að því.
Það er óhætt að segja að hún Margrét Frímannsóttir sé hugsjónamanneskja. Hún vill fórna varaformannsstólnum sínum fyrir velgengni flokksins síns. Trúir því að Ingibjörg Sólrún verði flokknum meira til framdráttar þar en hún. Þvílík fórnfýsi. Þeir ættu sumir að taka Möggu til fyrirmyndar. Maður hefur á tilfinningunni að sumir sitji á sínum stólum eins og þeir eigi þá og engum öðrum sé treystandi fyrir þeim.

mánudagur, 12. maí 2003

Ég hef aldrei haft það svona gott eins og þetta vorið. Ég þarf ekki að búa til og leggja fyrir nema tvo próf fyrir utan nýbúana. Prófanefnd sá um að semja fyrir 10. bekk og ég þarf að sjá um 8. bekk og við Ásta saman með 9. bekk. Þvílíkur lúxus. Þetta er sá árstími sem ég fer venjulega á límingunum en nú héld ég bara að ég sleppi við það.

sunnudagur, 11. maí 2003

Fékk þennan sendan, má til með að deila honum.

Nonni litli var aðeins farinn að velta fyrir sér lífinu og tilverunni og
einn daginn fór hann til pabba síns og spurði hann: "Hvað eru stjórnmál?"
Pabbi hans svaraði: "Jú sjáðu til, það er kannski best að ég útskýri það á
þennan hátt: Ég vinn fyrir fjölskyldunni og þess vegna skulum við kalla mig
Auðmagnið. Mamma þín stýrir heimilinu og ræður útgjöldunum og þess vegna
skulum við kalla hana Stjórnvöld. Við erum til þess að sinna þörfum þínum
svo við skulum kalla þig Fólkið. Við getum síðan haldið áfram og kallað
barnfóstruna Öreiga. Litla bróður þinn skulum við kalla Framtíðina. Farðu nú
og veltu þessu fyrir þér og athugaðu hvort þetta kemur ekki heim og saman.
þannig að Nonni litli fór í háttinn og hugsaði stöðugt um það sem pabbi hans
sagði honum.

Um nóttina vaknar hann upp við grátinn í bróður sínum. þegar hann kemur inn
í herbergi hans finnur hann fljótt að bleian hans er blaut og mikil fýla af
henni. Hann fer inn í svefnherbergi foreldra sinna og finnur mömmu sína
sofandi. þá fer hann að herbergi barnfóstrunnar og finnur að hurðin er læst.
Hann kíkir inn um skráargatið og sér föður sinn í rúminu með barnfóstrunni.

Að lokum gafst Nonni litli upp og fór aftur í herbergi sitt og sofnaði.
Næsta morgun segir hann við föður sinn. "Pabbi, ég held núna að ég skilji
hvað stjórnmál ganga út á." Gott segir faðirinn, segðu okkur frá því. þá
sagði Nonni litli: " Jú sjáðu til, á meðan Auðmagnið riðlast á Öreigunum er
Ríkisstjórnin steinsofandi. Fólkið er hundsað og Framtíðin er í djúpum
skít...












Hann Simmi minn er búinn að sækja grillið og er að koma því fyrir og það stendur til að grilla á svölunum á eftir. Nammi namm....
Það er ríkjandi spennufall í dag. Við drifum okkur heim í Þolló eftir að hafa skenkt íbúum Mosfellsbæjar nokkrum bjórum. Það var kosningapartý á Reykjabrautinni og þar sátum við fram undir morgun. Spennan gífurleg en samt er ekki kominn lokapunktur finnst mér. Hvernig stjórn verður mynduð? Það er stóra spurningin.

laugardagur, 10. maí 2003

Við, hjónakornin, kusum klukkan 10 í morgun á leiðinni í Mosó. Þó að við séum búin að búa saman í meira en 30 ár þá er ég mest hrædd um það að við krossum ekki við sama bókstafinn í kosningum. Það er sama hvað ég predika yfir honum, hann getur ekki kosið annað en ,,flokkinn sinn" þegar í kjörklefann er komið.
Við verðum með opið í Króniku fram eftir kvöldi. Hér verður kosningavaka. Það er búið að undirbúa kvöldið með stóru tjaldi og skjávarpa frammi á torgi. Hér öðru megin við okkur er kosningaskrifstofa D-listans og hinum megin er S-listinn. B- listinn er svo í húsinu við hliðina. Við vonumst eftir sem flestum og að allir kaupi bjór!!!!

miðvikudagur, 7. maí 2003

Ég segi já alveg hiklaust þegar ég er beðin um að prófarkalesa lokaritgerðir úr háskólum og kemst svo að því að ég kann ekki íslensku nógu vel til að taka svona verkefni að mér. Var að ljúka við að lesa eina áðan úr iðjuþjálfaradeild Háskólans á Akureyri. Flott ritgerð; vona bara að ég hafi ekki skemmt neitt.

þriðjudagur, 6. maí 2003

Ég ætla að skrópa á kóræfingu í kvöld að draga hana Öldu Björg vinkonu mína á konukvöld hjá Samfylkingunni á Selfossi. Samfylkingin kemur svo illa orðið út úr skoðanakönnunum að mér finnst ég verða að gera eitthvað og þetta er það eina sem mér dettur í hug. Er þetta ekki liður í að sýna samstöðu? Það hlýtur að vera.

mánudagur, 5. maí 2003

Þrátt fyrir að Karlotta sé aðeins þriggja mánaðar fóstur, þá pælir mamma hennar svo mikið í móðurhlutverkinu að hún hlýtur að verða best upp alda barnið á jörðinni eða mamma hennar besta mamma í heimi. Það er mikil ábyrgð sem fylgir því að verða foreldri og kannski aldrei of mikið pælt í þessu. Þegar mín börn voru lítil þá ætlaði ég nú að ala þau upp fagmannlega og eignaðist bók eftir hinn fræga dr. Benjanín Spock. Mér fannst samt alltaf ómögulegt að fylgja einhverjum fyrirfram ákveðnum reglum um uppeldið, ég var meira fylgjandi því að vera góð fyrirmynd og hafa ekki boð og bönn. Enda reif sonur minn kaflann um tveggja ára barnið úr bókinni rétt áður en hann varð tveggja ára svo ekki gat ég farið eftir honum. Kannski er Kalli eins og hann er í dag af því það vantar tveggja ára uppeldið í hann! Ég hef nú alltaf sagt svona í gamni af því að ég mátti ekkert vera að því að ala upp börn fyrir kennslunni þá séu börnin min best sjálfuppöldu börnin sem ég þekki.
Ég var líka dálítill hippi í mér, enda af þeirri kynslóðinni. En ég gerði dóttur minni ekkert gott þegar ég leyfði henni að ráða hvenær hún kæmi inn á kvöldin.Ég hélt að hún hefði gott af því að taka ábyrgð á þessu sjálf. En þetta var allt of mikil ábyrgð lögð á hennar herðar og henni leið illa að hafa ekki ákveðnar reglur og aga eins og vinkonurnar. Hún skyldi það að það væri hneykslanlegt að barnið fengi að ráða þessu og laug því að vinkonunum að ég hefði sagt til um ákveðinn útivistartíma en þetta sgaði hún mér ekki fyrr en mörgum árum síðar. Þetta er sem sagt ekki dans á rósum þetta uppeldi.

sunnudagur, 4. maí 2003

Það rættist úr ballinu hjá okkur í Söngfélaginu fyrir rest. Við vorum nú orðin dálítið áhyggjufull um miðnættið, þetta virtist ætla að verða fámennt en auðvitað góðmennt en það virðist vera viðtekin regla hjá landanum að mæta seint á svona samkundur. Hljómsveitin Hjálparsveitin var þrusugóð að mínu áliti en maðurinn sem ég sef hjá segir að hún hafi spilað 3 lög, bara aftur og aftur allt kvöldið. Ég hlusta bara ekki á hann, það er oft gott ráð.
Við bjuggumst við eins balli og í fyrra en auðvitað er sami leikur aldrei endurtekinn. Í fyrra var þetta fyrsta ballið í Versölum og þá mættu allir. Ekkert kynslóðabil. Og ég veit um nokkra sem komu þá eingöngu til að styrkja okkur til Ítalíufrarinnar. Núna var það aðallega fólk í eldri kantinum þó það mætti sjá einn og einn af yngri kynslóðinni. Ég vann á barnum í nokkrar mínútur og það var dálítið einkennilegt að afgreiða gamla nemendur um tvöfaldan Captain Morgan í kók. Svona er lífið.

föstudagur, 2. maí 2003

Árum, jafnvel áratugum saman, hef ég farið í fýlu einu sinni í mánuði. Það er þegar ég fæ launaseðilinn minn. En annað var upp á teningnum í morgun, ég brosti af gleði. Fékk aukasporslu sem ég var búin að gleyma. Þetta þýðir bara eitt, ég er berdreyminn manneskja. Kúkur þýðir aur.
Samræmda prófið í íslensku var í morgun hjá 10. bekk. Mér leist þokkalega á það. Ekki mikið um svínarí eins og hefur komið fyrir. Þó var ein spurning sem ég er ekki enn búin að svara. Spurning úr texta. Ég er enn að velta svarinu fyrir mér. En ég skil ekki af hverju þarf að eyða mörgum spurningum um sama efni eins og spurningarnar um orðflokkana í þessu prófi. Einnig voru tvær spurningar, mjög svipaðar um aðalsetningar og aukasetningar en ekkert spurt um bragfræði eða myndmál, eins og ég eyddi miklum tíma í þann þátt. Reyndar var ein svínaríisspurning. Spurt var hvað orðið sínkur merkir. Hvernig í ósköpunum eiga blessuð börnin að þekkja þetta orð? Ég veit um einn texta þar sem orðið kemur fyrir og það er í eldgamalli stafsetningarbók sem allir eru löngu hættir að nota.

þriðjudagur, 29. apríl 2003

Ég hef alltaf litið á drauma og draumaráðningar sem sæmilega skemmtilegt umræðuefni en ég trúi ekki á drauma, að fólk sé berdreymið eða dreymi fyrir daglátum. Það er eitthvað sem samræmist ekki lífinu á 21. öldinni að tala um undirmeðvitund, drauma og að finna eitthvað á sér. Það þyrfti alla vega að sanna þetta fyrir mér með óyggjandi hætti ef ég ætti að trúa. Þess vegna tel ég það algjöra tilviljun að þegar mig dreymdi að einn samstarfsmaður minn faðmaði mig að sér þá gerðist það nákvæmlega eins þegar ég mætti til vinnu og einnig er það tilviljun að þegar mig dreymi Guðna Ágústsson, að gefa mér góð ráð fyrir sparnaði, þá hann kom á kennarastofuna daginn eftir og talað meðal annrs um að fólk ætti erfitt í dag með að spara. Ég er a.m.k. mjög ánægð með að draumurinn sem mig dreymdi í nótt kom ekki fram í morgun í vinnunni eins og hann var í raun þ.e. ég að gera stykki mín í litla fötu í herbergi að stöddum nokkrum mönnum og konum.....

mánudagur, 28. apríl 2003

Ég er hálf slorpíkuleg í dag eftir djamm helgarinnar. Hef ekki orku í þetta lengur. Þarf að fara snemma að sofa til að halda fullri starfsorku. Þetta var nú ekkert venjulegt heldur. Grillpartý á miðvikudag, útskriftarpartý á fimmtudag, saumó á föstudag og söngfélagspartý á laugardag. Allt rosalega skemmtilegt það vantar ekki en fyrir konu á sextugsaldri er þetta einum of. Hefði viljað slaka á næstu helgar en það eru engin grið gefin, næstu helgar eru bókaðar en sem betur fer hafa þær ekki allar fjögurra daga frí.

laugardagur, 26. apríl 2003

Ég var þæg og góð og gegndi því að vera í bíógallanum, með aur í vasanum klukkan 19:30 í gærkvöldi. Ég var sótt heim og saumaklúbbnum smalað saman og rennt á Eyrarbakka í Rauða húsið. Þar var haldinn fundur um vorferð sem við höfum ekki farið í mjög reglulega. Líklega eru hátt í tuttugu ár síðan síðast svo það var kominn timi til að gera eitthvað í málinu. Til stendur að dvelja hjá Dúnu og Alla á Hestakránni eina helgi í maí og njóta þess sem þau geta boðið upp á. Og nú fá karlarnir okkar að koma með. Siðan fengum við okkur gott að borða og drekka og höfðum það næs.......
Þá er Gvendur í Götu genginn á vit feðranna. Við sungum við jarðarförina úti í Selvogi í dag.

föstudagur, 25. apríl 2003

Góða veðrið togaði í mig og ég fór út. Átti erindi á pósthúsið og í Rás en kom við í verBÚÐINNI og fékk mér kaffið hennar Hörpu. Það er frábær hugmynd hjá henni að hafa kaffihús og fiskbúð á sama stað. Það verður varla íslenskara. Mig dreymir um að Café Krónika verði bókakaffihús. Ég er búin að koma fyrir nokkrum bókum en ég er ekki nógu oft að flækjast þarna til stjórna honum Simma mínum. Ég er búin að segja honum að setja upp fleiri bókahillur en hann gegnir mér ekki svo skrýtið sem það nú er. Það hefur dottið inn fólk sem greinilega hefur verið að læra og lesa og vinna á fartölvur. Það er vonandi byrjunin.
Ég hálfvorkenni þessum pólítíkusum um þessar mundir. Mér finnst það vera niðurlægjandi fyrir þá að heimsækja vinnustaði og tala fyrir daufum eyrum fólks og jafnvel finna fyrir pirringi af því þeir eru að trufla fólk í kaffitímum. Ég vildi ekki þurfa að ganga á milli fólks og biðja það um að styðja mig til þess að ég héldi vinnunni minni. Samfylkingin kom á kennarastofuna um daginn og í morgun kom Kristján Pétursson. Fólk nennir ekki einu sinni að spyrja neins, því er alveg sama. Ég er algerlega á móti svona sérframboðum eins og Kristján er með. Tveggja flokka kerfi væri alveg nóg fyrir okkur.
Nú er upprunninn tími partýa og óvissuferða. Það var grillpartý hjá skólastjórahjónunum á síðasta vetrardag, saumaklúbbsóvissuferð í kvöld og söngfélagspartý á laugardagskvöld. Söngfélagsball, sem við sjáum um sjálf, þann 2. maí og ég er búin að skrá mig í óvissuferð með kennaraliðinu þann 9. maí. Og þá er fátt eitt upp talið. Mér finnast óvissuferðir frekar óheppilegar, ég er alltaf í vandræðum með fatnað, þó svo að eitthvað sé útgefið hvað hann varðar. Í kvöld á ég að vera tilbúin heima hjá mér klukkan 19:30 í bíógallanum með aur í vasanum. Ég gæti hæglega klúðrarð þessu. En í óvissuferð kennaranna á að hafa vaðstígvél meðferðis, sundföt og hlý föt. Verðlaun verða veitt fyrir asnalegasta jakkann. Nú get ég ekki hugsað um annað en þennan jakka. Mér datt í hug í morgun að taka traustataki jakka sem hangir alltaf hjá yfirhöfnum kennranna og er stundum notaður sem leikmunur en það er löggujakki. Gæti verið móðgandi fyrir einhverja og ég vil aldrei móðga neinn. Ég verð að hugsa upp einhvern annan jakka.
Ég prófaði eitt af þessum furðulegu prófum sem tröllríða netheimum og þetta er útkoman.
Jæja, útkoman var að ég væri hnetusmjör og síðan mín þoldi ekki álagið.
Ég veit þá að héreftir tek ég ekki nein svona próf. Mér er nú líka sléttsama.

miðvikudagur, 23. apríl 2003

Ég varð að taka á mig krók heim úr skólanum í dag því ég á enga grillsteik heima. Labbaði í stafalogni og næstum því hitasvækju í kaupfélagið, sem heitir núna 11-11 og breytist von bráðar í Krónu, og smellti mér á lambasteik. Þar sem til stendur að kennararnir grilli hjá skólastjóranum í kvöld lætur maður ekki sjá sig nema með lambakjöt, annað væri helgispjöll á hans heimili. Ég er ekki komin í grillstuð enn þá þannig að ég keypti ekki grillkartöflur, grillgrænmeti, grillolíu, grillþetta og grillhitt ég keypti bara kartöflusalat sem meðlæti, afskaplega ófrumlegt. Ég keypti heldur ekki grillbakka, makkarónukökur, marssúkkulaði, jarðarber og bláber í eftirrétt heldur súkkulaði -jógúrt- hnetur og ávexti sem á ekki að grilla heldur bara hella í skál og úða í sig. Ég hlýt að fá grillstemmninguna í mig eftir kvöldið í kvöld. Svo á ég eina hvítvín sem ég sting í pokann líka og hvolfi væntanlega í mig. Ummm... hvað ég hlakka til.

mánudagur, 21. apríl 2003

Svo er það hið árlega páskakaffi hjá mömmu og pabba. En aumingja Simmi kemst ekki fyrr en leikurinn er búinn.
Heilagleiki páskanna var meðtekinn í tveimur messum í gær. Fyrst var messað í Þorlákskirkju, fyrir hádegi og síðan í Strandarkirkju. Ég var búin að fá frí frá söng þessa helgi. Við hjónakornin ætluðum að vera á Austurlandi, búa í íbúð Svövu Ránar og keyra svo á Fáskrúðsfjörð og athuga hvernig nýja skólastjóranum þar reiðir af og svo ætluðum við auðvitað á Reyðarfjörð að rifja upp þrjú ár sem við áttum þar og heimsækja skólastjórahjónin. En af þessari ferð varð ekki af því að hann Simmi minn rekur fyrirtæki sem þarf að sinna. Það varð sem sagt að hafa opið í Króniku á laugardaginn. Sjálfstæðismenn í mosó voru með hið árlega páskabingó á torginu og það hefði vrið fáranlegt að hafa lokað í kaffihúsinu á staðnum. Við riðum nú ekki feitum hesti frá þessum degi en borgaði sig samt.
Fyrst ég var heima þá fór ég auðvitað og söng með kórnum mínum. Það er mín slökun og félagsskapurinn skemmtilegur. Nú svo hitti ég Guðrúnu Eggerts í messu og hún kom með mér heim og þáði hádegismat hjá hjá okkur. Það var gaman að eiga við hana spjall, við hittumst allt of sjaldan.

laugardagur, 19. apríl 2003

Við Simmi minn hringdum tvö símtöl til útlanda í gærkvöldi. Fyrst töluðum við við Jones kærustuparið í Wrexham í Wales. Það er allt í þessu fína með þau, bara ástfangin og sæl með lífið og tilveruna. Voru búin að vera tvo daga í sumarhúsi foreldra Dave þar sem þau voru í 22 stiga hita. Svava Rán sólbrann en Dave varð dökkbrúnn og enn sætari fyrir vikið að sögn hennar. Hún segir að hann megi ekki hugsa um sól þá verði hann brúnn.
Við hringdum svo til Iowa City USA og þar svaraði höfðinginn Karl Kolbeinn og sagði að mamma sín og pabbi hefðu farið fyrir svona tíu mínútum ti Chicago og ætluðu að hitta þar einhverja Íslendinga. Hann var heima og Tim vinur hans hjá honum en átti von á barnapíu rétt bráðum. Það rigndi en snjóaði hagléli öðru hverju á stærð við "golfballs" að sögn Kolbeins.

föstudagur, 18. apríl 2003

Við vorum að koma úr bíltúr með Jónu Stínu og Finna. Við keyrðum um yndislegastu sveit landsins, Flóann. Það er svo gott að vera staddur í Bæjarhreppnum og horfa yfir fjalllaust landið og sjá þar sem haf og himinn mætast. Við byrjuðum á Eyrarbakka og Stokkseyri, þá tekur Bæjarhreppurinn við og síðan Villingaholtshreppurinn og við beygðum Urriðafossafleggjarann og sáum hið nýja brúarstæði fyrir Þjórsárbrú. Skoðuðum aðeins ný hverfi á Selfossi og undruðumst uppbygginguna þar en enduðum í ís í Eden, rétt eins og í gamla daga.
Í hádeginu hjálpuðum við Grétu og Gunnari að borða afganga úr fermingarveislu Kolbrúnar. Þrátt fyrir 70 manna veislu í gær var nóg til handa stórfjölskyldunni í dag.
Ég hef stundum kvartað við hann Simma minn yfir því að það sé bara ekki hægt að rífast við hann eða fá hann til að ræða út um ýmis málefni sem mér finnst þurfa að útkljá. Þetta getur gert mér ansi gramt í geði. Hann hefur alltaf haldi því fram að það sé betra að þegja en að segja einhverja vitleysu. Hann hrósaði líka sigri þegar hann las málháttinn sem hann fékk í páskaegginu sem ég gaf honum og hann stalst til þess að borða á skírdagskvöld. Málhátturinn hljóðar svona: Þögn er viskutákn en mælgi heimsku mark.

fimmtudagur, 17. apríl 2003

Hann sonur minn sendi mér þetta ljóð og ég hugsaði um leið:" Mikið rosalega er strákurinn minn góður, hann jafnast á við bestu ljóðskáld sem Ísland hefur alið." En ég misskildi sendinguna auðvitað, hann var bara að segja mér hversu góður Steinn Steinar var og hversu vel valin orð standa tímans tönn.

Nú baðar jörð í blóði,
og barist er af móði,
og þessu litla ljóði
mun lítil áheyrn veitt.
Og þótt ég eitthvað yrki
um Englendinga og Tyrki,
má telja víst það virki
sem verra en ekki neitt.

Ég ligg hér einn og lúinn,
úr lífsins harki flúinn,
og vilja og vopnum rúinn
á vinsamlegum stað.
Manns hug ei hátt skal flíka,
ég hefi barist líka
og átt við ofraun slíka.
En ekki meira um það.

Vort líf er mikil mæða
og margt vill sárið blæða,
og knappt til fæðu og klæða
er kannske nú sem þá.
En samt skal sorgum rýma,
þótt sækist hægt vor glíma,
því eflaust einhverntíma
mun einhver sigri ná.

Og berjist þeir og berjist
og brotni sundur og merjist,
og hasli völl og verjist
í vopnabraki og gný.
Þótt borgir standi í báli
og beitt sé eitri og stáli,
þá skiptir mestu máli
að maður græði á því.


Steinn Steinarr
1908-1958


Hefði þetta getað verið samið í gær?
--

Karl Æ. Karlsson
Department of Psychology
Behavioral and Cognitive Neuroscience
E-415 Seashore Hall
Iowa City, IA 52242
Home Tel: +(319) 338-9318
Lab Tel: +(319) 335-3975
e-mail: karl-karlsson@uiowa.edu
Ég er ekki gerð fyrir það að vinna á veitingastað. Ég get ekki selt hluti sem ég bý til sjálf eða hann Simmi minn og ég get ekki rukkað fólk sem gleymir að borga og ég verð svo þreytt í fótunum á "plammpinu" (skyldi þetta vera gott og gilt íslenskt orð?) fram og til baka að ég er alveg að niðurlotum komin eftir smá stund. Sem betur fer er komið að stuttu fríi.

þriðjudagur, 15. apríl 2003

Hún er kölluð Karlotta. Fallegt nafn. Ég heyrði hennar fyrst getið fyrir nokkrum vikum. Það var hringt í mig og ég spurð hvort ég vildi hitta hana í október. Ég varð svo glöð að ég fór að gráta. Ég held að ég hafi haldið að ég myndi aldrei hitta hana. Það er reyndar ástæða fyrir því. En það er komið í ljós að hennar er von og ég hlakka alveg rosalega mikið til.

mánudagur, 14. apríl 2003

Í dag hófst páskafrí hjá mér sem kennari. Það er ósköp ljúft og ég segi nú alltaf, þegar fólk segir :"Bara komin í frí, ha?" að það séu forréttindi að fá að vera kennari. Þá nennir fólk ekki að tala meira um þetta, finnur líklega að ég er í kennslu af eintómri hugsjón en ekki vegna löngu fríanna sem ég fæ alltaf öðru hverju. Ég fór á sama tíma á fætur og venjulega en ekki til að fara í skólann heldur í Mosó að reyna að hjálpa til við störfin á Króniku. Það er ótrúlega erfitt að detta svona inn dag og dag og eiga að finna á sér hvað á að gera næst. Það gleymist ýmislegt sem kokkurinn heldur að ég finni á mér að eigi að gera. Og svo fæ ég skammir en þær fara nú bara inn um annað og út um hitt. Enda sé ég ekki hann Simma minn fara upp í skóla og redda einum íslenskutíma bara rétt si svona. Ég sé hann ekki fyrir mér kenna um viðtengingarhátt sagna eða undirflokka fornafna.

sunnudagur, 13. apríl 2003

Söngurinn hefur hljóðnað og fermingarveislan afstaðin. Ég skaust í Mosó til að hjálpa til við frágang. Hugsa með sér, hann Simmi minn var með fermingarveislu í dag. Ég bara spyr, hvar var hann eiginlega þegar börnin okkar fermdust? Af hverju eldaði hann ekki matinn þá? Ef ég man rétt keyptum við dýrum dómum kokka og fínerí til að hafa allt sem flottast. Mig grunaði bara ekki það, og sjálfsagt ekki hann heldur, að hann gæti kokkað, hvað þá séð um veislu. Ég er búin að vera gift þessum manni í 31 ár og kysst hann í 35 ár og er enn að kynnast honum. Þvílíkt og annað eins. Hvenær tekur þetta enda? Ég held ég vilji engan enda það er alltaf jafn spennadi að hitta hann að loknum vinnudegi, jafnvel eftir öll þessi ár, hversu súr og sæt sem þau hafa verið.
Pálmasunnudagur runninn upp bjartur og fagur. Simmi minn er farinn í Mosó að sjá um fermingarveislu. Ég þarf að vera hérna heima til þess að syngja við fermingarmessu í Þorlákskirkju. Hann hefði nú heldur viljað hafa mig með en svona er lífið. Mér finnst það líka ágætis afsökun að þurfa að syngja við messu því ég á mjög erfitt með að sjá um mat og þjónusta fólk. Það vantar í mig þann þáttinnn. Ég verð svo stressuð að ég fæ andarteppu. Ég er hrædd um að það sé of lítill matur, hann sé vondur, illa fram borinn og allt sé ómögulegt. Ég er þokkaleg í skúringum og uppvaski en ekki þó nema rétt þokkaleg. Ég er ómöguleg í afgreiðslu. Ég gaf fólki í gær kökusneiðar með kaffinu af því mér fannst kökurnar ljótar og ekki hægt að selja þær. Þar tapaði Snör ehf.

laugardagur, 12. apríl 2003

Dagurinn var tekinn snemma. Það þurfti að koma Dúllu Jones á Leifstöð, í veg fyrir flug eins og Reyðfirðingar segja. Þegar við mættum þar, með klukkutíma fyrirvara, leist okkur ekki á blikuna. Leifstöð var eins og hin fræga stappaða síldartunna nema hvað það flæddi út úr henni. Ég giska á að um 100 farþegar hafi verið í biðröð fyrir utan hús, komust hreinlega ekki inn. Við sáum að Dúlla næði aldrei á tilskildum tíma í innritun. En það kom tilkynning, í hátalarakerfinu, að allir á leið til London hefðu forgang og hinir farþegarnir ættu að hliðra til. Síðast þegar ég heyrði í henni var hún að hlaupa að hliði 32. Á þessari stundu, klukkan 10:50, ættu þau skötuhjú, Dúlla og Dave Jones að vara að hittast á Heathrov (andsk...ég kann ekki að skrifa híþró). Þarf að fletta því upp.

fimmtudagur, 10. apríl 2003

Ráðgátan, um hvort Íslensk málnefnd væri virkilelga hætt að reyna að uppræta þágufallssýki, er leyst. Magnþóra kom með úrklippu úr DV handa mér þar sem Silja Aðalsteinsdóttir er að fjalla um besta aprílgabbið. Þetta með þágufallssýkina var aprílgabb í málfarsmínútu Spegilsins. Ég fer alltaf í dálitla fýlu þegar fólk er með aprílgabb þar sem ekkert þarf að "hlaupa", ég er á móti svona asnalegu gabbi, en það má segja að ég hafi "hlaupið" núna því ég eyddi löngum tíma við tölvuna í gær að lesa heimasíðu Íslenskrar málnefndar þar sem ég leitaði dyrum og dyngjum að einhverri umfjöllun um þágufallssýki en fann ekkert. Sem von er. Við ætlum að berjast aðeins lengur við þessa meintu sýki en ég spái því að komandi kynslóðir eigi eftir að slaka á kröfunum um notkun ópersónulegra sagna.

þriðjudagur, 8. apríl 2003

Heyrði því fleygt að Íslensk málnefnd væri hætt að skipta sér af þágufallssýki. Mig bráðvantar nánari fréttir af þessu.
Pöntunarþjónustan kemur með kjöt í karrí í kvöld. Ég mun anga af indversku kryddi í skólanum í kvöld en til stendur að breyta okkur Ástu í sminkur. 10. bekkur ætlar að uppfæra hið vinsæla leikrit Síldin kemur, síldin fer. Ég sá generalprufu í gær og krakkarnir standa sig með prýði. Hlakka til að sjá þetta aftur.
Við, stelpurnar í saumaklúbbnum, náðum að kjafta saman til klukkan rúmlega eitt í nótt. Aldrei slíku vant. Við gleymdum okkur bara alveg yfir einhverju skemmtilegu fánýti. Til þess er leikurinn gerður. Ég hef líka fengið að finna fyrir því í dag, dauðsyfjuð, því venjulega sef ég tvo til tvo og hálfan tíma fyrir miðnætti.

mánudagur, 7. apríl 2003

Pöntunarþjónustan er búin að hringja. Nú fékk ég að velja á milli spaghettí bolognese eða plokkara. Ég valdi plokkarann vegna umræðna í síðustu viku (eða var það þar áður) um þverrandi fiskát Íslendinga. Ég mun bæta aðeins úr því í kvöld. Ég mun væntanlega seðja sætabrauðshungur mitt síðar í kvöld en það er saumaklúbbur hjá Svanhildi. Það verður ljúft að slaka á með stelpunum.

sunnudagur, 6. apríl 2003

Talaði við Kalla í gærkvöldi. Það er allt gott að frétta í Ameríku, þannig lagað, gott veður og allir hraustir. Kolbeinn er farinn að sýna gelgjustæla, ekki orðinn tíu ára gæinn. Hann skammast sín stundum fyrir foreldra sína. Hefur beðið Elsu að klæða sig eins og hinar mömmurnar eru klæddar. En eins og allir vita, sem þekkja Elsu, færi hún aldrei út úr húsi í gallabuxum, strigaskóm og í bol með áletruninni IOWA. Ég benti Kalla á hvað hann og Svava Rán hefðu haft það gott að þurfa aldrei að skammast sín fyrir okkur, gamla settið hans. Kalli kímdi og spurði mig hvort ég myndi ekki eftir því þegar hann og Svava Rán kúrðu ofan í aftursætið á bílnum, áleið út úr þorpinu, því þau skömmuðust sín svo rosalega fyrir okkur að það mátti enginn af þeirra vinum sjá þau með okkur. Minni mitt náði nú ekki svona langt að kannast við þetta en spurði hverju sætti. Jú, pabbi var með bólur á enninu og kenndi síðum hártoppi um. Til þess að losna við bólurnar tók hann toppinn frá með grænni spennu. Hvernig áttu þau að lifa með þessum hryllingi?

laugardagur, 5. apríl 2003

Ég finn fyrir sorg þegar ég sest fyrir framan tölvuna mína og opna síðuna mína. Mér verður hugsað til þeirra sem hafa hætt að skrifa um hugðarefni sín á netið vegna ömurlegra umsagna sem þeir fá um skoðanir þeirra á lífinu og tilverunni. Mér finnst þetta svo skemmtilegur vettvangur til þess að skrifa um allt og ekkert og hefur liðið vel með það hingað til. Veit ekki hvert framhaldið verður. Ég hef reynt að innræta þá hugsun hjá nemendum mínum að virða skoðanir annarra en láta samt sína skoðun í ljós þó þeir séu ekki á sama máli en gera það kurteislega þannig að viðmælandinn verði ekki sár og móðgaður. Það að kunna samræðulist er lífsnauðsyn en það þarf þetta til, að virða það þó allir hafi ekki sömu skoðanir. Margt fullorðið fólk virðist gleyma allri kurteisi þegar það les skoðanir annarra og lætur allt flakka án þess að hugsa hvort það særi og meiði. Kurteisi kostar ekkert.
Ég tók próf um það hversu góð íslenskumanneskja ég væri hjá Eddu og útkoman er vægast sagt ömurleg. Ég fékk 5 stig af 20 mögulegum og umsögnin var þessi:
Do you speak icelandic? Þetta gekk kannski ekki alveg nógu vel en æðrastu ekki, íslenskan er svo ótrúlega orðrík að lengi væri hægt að tala með orðum sem enginn venjulegur Íslendingur hefði heyrt. En það er alltaf hægt að auðga mál sitt með lestri góðra bóka - og hjá Eddu eigum við nóg af þeim á sanngjörnu verði!
Á ég ekki bara að segja upp og finna mér aðra vinnu?

föstudagur, 4. apríl 2003

Kötturinn Ferguson hvarf að heiman fyrir rúmri viku. Hann stökk ofan af svölunum hjá Svövu Rán og kom ekki aftur eins og hann var vanur. Svava Rán er búin að vera ómöguleg yfir þessu. Það er búið að leita um allan Hornafjörð en enginn hefur séð köttinn. Viti menn- hann birtist í gærkvöldi fyrir neðan svalirnar og mjálmaði hátt og bauð sjálfan sig velkominn heim. Mikil varð gleði Svövu Ránar. Hún skilur ekkert í því af hverju kötturinn fór svona illa að ráði sínu eins og hún er góð við hann en málið er að hann er jú fress, ógeldur og þarf sitt.
Var ekki föstudagur í gær? Nei, það er föstudagur í dag. Er alltaf föstudagur? Nei, ég bara spyr, því ég skil ekki hvert tíminn fer.Einhver gáfaður maður sagði að tíminn væri afstæður. Ég verð að taka þátt í því.
Ég var á Enjokynninigu hjá Magnþóru í gærkvöldi og nú finnst mér allt svo ógeðslega skítugt hjá mér, því ég hef aldrei þrifið með Enjo. Og verra er að ég á ekkert Enjodót þannig að ég verð að hanga innan um drulluna og ógeðið heima hjá mér. Ég ætla að reyna að þrífa upp á gamla móðinn en það verður bara til að sýnast þangað til ég hef efni á að kaupa Enjo. Þar til - ryk, drulla og skítur.

fimmtudagur, 3. apríl 2003

Ég varð svo spennt í gær þegar Elsa hringdi og sagði að það væri hægt að fá flug núna frá Minneappolis fyrir 20 þúsund. Hún var að pæla í að senda Kolbein strax, þó skólinn væri ekki búinn, til að spara pening. Við höfum hingað til borgað hátt í 100 þúsund fyrir hann. Mér fannst hugmyndin hennar góð og fór strax að skipuleggja í huganum nýja uppröðun húsgagna svo færi vel um pilt hjá mér og talaði við Halldór í morgun um það hvort Kolbeinn mætti ekki koma í skólann þó stutt sé eftir af kennslu. Auðvitað var það velkomið. Þá eru þeir feðgar ekki eins hrifnir af hugmyndinni. Ég hringi í kvöld til að heyra betur í þeim.